30.4.2008 | 11:21
Eldri borgarar - með göngugrind - labba framúr mér á 15km hraða - og veifa mér glottandi fyrir seinaganginn.
Ég fór niður í Hafnarfjörð í gær, niður í miðbæ. Ég var í miklu stríðnisskapi, enda ótrúlegt en satt - ég er dálítill Högni Hrekkvísi stundum. Vitið þið hvað? Það er 15km hámarkshraði í miðbænum, strandgötunni minnir mig að hún heiti gatan. Ég keyrði götuna, á réttum hámarkshraða - og fólki í umferðinni var ekki skemmt. Ég meina, eldri borgarar með göngugrind labbaði framúr mér! Halló, ég fór nokkra hringi og alltaf á réttum hámarkshraða - og viti menn - Gasmann mætti á svæðið eftir heljar mikið flaut og læti á svæðinu - og bað mig vinsamlegast um að láta mig hverfa! Auðvitað var ég samt ekki Gas-aður en ég varð Gas-alega hissa samt. Þeir gátu náttúrulega samt ekkert gert, enda ég eins löglegur og hægt var - en mér var vinsamlega bent á að þessi hámarkshraði væri svona ákveðið viðmið sem hefði þau áhrif að í stað þess að keyra á 50-60 þarna áður - keyri fólk þarna núna á sirka 30-40. Ok, 15-25km yfir hámarkshraða - og ég sem var stoppaður og fékk heljar sekt fyrir að vera á 78km á öðrum stað - þar sem var 60km hámark... ég slapp í miðbænum án sektar - en með áminningu um að haga mér vel framvegis. Ég lofaði öllu fögru en hornin og halinn voru mjög vel sjáanleg þegar ég ók í burtu.
Dagur tvö í tölvuleysi; Ég er magnaður, óheflaður og óforbetranlegur (hvað þýðir eiginlega óforbetranlegur - er það eitthvað orð?). Ég hef nú mest lítið að segja enda lítið verið að bardúsa á netinu, lítið kíkt á það hvað er hæst í fréttum í dag. Það er sannarlega skrítið að vera svona tölvulaus, enda líklega ekki verið tölvulaus í meira en áratug. Svona jálkur eins og ég er á núna skilar mér svo sem hægt og rólega áfram, en með hiksti og kuldafrosti og sjónhverfingum - þegar allt frýs eða dettur út.
Verst þykir mér auðvitað að geta ekki almennilega lesið alla mína bloggvini, en ég hef náð því að lesa þá sem ég hef lesið lengst en lítið gefið mér tíma til að skrölta yfir alla samt - og lítið sent inn comment nema þar sem ég annaðhvort þekki persónulega fólk eða hef já lesið lengur en ég hef bloggað. Ég mun taka duglega skorpu á blogginu ykkar allra um leið og flaggskip mitt kemur aftur í heimahöfn og það mun ekki fara framhjá neinum.
Það sem mér þykir næstverst er eiginlega það að geta ekkert gert í broskalla- og myndadeildinni. Ég get ekkert sent inn myndir eða broskalla í blogg eða athugasemdir - en eins og flestir sem lesa mig vita er ég ofvirkur á þeim brókunum. Mér finnst bloggfærsla án einhverrar skreytingar, myndar eða broskalla vera hálf tómleg, en veit samt að mjög margir nota aldrei slíkt "óþarfa" glingur heldur setja bara inn sína færslu án allra fylgifiska.
En, hér með set ég stopp á bloggerísfærslu - en ætla að reyna að skoða aðeins mína elstu bloggvini en þið hið elskulegust - ég á eftir að hamast í ykkur líka við fyrsta tækifæri. Eigið öll yndislegan dag og góða vikurest. Over and out héðan ...
Nýjustu færslur
- 19.8.2009 Kveðjur og knús!
- 25.6.2009 Nú kem ég og gramsa í garðinum þínum! Engin ljótur arfi lifir...
- 19.5.2009 Stutt innlit og sólblómakveðja. Ekki kominn til að vera - bar...
- 7.5.2009 Andskotans dómharka alltaf í fólki, manni blöskrar bara.
- 29.4.2009 Það rigndi gulli og gimsteinum úr himnaríki í dag! Hversu mik...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- blekpenni
- asthildurcesil
- jenfo
- lehamzdr
- skessa
- brjann
- jodua
- ringarinn
- hross
- jogamagg
- gurrihar
- christinemarie
- roslin
- jeg
- hneta
- majaogco
- madddy
- eddabjo
- lillagud
- angelfish
- skjolid
- stebbifr
- heidistrand
- sigro
- laugatun
- ollasak
- rasan
- skordalsbrynja
- antonia
- lindalinnet
- emm
- svala-svala
- kiza
- hran
- gellarinn
- katlaa
- danjensen
- snar
- tofulopp
- janey
- heidihelga
- skattborgari
- ellasprella
- icekeiko
- pollyanna
- perlaoghvolparnir
- bifrastarblondinan
- storyteller
- handtoskuserian
- strumpurinn
- siggathora
- jari
- disadora
- egvania
- um683
- veland
- sisvet
- wonderwoman
- brandarar
- borgarfjardarskotta
- jakobk
- gudrununa
- sp
- must
- jyderupdrottningin
- hrannsa
- einari
- engilstina
- manisvans
- himmalingur
- agny
- almaogfreyja
- gattin
- dittan
- dora61
- draumur
- gelin
- lis
- ace
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Ferðalög
- Fjölmiðlar
- Formúla 1
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Hahaha .... þú ert nú alveg Gas-aleg Helga mín. Knús á þig ljúfan.
Tiger, 30.4.2008 kl. 11:37
Á svona lágmarks hraða verð ég alltaf verri bílstjóri, því ég horfi meira á mælinn hvort hann fari yfir 15 eða 30 heldur en á götuna eða stórhættuleg.
Já þetta eru hálftómleg blogg hjá þér þegar kallana vantar. Hlakka til að fá þig allan aftur.
M, 30.4.2008 kl. 11:52
Hahaha ... ég var einmitt alltaf að tékka á mælinum - til að vera örugglega löglegur sko
Satt að þetta er hálftómlegt sko ... knús á þig ljúfa EMM.
Tiger, 30.4.2008 kl. 12:06
Gasalega ertu skemmtilegur í dag, Gassi minn, Maður er hálftómur án þín sko, það bara hreinlega vantar eitthvað þegar þú ert svona fjarverandi. Ég fer nú að smella x í kladdann hjá mér ef þú ferð ekki að mæta.
Er ekki bara tölvulán í BT málið ??
Segi bara svona.
KNúúúúússs !!!
Guðrún B. (IP-tala skráð) 30.4.2008 kl. 13:01
Heyrðu sko þarna núðlan mín, ég er náttúrulega með nýja tölvu - hún er ekki nema 3ja mánaða - en þessu fer nú vonandi að ljúka og ég fæ vonandi ekki x í kladdan - væri samt alveg til í xxx í kladdann þegar þú ert annarsvega sko! *flaut*... njeee segi bara svona sko. knús í klettana.
Tiger, 30.4.2008 kl. 13:22
Hahahaha prakkarinn þinn, það lá við að ég dytti niður úr stólnum við upphaf færslunnar, gamalmenni með göngugrind fóru fram úr þér En það eru ótrúleg vinnubrögð gasaranna. Þú varst á löglegum hraða.... og þar með löglegur.
Mikið GASAlega skil ég þig vel að það er erfitt að vera svona tölvulaus. Vonandi kemst þetta allt í lag sem fyrst TíCí minn, knús á þig bestastur minn.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.4.2008 kl. 13:32
Á medan thú leysir ekki út gas villevekk thá sleppur thad Tiger en já thetta er hálf svarthvít færsla bara svona med enga gasalega flotta kalla hlakka til ad fá " as usual" færslu frá thér med skrauti og alles.
Eigdu góda vikurest kæri minn ert bara flottastur.
María Guðmundsdóttir, 30.4.2008 kl. 14:17
Hahaha ég sá þetta í anda, gamalmennin með göngugrind á hraðri ferð fram úr þér! en skýtur það ekki svolítið skökku við hjá gasmann að tuða yfir því að fólk keyri á löglegum hraða
Ég hef einu sinni fengið hraðasekt og það er ennþá notað sem brandari í fjölskyldunni, ég var nefnilega sektuð fyrir að keyra á 42 km hraða (hámarkshraði var 30), mínum finnst að ég hefði átt að láta góma mig á töluvert duglegri hraða fyrst ég var á annað borð að þessari vitleysu
Eigðu góða vikurest broskallalausi bloggvinur
Huld S. Ringsted, 30.4.2008 kl. 14:39
Hahahaha..... mér þætti gaman að sjá þig með nettenginguna sem ég var með hihihi....... fyrst að talvan er of hægvirk þá værir þú sennilega dauður ef þú værir með gömlu símalínuna eða ISDN þó að það væri + þá myndir þú ekki anda lengi. Þakkaðu fyrir háhraðatengingu.
Knús og kreist fyrir kvittið og hahaha..... þú átt afmæli daginn á undann yngri strákunum mínum. Ójá hann er sko Vog úffff og sveiflast stundum fljótt á milli.
Hér er nú engin sól *snökt* bara rok og meira rok og smá fýla. Sólin fór í orlof held ég.
JEG, 30.4.2008 kl. 17:23
Ofurskutlukveðja
Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 30.4.2008 kl. 18:14
Sé þig í anda á Strandgötunni gamlingjarnir lítandi þig hornauga,
hafa verið búnir að gleyma því hvernig var á rúntinum í dentid, þá óku nú bílarnir hægt það var verið að líta á stelpurnar.
Knús knús inn í helgina þína
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 30.4.2008 kl. 18:38
Ekki algengt að fólk sé skammað fyrir að hlýða lögunum
Jónína Dúadóttir, 30.4.2008 kl. 18:52
þú verður að fá broskallana inn sem fyrst, enda eru þeir þitt treitmark
Brjánn Guðjónsson, 30.4.2008 kl. 20:06
Hahaha alltaf batnar það að vera bannað að keyra á löglegum hraða,þú ert snilld snúlli minn.
Eigðu gott kvöld ljúfur
Helga skjol, 30.4.2008 kl. 20:17
Hahaha ... ég held að þið séuð bara meiri prakkarar en ég sko! Gaman að sjá ykkur esskurnar og gott að vita að mahhr er ekki alveg gleymdur.. knús á ykkur öll.
Tiger, 30.4.2008 kl. 23:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.