Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009
26.3.2009 | 02:59
Heillandi lífsstíll - heillandi fræðslufundur - eða er það bara hin gullfallega Magnhildur sem er heillandi? Hmmm ...
Og Akureyri heillar - en heillar þú? Ertu í formi? Viltu forma þig og móta svo þú verðir heillandi?
Ef ekki núna - hvenær þá? Nú er tími til kominn að þið rífið ykkur upp af rassinum og skellið ykkur á skemmtilegan fræðslufund á Akureyri næstu helgi - 27 til 29 mars.
24.3.2009 | 20:30
Kodd'í sleik ... duhh! Facebook 1 - bloggið 0... í bili.
Ok, ímyndið ykkur að þetta sé ég - sjálfur Tiger - og að ekkert sé á milli mín - og þín - nema tölvuskjárinn!
How cute ...awww!
21.3.2009 | 00:56
Fríða Hamztur, móðurborð og fleira ... en ekki allt gefins þó!
Jú, þá er tölvan blessuð komin aftur í hús. Auðvitað hlaut eitthvað að vera að greyinu fyrst hún hefur alltaf látið eins og frostpinni og þvílíkt verið að gera mig gráhærðan (ekki að ég sé orðinn svona gamall, bara pirrgrámi) ..
Móðurborðið í tölvunni hrundi, en fyrir einhverjum mánuðum var það stýrikerfið og guð má vita hvað.
Rétt ætla að vona að nú sé græjan komin heim til að vera heima - ekki til að staldra stutt við, gera mig ennþá grárri og heimta svo bara viðgerðarferð. Þá harðneita ég og hendi henni í þá og sest á einhvern þar til ég fæ alveg splúnkunýja vél .. og hana nú! Hefði auðvitað átt að gera það strax náttla en svona er þetta ...
Fríða litla hamstrastelpa er ennþá hérna hjá mér í góðu yfirlæti. Ætlunin er samt að finna henni nýtt heimili sem fyrst svo ef einhver les þetta núna sem langar í litla hamstrastelpu þá fæstu hún hérna gefins ásamt búrinu og öllum fylgihlutum.
Annars er kisinn minn eiginlega búinn að taka nagdýrið í fóstur - dúllast í kringum dýrið dag og nótt, liggur og sefur við hliðina á búrinu og þegar dýrið hleypur á gólfinu þá eltir kisi - en snertir Fríðu litlu aldrei þó. Segi það satt .. Hamsturinn hljóp að kisunni, klifraði yfir hana og niður hinu megin, en kisi bara snéri haus og fylgdist ánægð með aðförunum. Spurning um hvort kisa sé farið að langa aftur í kettlingabúnt .. en glætan að hún fái að geraða aftur í bráð ónei..
Annars er ég bara góður og glaður.
Er búinn að finna einhverja skemmtilega bloggara á Feisbúkk, er reyndar ekkert rosalega mikið þar en samt ... svolítið þó.
Þið megið alveg adda mér á feisbúkkið ykkar ef þið viljið - fulltaf myndum og gúmmilaði .. yeah, right.
En, over and out into the night. Sé ykkur bara um helgina - good night!
18.3.2009 | 13:03
Aldrei í Tölvulistann aftur for sure. Hrakfarir virðast einkenna vörur þaðan .. eða er ég bara svona óheppinn? Nahhh...
Ótrúlegar hrakfarir mínar í tölvumálum eru bara ekki einu sinni fyndnar. Fyrir réttu ári fékk ég mér nýja tölvu í Tölvulistanum. Fínt, æðislegt ...
Tölvan sem ég átti áður hafði lifað í tíu ár í það minnsta - án þess að klikka - en var orðin anzi elliær samt. Þess vegna var ég svakaglaður þegar ég náði mér í þessa líka kraftalegu flottu borðtölvu og nú var maður bara kominn í elítuna sko.
Tölvan var þó ekki betri en það að hún byrjaði strax að vera með einhver smá hikst og pústra sem endaði eftir einhverja fjóra mánuði í viðgerðarpakka hjá Tölvulistanum.
Ok, fékk tölvuna aftur eftir smá tíma og læti en svei mér þá bara ekkert betri - heldur verri ef eitthvað var. Nú, sirka 4 mánuðum síðar endar hún aftur á skurðarborðinu hjá Dr. óskammfeilnum hjá Tölvulistanum - sem bauð mér svo bara uppá móðganir og jafnvel lygar þegar á reyndi og endaði það með því að minn varð fjúkandi - og lét bróður minn sækja helv ... kassann til þeirra!
Nú var tölvan bara straujuð og virkað fínt eftir það í nokkurn tíma - en í dag er tölvan komin til Keflavíkur í viðgerð - eftir nokkrar straujanir, heilmikinn pirring og skapvonsku sem og svakalegt basl og vonbrigði með blessaða vöruna frá Tölvulistanum...
Nú hefur tölvan verið í Keflavík síðan á sunnudag - hef verið að bjarga mér á gömlum lappa sem ég hef í láni - en hann er margra ára gamall en klikkar þó ekki, er bara virkilega seinfær og sniglakenndur ...
Díssess .. me and computers! Not best friends for sure!
Over and out ... með takmörkuðum commentum á blogginu fram að heimkomu tölvunnar - sem vonandi verður sem fyrst!
14.3.2009 | 22:09
Hvern á maður að berja, ef maður nær ekki í skottið á þeim sem manni langar að berja? Hvaða rass á mahrr að kyssa til að fá smá snjókomu? Pirrhhmmmpp ...
Já, nú er ég að hugsa um að fara og lúskra á eins og einum Guði eða svo ...
Það er ekki að því að spyrja með suð-vesturhornið - það er ekki fyrr farið að hvítna en að það fari allt í bál og brand. Ég fór glaður að sofa um hálf fjögur síðustu nótt - vaknaði enn glaðari - en um leið og ég kíkti á gluggann minn hvarf sú gleði í bjevuðum vatnsaustrinum sem var fyrir utan.
Fjárans rigning alltaf - að snjómuggan skuli ekki geta haldist smá stund hérna á þessu landshorni er bara ömurlegt.
Og ég sem var svo glaður þegar ég kom heim rétt fyrir þrjú í nótt sem leið - allt hvítt - bylur og hvasst - skaflar að myndast upp með útidyrunum mínum - og ég þurfti að krafsa snjó frá þeim svo ekki skaflaðist innfyrir .. en núna! Skömm og synd bara .. ég sem hlakkaði svo til að fara á þoturassinum mínum niður brekkuna hér fyrir ofan.
Over and out .. hundfúll, hundblautur og hundlatur!
Á samt bara einn kött .. og Fríðu litlu .. nýjasta fjölskyldumeðliminn .. hamstrastelpan sem ég get bara ekki hugsað mér að fara með til dýralæknis.
14.3.2009 | 03:12
Verður manni að ósk sinni - biðji maður nógu heitt um það sem maður óskar sér - eða er það bláa höndin sem hér hefur farið á handahlaupunum?
Loksins, það var tími kominn á smá þæfing! Nú er bara að vona að þetta haldist eitthvað fram á vorið ...
Hellisheiði, Sandskeið og Þrengsli lokuð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.3.2009 | 16:30
Enn og aftur - Gefins, gefins og gefins!
10.3.2009 | 00:47
Hefur þú haft hönd í bagga, fémuni undir höndum eða setur þú allt í poka sem ekki má loka .. ? *Dæsss* ...
"Já, skelfilegt bara - þeir voru þrír - og þeir hlupu með 900 milljarða undir höndum".. sagði gjaldkerinn með grátstafinn í hendinni.
"Ég ætla rétt að vona að þeir verði nú látnir rétta upp hendurnar - svona eins og í kúrekamyndunum - upp með hendur - því það var einmitt þar sem þeir földu ránsfenginn! Undir höndunum" volaði í öðrum gjaldkera sem reyndi að ná grátstafnum af samstarfsmanni sínum.
Búast má við miklum tilþrifum þegar Bjarnarbófarnir nást og næsta víst er að þeim verður gert að lyfta upp höndunum með von um að ránsfengurinn finnist aftur. Hugsanlega mun þó þurfa á peningaþvætti að halda í framhaldi af þessum glæp því vitað er að þessir guttar nota ekki Deodorant frá Armani... heldur versla þeir ódýrt í Bónus!
Stöndum saman og stöðvum glæpi!
Vopnað rán í Seljahverfi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 00:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Er búinn að fá mig svo mikið lifandi fullsaddan af þessum mismun og þessu óréttlæti sem viðgengst á þessari litlu skítaeyju .. prffmm!
Þá er það endanlega ljóst að ég er flúinn af Suðvesturhorninu. Ég ætla ekki lengur að láta bjóða mér þennan hörmungarskandal og ætla því að færa mig um set þangað sem veður eru válindari og óútreiknanlegri.
Ekki nóg með það að norðlendingar og vestfirðingar fái allan snjóinn - heldur fá þeir líka alla vetrahörkuna og hamaganginn - öll óveðrin, skafrenninginn - ofankomuna, skaflana og allan pakkann! Ég vil fá meira af þessum hamagangi hingað í Reykjavík! Annað er bara ósanngjarnt og mismunun. Það er ekkert réttlátt við það að hér sé alltaf stilla og sól, bjart og yndislegt veður ... grrr!
Ég hef víst aldrei farið leynt með að ég er ógisslega hrifinn af kulda sem og hita - sól og sumri - sem og vetrahörkum. Ég elska snjóinn og ófærð - dýrka snjóskafla og ófærð í umferðinni ...
En, hvað er mér boðið uppá í mínu umdæmi? Jú, hörmulega góðu stilltu vetraveðri dag eftir dag .. viku eftir viku og mánuðum saman yfir vetratímann.
Og, hverjir fá að njóta óveðurshamsins? Jú, Norðanpakk og Vestanpakk .. fúlt .. já!
Það mætti halda að Davíð hafi haft hönd í bagga með að stilla þessum vetrarham svona misskipt um landið og því tel ég að við ættum að fjölmenna næstu vikur í líkamsræktina hans Dabba og mótmæla þessu ... hmm ... nei það þýðir ekkert .. kallinn er feitur bara og stundar ekki ræktina! Jú, reyndar .. hann stundar hlaup og hleypur mjög hratt .. undan fjölmiðlum og erfiðum spurningum!
Jæja, allavega ætla ég að mótmæla þessu hér með! Ég ætlast til þess að stjórnmálamenn og konur landsins beyti sér fyrir því að þessum óréttlátu vetrarhörkum sé eingöngu hleypt af stokknum fyrir norðan og vestan, jafnvel fyrir sunnan heiðar - en ekkert hérna á suðvesturhorninu!
Ég ætlast til þess að Guð gefi okkur í Reykjavík heilmikla snjókomu, mikla ófærð - mikla skafrenninga og aðra renninga .. ég vil fá stóra snjóskafla, heilmikið rok með bullandi látum og hana nú. Hvar ætli ég geti komið þessu á framfæri og hver ætli taki við svona mótmælastússi - Björn Bjarna kannski? Nei, hann er bara gamall refur - barn síns tíma og er að hverfa sem betur fer. Verst þykir mér að sjá á eftir Ingibjörgu Sólrúnu - hún hefði örugglega reddað þessu fyrir mig. Guð forði okkur samt frá því að Wannabí stjórnmálaforingjar eins og Jón Baldvin komist á spena ...
En, ég er farinn í að senda smá óveður inn á síður bloggvina sem ég hef trassað of lengi í góðviðriskasti. Ætlast til að þeir taki því bara þegjandi og hljóðalaust þó ég hvessi mig og sendi smá byl um kerfið þeirra .. Blási nú vindar góðir.
Og Guð - ef þú hlustar nákvæmlega núna - hrisstu kollinn - láttu flösuna detta - ég vil snjókomu í Reykjavík! STRAX! ... Takk fyrir mig annars, er góður bara.
Ófært víða norðaustanlands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þessi litli maður var í heimsókn hjá frænda sínum í dag! Nú er hann orðinn 1 og hálfs árs - en í September verður hann tveggja.
Ok, er ég kominn nógu nálægt vélinni núna?!
Afhverju lokast alltaf bananar þegar maður ætlar að bíta í þá? ...
Maður verður alltaf svo vandræðalegur þegar maður hefur svona mikið af áhorfendum sko!
Bíddu nú við addna myndavélakall! Ertu að elta mig eða hvað.. ?
Ég má víst opna skúffurnar og skoða hvað er falið þar ofaní! Láttu mig bara vera sko ...
Over and out ...
Nýjustu færslur
- 19.8.2009 Kveðjur og knús!
- 25.6.2009 Nú kem ég og gramsa í garðinum þínum! Engin ljótur arfi lifir...
- 19.5.2009 Stutt innlit og sólblómakveðja. Ekki kominn til að vera - bar...
- 7.5.2009 Andskotans dómharka alltaf í fólki, manni blöskrar bara.
- 29.4.2009 Það rigndi gulli og gimsteinum úr himnaríki í dag! Hversu mik...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- blekpenni
- asthildurcesil
- jenfo
- lehamzdr
- skessa
- brjann
- jodua
- ringarinn
- hross
- jogamagg
- gurrihar
- christinemarie
- roslin
- jeg
- hneta
- majaogco
- madddy
- eddabjo
- lillagud
- angelfish
- skjolid
- stebbifr
- heidistrand
- sigro
- laugatun
- ollasak
- rasan
- skordalsbrynja
- antonia
- lindalinnet
- emm
- svala-svala
- kiza
- hran
- gellarinn
- katlaa
- danjensen
- snar
- tofulopp
- janey
- heidihelga
- skattborgari
- ellasprella
- icekeiko
- pollyanna
- perlaoghvolparnir
- bifrastarblondinan
- storyteller
- handtoskuserian
- strumpurinn
- siggathora
- jari
- disadora
- egvania
- um683
- veland
- sisvet
- wonderwoman
- brandarar
- borgarfjardarskotta
- jakobk
- gudrununa
- sp
- must
- jyderupdrottningin
- hrannsa
- einari
- engilstina
- manisvans
- himmalingur
- agny
- almaogfreyja
- gattin
- dittan
- dora61
- draumur
- gelin
- lis
- ace
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Ferðalög
- Fjölmiðlar
- Formúla 1
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði