Færsluflokkur: Spaugilegt

Gamansagan: Landspabbi hefur talað, brúðurnar hlusta, gegna og dansa eftir hausnum...

  Sviðsmyndin = Stórveisla - mikið um dýrðir og hvergi til sparað - ekki einu sinni í ráðleggingum og plotti. Landspabbi býður uppá kökur og plott, baktjaldamakk og svikinn héra. Eftirréttur, Z tengd skipun með afskiptasemdarís og valdapotssósu. Tilgangur ... tja - koma nýjum Landspabba að - eða koma lepp inn í stjórnmálin svo gamli Landspabbi geti haldið áfram að halda í taumana.

Landspabbi: Komið til mín börnin mín stór og smá - aðallega þið ósjálfstæðu - leyfið börnunum að koma til mín. Munið eftir afmælispökkunum - annars fáið þið ekki yfirdrátt, fjárdrátt, skattafrádrátt eða bara drátt yfir höfuð.

Ósjálfstæðismenn:   Heil þér Landspabbi! Lifi Ökumaður ósjálfstæðis í landinu! Húrra fyrir karlinum sem enn heldur fast í taumana (enda var notað xtra glú til að ekkert rynni úr greipum Landspabba - og límið er enn í handakrika karlsins)...

Trillti Villi: Ó Landspabbi - við misstum allt úr höndunum fyrir ári - ekkert lím og engin samstaða og taumarnir staddir hjá Tjarnarkvartettinum. Hvaða lím notaðir þú í lófana til að missa ekki taumana? Hvað getum við gert til að missa ekki tökin, lökin og brjótum ekki bökin? Hvað á ég að gera til að halda völdum, taumum, launum og andliti? *grátur og gnýstan tanna* ...

Landspabbi: Shut up leppur, i'm talking you crybaby, you foolish son of a gun. Þið eruð svo ósjálfstæð núna í borginni að það er skömm að því að vera yfir ykkur - liggur við að ég segi af mér og skili taumunum *tröllahlátur* Yeah, Villý boy - in your dreams. Þrífðu af þér vælið og stattu beinn í baki, ég tala við þig þegar allir eru farnir úr konungsveislunni minni - ekkert má skyggja á hana.

Ókunnur veislugestur: En hvað hér er allt ríkmannlega búið. Hvað kosta herlegheitin og áttu fyrir þessu Landspabbi?

Landspabbi: Huhh. Peningar skipta mig engu máli. Ég á trjilljónir í banka - mínum banda - hell yeah - ég á banka og allt sem þar er geymt - *geðveikislegt augnráð og sjóðandi sukkeríssvipur* - ég á allt alllt allllllt ALLLLT sem fávitarnir koma með í minn banka, muhahahaha. Ég á líka landið, ég á ykkur öll - ég á Ísland eins og það leggur sig.

  Veislan á enda. Landspabbi stoppar Villa REI, leppinn sinn í borginni, áður en hann fer út. Bíddu, halló herra gleyminn - ætluðum við ekki að tala saman eftir veisluna? - Hugsaði Landspabbi um leið og hann stoppaði þann Trillta. Hvar eru minnismiðarnir þínir bjálfi? Hugsaði hann og glotti með sér - ó mig auman - hvað það verður auðvelt að stjórna þessari ósjálfstæðu brúðu.  Laumulegt augnráð, sviksamlegur svipur, klapp á bak þeirra sem fara úr veislunni - klapp sem skilur eftir sig lítinn veisluhníf í hverjum og einum. En Landspabba er sama því hann veit að engin myndi voga sér að kvarta eða finna að hnífstungunum - enda allir orðnir svo vanir þessu og að auki vita allir hvað er í húfi ef þeir espa karlinn í brúnni upp á móti sér. Landspabbi er dálítið hátt uppi eftir allt smjaðrið og stóru gjafirnar en hristir af sér slenið og glottir geggjunarlega um leið og hann króar uppáhaldsbrúðuna sína af úti í horni.

Landspabbi: Villi, nú er tími til að sitja af sér REI nafnið. Það er kominn tími til að ég troði smá minnispunktum frá mér í tóma kollinn þinn. Skrifaðu allt niður og reyndu að hafa miðan á þannig stað að þú getir ekki gleymt honum eða týnt honum. Ef þú gerir allt sem ég segi og gegnir mér - eins og eitthvað annað komi til greina svo sem - þá verð ég orðinn borgarstjóri aftur eftir nokkra daga   *geðveikislegur hlátur sem gnýstir merg og bein ósjálfstæðu brúðunnar*.

Villi REI: Já, en ... er það ekki ég sem á að verða borgarstjóri? Ég hélt að þú værir ánægður í þínum feita stól og ég mætti aðeins fá að máta taumana þína.

Landspabbi: Það verður aldrei neinn annar borgarstjóri en ég, muhahaha! Æ, hættu þessu væli. Þú færð að vera staðgengillinn minn svona út á við. Þú situr í stólnum en ég verð á bakvið gardínurnar með spotta í þér og kippi í þegar ég vil að þú takir eftir og gerir það sem ég vil að þú gerir. Taktu þér tak maður og reyndu að þurrka þennan aumkunarverða svip framan úr þér. Völdin eru mín mííín MÍN MÍN MÍN... *enn einn óraunverulegi ógeðshláturinn sem helst minnti á bergmál tröllanna úr fjöllunum* .. Taktu eftir MISTER REI. Þetta er það sem við gerum núna. Þú gerir hallarbyltingu í Ráðhúsinu mínu, mínu, mínu mííínu - RÁÐHÚSINU MÍNUUUUUUU! Svo þegar lætin byrja þá .........

   Nokkrum dögum síðar hringir síminn hjá Landspabba hátt og lymskulega. Hringitónninn sagði Landsföður að hér væri um að ræða hringingu frá REI genginu sínu. Fjandans aular, ekkert í líkingu við það sem ég var, er og stend fastur fyrir - virðingarleysi og átroðsla, mínar skoðanir, mitt orð, mín lög - ég ræð éég rææð ÉG RÆÐ ÖLLU ENNÞÁ OG LÆT ENGAN KOMAST UPP MEÐ AÐ KALLA MIG BARA BANKASTJÓRA - ÉG ER ALMÆTTIÐ HÉRNA ÉG ER LÖG OG LÆTI, ÉG ER LANDSPABBI MEÐ MEIRU! Illilegt og flárátt augnráðið róaðist smá saman niður og hann hristi af sér sæluhrollinn sem hríslaðist niður hnífasettið sem ósjálfstæðisbjálfar höfðu í gegnum tíðina óvart skellt í bak hans. Honum var sama á meðan taumarnir voru ennþá í hans höndum og það var hann sem réð öllu öllu ÖLLLLLU.IS...

Landspabbi: Halllóóóó. Borgarstjóri hérna, how may i help you? Ehh.. já - verðandi brúðustjórnandi - borgarstjóri meinti ég auðvitað. Hvað gengur á?

Villi REI: Æi, drottinn minn dýri! Háæruverði lærifaðir! Ég veit ekki, eða man ekki alveg hvað ég ætlaði að segja þér - en minnir að það hafi verið eitthvað mikilvægt. *hugsandi andardráttur heyrist í símanum* ...

Landspabbi: Ertu búinn að framkvæma hallarbyltinguna sem ég fyrirskipaði? Ertu búinn að ræna völdum og notaðir þú geðveika hlekkinn sem ég fann á reiki þarna í landspólitíkinni? Koma maður, hugsa og svara! KOMAKOMAKOMA NÚ...

Villi REI: Æi, já. Við gerðum nákvæmlega allt sem þú skrifaðir á miðann fyrir mig og nú er allt í háalofti. Þú hefðir átt að sjá tómatana sem lentu í hausnum á okkur þegar við vorum að reyna að máta stólana í Ráðhúsinu, fólkið var alveg trítilótt *smá snökkt og sogið uppí nefið* ..

Landspabbi: Hættessu væli leppur, skreppur og silakeppur. Geymdu vælið þar til þú ert fyrir framan myndavélarnar. Gerðu bara eins og ég segi og þá flaming virkar allt og ég kominn í fremstu víglínu aftur og aftur og aftur og aftur - hey - muhahahahaha - ég fór aldrei allldrei ALLLLDREI - ÉG ER BESTUR OG MESTUR... ehh.. jámm - hvað varstu að segja?

Villi REI: En núna eru allir æfir og heimta að ég hætti í pólitíkinni - vilja að ég segi af mér og leyfi Gísla og Hönnu að ráða öllu. Hvað á ég að gera?

  Landspabbi: *Geðveikislegur tröllahlátur* Gísli ... muhahahaha GÍSLI eða HANNA! *Enn tröllslegri og hrokafyllri hlátur*.  Sko þú ólánsami gleymskumikli þrus.  Þau munu aldrei komast að - ekki á meðan ég er borgarstjóri á bakvið gluggatjöldin. Gísli er bara lítið peð, lítill bjálfi sem ég hef algerlega í hendi mér og ef ég svo mikið sem hnerra - þá kemur hann hlaupandi með vasaklút til að snýta mér. Hann er lítil barbýdúkka sem verður aldrei neitt nema litla dúkkan mín. Hanna - muhahahaha - hún er bara kjelling, við vitum báðir að kjellingar eiga ekki heima í feitum stólum sem lúta mér, mér mééér MÉR MÉR MÉR ÉG Á ÞETTA FÚLA BATTERÍ OG ENGIN TEKUR STÓLAAAAANA MÍNA MÍNA MÍÍÍNA. Er það skilið Leppur? Þú heldur þig til hlés og lætur sem ekkert sé - leyfðu fffffjannnndans lýðnum að pústa aðeins út og væla. Þegar vælið er búið þá getur þú komið í ljós og sagt þeim - með þessum vælusvip sem þú kannt svo vel - að þú ætlir að hugsa þinn gang. Auðvitað kemur ekki til greina að Ég ég ég ÉG ÉG ´´´´´´ÉG AXLI ÁBYRGÐ Á ÞESSU ... ehhm mjá.

  Villi REI: En verð ég ekki jarðaður í þessu öllu? Verður ekki einhver að taka á sig ábyrgð og gera eitthvað heiðarlegt í stöðunni? Fólkið er reitt og vill fá einhvern til að hengja.. *með grátstafinn í kverkunum*.

Landspabbi: Þegi þú bara. Þú segir ekki orð. Nema í mesta lagi að þú ætlir að fara yfir málin - muhahahaha - hell yeah - segðu bara að þú ætlir að sjá til með hvort og hvað og hvenær en gefðu bara ekkert upp - og Í GUÐANA BÆNUM EKKI NEFNA MIG Á NAFN SKO! Best að halda feisi á meðan lýðurinn lætur þetta allt hverfa í gullfiskaminninu. Blessaður vertu, eftir nokkrar vikur verð ég orðinn brúðustjórnandi í Ráðhúsinu aftur. Ráðhúsinu .. Ráðhúsinu mínu - MÍNU MÍNU MÍNU MÍNU ENGIN SKAL NÁ ÞVÍ FRÁ MÉR MÚHAHAHAHAHA...

Villi REI: Ok, ég sem sagt held mig til hlés og segi ekki frá neinu? Ehhnn .. hverju á ég ekki að segja frá? Hvað vorum við að gera sem ég má ekki tala um? Ráðhúsið? Hvaða Ráðhús? Hver ert þú? Bíddu við meðan ég hugsa aðeins, jamm ég segi ekkert - enda man ég ekkert hvað ég gæti svo sem sagt frá. Ég bíð bara eins og þú segir og sit af mér öll lætin og treysti þér í blindni ó þú minn dýri drottinn...

  Landspabbi: Muhahahaha. Sittu eins og skrattinn á stolnu eggi. Mótbyrinn stendur stutt og deyr eins og allt annað sem ég stíg á... *Léttgeggjaður ánægjuhlátur þess sem veit uppá sig sökina en axlar enga ábyrgð*. Sittu kyrr og láttu bara ekkert heyrst í þér í nokkrar vikur. Þegar tíminn líður og orrahríðin hverfur þá bara heldur þú áfram að dansa eins og ég segi þér, tangó tannnngó tannnnnnnngó TANGÓTANGÓ ÓGÓ ÓGÓ LÓGÓ HÚKÓ PÚKÓ. *trylltur tröllahlátur og ánægjuhljóð*. Sittu fast á þínum gleymna og feita rassi. Líkt og hjá mér mun ætíð sama gleymska vaða yfir landið og allir gleyma þessu. Engin tekur eftir því þegar ég læt þig dansa í borgarstjórastólinn eftir árið eða kannski miklu fyrr - þegar aumi hlekkurinn brotnar - muhahahahaha - geggjaði hlekkurinn sem trúði öllu öllllu ÖLLLLU því sem ég lét þig segja við hann. *Geðveikur hlátur og soghljóð*. Ég verð að hætta, mig vantar bleiku pillurnar mínar, og þær gulu, og þær bláu - bláu blááááu - BLÁU PILLURNAR MÍNAR HVAR ERU ÞÆR???? Sittu í leyni - engar myndavélar - ekki einu sinni á msn í webcam - og ekkert perrrrrrr því er verrrrrr - muhahaha. ÉG LÆT ÞIG VITA HVENÆR ÞÚ ÁTT AÐ KOMA Í LJÓS OG GEFA EINHVERJAR YFIRLÝSINGAR - ÞEGAR ÉG ER BÚINN AÐ ÁKVEÐA HVAÐ ÞÚ ÁTT AÐ SEGJA. HVAR ERU BLÁU PILLURNAR MÍNAR.... MÚHAHAHAHA.

  to the bank to take out all my money before the fat man swallows it all.


Æðisleg veisla afstaðin og minningin góð.

  Ég fór í veislu í gær, nei það var ekki neitt áfengi í veislunni þrátt fyrir þessa mynd. Þetta var yndisleg veisla og var ég að vinna í henni en ekki þar sem gestur. Ótrúlega skemmtilegir þekktir einstaklingar og listamenn sem mættu þar og skemmtu veislugestum. Bestur - að öðrum ólöstuðum - fannst mér gamli góði Hemmi Gunn...

Það var æðislegt lambakjöt, íslenskt auðvitað   - létt eldað og lítið kryddað en svo æðislega gott að það bráðnaði á tungunni - sem og meðlætið - jummmmmmý!

Kokkurinn var fenginn lánaður úr röðum veislugesta, var tengdasonur eins gestsins - og er hann ekki lengur starfandi sem kokkur. Ekki það að maturinn í gær hafi ekki verið góður sko - hann er bara hættur að starfa sem kokkur, sem er synd því hann er frábær.

  Þeir sem skemmtu veislugestum voru: Hemmi Gunn, veislustjóri - Bergþór Pálsson söngvari (æði) - Raggi Bjarna (frábær) - Látúnsbarkinn Bjarni Ara (flottur) og svo var auðvitað stórsveit félagsins sem hélt veisluna sem alltaf stendur fyrir sínu.

Veislan var í alla staði hin skemmtilegast og glæsilegasta. Enginn fór   heim heldur voru allir til friðs - enda voru þetta mest aldraðir yndislegir einstaklingar sem voru að halda árshátíð sína. Það var líknarfélagið Bergmál sem hér var á ferðinni með fríðan hóp af langveikum eldri borgurum og þeirra vinum og fjölskyldum. Við sem unnum þarna gerðum það auðvitað í sjálfboðavinnu til styrktar félaginu og þessum yndislegu manneskjum sem margir hverjir eiga það mjög erfitt vegna veikinda og erfiðra sjúkdóma.

  Ég er auðmjúkur og glaður í hjarta að hafa getað gefið smá af mér til góðra mála og hef gert það lengi - og mun halda áfram á sömur braut.

   see  ya all in next bloggi ...


Skollinn hafi dómsyfirvöld vegna lúðalegs framlags við að sleppa hendinni af glæpahyski og óþjóðalýð.

  Ég trúi þessu nú varla. Hvað er málið með þessa bavíana sem stjórna þessum málum hérna á klakanum. Ég hefði haldið að það eitt að minnsti grunur væri fyrir sekt myndi tryggja að þeir sem að málum koma geti ekki bara vippað sér á sólarströnd og látið sem Ís-land bara bráðni niður í minningunni...

Eru dómsyfirvöld orðin hreinlega klikkuð að gefa svona eftir og leyfa hugsanlegum morðingja lítils gullmola úr keflavík að bara ulla á okkur og hlaupa úr landi eins og ekkert hafi í skorist? Á maður að þurfa að eiga von á þessu í öllum þeim tilvikum sem sannarlega eiga eftir að koma upp í framtíðinni - að glæpamenn geta komið hingað - framið illvirki sín - og svo bara gefið okkur langt nef og stungið af í ró og næði?

  Maður missir alla trú á yfirvöld þegar svona kjánaskapur leyfist. Get ímyndað mér hve hrygg fjölskylda unga drengsins er yfir þessum lúðaskap dómsvaldsins (mín fjölskylda hefur líka lent í aðstæðum þar sem lítið barn var hrifið burt frá okkur en sá sem var valdur dauða þess fékk litla áminningu og málið dautt). Hvað er í gangi? Hvers vegna er svona sakamönnum bara ekki stungið beint í steininn og þeir látnir byrja að taka út refsingu sína þegar svona augljós tenging er við glæpinn?

Big hug til fjölskyldu litla gullmolans í Keflavík, megi Guð styrkja ykkur öll!

  

  see ya all later...


mbl.is Farinn úr landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

So Much Missing Jenný Anna Baldursdóttir 1...

 Er það ekki skrítið með okkur mennina (og kerlingarnar líka sko). Við setjum okkur í ýmislegt sem við svo bindumst trúnaðarböndum en eigum svo í hinum mestu vandræðum með að komast aftur út úr því. Undarlegt hvað vaninn getur verið okkur skelfilegur baggi á baki og þegar ekki er allt eins og það á að vera þá bara missum við sjónar á sjálfum okkur... 

  Þegar maður er orðinn svo læstur/vanafastur t.d. í blogghring - að kíkja á þá sem maður er með í favorit(hef alla mína bloggvini í favorit en breyti því kannski seinna) - og svo dettur einn af listanum út í einhvern tíma - þá er maður bara hreinlega lost!

  Gullkorn eru eitthvað sem auðvelt er að týna sér í. Ég veit ekki með ykkur hin hérna - en ég sakna Jennfo. Ég sakna þess að finna ekki nýjar færslur - sakna þess að geta ekki bullað dálítið inni hjá henni og sakna þess að lesa bæði hana og bloggvini hennar sem eru lang flestir algerir gullmolar.

  Jenný fyrir bloggið þitt og fyrir það að hafa gefið okkur svona skemmtilegar stundir þína bloggtíð. Hlakka ósegjanlega mikið til þegar færslur fara að hrynja aftur inn hjá þér og ég get aftur farið í vanafastan blogghringavinaheimsókn mína - og stoppað ætíð síðast - en lengst - inni hjá þér þar sem mér finnst alltaf svo gaman. Við söknum þín stelpurassgat.

   get vell as soon as possible. Hugheilar óskir um góðan árangur og góðan bata. Ég er öruggur um að ég tala hér fyrir munn margra hérna á blogginu, við erum vinir þínir og margir örugglega meira en vinir hérna.

  Into the real world now... see ya all.


Hot damn hvað tíminn líður - when you´re having fun!

   Klukkan er orðin hálf fjögur og ég ekki sofnaður   Kannski ekki skrítið þegar maður á svona góða bloggvini og msn vini og bara helling af dásamlegu skyldfólki sem hangir daginn inn og daginn út á netinu... á þetta fólk sér ekkert líf? Dísess...

 

Hugsanlega ætti ég ekki að vera svona  og syfjaður fyrir framan tölvuna því einhver gæti átt það til að missa sig yfir því. Sennilega bara best að koma sér í bólið því það er vinna framundan - veislustand, pottar og pönnur og fleira skemmtilegt. Er að fara að vinna sjálfboðavinnu fyrir yndislegt fólk sem lengi hefur átt við veikindi að stríða. Fátt er eins gefandi ein og það að gefa af sjálfum sér til þeirra sem hafa alla tíð átt erfitt...

 Good you all and happy dreams to everyone og góða helgi... 


Fjandinn sjálfur, ég er fastur í söngvakeppninni og hef alltaf verið - nema þegar trúðar taka þátt í henni fyrir okkur.

  Ohh, damn. Ég er bara held ég fastur í þeim áhyggjum mínum að við séum að fara að gera sömu mistökin og hér um árið þegar glimmerdruslan var kosin af túttukynslóðinni og send "fyrir okkar hönd" (rétt eins og þegar Davíð og Co tóku þátt fyrir okkar hönd í stríðinu án þess að spyrja heildina) til keppni í Aþenu og gerði meiri ólukku en nokkuð annað.

Að mínu áliti er Egill Einarsson - Gilsenegger or sumthin álíka stupid - holdgerfingurinn Silvía Nótt endurtekin. Hann er álíka athyglisjúkur með alls skonar fíflalæti og barnastæla sem falla ótrúlega nett og vel í börn og unglinga í dag. Málið er jú auðvitað að með því að leyfa sms kosningar þá er það fyrirfram vitað hvað kemur uppúr pottinum þegar honum er snúið við - fíflalæti, sýndarmennska, glamúr og flottir kroppar. Allt gott og blessað - nema þegar á að senda gott og vel gert lag til keppni í söngvakeppni - en ekki vel útlítandi fífl í trúðaafmæli hjá ungu kynslóðinni.

   Við megum ekki senda trúða í söngvakeppni fyrir okkar hönd. Trúðar eiga ekki heima á slíkum vettvangi þó börnin sýni þeim tilheyrandi áhuga í barnaskap sínum.   

Látum fagaðila úr heimi tónlistar á Íslandi standa saman og velja úr "BESTA LAGIÐ" til að tryggja að "HEITASTI TRÚÐURINN" verði ekki sendur erlendis.

  


Fáránlegar skoðanakannanir og símakosningar endurspegla ekkert nema álit lítils hóps sem er ekki marktækur að mínu mati.

  Skoðanakannanir og sms/símakosningar koma alltaf þeim sem síst skyldi í stöður sem hæfir þeim ekki og þeir ráða ekki við - og oftar en ekki þarf maður að skammast sín fyrir niðurstöður sem engan raunveruleika eiga til þegar á heildina er litið.....

Skoðanakannanir og símakosningar eru ofmetnar leiðir sem ekkert sýna í réttu ljósi og ekkert hafa með álit og vilja þorra landans að gera. Ef við t.d. lítum fyrst á skoðanakannanir þá kemur ýmislegt mér undarlega fyrir sjónir - rétt eins og með símakosningar.

Skoðanakannanir, úrtak úr þjóðskrá, símaskrá eða bara einhverjir sem tengjast þeim sem kannanir framkvæma, eru algerlega ofmetnar.

Ef það á t.d. að kanna fylgi einhvers flokks - hvað vitum við nema að úrtakið - hvaðan sem það er tekið - sé kannski harðir fylgismenn ákveðins flokks svo að samkvæmt því úrtaki er sá flokkur sá sterkasti í þeirri skoðanakönnun - jafnvel þó það hitti svo á að kannski hefur það ekkert fylgi nema þá sem úrtakið hitti á??? Ef það vill svo til að langflestir í úrtakinu reynast vera V-rauðir þá koma V-rauðir mjög sterkir út úr "skoðanakönnun" sem framkvæmd er af "blabla" fyrir t.d. Morgunblaðið.

Sama er ef t.d. verið er að skoða áhorf á ljósvakamiðla eða lestur dagblaða. Við vitum að það er til dágóður slatti af fólki sem horfir t.d. alltaf á Silfur Egils - og ef svo vill til að þeir sem framkvæma og pikka út ákveðið fólk sem úrtak fyrir skoðanakönnun um Silfur Egils - hittir bara á fólk sem horfir aldrei á Silfur Egils - þá er niðurstaðan sú að Silfur Egils fær ekkert áhorf/lítið sem ekkert - þrátt fyrir að kannski er meginþorri landans sem virkilega fylgist með karlinum.

  Ég held að svipað megi segja um sms-símakosningar í kringum hinar ýmsu keppnir. Eða sko - í raun eru það algerlega ómarktækar niðurstöður sem koma uppúr slíkum kosningum að mínu mati. Sá/sú sem er mesti bullarinn, mest að nota sér allt það sem höfðar til "barnanna" í þjóðfélaginu - til þeirra sem hafa og ráða yfir farsímum og hafa stærstu áhrifin á niðurstöður t.d. söngvakeppninnar - eru börn sem hafa ekki hundsvit á því hvað er gott lag eða hvað er bara hopp og læti - sýndarmennska og athyglisýki.

Við ættum virkilega að endurskoða það að leyfa sms/símakosningar því niðurstöður úr þeim er ófagmannleg og ætíð mestu fíflalætin sem poppa upp sem "sigurvegarar" - sjá t.d. Silvíu Nótt og nú Swarsenagger eða hvað sem þessi steramassi kallar sig og er stanslaust að eltast við athygli frá börnum og unglingum.

  


Eru nokkuð bloggarar í auglýsingabrasanum?

Alveg milljón að sjá þessa auglýsingu - þrátt fyrir að vera á móti þeim sem slíkum á bloggi er þessi sannarlega flott. Það sem mér fannst fyndnast er að þegar maður kemur inn þar sem hún er hýst birtist gluggi með manni að kíla kjötskrokk - og sá minnir óneitanlega mikið á einn skemmtilegan bloggara sem við eigum hérna. Ekki að sá góði bloggari sé í sífellu að kíla kjöt og fleira - heldur dettur manni þessi bloggari strax í hug þegar maður sér það sem blasir við þegar maður fer inn á moggafréttir. Hugsanlega er það útaf "ullarpeysunni og húfunni" ... LoL

Auglýsingin er staðsett hérna!

Vonandi fyrirgefur hann mér að grínast svona, mátti bara til því mér datt hann strax í hug þegar ég fór að lesa fréttir á mogganum. Whistling


Burt með Valintínusarkjaftæðið - burt með ástsjúka fávita.

Nú hellast yfir okkur arfar og sælgæti sem og flóð af kampavíni, kavíar og ilmefnasull. Hvers eigum við að gjalda sem ekki erum í rómantískum hugleiðingum? Við sem erum kannski ekkert á því að láta klófesta okkur og gera útaf við hið ljúfa líf þess einhleypa GetLost jamm, glætan að maður láti þetta vaða yfir sig á rómantískum skónum ...

 valintinus1

Hérna eru 10 leiðir til að sleppa úr klóm þeirra sem eru á þeim buxunum að binda okkur niður, niður með hjúskaparmiðlara. Hugmyndir fengnar með því að útúrsnúa hugmyndum um "viltu giftast mér" í Fréttablaðinu í dag.

1. Eldaðu banvæna máltíð en vertu viss um að þú hafir hellt nóg í þann sem er að reyna að klófesta þig. Þannig áttar hann/hún sig ekki á Arzenik bragðinu fyrr en of seint og þú laus. (Alltaf hægt að nálgast Arzenik hjá Jenný okkar því hún hefur ætíð lausnir við öllum vandmálum).

2. Gefðu þeim sem þig vilja krækja í uppá "gott" nudd. Ekki vanda þig og einbeittu þér að svæðum og punktum sem valda sem mestum sársauka. Notaðu enga olíu því olíur gætu átt það til að valda unaðstilfinningu - notaðu ekkert - því þurrara sem nuddið er því sársaukafyllra er það. Áður en þú hefur náð að nudda inn öllum sársaukapunktunum mun klækjarefur ástarinnar vera búin að fá nóg og flýtir sér burt frá þér - og þú laus.

3. Skrifaðu niður alls skyns varnarorð frá "ímynduðum vini sem er að vara þig við ástinni" og límdu þá út um allt í íbúðinni áður en þú ferð heim með ástsjúka einstaklinginn í fyrsta sinn. Mundu að hafa orðin nógu særandi fyrir þá sem eru á biðilsbuxunum. Gott er að nota svona gula miða með lími - gætir fengið nóg af þeim t.d. hjá Jenný milljón. Þegar biðilsbuxarinn er búin að lesa nokkra miða með ýmsum óheppilegum orðum mun hann skilja málið og koma sér út - og þú laus.

4. Skrifaðu niður punkta um hvað þú ætlar að varast að gera með framtíðarmaka og hvað þú ætlast til af honum/henni. Settu miðana undir segul á ískápinn eða á spegilinn á baðinu eða þar sem þú veist að gullgrafarinn mun örugglega sjá hann. Vandaðu orðalag ekki, notaðu fraza eins og t.d. "Verður að kunna að elda, vaska upp og skúra" - "Spara pening og ekki eyða í óþarfa eins og blóm, konfekt, fatnað, bíó/leikhúsferðir, ferðalög út úr myndinni" og slíkt. Sá aðili sem er að reyna að krækja í ferðafélaga og fyrirvinnu mun skilja að þú hafir ekkert slíkt í huga heldur vanti þig bara ráðskonu/mann sem mun einbeita sér að því að þér líði vel og ekkert annað - þú losnar auðveldlega hérna.

4. Taktu flesta konfektmolana úr konfektkassa og borðaðu þá á meðan þú setur neikvæða málshætti í konfektkassann í staðinn. Mundu enn og aftur að láta neikvæðni stýra málsháttunum og láttu sem þú sért leiður - afsakaðu þetta og segðu að þetta hafi eiginlega verið ætlað öllum hinum stelpunum/strákunum sem þú ert að hitta meðfram henni/honum. Segðu að þú ætlir að reyna að losna við öll framhjáhöldin á næstu árum ef hægt er - þú sleppur vel hérna.

5. Kauptu auglýsingapláss í kvikmyndahúsi sem sýnir alltaf skjáauglýsingar áður en kvikmyndirnar byrja - vertu kominn hálftíma fyrir sýningu til að tryggja að refurinn/tófan á biðilsbuxunum sjái örugglega alla auglýsinguna og verði í þokkabót hálf leið/ur á því að hanga svona - mundu að kaupa miða á mynd sem er mjög léleg og hefur fengið mjög lélega gagnrýnisdóma. Auglýsingin ætti að innihalda nafn þess sem er að elta þig á röndum. Ef við köllum ástsjúka aðilan A: þá gæti auglýsingin verið á eftirfarandi hátt: "A, mér er flökurt - mig langar til að æla! Ég þoli ekki innilokun svo ég vona að þú leyfir mér að fá mitt space ef ég ákveð að leyfa þér að binda mig niður í hjónaband" - einni er þetta ágæt auglýsing: "A, ég elska þig ekki en kannski get ég lært það með timanum að hætta að umbera eltingaleik þinn og farið að elska þig raunverulega". Bless bless rebbi/tófa - þú ert laus.

6. Efndu til stefnumóts, reyndu að hitta á kaldan og dimman dag. Bryggjan kemur t.d. sterk inn þar sem sjáfarlöðrið skvettist yfir og bætir ekki á stefnumót í kulda og trekki. Segðu henni/honum sem hefur verið að gera þér lífið leitt með ástarjátningum og blómum - að þú ætlir að koma henni/honum á óvart með skemmtilegri siglingu. Vertu búin/n að sjá út lítinn opinn árabát sem er mjög kominn til ára sinna og helst lekan. Bentu á hann og segðu - "hér er smá hint um hvað bíður okkar í framtíðinni - þetta er snekkjan þín" - ljómaðu eins og þú meinir hvert orð og segðu svo að þú hafir gleymt því að hann/hún væri sjóhrædd/ur en þú munir vera fljót/ur að ösla þá heimsku úr honum/henni. Sjóhræddur einstaklingur fer ekki á sjó með þér í hriplekum litlum hálfónýtum árabát í köldu, dimmu og veðurmiklu veðri - þú ert undantekningalaust frjáls hérna.

love 

7. Leigðu þér færan listmálara til að mála mynd af þeim ástsjúka. Mundu að semja við listamanninn um að hann máli þennan pirrandi ref í grófri mynd - mynd sem sýnir hann/hana mun eldri en rétt er. Láttu málarann setja inn á myndina lítil stykkorð sem segja hve mikill máttur listarinnar sé - að myndir ljúgi ekki heldur sýni raunverulegan sannleika. Sjáðu um að það verði hrukka hér og hrukka þar, láttu líka koma fram fýlusvip og flárátt augnráð. Gefðu svo biðilsbuxaranum myndina á næsta stefnumóti með þeim orðum að myndin segi allt sem þú hugsar og brostu sakleysislega um leið. Næsta víst að eigið egó hvers og eins um sjálfan sig - mun hjálpa þér að að losna hérna mjög fljótt og auðveldlega.

8. Semdu eigið ljóð. Hafðu það eins hæðið og kuldalega tómlegt og þér er auðið. Hafðu það langdregið og skreyttu það með alls skyns neikvæðum orðatiltækjum sem þú veist að eiga ekki við þann sem er að reyna að binda þig niður. Vertu leeeeeeeeenngi að lesa það og vertu glaður á svipinn allan tímann því þú veist best sjálf/ur hve rímlaus, laglaus og orðóheppin þú ert. Þegar afurðin er hálflesin muntu vera staddur í því að lesa fyrir sjálfan þig því hin love-sjúka manneskja þoldi ekki háðið og neikvæðnina og er farin - og þú frjáls eins og fuglinn - eyddu ljóðinu svo þú sökkvir ekki í þunglyndi yfir eigin verkum.

9. Farðu með þann sem leggur þig í ástareinelti til fjölskyldu hans/hennar. Gerðu í því að vera neikvæður og leiðinlegur við pabbann og farðu á trúnó við mömmuna - segðu henni frá öllum þeim sem þú hefur náð að komast yfir á undanförnum vikum og mánuðum. Gortaðu yfir því að vera æði og að allir séu að reyna að fá bita af þér - segðu að þú ætlir að hugsa þig um með hvort þú munir núna stoppa við og einbeita þér að dóttur/syni þeirra. Segðu að það verði erfitt og örugglega margar freistingar á ferð þinni - en þú ætlir að reyna að standast þær - en ef þú getir það ekki mun afkvæmi þeirra örugglega skilja það. Spurðu tilvonandi tengdaforeldra hvort það sé ekki öruggt að sonur/dóttir þeirra megi gista öðru hvoru hjá þeim ef til vandræða með framhjáhald komi upp því þú sért frekar laus í rásinni og eigir erfitt með að einbeita þér að einum maka í einu. Glottu og segðu þeim að þú ætlir að vona að þau sjái um peningahlið brúðkaups, skírna, ferminga og fleiri uppákoma í framtíðinni því þú hafir ekki hugsað þér að vinna of mikið sjálf/ur. Tilvonandi tengdaforeldrar þínir munu hér þegar hafa stoppað þig og þakkað þér fyrir innlitið. Dóttirin/sonurinn verði eftir hjá þeim núna og óþarfi að líta aftur við - þú laus og mundu þegar þau henda þér út að þakka fyrir matinn en segðu þeim að hann hafi verið frekar bragðlaus, rétt eins og afkvæmi þeirra. Hér ertu endanlega sloppinn.

 örvað hjarta er dautt hjarta.

10. Útbúðu vefsíðu/blogg með nafni hennar/hans. Settu alls skonar vitleysu, bull og kjaftasögur inn á síðuna og sjáðu til þess að hún/hann fái slóðina senda til sín. Mundu að láta mjög persónulega hluti inn á síðuna, eins og t.d. hluti sem hann/hún hefur sagt þér í trúnaði. Hugsalega eitthvað sem hann/hún gerði af sér, sagði um vini/vinkonur - ef þig vantar eitthvað krazzandi þá skaltu nota ímyndunar aflið til að klára restina. Segðu frá einhverjum neyðarlegum stundum sem engin kærir sig um að einhver fái að vita um, helst eitthvað sem grætir og særir. Hérna ertu laus án þess að þurfa að segja neitt - þú bloggaðir um það allt í hennar nafni.

Að þessu loknu þá ertu algerlega á eigin vegum til að fara á fjörurnar við hverja þá sem lenda á vegi þínum um ókomna tíð - enda örugglega mjög fáir sem hafa áhuga á því að vera í slagtogi við eins ljótthugsandi og særandi persónu eins og þig. Þú munt enda alein/n og engin mun ónáða þig um ókomin ár með einhverjum ástarþvælum og faguryrðum - eitthvað sem gott er að vera laus við - ekki satt?

Gleðilegan Valintínusardag og megi óbragðið fylgja þér í framtíðinni - framtíð einmannaleika og fúlmennsku. Ég er farinn að kaupa blóm og eitthvað ljúft í matinn fyrir kvöldið. Ilmefnin eru á baðkarsbrúninni og heitt vatn verður komið í áður en elskan kemur heim í kvöld. Hef skipt á rúminu og gert heimilið hreint. Ég mun eiga dásamlegt kvöld í kvöld því ég ákvað að hundsa eigin ráðleggingar og vera Valintínus í kvöld. Takk fyrir.

blomavondur25blomavondur3


Lífið leikur við hvern sinn fingur...

Awwwww .... ég er stundum svo hrikalega linur og mjúkur. Lífið getur verið svo dásamlega yndislegt stundum að maður bara skilur ekkert í því hvað fólk er alltaf að kvarta og það stundum yfir hinum minnstu og lélegustu hlutum... Ég elska þetta líf. InLove

 

lítil rúsína.

 

Ég bara varð að skella þessu hérna inn því ég er svo glaður í hjarta. Hérna við hliðina á mér liggur lítill 4 mánaða gutti sem ég er að passa fyrir systuson minn. Myndin af lestrahestinum er af systursyni mínum fyrir 25 árum síðan en myndin sem er fyrir neðan er af syni hans sem ég er nú að passa... InLove  rétt eins og ég passaði pabbann á sínum tíma...

systursonur

Ég á dásamlega fjölskyldu sem ég elksa og sem elskar mig - no matter what. Ég á slatta af systkynum og helling af systkynabörnum sem eru bara dásamleg upp til hópa. Ég elska fólkið mitt og fólkið mitt elskar mig - á yndislega fjölskyldu - ég er svo forríkur og hamingjusamur - hvernig gæti lífið verið betra? Varla hægt að mínu mati.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Tiger
Tiger

Ég eyði fúlum og neikvæðum athugasemdum - svo það er tímaeyðsla að henda slíkum fjársjóð hingað inn. Verð hérna bara í flugumynd - lítið sem ekkert sem sagt. Þýðir ekkert að bíta af mér hausinn þrátt fyrir það...

***

Þakka öllum innlitið, en það er ekki þar með sagt að þú sjáir mig spora út síðuna þína!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.2.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • jesumynd
  • jesumynd2
  • jesumynd4
  • blómabeðið
  • blómabeðið
Feb. 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband