Veltum fyrir okkur hvað hægt er að gera við 24 milljónir nú á tímum kreppu. Þetta er fáránlegt ...

GuðlaugurVanhæfur ráðherra þarf auðvitað að eyða skattfé landans í það að kaupa hina og þessa menn til að vinna fyrir sig verkin. Þegar ráðherra kann ekkert, getur ekkert og hugsar bara um stólinn undir rassinn - þá þarf hann auðvitað að ráða undir sig her manna til að vinna þá vinnu sem hann á sjálfur að gera.

Hvernig væri bara að fara að bretta upp ermarnar og koma sjálfum sér inn í málin sem undir mann eru sett og hætta að eyða almannafé svona í fjandans ráðgjafa og annað svo þú megir hafa náðuga setu í feitum stól - sem þú ert sem betur fer búinn að tapa í bili..

Segi ekki annað en að Guð hjálpi okkur ef þessi maður kemst aftur í heilbrigðisráðuneytið. Hversu miklu af skattfé ætli hann eigi þá eftir að eyða í "ráðgjafir og aðstoð"? Guð gefi að hann verði sem lengst í stjórnarandstöðu eða helst að hann hverfi bara úr pólitík for good.

Hugsið ykkur hve mikið væri hægt að gera fyrir 24 milljónir nú á krepputímum. Hvernig væri að muna þessa óráðsíu í næstu kosningum folks ...

Svona er þetta líklega líka með Davíð Oddson. Hann er vanhæfur seðlabankastjóri - án réttrar menntunar og hæfileika - þurfa menn að eyða stórfé í það að hafa undir sér alls skonar menn sem hafa hina réttu menntun og hæfileika sér til halds og trausts. Því í fjandanum ekki bara ráða hæfa menn til verka sem sannarlega vita hvað þeir eru að gera í sínum stólum - og gera það - og nota svo fé sem fer í alls skyns ráðgjafa í þarfari málefni og verkefni!

Er ekki tími sparnaðar núna? Hefði haldið það .. bara hugsa um hversu miklum fjármunum er eytt á þennan hátt í pólitíkinni yfir höfuð. Mig svimar við tilhugsunina um þennan sóðaskap ...


mbl.is Ráðuneytið greiddi 24 milljónir fyrir ráðgjöf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Guðmundsdóttir

já madur nær thessu bara ekki. Hvada hlutverki gegna thessir blessudu rádherrar ef their ráda svo bara pétur og pál til ad vinna verkin og borga milljónir fyrir??? Væri thá ekki bara rád ad RÁDA Pétur eda Pál i rádherrastólinn??  Thad er svo endalaust nóg af sukki og svínaríi í thessari pólitík ad já,manni bara svimar vid tilhugsunina um hvad thetta gerir i peningum YFIR HEILDINA

knús og kram til thin kæri minn,hafdu thad sem best

María Guðmundsdóttir, 24.2.2009 kl. 18:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Tiger
Tiger

Ég eyði fúlum og neikvæðum athugasemdum - svo það er tímaeyðsla að henda slíkum fjársjóð hingað inn. Verð hérna bara í flugumynd - lítið sem ekkert sem sagt. Þýðir ekkert að bíta af mér hausinn þrátt fyrir það...

***

Þakka öllum innlitið, en það er ekki þar með sagt að þú sjáir mig spora út síðuna þína!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 139732

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • jesumynd
  • jesumynd2
  • jesumynd4
  • blómabeðið
  • blómabeðið
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband