2.3.2009 | 14:58
Þurrir Þorskhausar keppa um titilinn "Þurrasti Íslenski Þorskhausinn" í Nígeríu. Hvernig má spara milljarð .. ?
Ekki það að ég ætli að fara að blogga neitt um Fegurðarsamkeppnir (sjá mynd til vinstri) - mig langaði bara til að velta frá mér smá hugleiðingu vegna hinnar Pólsku ungfrú Reykjavík.
Hef verið að pæla í því að mér hefur líklega brugðist bogalistinn í pælingum varðandi fegurðarkeppnir sem slíkar - að þær væru kynning á landi, þjóð og fegurð íslenskra stúlkna..
Mér er spurn, er hægt að senda stúlku frá annarri þjóð, Póllandi, til að keppa fyrir okkar hönd á alþjóðavettvangi - til að sýna fegurð íslenskra stúlkna? Já, ég veit að hún hefur ekki enn verið kosin ungfrú Ísland - en hún er gullfalleg og það geislar af henni þvílíkur yndisþokki að það kæmi mér engan veginn á óvart þó hún yrði kosin alla leið. En, erum við þá ekki farin að senda út í heim fegurð Póllands en ekki Íslands?
Getum við sagt - "Ungfrú Ísland er sönn ímynd fallegra stúlkna á Íslandi" .. ef "ungfrú Íslands" er pólsk en ekki íslensk?
Ok, þá er það frá í bili ... að öðru.
Sannarlega er erfitt hjá mörgum núna. Fjöldinn allur af fólki á atvinnuleysisbótum og fjöldinn af fólki sem hefur ekki í sig og á. Hræðilegt bara svo ekki sé meira sagt.
Ég á stundum erindi í sama hús og ein "atvinnuleysisskrifstofan" í bænum er - og stundum er það fullt út að dyrum af fólki sem er að skrá sig. Það sem mesta athygli mína vekur er hve mikið er af fólki af erlendu bergi.
Hef heyrt sögur af því að sumir þeirra "hangi" bara hérna á atvinnuleysisbótum því það fær hvergi vinnu hérna lengur - og bæturnar eru hærri en nokkrar bætur í heimalandi viðkomandi. Heyrt sögur um að margir séu enn að þyggja bætur hérna á landi þó þeir séu í raun löngu komnir til síns heima en geta skráð sig í gegnum netið frá sínu landi án þess að nokkuð sé gert til að fyrirbyggja þetta...
Ég er viss um að það mætti vel spara einhverja milljarða á ári ef farið væri í gegnum þann hóp sem er atvinnulaus - sorterað út þá sem höfðu bara stutt atvinnuleyfi en eru dottnir út af vinnumarkaðinum - og sorterað út bæði erlenda og íslenska atvinnuleysingja sem ekki eiga rétt á bótum - og þessum hópum komið t.d. bara til síns heima. Gæti verið mikill sparnaður í því að íslenska ríkið myndi bara hjálpa atvinnulausu fólki til síns heima með t.d. mánaðarbætur í farteskinu - og svo hefur þetta fólk þó allavega pening í mánuð á meðan það er að redda sínum málum á heimahögunum ...
Einnig finnst mér það blóðugt ef satt reynist sem ég hef líka heyrt - að fólk - bæði íslenskir og erlendir hópar - séu að sækja í hjálparstarf Kirkjunnar - eftir aðstoð, mat, fötum og fleiru - án þess að vera í hópi þeirra sem slíkarar hjálpar þarfnast. Maður heyrir allavega af fólki sem er að "svindla sér inn í kerfið" - fólk sem er vel sett/ágætlega sett - en laumar sér samt inn um smugur og tekur þar með frá þeim sem sannarlega eru hjálparþurfi.
En, pælingar eru jú pælingar. Maður á víst aldrei að trúa í blindni því sem maður heyrir því kjaftasögur eru oft ansi villandi og rúlla uppá sig oft meiru kjöti en tilefni er til.
Rúlla hér með kveðju yfir Bloggheima og vona að allir hafi það fínt ..
Over and out ...
Gríðarleg fjölgun umsókna eftir aðstoð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
28.2.2009 | 13:31
Karlmenn og krabbamein, hefur þú gripið í punginn í dag - þinn pung sko!? Ef ekki, þá ættir þú kannski að hugleiða það...
Þættir eins og heilbrigt mataræði, að vera í kjörþyngd, forðast reykingar - drekka sem minnst áfengi og forðast sólbruna - eru meðal þess sem getur hjálpað ykkur að lenda ekki í krabbanum.
Það segir sig sjálft að heilbrigt líferni er heillavænlegast yfir höfuð - hvort sem það snýr að krabbameini eða öðrum sjúkdómum, heilbrigt líferni er það sem líkaminn þarfnast helst af öllu til að funkera rétt, vel og lengi.
Árlega greinast 630 karlar með krabbamein á Íslandi, almennt gera þeir sér seinna grein fyrir einkennunum en konur. Á morgun hefst formlega átak Krabbameinsfélagsins - Karlmenn & krabbamein. Yfirskrift viðtalsins í ár er Lífsstíll, heilsa og mataræði og er höfuðáherslan á að með því að stunda heilbrigða lífshætti sé hægt að draga úr líkunum á krabbameini.
Mælt er með því að borða mikið af tómötum, hvítlauk og gulrótum. Mikið af grænmeti og ávöxtum og eins er gott að neyta mikilla trefja, t.d. grófs korns og bauna.
Átakið hefst með pomp og prakt í Vodafone-höllinni á morgun kl. 14:00 en þá etja kappi helstu knattspyrnuhetjur landsins eldri en fjörtíu ára og núverandi landsliðshetjur.
Í tengslum við átakið verður sala á "Miðum" í matvöruverslunum - sem fólk getur keypt fyrir 250, 500 eða 1000kr. Þá verða falleg bindi með litum átaksins (blátt, fjólublátt og hvítt) til sölu í verslunum Herragarðsins. Litlar álnælur (svipaðar og bleiki borðinn) verður einnig seldar til fyrirtækja.
Peningurinn sem safnast fer til Ráðgjafarmiðstöðvarinnar, sem veitir körlum og konum ókeypis ráðgjöf, námskeið og þjónustu af ýmsum toga, og í frekari forvarnir.
Kíki yfir ykkur - í dag - sem hér hafið verið á ferðinni undanfarið ljúflingar.
Knús á línuna og takk fyrir innlitið!
P.s. tekið úr Fréttablaðinu - Laugardaginn 28 Febrúar 2009. (Og nei, ég ætlaði ekkert að fjalla um einhver hreðjatök hérna - þó það sé gott að grípa í punginn til að fyrirbyggja og athuga krabbamein ..haha)...
Hreyfing og hollt fæði í baráttunni við krabbamein | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
27.2.2009 | 15:10
Mbl.is < gegn > Facebook! Gamalt út og nýtt inn - í bili.
Jæja, ég verð víst að viðurkenna að nýr vettvangur hefur náð að heilla mig aðeins og því hef ég ekki gefið blogginu eins mikinn tíma.
Já, ég er farinn að leika mér á öðrum stað á netinu og þar hef ég verið að fíflast og atast í öllum í kringum mig. Málið er að maður verður að fylgja straumnum og taka þátt í því sem er "inn" í það og það skiptið.
Facebook er málið.
Undarlegasta fólk er þar að finna og næsta víst er að maður verður að passa að missa sig ekki þegar maður rekst á suma sem tilheyrðu fortíðinni - en eru núna að poppa upp í sinni undarlegustu mynd. Mikið af dásamlegu fólki er þar sem maður þekkti í denn. Skólasystkyn, fjölskylda, vinir - nú líka óvinir, og gamlir nágrannar. Flóran er frábær en næsta víst að maður verður að passa sig á því hvað maður lætur flakka þar því maður veit aldrei hver er að "skoða" mann og fylgjast með hverju spori manns.
Nokkur ykkar hérna hef ég fengið til mín þar, en marga hef ég ekki enn fundið - eða þannig - enda er ég nýbyrjaður á þessu og er enn að læra á þetta feisbókardæmi. Hef þó sent inn margar góðar og gamlar myndir þangað og undarlegt hvað margir muna og kannast við mann ennþá ..
En, eitthvað verður að láta í minni pokann í staðinn - og það er Mbl.is sem lýtur í lægra fyrir Facebook í þetta sinn. Ég mun þó halda áfram að fylgjast með blogginu og hver veit - þegar nýjabrumið er farið af feisinu þá kannski verð ég aftur virkur bloggari.
Vona að þið hafið það yndislegt, óska ykkur góðrar helgar og njótið lífsins öll ..
Knús á línuna ...
Rekin vegna ummæla á Facebook | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Við erum verr stödd landar góðir ef þetta er eini maðurinn á Íslandi í dag sem er traustsins verður - sá eini sem fólk getur leitað til með "nafnlausar" ábendingar og ásakanir.
Næsta víst er að mörg hólfin í guðdómlegum kastala hans hljóta að vera full af hinum ýmsu kvörtunum, ábendingum og hverju því sem fólk í sakleysi sínu hefur borið til hans í von um að hinn eini sanni Guð almáttugi leysi málin ..
"Ég er eini maðurinn á Íslandi sem fólk treystir í dag og fólk kemur til mín með áhyggjuefni sín og biður mig um hjálp" .. okok, ekki orðrétt en meiningin á bakvið hrokann og veruleikafirringuna leynir sér ekki. Hvað heldur kallinn? Að hann sé Guð almáttugur - hinn ósnertanlegi? Það var ég sem gerði hitt og ég sem gerði þetta og blablabl ...
Hvers eigum við að gjalda að hafa svona mann með puttana í fjármálum landans?
Sigmar var flottur - alveg brilljant góður. Sigmar vex með hverju viðtalinu sem ég sé hann með og mér sýnist hann eiga góða framtíð fyrir sér. Hann hikstar ekki, hikar ekki og missir ekki taktinn þó menn eins og Davíð vaði úr einu í annað og jafnvel ljúgi á hann í beinni. Þú fullyrðir þetta og hitt segir Davíð við Sigmar en Sigmar sallarólegur glottir og segir kaldur "Nei Davíð, ég spurði þig - fullyrti ekki neitt"!
Fyndið að sjá hvernig Sigmar tók vopnið úr hendi Davíðs og beindi því beint til baka á kallinn og hans spillta flokk.
Davíð; "Ég varaði við þessu og varaði við hinu og það gerði ég alveg frá því í fyrra og hitteðfyrra og fyrr jafnvel .. blablabla" ...
Sigmar; "Davíð, ertu þá hér með að segja að Geir, sjálfstæðismenn og ríkisstjórnin hafi hreinlega brugðist? Ertu að segja að þú hafir varað við þessu öllu og ríkisstjórnin með Geir H. Haarde í forsæti hafi ekki hlustað á þig og þar með brugðist all alvarlega?" ...
Davíð; "Urrandi, Þið þessir fjandans blaðamenn - þurfið alltaf að snúa öllu sem maður segir og láta það líta út fyrir að vera mér eða mínum mönnum að kenna" .. "Undarlegt hvað þið fréttamenn takið alltaf allt sem ég segi og reynið að láta mig líta út fyrir að vera hinn vondi sjálfur - ég er sá eini sem fólk getur komið til og sá eini sem fólk treystir og sá eini sem .. blabla".
(okok, enn og aftur ekki beint og nákvæmt orðalag en svo til rétt atburðarás)..
Bíddu við, halló .. Var kallinn ekki einmitt að segja eitthvað í þá áttina sjálfur en er hér að reyna að koma því á Sigmar .. ? Hahaha.. hve sorglegt þetta sjónarspil er orðið. Þetta er orðið sorglegt og maður getur ekki annað en vorkennt kallinum fyrir það hve veruleikafyrrtur hann er. Guð gefi að hann fari að opna augun og að hann taki eftir því að hann í broddi Seðlabanka Íslands nýtur einskis trausts hjá almenningi - í það minnsta yfirleitt fæstum.
Ég þakka Sigmar kærlega fyrir frábæra frammistöðu í Kastljósi kvöldsins - og ég yrði þakklátur DO ef hann vinsamlega vaknaði uppúr Guðlegum Þyrnirósasvefni sínum og sæi veruleikann eins og hann blasir við okkur í dag.
Davíð í Kastljósviðtali | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.2.2009 | 17:01
Veltum fyrir okkur hvað hægt er að gera við 24 milljónir nú á tímum kreppu. Þetta er fáránlegt ...
Vanhæfur ráðherra þarf auðvitað að eyða skattfé landans í það að kaupa hina og þessa menn til að vinna fyrir sig verkin. Þegar ráðherra kann ekkert, getur ekkert og hugsar bara um stólinn undir rassinn - þá þarf hann auðvitað að ráða undir sig her manna til að vinna þá vinnu sem hann á sjálfur að gera.
Hvernig væri bara að fara að bretta upp ermarnar og koma sjálfum sér inn í málin sem undir mann eru sett og hætta að eyða almannafé svona í fjandans ráðgjafa og annað svo þú megir hafa náðuga setu í feitum stól - sem þú ert sem betur fer búinn að tapa í bili..
Segi ekki annað en að Guð hjálpi okkur ef þessi maður kemst aftur í heilbrigðisráðuneytið. Hversu miklu af skattfé ætli hann eigi þá eftir að eyða í "ráðgjafir og aðstoð"? Guð gefi að hann verði sem lengst í stjórnarandstöðu eða helst að hann hverfi bara úr pólitík for good.
Hugsið ykkur hve mikið væri hægt að gera fyrir 24 milljónir nú á krepputímum. Hvernig væri að muna þessa óráðsíu í næstu kosningum folks ...
Svona er þetta líklega líka með Davíð Oddson. Hann er vanhæfur seðlabankastjóri - án réttrar menntunar og hæfileika - þurfa menn að eyða stórfé í það að hafa undir sér alls skonar menn sem hafa hina réttu menntun og hæfileika sér til halds og trausts. Því í fjandanum ekki bara ráða hæfa menn til verka sem sannarlega vita hvað þeir eru að gera í sínum stólum - og gera það - og nota svo fé sem fer í alls skyns ráðgjafa í þarfari málefni og verkefni!
Er ekki tími sparnaðar núna? Hefði haldið það .. bara hugsa um hversu miklum fjármunum er eytt á þennan hátt í pólitíkinni yfir höfuð. Mig svimar við tilhugsunina um þennan sóðaskap ...
Ráðuneytið greiddi 24 milljónir fyrir ráðgjöf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Verð að viðurkenna að ég hef aldrei verið hrifinn af þessum náunga - og gæti trúað honum til að stinga hvern sem er í bakið - og stela hverju því sæti sem honum hugnast! Myndi ekki treysta honum í pólitík - frekar en að ég myndi treysta Árna Johnsen fyrir buddunni minni!
Hann minnir mig á þá allra verstu í íslenskri pólitík - og víðar ef svo ber við. Mitt atkvæði myndi hann aldrei fá og ef eitthvað er frá mér til hans í kjörklefanum - þá myndi það vera strik - yfir nafnið hans!
Það er ömurlegt þegar menn pota sér áfram með látum og hamagangi í pólitíkinni. Menn eru fljótir að stinga jafnvel félaga sína ef það hentar þeim sjálfum og kemur þeim sjálfum í feitara sæti. Menn eru hættir að hugsa um málefni og hættir að reyna að verða að gagni á þingi - hugsa bara um feit sæti og feita bitlinga sem og feita mánaðarlega tékka inn um bréfalúguna. Um leið og þeir alverstu byrja að pota sér áfram í aðdraganda kosninga - hafa þeir hátt, rífa fólk og málefni niður og lofa öllu fögru. Hvað gerist svo ef þeir ná að plata fólk til að kjósa þá? Jú, þeir grafa öll loforðin - ýta öllu viðkvæmu eða erfiðu til hliðar og stinga sér sjaldan eða aldrei til sunds þar sem vatnið gæti gárast því þá gætu þeir misst tékkann og stólinn.
Sem sagt - þegar framapotari kemst áfram í stjórn - eftir gól, gal og öskur á allt og alla - steinþagnar hann og passar sig að ýfa ekki við einu eða neinu sem gæti reynst "óþægilegt" pólitískt séð. Passa bara stólinn og gefa skít í loforð og kjósendur ...
๑۩۞۩๑ ๑۩۞۩๑ ๑۩۞۩๑ ๑۩۞۩๑ ๑۩۞۩๑๑۩۞۩๑
Í lítilli þriggja sæta flugvél sem flaug hátt yfir Íslandi - sátu þrír menn - flugstjórinn, Geir H. Haarde og Davíð Oddson. Þeir líta niður til landsins og Geir glottir ..
Geir H. Haarde; "Ef ég myndi henda út um gluggann einum þúsundkalli þá myndi ég gleðja einn mann duglega!" ..
Davíð Oddson; "Haahh.. auli ég myndi henda út tíu þúsundkalli og þar með gleðja tíu manns!"
Flugstjórninn stamaði í hljóði með sjálfum sér ..
"Ef ég myndi henda ykkur báðum út úr flugvélinni núna - þá myndi ég gleðja heila þjóð!"
Þessi var í boði Seðlabanka Íslands.
Ekki erfiðasta prófkjörið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.2.2009 | 02:25
Er Þóra Kristín "BlaðaMaður" eða er hún Blaðakona? Are you going to flirt online today? Make sure your wife has enough of dishes around then...
Til hamingju með daginn bloggvinkonur, moggabloggkonur og aðrar konur!
Þetta blómahaf er mitt framlag til dagsins ykkar í dag, njótið og hafið það ljúft og letilegt!
Strákar, munið að daðra og dúlla við allar þær konur sem þið hittið í dag - ehh - well, kannski ekki allar en við ykkar eigin í það minnsta.
Þóra Kristín er blaða-kona ársins . Til hamingju með það og daginn Þóra Kristín, vel að þessu komin!
Þóra Kristín blaðamaður ársins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjölmiðlar | Breytt s.d. kl. 02:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
"Nei, þetta er óskiljanlega mikil mismunun" er haft eftir heimavinnandi prjónakonu laust fyrir hádegið.
"Ég og Sibba prjónuðum 15 lopapeysur á viku, seldum hverja þeirra á 10.000kr og fengum því 150.000kr fyrir þær. Þegar við vorum búnar að draga frá allan kosnað í sambandi við efni og annað tilfallandi, sem og draga frá skatta og gjöld - þá fengum við ekki nema 10.000kr hvor í vasann!" dæsti Gunna og gretti sig ...
"Svo þarf Kalli gamli ekki að beita nema tveim bjóðum og hann gerir það á 3 klukkutímum - og hann fær 20.000kr fyrir þau og það beint í rassvasann!" sagði Sibba súr á svipinn og rétti upp fimm putta til að leggja áherslu á bjóðin tvö sem Kalli hafði þurft að beita. Það var ekki laust við að kerlingarnar tvær fengju aulahroll við tilhugsunina um hversu margar peysur þær þurftu að prjóna til að standast samanburð við tvö vesæl bjóð sem karlinn hafði þurft að hrista fram úr erminni - erm af peysu sem þær höfðu prjónað en ekkert fengið fyrir.
"Kalli gamli er jú karlinn hennar Sibbu, þess vegna þurfti hann ekki að borga fyrir peysuna" dæsti Gunna með fýlusvip sem sagði mikið um álit hennar á svona sposlum og fjölskyldugreiðasemi.
Konurnar tvær voru sammála um það að prjónaskapurinn væri of mikið af því góða, að það borgaði sig hreint ekki að standa í "kvenmannsvinnuverkum" heldur væri það heillavænlegra og betra fyrir budduna að fara út í karlaveldið og stunda vinnu sem karlarnir hafa hingað til séð um.
"Já, við erum að hugsa um að fara að flytja inn G-strengi með fílsrana .. þó við ætlum reyndar að hafa nokkra með bara engum rana, því sjáðu til .. það eru nebblega margir bara með hálfgerðan stubb og það er ekki hægt að bjóða þeim fílsrana - sem þá væri bara alltaf TÓMUR" sagði Sibba og kerlingarnar skelltu báðar uppúr og skelltu sér á lær. Þeim var greinilega skemmt en blaðamaðurinn sótroðnaði þegar honum varð hugsað til þess að ranalaus G-strengur væri staðsettur lengst inni í horni í lopasokkaskúffunni hans heima. Stamandi og vandræðalegur afsakaði hann sig og forðaði sér burt með hlátraskelli kerlinganna í bakið ...
"Spurning um hvort þær hafi fattaðetta? Njee .. þetta eru kerlingar, þær fatta ekkert!" Hugsaði blaðamaður með sér á hlaupunum ...
Næsta víst er að blaðamaður komst að því að það borgar sig að vera með eitthvað á milli lappanna ef maður vill fá vel borgað .. ekki spurning!
Umhugsunarvert er í framhaldi;
Hvernig væri að breyta þessu hið snarasta og jafna þennan mismun?
Óútskýrður launamunur 7% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 15:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
18.2.2009 | 23:06
Morðingjar sleppa oft billegar en þeir ættu að gera!
Ef ég hefði ráðið einhverju þarna - þá hefði ég stútað kvekendinu og búið til skó úr því!
Lík drengs fannst í krókódíl | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
Sannarlega er gamla báknið að hverfa smá saman og nýtt öflugt gagnvirkt flæði að opnast.
Blaðamannafundir og upplýsingaflæði er bara nauðsyn - og ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur er að standa sig brilljant vel í þeim efnum.
Ríkisstjórnin eykur upplýsingagjöf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- 19.8.2009 Kveðjur og knús!
- 25.6.2009 Nú kem ég og gramsa í garðinum þínum! Engin ljótur arfi lifir...
- 19.5.2009 Stutt innlit og sólblómakveðja. Ekki kominn til að vera - bar...
- 7.5.2009 Andskotans dómharka alltaf í fólki, manni blöskrar bara.
- 29.4.2009 Það rigndi gulli og gimsteinum úr himnaríki í dag! Hversu mik...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- blekpenni
- asthildurcesil
- jenfo
- lehamzdr
- skessa
- brjann
- jodua
- ringarinn
- hross
- jogamagg
- gurrihar
- christinemarie
- roslin
- jeg
- hneta
- majaogco
- madddy
- eddabjo
- lillagud
- angelfish
- skjolid
- stebbifr
- heidistrand
- sigro
- laugatun
- ollasak
- rasan
- skordalsbrynja
- antonia
- lindalinnet
- emm
- svala-svala
- kiza
- hran
- gellarinn
- katlaa
- danjensen
- snar
- tofulopp
- janey
- heidihelga
- skattborgari
- ellasprella
- icekeiko
- pollyanna
- perlaoghvolparnir
- bifrastarblondinan
- storyteller
- handtoskuserian
- strumpurinn
- siggathora
- jari
- disadora
- egvania
- um683
- veland
- sisvet
- wonderwoman
- brandarar
- borgarfjardarskotta
- jakobk
- gudrununa
- sp
- must
- jyderupdrottningin
- hrannsa
- einari
- engilstina
- manisvans
- himmalingur
- agny
- almaogfreyja
- gattin
- dittan
- dora61
- draumur
- gelin
- lis
- ace
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Ferðalög
- Fjölmiðlar
- Formúla 1
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði