Ég veit nú ekki ... hvað skal segja. Ég er sannarlega á því að mótmæli séu af hinu góða og nauðsynleg stundum vegna ýmissa mála, en ég er alls ekki á því að mótmæli eigi að fara fram með eggjakasti og lögbrotum.
Mig langaði mikið til að fara á laugardagsmótmælin og sýna samstöðu - láta sjá mig og verða til þess að hækka höfðatöluna á fjölda mótmælenda - sem mér finnst skipta miklu meira máli en eitthvað eggjakast eða ólæti - það er fjöldinn sem hefur áhrif - ekki lætin eða eggin!
En því miður var ég að vinna allan laugardaginn ...
Ég verð að viðurkenna að ég er ekki hrifinn af því þegar einhverjir unglingar og eða fullorðnir koma á mótmælastaðinn til þess eins að "vera með læti" eða æsing sem mér finnst ekki eiga heima í góðum vel heppnuðum mótmælum.
Því miður eru alltaf einhverjir sauðir sem koma á svona mótmæli, eða uppákomur sem slíkar - bara til þess að vera með slík læti, æsa fólk upp og brjóta siðferðisreglur eða lög. Þeir sem mæta með slíkt í huga hafa ekkert með mótmælin sjálf að gera, eru ekki komnir til að mótmæla því sem á að mótmæla - eru bara þangað komnir til að sýna sig, æsa lýðinn og vera með læti sem skaða frekar mótmælin heldur en að hjálpa til.
Þetta er eins og þegar slagsmál verða í miðbænum að nóttu á heljar fylleríi - þegar tveir byrja að slást - þá safnast hópurinn í kringum þá með hrópum og köllum .. "áfram, slagsmál, kýldann, stingdann, sparkaðu í hausinn á honum!" og svo framvegis! Þessi söfnuður sem safnast í kringum slagsmálin - hafa engan áhuga á slagsmálunum sem slíkum eða afhverju þau eru - þeir hafa bara áhuga á að sjá sem mest læti, mikið ofbeldi og helst blóð renna ...
Sama má segja að nokkru leiti um þá sem mæta á mótmælafundi - bara til að skapa læti, vera með ófrið og hamagang - eingöngu til að fá útrás fyrir eigin undarlegu þörf á því að sjá eða upplifa eitthvað spennandi, einhver læti eða helst slagsmál á milli fullorðinna ...
Mótmæli þarf að skipuleggja mun betur - ekki stjórna þeim sem slíkt en taka á því að lög séu ekki brotin eða að kjánaskapur komi uppá yfirborðið - því slíkt fær mann til að skammast sín og ákveða að mæta ekki þegar næstu mótmæli verða ... Það þarf að hvetja fólk til að mæta til að sýna háa höfðatölu en ekki til að kasta eggjum eða sletta skyri!
En, hvað veit ég ... ég hef svo sem aldrei mætt á mótmæli ...
Ég tek samt heilshugar undir með "Skessunni okkar" í sambandi við það að fólk þarf samt að vakna upp og átta sig á því að framundan eru virkilega svartir tímar með vímuefnavandamálum, sársvöngum fjölskyldum, eggjakasti og meiri óeirðum sem gera meira ógagn en gagn ...
Ég vil endilega hvetja fólk til að mæta á mótmælafundi, sýna ákveðna stillingu og brjóta ekki lög. Hvet fólk til að sýna líka umheiminum, sem sannarlega fylgist vel með - að við erum ekki fávísir eskimóar (með fullri virðingu þó fyrir eskimóum) sem kunna ekki að mótmæla friðsamlega en samt kröftugt svo eftir sé tekið - með svo miklum fjölda höfða að það verður ekki hægt að horfa framhjá því!
Það er nóg komið af slæmsku í umfjöllun um okkur á erlendum vettvangi - þó við bætum ekki við það sjálf með því að stunda óeirðir á mótmælafundum sem eiga að geta gengið kröftuglega án vandamála sem fáir einstaklingar vaða uppi með - eingöngu til að fá útrás fyrir eigin slagsmálaþörf...
Annars er ég mjög góður og glaður ...
Búið að vera nóg að gera og sannarlega ekki mikil kreppa í veisluhöldum. En, giftingar og afmæli - ásamt ýmsum uppákomum - munu halda áfram að hoppa uppá yfirborðið með góðgæti og gúmmilaði.
En, tölvan mín ... búhúhúhú ... fæana ekki á næstunni og ég er auðvitað ekki par sáttur, en hvað get ég gert? Farið og kastað eggjum í Tölvulistann ... hmmmm!
Farinn í Bónus til að versla ... vantar egg!
Neinei, er bara að fara að baka sko ...
Kanelsnúða ...
Kveðja og knús á línuna alla, reyni að láta heyra í mér þó hægfara lappinn sé ekki að bjóða mikið uppá slíkt, enda tekur það hann óratíma að opna hverja síðu fyrir sig .. en .. over and út!
8.11.2008 | 10:14
Hvað þarf til - til að þetta spillingalið hverfi í buskann? Ert þú að fara á mótmæladeit í dag? Burt með spillingaliðið, sama hvar í flokki það er!
Já, góðan daginn! Mahrrr á bara ekki orð til, eða þannig. Ekki það að ég sé orðinn "orðþrota" - nei - bara er hissa - held ég - eða - maður er að vísu að verða svo sjóaður í því að heyra og lesa undarlegar sögur og fréttir að líklega er ég ekkert hissa eftir allt ..
Ákveðnir fyrrum yfirmenn bankanna draga til baka "ábyrgða-aflausnir" sínar og ætla að axla ábyrgð after all. Þeir vonast til að sú aðgerð skapi frið og ró í kringum bankana í kjölfarið. Bíddu nú við .. ef það hefði ekki komist uppum þá - hvað þá?
Óhmæ, vér aumur lýðurinn verðum nú að fara að hætta mótmælastandi fyrst þessir karlar/konur ætla sér að taka á sig ábyrgð á eigin samkurli og eigin vandamálum - í stað þess að velta þeim yfir á okkur landslýð.
Auðvitað skapar þessi ákvörðun enga ró og engan frið - ekki mun nást ró og friður fyrr en þeir sem ætluðu sér að komast upp með þetta - eru farnir með pokann sinn. Því hvet ég ykkur til að nýta ykkur slagorðin hennar Ólínu Þorvarðardóttur áfram - allt þar til spillingarliðið er horfið á braut.
Burt með spillingarliðið, sama hvar í flokki það stendur!
Ef ég væri ekki að vinna í allan dag og fram á kvöld, þá myndi ég mæta harður .. nei ekki þannig harður .. en harður samt - í mótmælin sem fara fram í dag í miðbænum, klukkan 15:00 held ég að sé rétt.
En, maður verður víst að forgangsraða - sumt er ekki hægt að leggja til hliðar því veislur bíða ekki á meðan maður tekur þátt í því að koma þessum siðspilltu einstaklingum frá svo raunverulegur friður geti myndast og eðlileg vinnubrögð geti tekið við. Ég hvet alla sem vettlingi geta valdið til að mæta þarna í bæinn - og láta heyra hátt í sér!
Nú, tölvuna mína fékk ég ekki í gær - of margir sem koma með tölvurnar sínar og setja þær í "forgang" með því að borga fimmþúsundkallinn sem ég eyði ekki í óþarfa, notann til góðgerða frekar - þar sem ég kemst þó á netið með lappanum gamla. Mér var sagt að ég gæti prufað að hringja á þriðjudag eða miðvikudag... fúlt og bömmer!
Ég ætla að hringja á mánudagsmorgun - og aftur á þriðjudagsmorgun og aftur á miðvikudagsmorgun og .... þar til þeir gefast upp og gera loks við tölvuna, ætla ekki að bíða í tvo mánuði eftir henni!
En, nú er ég farinn í vinnuna - verð eitthvað á ferðinni í kvöld hugsanlega eða á morgun. Allavega mun ég alltaf ná í skottið á ykkur fyrr eða síðar og spora á ykkur sem sífellt eruð að spora á mig ... knús fyrir það!
Kær kveðja og bjart bros með knúsi og kreisti á línuna alla!
Hafið ljúfa helgi í mótmælum og ljúfleika ...
6.11.2008 | 13:49
Eitt hjól undir lappanum, en áfram skröltir hann þó ... Vantar ykkur frítt vírusleitarforrit? Burt með spillingarliðið, hvar í flokki sem það stendur!
Jæja þá. Ég er núna búinn að ná í skottið á ykkur öllum sem hafið verið að spora í athugasemdakerfinu mínu í síðustu 3-4 færslum, þrátt fyrir lélegan lappa með way to many vírusum (sannarlega samt ekki 3 þúsund stykki, voru reyndar ekki nema 2734 stykki). Það voru reyndar ekki nema sirka 20 vírusar en hitt var allt einhverjir ormar, cookees og fleira slíkt óvelkomið hyski ...
Doctor E kom í athugasemdirnar hjá mér í þarsíðustu færslu - með góðan link á free vírusleitarforrit - og það virkaði vel hjá mér að skoða það og nota. Reyndar kom einhver annar með góðan link líka minnir mig en ég þurfti ekki á því að halda þar sem linkurinn frá DE virkaði fínt. Lappinn er hættur að frjósa og detta útaf netinu, eitthvað smá poppup dæmi ennþá en ekkert miðað við það sem var áður, takk fyrir það Doctor E.
Vil bara endilega minna ykkur á að nýta ykkur slagorðið hennar Ólínu Þ.
Burt með spillingarliðið, hvar í flokki sem það stendur!
Svo vil ég líka bara minna ykkur á það að þó kreppan sé okkur öllum erfið og skelfileg, allt logi í ósætti og sviksemi og fleiru ljótu þarna uppi á háu alþingi sem og í stjórnum hinna ýmsu bankastofnanna og fyrirtækja - að gleyma samt ekki að sýna tillitsemi, kærleik og ljúfleika gagnvart hvert öðru. Við erum öll að ganga í gegnum kreppuna, sumir meira en aðrir en öll samt á einhvern hátt. Verið góð við ykkar næsta mann/konu, burt séð frá því hver eða hvar sú manneskja stendur í flokki, vinnu eða atvinnuleysi!
Samt í góðu lagi að mótmæla Davíð oddsyni og Geir Harde, og fleirum!
Ég er að vona að ég fái tölvuna mína fyrir helgina, mátti prufa að hringja á morgun - föstudag. Hef svo sem alveg getað bjargað mér fyrir horn í lappanum en mér hundleiðist hve hægvirkur og latur hann er. Verð að segja það að ef í ljós kemur að stýrikerfið er enn og aftur að klikka - þá ætla ég að fara í Tölvulistann og heimta nýtt stýrikerfi í nýju tölvuna mína - ella fari ég í hungurverkfall fyrir utan búðina um jólin *Yeah, right* ...
Sendi bara ljúfar kveðjur og fulltaf knúsi og brosum yfir ykkur öll með von um að þið eigið fína daga að einhverju leiti - þrátt fyrir kreppuna. Verið dugleg að reyna að finna ykkur eitthvað sem létt getur skap og lund inni í ykkar eigin fjölskyldu svo ekki sundrist hún, nóg komið þegar þó það bætist ekki við að heilu fjölskyldurnar fari í sundur líka.
Knús og kram á línuna!
Jæja, ég er að hugsa um að taka þátt í því að vera með smá hugleiðingar um kreppuna, reyndar ekki miklar pælingar - því ég nenni ekki að eyða tíma og orku í slíkt - en smá vera með sko ...
Sko, þó ég sé ekki mikill kreppulalli þá hef ég samt áhyggjur af ástandinu og því hvernig þessi kreppa á eftir að bitna á komandi kynslóðum. Heyrði síðast í gær held ég - að nýfætt stúlkubarn (eða sveinbarn) skuldaði um 7 milljónir þegar það fæddist??? Auðvitað er þetta skelfilegt, en samt sjálfsagt að halda í vonina um að eitthvað eigi nú eftir að breytast til hins betra í framtíðinni.
Nú, ég tók bílalán hjá Glitni - bílalán sem hækkaði um helming svo ég fór í byrjun Október - til að reyna að fá lánið fryst og borga bara vextina (þó ég ráði í raun ágætlega við hækkunina). Mér tjáð að slíkt væri ekki hægt, en hægt væri að skuldbreyta og lækka gjalddagana. Úr varð slík breyting en við bættist 10.000kr kostnaður. Fyrsta greiðslan fór úr 55.000kr niður í 45.000kr en svo næstu þrjár niður í 35.000kr sirka ...
Núna, einhverjum tveim til þrem vikum síðar er hægt að fá lánin fryst og borga bara vexti á meðan ástandið er svona slæmt. Ég hafði samband við Glitni til að fá leiðréttingu minna mála, en þá var þegar búið að lækka næstu greiðslu um 10.000kr kostnaðinn sem ég greiddi áður fyrir skuldbreytinguna (sem er gott mál) en nú gat ég einnig fengið lánið fryst og því borga ég bara vexti um næstu mánaðarmót.
Því er það málið fyrir ykkur sem kannski hafið breytt lánunum ykkar fyrr í mánuðinum en ekki fengið að frysta þau - að hafa aftur samband við bankann ykkar og athuga ykkar stöðu og fá breytingar í gegn ef ykkur vantar slíkt. Vildi bara svona nefna þetta ef einhver hefur ekki tekið eftir þessum nýju möguleikum sem nún standa til boða - en stóðu ekki til boða fyrr í mánuðinum... það eru kannski margir sem ráða ekki við hækkunina og þurfa á frystingu að halda, en kannski eru líka margir sem ráða svo sem alveg við hækkunina - en líkt og ég, gætu þeir notað sér þetta til að taka mismuninn og leggja hann í góð málefni frekar en að henda honum inn í botnlaust hýt.
Nú, auðvitað er ég alveg jafn undrandi og hneykslaður yfir nýjustu sögum úr bankakerfinu, nánar tiltekið frá Kaupþingi gamla. Ef satt reynist að skuldir eða ábyrgðir manna þar á bæ hafi verið felldar niður - en við þurfum að sitja uppi með okkar ábyrgðir - þá er náttúrulega bara málið að hætta viðskiptum við slíkan banka og þar með sýna honum að við sitjum ekki þegjandi undir slíku. En, það er svo sem ekki nóg. Það verður ekki til þess að koma ábyrgðinni aftur á réttar axlir, axlir þeirra sem fengu aflausn synda sinna. En eitthvað verður að gerast til að róa niður landann.
Svo er það okkar mesti skaðvaldur í dag, að mínu mati!
Davíð Oddson Seðlabankastjóri...
Hversu lengi á þessi maður að fá að sitja í skjóli Forsætisráðherra okkar, Geirs H.H...? Er hann ekki búinn að gera nógu mörg mistök nú þegar til að hljóta að þurfa að segja af sér? Hversu lengi má svona háttsettur sitja þegar hann er að gera hver mistökin á fætur öðrum? Ég gruna nú að fyrir minni sakir hefðu mörg höfuð fengið að fjúka í öðrum löndum - og ráðherrar fengið að taka pokann sinn.
Síðustu upplýsingar erlendis frá; Íslenskir ríkisborgarar krafðir um staðgreiðslu bílaleigubíla sem og annarrar þjónustu - jafnvel krafðir um staðgreiðslu matar á veitingahúsum - áður en þeir borða! Kona krafin um sannanir að hún geti haldið sér uppi á ferðalagi til Spánar... Hver hefur komið okkur í þessar aðstæður? Jú, sannarlega Davíð Oddson og þeir útrásapésar sem farið hafa stóran undanfarin ár .. en hvernig getum við komið þessum karli af stóli? Varla er hægt að hætta viðskiptum við Seðlabankann þar til karlinn er kominn út með pokann sinn? Æi, þegar stórt er spurt þá er oft lítið um svör. En næsta víst er að ég tek þátt í því að enda pistilinn minn á því að vísa til Ólínu okkar Vestfjarðaprinsessu - og læt ég lokaorðin yfir til hennar hér með.
Ljúfar kveðjur á ykkur öll - er farinn í blogghring - þó hægt fari og ég detti alltof oft út. Vona að tölvan mín komi í leitirnar á morgun, en síðasta lagi allavega á föstudag.
Burt með spillingarliðið!
Ólína Þorvarðardóttir er með góðar hugleiðingar og góða tillögu;
"Hún er sú að allir bloggarar landsins sameinist í einni kröfu sem verði aukasetning í öllum fyrirsögnum þeirra á blogginu, og þeirra lokaorð - hvert svo sem efni bloggfærslnanna er að öðru leyti: Burt með spillingarliðið!
Þannig að þegar ráðamenn þjóðarinnar, fjölmiðlafólk og aðrir, koma inn á moggabloggið, visi.is eða önnur bloggsvæði, þá blasir krafan við þeim hvert sem litið er.
Burt með stjórn Seðlabankans og bankastjórana þrjá. Burt með Fjármálaeftirlitið, stjórn þess og starfslið. Burt með alla þá starfsmenn bankanna sem þáðu eða ákváðu skuldahreinsun eða undanfæri fyrir útvalda. Burt með þá ráðamenn sem samþykktu ósómann með beinum eða óbeinum hætti, þögn eða aðgerðaleysi.
Burt með spillingarliðið, hvar í flokki sem það stendur! "
Ath; Feitletrað í gæsalöppum eru orð Ólínu sjálfrar og vel þess virði að taka þátt í þessu!
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
Jæja, ég fór með tölvugarminn niður á verkstæði tölvulistans í morgun en þar var mér tjáð - sem ég reyndar vissi áður - að þeir myndu horfa á hana á borðinu hjá sér í minnst fjóra virka daga áður en þeir kæmu við hana.. how strange!
En, það er líklega nóg að gera hjá þeim yfir höfuð - enda virðast tölvur frá tölvulistanum vera mun verri en aðrar tölvur - að því er virðist.
Þessi tölva er ekki orðin ársgömul, en þetta er í annað skiptið sem ég fer með hana til þeirra til athugunar. Síðast var það skilst mér galli í stýrikerfi - ef ég man rétt - en hvað skildi koma í ljós núna???
Gamla tölvan mín, sú sem ég átti áður en ég fór í tölvulistann fyrr á þessu ári - var orðin örugglega fjögurra ára - og hún hafði aldrei bilað á neinn hátt og aldrei krassað - fékk hana ekki í tölvulistanum - umhugsunarvert??? Jamm, ég fer allavega ekki aftur í tölvulistann til að endurnýja þegar þar að kemur - nema þeir geti fullvissað mig um að ég hafi verið óeðlilega óheppinn með tölvueintak (sem ég þó veit að er ekki satt því ég þekki nokkra sem hafa verið í vandamálum með tölvur þaðan) ....
Núna er ég að nýta gamlan lappa sem er ekki með nema 3.000 vírusa í lausagangi um allt!!!
Hún slekkur og kveikir á sér í tíma og ótíma, dettur út af netinu og leyfir engar myndir eða vinnslu með myndir - því get ég ekkert komið myndum í færslur á meðan.
Annars er ég góður bara!
Ég ætla nú samt að reyna - þrátt fyrir 3 þúsund vírusa - að byrja að yfirfara ykkur kæru bloggvinir og aðrir sem hafa verið að spora á síðuna mína. Ég get ekki beðið í heila viku eftir því - vegna þess að þá þarf ég marga sólahringa til að lesa allt og spora til baka ..
Sendi ljúfar kveðjur á ykkur öll með von um dásamlega viku framundan hjá ykkur öllum!
2.11.2008 | 14:01
Garmurinn hruninn í það enn einu sinni.. ljúfleikinn umleikur moggabloggið! Takk fyrir mig ...
Elskurnar mínar, nú er blessuð "nýja" tölvan mín hrunin í það enn einu sinni. Í gær, laugardag - er ég ætlaði að byrja að blogga og láta illa - startaði hún sér bara í safe mode og ég hef ekki með neinu móti getað opnað hana eðlilega.
Því er ég ekki búinn að vera online mikið um helgina og verð líklega ekki næstu þrjá daga - því mér skilst að þeir byrji ekki að eiga við gripinn fyrr en þrír vinnudagar eru liðnir frá því þeir fá tölvuna í hendur. En, svona er tölvulistinn ... grrr!
Hentist hér aðeins inn til að segja hæhó og þakka ykkur kærlega fyrir falleg comment í síðustu færslu - þau ilja sannarlega og gera það að verkum að ég get ekki annað en brosað - þó tölvan mín hafi hrunið..
Sendi ljúfar kveðjur á línuna alla og hlakka til að sjá ykkur hér öll í enda vikunnar, vonandi fyrr samt!
31.10.2008 | 15:13
Hverju getur sparibaukurinn þinn áorkað fyrir jólin? Áttu krónu, túkall, fimmkall eða bara einhvern annan kall ...? Gerðu eitthvað - strax!
Það er ótrúlegt, en samt satt að þú getur látið litla aura tala. Með litlu er stundum hægt að gera ótrúlegustu hluti og jafnvel bjargað sálarheill heilu fjölskyldnanna, tala nú ekki um í jólamánuðinum sjálfum. Allir vita hve ástandið er slæmt víðsvegar um þjóðfélagið og allir vita að það eru margar barnafjölskyldur sem líða mikinn skort, ná ekki endum saman allt árið um kring og sökkva bara dýpra og dýpra í vanmátt og erfiðleika.
Í jólamánuðinum sem og bara flesta mánuði ársins - eru margar fjölskyldur á síðasta hálmstrái hvað varðar fjármál og sumar hverjar geta ekki einu sinni glatt börnin á heimilinu í Desember - með sömu jólauppákomunum og jólagleðinni sem önnur betur sett börn fá að njóta. Það eru margar barnafjölskyldur sem geta ekki keypt jóla- eða spariföt á börn sín í Desember, hvað þá leyft börnunum að taka þátt í t.d. jólaböllum og jólaskemmtunum.
En, er einhverju hægt að áorka yfir höfuð í þessum málum? Eru ekki hjálparstofnanir og bæjarfélög að standa sig? Jú, vissulega eru allar stofnanir og félög að leggja eitthvað til í baráttunni við fátæktina hjá mörgum sér í lagi um jólin og aðrar hátíðarstundir. En það er ekki nóg því margir lifa samt vitlausu megin við mannsæmandi líf og blessuð börnin skortir svo ótrúlega margt til að teljast með eða inn á meðal hinna meðalbarnanna.
Sumir eru líka bara alltof stoltir til að leita til hjálparstofnanna eftir aðstoð sem er auðvitað skiljanlegt en samt hjálparstofnanir eru til þess gerðar svo fólk í neyð geti sannarlega leitað til þeirra í erfiðleikum og neyð. Hvet ég hér með t.d. barnafólk til að skutla stoltinu til hliðar í neyð sem hefur sjaldan verið meiri en núna og leita til hjálparstofnanna fyrir jólin þó ekki væri nema til að fá eitthvað til að gleðja börnin á þessum skelfilegu tímum sem nú tröllríða öllu.
Einnig langar mig til að hvetja ykkur lesendur mínir til að skoða hvort þið getið eitthvað gert fyrir ykkar nánustu einhverja sem þið þekkið af vinum eða kunningjum eða bara með því að styrkja hjálparstofnanir nú fyrir jólin. Ég gruna að við þekkjum öll einhverja barnafjölskyldu í kringum okkur sem er að berjast í bökkunum og sem mun eiga skelfilegan jólamánuð nú sem aldrei fyrr. Hvað getur þú góði lesandi gert? Jú, heilmargt hugsanlega...
Sjálfur hef ég t.d. í mörg ár tekið þátt í því að setja jólagjafir undir stóra jólapakkatréð í Kringlunni. Pakka sem merktir eru; sveinbarn 2ja ára, meybarn 4ra ára eða drengur 7-8ára eða stúlka 10 ára... Þetta er verðugt verkefni sem allir ættu að huga að í Desember.
Ég held sambandi við tvær einstæðar gamlar vinkonur sem ég hef unnið með í gegnum árin gamlar konur sem eru komnar á ellilífeyrir sem hrekkur oft ekki fyrir nauðsynjum hvað þá fyrir einhverjum sem gæti lyft upp jólaanda hjá viðkomandi konum. Ég kíki til þeirra fyrir Páska með páskaliljur og lítið páskaegg, á vorin með lifand sumarblóm til að hafa í stofuglugganum á afmælisdögum með litla köku og örlítinn glaðning fyrsta sunnudag í aðventu með Jólastjörnu og nokkur kerti og að lokum fyrir jólin sjálf með litla matarkörfu með góðgæti sem ég veit að þær eru hrifnar af en geta ekki veitt sér sjálfar.
Núna í ár er ég að gera mun betur og ég er handviss um að það er til fulltaf fólki þarna úti sem gæti vel gert slíkt hið sama ef það bara færi af stað til að kynna sér málin.
Ég lagði fyrir smá upphæð þann 1. Oktober og mun gera það sama 1. Nóvember og aftur þann 1. Desember. Samanlagt mun þetta verða dágóð upphæð þó ekki sé um neinn fjársjóð að ræða fyrir mig. Enda er ég svo sem enginn stóreignamaður og seint mun ég verða talinn á neinn hátt ríkur maður í peningum talað, en ég get þetta og því geri ég það hiklaust.
Nú fyrir nokkru fór ég og talaði við prest sem svo kom mér í samband við ákeðna hjálparstofnun sem tók út nokkrar fjölskyldur og benti mér á án þess að gefa mér upp neinar upplýsingar um hver fjölskyldan væri í raun og veru bara aðstæður þeirra og upplýsingar um barnafjölda og ýmislegt sem ég vildi fá að vita.
Fjölskyldurnar voru kallaðar fjölskylda A, B, C og svo framvegis. Ég fékk að vita um barnafjölda, aldur barna og hvort um væri að ræða einstæða foreldra eða hjón. Nú, það er ekki flóknara en það að ég valdi úr eina barnstóra fjölskyldu, einstæða konu með 3 börn á skólaaldri og hef ég ættleitt hana núna fyrir jólin en jólin 2009 mun ég svo ættleiða einhverja aðra fjölskyldu og svo koll af kolli. Ég mun á engan hátt hafa nein samkipti við viðkomandi fjölskyldur og fjölskyldurnar munu á engan hátt vita hver ég er enda mun það verða starfsmaður hjálparstofnuninnar sem verður millimaðurinn í þessu máli.
Enda er ég ekki að þessu til að fá lofsöng og klapp á bakið frá neinum bara gleðja fjölskyldurnar, sérstaklega börnin og þar með gleðja sjálfan mig! Það er nefnilega málið því meiri gleði sem þú getur sent frá þér því meiri gleði fyllir hjarta þitt og huga og því betur líður þér sjálfum svo kannski er þetta bara eigingirni eftir allt saman!
Mánudaginn 1. Desember - mun ég fara í barnafataverslun í Reykjavík og kaupa þar gjafakort sem síðan verður afhent fjölskyldunni Þriðjudaginn 2. Des. Ég sé fram á að unga móðirin geti keypt ný þokkaleg jóla- spariföt á börnin þrjú fyrir þessi jól og það gleður mig óendanlega mikið. Eins og ég sagði fyrr þá er þetta ekki nein himinhá upphæð sem ég gat lagt fyrir en samt nóg til að koma þessu í framkvæmd og leggja þar með örlítið á vogarskálar bjartsýni og gleði á móti öllu kreppustandinu.
Ég vildi bara óska þess að ég hefði hugsað út í þetta miklu fyrr. En á næsta ári mun ég leggja til alveg frá 1. Janúar um hver mánaðarmót litla upphæð sem ég mun svo skoða í jólamánuðinum 2009. Hver veit nema það verði til að gleðja jafnvel tvær eða þrjár barnafjölskyldur jólin 2009.
Ég hvet ykkur öll þarna úti til að skoða málin með það í huga hvort þið getið eitthvað álíka gert. Leitið að fjölskyldu í kringum ykkur eða með aðstoð prests/hjálparstofnanna og ættleiðið litla barnafjölskyldu jólin 2009. Þó ekki væri lögð til hliðar nema litlar 1 þúsund krónur á mánuði þá væri það strax 12 þúsund 1. Desember. Það er varla hægt að ímynda sér hve svo lítil upphæð er mikill fjársjóður í hendi barnafjölskyldna sem berjast alla daga allt árið við fátækt og skort á nauðsynjum en ég segi ykkur það satt að þeir sem eiga ekki fyrir mjólk og brauði í enda hvers mánaðar geta með 12 þúsundum í Desember keypt jólaöl og hangikjötsbita handa börnunum sínum fyrir jóladag og kannski einhvern lítinn jólapakka!
Skoðið málin landar góðir látið góðsemi, mannkærleika og gjafmildi ríkja á kreppuárinu framundan. Það verða margir undir núna um jólin og hugsanlega enn fleiri þegar líður á næsta ár athugaðu hvort þú getir sett eitthvað lítið á vogarskálarnar! Brjótið bara upp baukinn ykkar sem geymir krónur, fimmkalla og fleiri kalla ...
Margt smátt gerir lífið stórt fyrir þá sem ætíð eru í baráttu til að hafa í sig og á - baráttu sem sannarlega ætti ekki að þekkjast í íslensku þjóðfélagi nú til dags - en kreppulætin munu sannarlega ekki létta til eða laga ástandið.
Annars er ég góður bara helgin að nálgast og ég er kátur og hress að vanda. Auðvitað mun ég ráðast aðeins á bloggin ykkar um helgina með sporum og látum but i know you like it so im not worried.
Sendi gleði- og kærleiksknús og kreist á línuna alla með von um yndislega helgi!
Og, by the way ...
29.10.2008 | 02:58
Myndir. Are you being a good friend, or am i just peeing in my pants? Hvernig lítur þú út - up side down? Bloggkreppa mæ ass...
Ef þetta er ekki daglegt líf kreppunnar - þá veit ég ekki hvað það er.
Þessi skilaboð eru til stjórnvalda og Landspabba ...
Ef við værum egg - þá væri þessi gaffall í hendi Landspabba!
Ætli þetta sé ekki mynd af hinni týpísku fjölskyldu á krepputímum! Í það minnsta helmingur fjölskyldunnar "steiktur" ...
Ok, ég er í bloggkreppu. Hef haft of mikið að gera til að eyða tíma á blogginu eða netinu yfir höfuð. Ég átti reyndar von á því að verða dálítið óvirkur þegar ég kæmi aftur úr fríinu og það reynist rétt - en ég vona bara að ég fari að hafa meiri tíma hérna því ég verð bara að viðurkenna að ég sakna atsins hérna og bloggvinanna.
En, samt - bloggið mætti alveg loga minna af kreppukjaftæði. Það eru einhvern veginn allir að eyða púðri í kreppuna, eins og maður fái ekki nóg af henni í öllum fjölmiðlum landsins...
Er annars bara góður. Reyni að fara að verða virkari hérna. Over and out...
Thanks for being my good and true friend!
26.10.2008 | 12:51
How bad are you going to be this Christmas? Would you please whip me a bit harder sir - woww - kreist og kram!
Jæja, bara stutt innlit til að segja frá því að ég er aðeins farinn að finna fyrir kitlandi jólataugum sem poppuðu upp aðeins of snemma - en það er Kerfisvillunni minni að kenna. Ég á jólasíðu á netinu - jólasíðu sem ég setti inn árið 1999 en vann svo ekkert meira með. Síðan sú verður hugsanlega eitthvað uppfærð núna um þessi jól en hér eru tvær myndir af henni svona til að sýna ykkur við hverju má búast ...
Well, síðan á föstudag er ég búinn að vinna í fjórum veislum svo ég hef ekki verið mikið á ferðinni um helgina. Reyni að bæta úr því á næstunni ljúflingar. Vona að allir hafi það ljúft á þessum fallega en kalda sunnudegi og munið að hlú og hlýja hvert að öðru, alltaf fríkeypis eins og sumir bloggvinir mínir segja og bara yndislegt að gefa og þyggja!
Mín skilaboð til ykkar þennan sunnudaginn!
Já, brosið og verið glöð og kát - þið eruð ... wow!
Knús á línuna alla ...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
23.10.2008 | 20:25
Can you really fart whenever you want? Er konan virkilega svona hefnigjörn? Ertu Asni? .. eeee .. NEI!
Ég er að segja ykkur það enn og aftur - það er hægt að segja heilt ævintýri, bara alla hringrásina - í fjórum myndum!
Heimurinn séður í hnotskurn með augum karlmannsins!
Viðbrögð hans við endalokum tilhugalífsins!
Viðbrögð konunnar vegna frammistöðu karlsins!
Og að lokum stendur karlmaðurinn uppi sem ... ?
Segi ekki meira. Ef einhver finnur sjálfan sig í þessari sögu - þá er það tilviljun ein sem því ræður. Nöfnum og stöðum hefur verið breytt til að vernda alla málsaðila. Tek enga ábyrgð á viðfangsefninu og vísa öllum neikvæðum commentum til föðurhúsanna!
Nýjustu færslur
- 19.8.2009 Kveðjur og knús!
- 25.6.2009 Nú kem ég og gramsa í garðinum þínum! Engin ljótur arfi lifir...
- 19.5.2009 Stutt innlit og sólblómakveðja. Ekki kominn til að vera - bar...
- 7.5.2009 Andskotans dómharka alltaf í fólki, manni blöskrar bara.
- 29.4.2009 Það rigndi gulli og gimsteinum úr himnaríki í dag! Hversu mik...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- blekpenni
- asthildurcesil
- jenfo
- lehamzdr
- skessa
- brjann
- jodua
- ringarinn
- hross
- jogamagg
- gurrihar
- christinemarie
- roslin
- jeg
- hneta
- majaogco
- madddy
- eddabjo
- lillagud
- angelfish
- skjolid
- stebbifr
- heidistrand
- sigro
- laugatun
- ollasak
- rasan
- skordalsbrynja
- antonia
- lindalinnet
- emm
- svala-svala
- kiza
- hran
- gellarinn
- katlaa
- danjensen
- snar
- tofulopp
- janey
- heidihelga
- skattborgari
- ellasprella
- icekeiko
- pollyanna
- perlaoghvolparnir
- bifrastarblondinan
- storyteller
- handtoskuserian
- strumpurinn
- siggathora
- jari
- disadora
- egvania
- um683
- veland
- sisvet
- wonderwoman
- brandarar
- borgarfjardarskotta
- jakobk
- gudrununa
- sp
- must
- jyderupdrottningin
- hrannsa
- einari
- engilstina
- manisvans
- himmalingur
- agny
- almaogfreyja
- gattin
- dittan
- dora61
- draumur
- gelin
- lis
- ace
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Ferðalög
- Fjölmiðlar
- Formúla 1
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði