Færsluflokkur: Kvikmyndir

Hrói Höttur - endurgerð - 1000asta endurgerðin - boring!

Ridley Scott leikstjóriMikið skelfing er maður orðinn leiður á endurtekningum hvað kvikmyndir varðar. Endalaust verið að setja á laggirnar "nýjar" myndir eftir gömlum sögum - og oftar en ekki finnst mér þetta misheppnast meira en að svona endurgerðir takist vel upp.

Ridley Scott er á leiðinni með nýja útgáfu af "Hróa Hetti". Ég hreinlega man ekki hve margar útgáfur af Hróa Hetti ég hef séð - bæði teiknimyndir sem og kvikmyndir - en ég er orðinn hundleiður á þeim kappa.

Hvers vegna eru leikstjórar yfirleitt að endurgera sögur og margendurgera ákveðnar kvikmyndir aftur og aftur? Er það gert með von um að slá út allar fyrri gerðir - jafnvel upprunalega sögu? Æi, ég held að það sé af svo mörgu að taka að það ætti að skikka þessa karla til að taka uppá því að vera svolítið sjálfstæða - fá þá til að finna uppá einhverju öðru en því sem aðrir hafa þegar gert. Eftirapanir eiga það til að mislukkast meira en annað eins og áður sagði ...


mbl.is Er Hrói út í hött?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Tiger
Tiger

Ég eyði fúlum og neikvæðum athugasemdum - svo það er tímaeyðsla að henda slíkum fjársjóð hingað inn. Verð hérna bara í flugumynd - lítið sem ekkert sem sagt. Þýðir ekkert að bíta af mér hausinn þrátt fyrir það...

***

Þakka öllum innlitið, en það er ekki þar með sagt að þú sjáir mig spora út síðuna þína!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 139726

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • jesumynd
  • jesumynd2
  • jesumynd4
  • blómabeðið
  • blómabeðið
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband