Óður - en samt góður...

Ég er alveg óður af söknuði. Tölvan  mín crassaði í gær og ég er tölvulaus allavega fram á morgun - eða næsta. Þar af leiðandi mun ég ekki mikið vera hérna inni - og þið laus við hamaganginn í mér í bili. Hugsanlega verð ég orðinn gráhærður, kominn með fráhvarfseinkenni og hver veit nema ég verði byrjaður á kökudropunum áður en ég kemst almennilega aftur online.

Þið ljúfasta lið - sakna ykkar og vonandi takið þið ekki eftir hvarfi mínu - ekkert frekar en að almenningur tekur eftir hvarfi velferðakerfisins sem ofurskutlan er alltaf að leita af.

Til hamingju Kennarar með himinháa launahækkun..

Skammist ykkar sinubrennuvargar...

Áfram Júróbandið ...

Sé ykkur um leið og tölvan mín kemur í hús... over and out elskurnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: M

Er þetta að ganga ?  Okkar bilaði um í fyrradag en fengum hana úr viðgerð samdægurs. Heimilisfólk var á mörkum pirrings

Kveðja til þín  

M, 29.4.2008 kl. 13:22

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Knús á þig þangað til þú kemur aftur elskulegur.  Þín er sárt saknað.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.4.2008 kl. 13:44

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Guð það er eins gott að þetta vari bara þangað til á morgun,
annars mundi ég bara farast úr leiðindum.
                 Knús kveðjur Tiger míó.
                    Milla. Kisses 





Guðrún Emilía Guðnadóttir, 29.4.2008 kl. 14:17

4 Smámynd: Tiger

OMG... ég var að tala við tölvulistann og þeir segja mér að verkið geti tekið allt að 4 virka daga og því fái ég kannski ekki tölvuna fyrr en á Mánudaginn næsta.... im totally niðurbrotinn sko...

En, ég fékk hjá vinkonu minni lánaða tölvu - sem er frá árinu 1830! Seinn skratti og ómögulegur, en ég get allavega kíkt inn aðeins. Mun þó ekki eyða miklum tíma í athugasemdir fyrr en ég fæ mína tölvu aftur því þessi vinnur illa og svo er ekki einusinni hægt að downloada brosköllum inn á hana! Skelfilegt bara ...

Þannig - allavega verðið þið strax vör við mig þegar ég sný til baka á minni seglskútu - sem reyndist með einhverjum galla.. enda ekki nema 3 mánaða gömul. See ya later essgurnar...

Tiger, 29.4.2008 kl. 15:51

5 Smámynd: Huld S. Ringsted

Arg! það verður tómlegt hérna án þín verst að þú ert ekki á Akureyri þá hefði ég fengið kallinn minn til að gera við tölvuna fyrir þig á "no time". Gengur ekki að hafa Tící svona lengi frá blogginu

Huld S. Ringsted, 29.4.2008 kl. 16:44

6 Smámynd: Tiger

Takk mín kæra Huld, er nú búinn að restarta þessari 5 sinnum á meðan ég stoppaði hérna, sirka klukkutíma eða svo. En ég kem sterkur inn þegar ég fæ mína aftur .. knús á þig ljúfan.

Tiger, 29.4.2008 kl. 16:46

7 Smámynd: Solla Guðjóns

'ubbs 4.vikur ég er strax farin að sakna þín

Solla Guðjóns, 29.4.2008 kl. 16:59

8 Smámynd: Solla Guðjóns

oG já áfram Júróbandið

Solla Guðjóns, 29.4.2008 kl. 16:59

9 Smámynd: Ragnheiður

Æj ég vissi að eitthvað var í pati hjá þér, grunsamlega þögull Tiger minn.

Takk fyrir hlýja kveðju í miðjum tækniörðugleikum og ég hlakka til að sjá þig sprækan á ný

Ragnheiður , 29.4.2008 kl. 17:01

10 Smámynd: Tiger

Ollasak, neinei .. fjóra daga! Og sammála, áfram júró. Knús á þig ljufan.

Ragnheiður mín; Já, það er búið að vera smá undanfari líka - smá frost og truflanir með netið, og svo krasserí. Það er sannarlega eitthvað grunsamlegt þegar Tiger er þögull ... segir það satt sko! :) Knús á  þig elskulegust!

Tiger, 29.4.2008 kl. 17:09

11 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Ég samhryggist þér með tölvuna þína, vonandi færðu hana spræka til baka!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 29.4.2008 kl. 18:22

12 Smámynd: María Guðmundsdóttir

sakna thin ekki??? hvernig á thad ad vera hægt????   vertu fljótur bara og komdu sem fyrst tilbaka..eda altsá tølvan thin  en já ,vonandi virkar hún thá sem skyldi eftir allt saman.

Knus og krammar   

María Guðmundsdóttir, 29.4.2008 kl. 18:25

13 identicon

Ofurskutlukveðja :)

Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 29.4.2008 kl. 19:38

14 Smámynd: Steingrímur Helgason

Hífðu þig nú upp úr kardemommunni, félagi Bastían.

Kennarinn á heimilinu hlær hátt að þessari 'himinnháu kauphækkun'.

En, 'a friend of mine bought an Edsel', & frá Tölvulistanum, viljandi.

Haha,,,

Steingrímur Helgason, 29.4.2008 kl. 19:49

15 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

knús knús og kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 29.4.2008 kl. 20:57

16 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Mín er komin úr viðgerð, betri en ný Skjáumst Högni minn

Jónína Dúadóttir, 29.4.2008 kl. 22:30

17 Smámynd: JEG

Já svona getur tæknin dregið fólk á asnaeyrunum. Iss þú hefur gott af þessari hvíld ????    Ég þarf einmitt að taka langa pásu á næstunni vegna anna úffff finnst það strax skelfilegt sko.  En hellingur af knúsi og hughreystingu.

JEG, 29.4.2008 kl. 22:40

18 identicon

Missjahon !

Guðrún B. (IP-tala skráð) 30.4.2008 kl. 00:15

19 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

come back soon

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 30.4.2008 kl. 01:06

20 Smámynd: Helga skjol

Æji þín verður sárt saknað ljúfur

Saknaðarknús

Helga skjol, 30.4.2008 kl. 06:27

21 Smámynd: Tiger

  Þið eruð öll svo mikið æði - held ég verði nú bara að Gas-a ykkur við tækifæri.. þakka ykkur kærlega fyrir innlit og kvitt elskurnar! Knús á ykkur öll.

Tiger, 30.4.2008 kl. 11:35

22 Smámynd: Tiger

 sko, Herbert - bara lesa mig - er mjög auðlesinn - og þá bara kynnist þú mér, enda er ég nákvæmlega það sem ég skrifa. takk fyrir comment sko.. :)

Tiger, 30.4.2008 kl. 23:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Tiger
Tiger

Ég eyði fúlum og neikvæðum athugasemdum - svo það er tímaeyðsla að henda slíkum fjársjóð hingað inn. Verð hérna bara í flugumynd - lítið sem ekkert sem sagt. Þýðir ekkert að bíta af mér hausinn þrátt fyrir það...

***

Þakka öllum innlitið, en það er ekki þar með sagt að þú sjáir mig spora út síðuna þína!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • jesumynd
  • jesumynd2
  • jesumynd4
  • blómabeðið
  • blómabeðið
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband