IzzPiss og PelaMál.. ekkert er stinnara en stolið stál.

  Ég verð víst að fara að koma mér í bólið því klukkan er orðin þrjú - og maður þarf að vakna eldsnemma. Ég er að eyða tveim til þrem tímum yfir daginn í að lesa og skrifa eins og óður um allt hjá bloggvinum mínum - og líka stundum hjá ýmsum öðrum. Svei mér ef maður þarf ekki að fara að endurskipuleggja lífið í kringum þetta blogg.. hahaha. En þetta er mikið tímafrekt og ég veit að ég mun ekki hafa nema brot af tíma í sumar til að vera hérna, ef þá bara nokkurn tíma yfir höfuð. Sumartíminn er nefnilega mjög mikill annatími hjá mér og stundum tek ég mér ekki einn einasta dag frí yfir allt sumarið, enda fer ég ætíð í sumarfrí í byrjun September. En þá tek ég líka tvo til þrjá mánuði í það heila í frí og er erlendis mestan þann tíma. 

  <------- þetta er það eina sem ég hef eiginlega að segja um ákvörðun HI varðandi aðalprímadonnu Háskólans. Skelfing trúði ég EKKI á grímuna sem karlinn bar í kastljósþættinum í kvöld.  Aumingja maðurinn, bara með 500.000þúsund á mánuði - bara venjulegur launamaður. Auðvitað verður maður að ræna frá öðrum og gera að sínu til að komast af og auðvitað mun Háskólinn standa með sínum. En er HI ekki að gefa hinum venjulega nemanda hér kærkomið leyfi til að fara sannarlega eftir prófessorum skólans, takið verk annarra og gerið að yðar!? Varla verða nemendur reknir úr skólanum ef þeir verða uppvísir að ritstuld til að ná prófáföngum - þeir eru bara að fara eftir því sem fyrir þeim er haft í skólanum - ekki satt? Fyrst kennarar stunda þetta í ró og næði - og athugasemdalaust af hálfu HI - því þá ekki nota þetta sem fyrirmynd? Segi ekki meira sko ...

 Góða nótt á ykkur kæru bloggvinir og fleiri - er búinn með ykkur í kvöld og nú er rúmið aðalmálið ... með smá viðkomu í eldhúsinu þar sem terta og mjólk bíða mín sem nesti inn í góða nótt! Látið fara vel um ykkur og Englar gæti ykkar ljúfa fólk..


Kettir - klukkur og kveðjur inn í helgina sem er framundan ... þannig séð.

Meooooowwww... já, ég er ekki mikill hundamaður því ég nenni ekki að vera með hund og þurfa að hugsa um hann eins og lítið barn, út að pissa - og út að labba og varla hægt að skilja þessi grey eftir ein. En, það er vikuafmæli hérna á morgun. Kettlingarnir eru vikugamlir á morgun og því ættu þeir að fara að opna augun núna um helgina - enda gera þeir það yfirleitt rétt vikugamlir. Þeir eru enn bara í einum hrærigraut, hringa sig saman þegar mamman er ekki hjá þeim - enda finna þeir skjól og öryggi hver í öðrum á meðan þeir eru svona litlir greyin. Myndirnar hérna niðri tók ég í morgun - nema tvær efstu eru sirka tveggja ára gamlar (af mömmunni og stóru kettlingunum)..

File0001CIMG1165

Hérna er hefðarmærin sjálf og líka kettlingar frá henni síðan fyrir tveim árum. Oftast kemur hún með kettlinga sem eru mjög svipaðir henni sjálfri, en núna fyrir viku komu bara mjög dökkir kettlingar.

Picture 001Picture 002Picture 003Picture 004

Hérna má sjá þessar vikugömlu rúsínur - og mömmuna eitthvað að skipta sér að því að maður skildi taka þá alla úr holunni sinni til að setja þá í myndatökur, hún náttla ekki hrifin af því. En eins og sjá má þá eru þeir allir frekar dökkir. Þrír eru bröndóttir en tveir eru svartir með hvítar lappir og tríni.

Well, þá er þessari kisufærslu lokið.

P.s. viljið þið giska á hvað ég á mörg úr? Okok, nennið því ekkert - en ég á bara 13 stykki - og nota aldrei úr svona yfir höfuð - hvað er að eiginlega? Bruðl.. jámm!

Picture 006 Þvílíka vitleysan sem maður hendir stundum pening í... díses.

     

Já, maður er stundum hálf ruglaður, fyndinn en samt ekki fyndinn ... knús á ykkur öll kæru vinir og lesendur allir. Eigið góða helgi sem byrjar á morgun - og reynið að njóta sem eigið fríhelgina framundan. Túttílú..


Er þetta fetish eða bara óðs manns/konu æði? Hér er vaðið yfir ykkur á skítugum skónum...

  Ojæja, ég sem ætlaði svo sem ekki að vera með neitt of mikið persónulegt hérna á blogginu - en nú er hér komið að fetish hjá mér. Maður sér af og til ákveðið svona fetish hjá sumum bloggurum hérna, t.d. Jenný er með skófetish (hleypur um á háum í snjósköflum sko), Dúa er með fetish fyrir eldhúsinnréttingum með öllu innbyggðu (leitar af nýju eldhúsinnréttingunni við Sjallann í töluðum/skrifuðum orðum), Milla er með fetish fyrir "smá fyrir svefninn" (sem er óggisslega skemmtilegt - bloggerí sko!), Hannes H. Gissurarson er með fetish fyrir verkum annarra og gerir þau að sínum .... og svona má lengi telja upp. En hérna er sem sagt smá hamagangur í mér, það er nefnilega þannig að fleiri en bara konur geta haft fetish fyrir skóm. Ég kaupi mér alltaf 2-3 skópör í hvert sinn sem ég ferðast erlendis og dýrka skó sem eru öðruvísi en allir hinir eru í. Hérna á eftir hendi ég inn myndum af nokkrum af þeim skóm sem ég á og bara pardone me þó ykkur finnist þeir hallóó, þá er mér nokk sama - enda ætla ég sko ekki að troða þeim á ykkar tær heldur mínar.. *bros*..

Picture 038Picture 037Picture 035

Eins og sjá má þá er ég meira fyrir dökka skó sem hægt er að nota við nánast hvað sem er - skó sem eru með frönzkum lásum frekar en reimar eða bara lokaðir. Samt fíla ég líka vel reimaða skó og jafnvel lokaða - en þeir skór sem ég nota allra mest eru þó sandalar(sjá síðast).

Picture 036Picture 041Picture 039

Oftast ef ég kaupi mér reimaða skó þá eru reimarnar í ákveðnum litum, oft sterkum afgerandi litum og þá nota ég t.d. Með gulu reimarnar - gallabuxur með gulum vösum eða gulum merkjum eða álíka bulli.

Picture 040Picture 034Picture 033

Ef ég hins vegar kaupi mér skó í sterkum litum eða litum sem passa ekki við nema eitthvað alveg ákveðið - þá er það vegna þess að ég á t.d. buxur sem eru svartar - með rauðum flékkjum eða svartar með miklu rauðu í - sjá buxur fyrir skó hérna undir..

Picture 049Picture 050Picture 045

Hér má t.d. sjá rauða skó með sínum buxum og appelsínu litaða með sínum og svo koll af kolli - eða buxur af buxum .. ehh!

Ok, þetta var bara fyndið. Já, ég er karlmaður - en ég er mikill fataáhugamaður (en þó ekki mikill jakkafatamaður eða svona skrifstofukallalegur).. enda náttúrulega bara ungur og áberandi fjörkálfur sem dansar út í eitt, tjúttar út í tvö og klæðir sig uppí ... sex, þannig séð auðvitað. *Glott*.

En sko - ég er stundum yfirdrifinn og ég á nokkuð mikið af skóm sem ég hef aldrei farið í - eða suma bara einu sinni. Ég á líka minnst 40-50 buxur af öllum tegundum og hugsanlega 70 boli, skyrtur og peysur... Og já Jenný - ég á nokkrar úlpur líka! Mikið af þessu er ónotað og stundum þarf ég að rýma fyrir nýjum fötum - með því að setja í kassa önnur ný föt sem ekki hafa verið notuð. Læt ykkur vita þegar ég opna fatamarkað í kolaportinu - ekki að þið kæru bloggvinir - sem eruð flestir konur - hafið mikil not fyrir strákagallabuxur og skó, en kannski bara til að þið getið komið við og fengið hjá mér kaffisopa og kanelsnúð.. *bros*.

Svo að ganni, hér fyrir neðan er hurðin af ísskápnum mínum. Ég er alveg óður í seguldót á ísskápa og kaupi mér alltaf nokkra í hverri ferð erlendis. Börnin elska þetta og yngstu geta setið fyrir framan ísskápinn minn tímunum saman í því að skoða og raða hlutunum hingað og þangað.

Picture 012Picture 013Picture 011

Fann meira að segja uppá leik (sem reyndar er til í einhverjum svona útgáfum á öðrum vettvangi) handa blessuðum börnunum með ísskápinn í aðalhlutverki. Læt þau horfa á hlutina á ísskápnum og virða þá vel fyrir sér. Því næst bind ég klút fyrir augun á þeim og færi þeim einhvern hlut og þau þurfa að þreyfa á hlutnum til að finna út hvaða hlutur það er sem þau halda á. Systkynabörn mín sem eru aðeins eldri leika sér stundum í þessum leik sjálf þegar þau eru í heimsókn..

Ogggggg... svo að lokum... smá gríndrusla sem ég fékk í jólagjöf...

Picture 010

Já, þetta er G-string... en way to small náttúrulega *flaut*. Hehehe..

  Þá held ég að það sé bara ekki meira í bili sem ég hef að segja eða sýna. Hver veit nema maður eigi eftir að henda þessari færslu bara út fljótlega, enda ekki mikið fyrir að sýna eða segja frá of persónulegum hlutum sko.. hehehe. En svona er lífið, nafnlaust - næstum því - en yndislegt. Farinn að kíkja blogghringinn og bulla smá í ykkur öllum áður en ég stekk í hlýtt og notalegt bólið sem þegar er upptekið að hluta .. *glotterí*. Góða nótt kæru vinir.


Ok, nú fer ég í rúmið - búinn að láta plata mig þrisvar á netinu vegna dagsins í dag.

  Ég hélt að það ætti nú bara að nota 1 apríl til að láta fólk hlaupa eitthvað eða einhverja erindisleysu - en það er sko líka hægt að láta fólk fá smá sjokk og læti á netinu líka. Of langt að fara að segja mikið frá þessu en ég er búinn að falla fjandans til í þrjú skipti núna eftir miðnætti og hér segi ég stopperí og stanz. Nú er ég að fara að slökkva á tölvunni og koma mér í rúmið, enda ætti ekki að vera hægt að plata mig þar - hmmm - eða hvað? Ojæja, varla úr því sem komið er - enda heiðarlegt og guðhrædd fólk á þessum bæ löngu sofnað, nema ég náttla...

  Ég hvet alla til að vera góða á morgun og vera ekki að gabba hvert annað, right! Auðvitað eigum við að reyna eins og við getum, enda plata ég alltaf einhvern á svona dögum og tekst yfirleitt vel upp með það. En í augnablikinu er ég tómur á hvað ég mun gera - þess vegna er víst betra að koma sér í draumaheima með von um að draumar færi manni nýjan dag með nýjum uppátækjum. Mar er nú ekki kallaður hrekkvís og stríðinn fyrir ekki neitt sko! Ekki satt Dúvvan mín?

  Hey, back off - ég er on the toilett abinn þinn. Perraskapur er það að kíkja svona á mann.. usss! Minnir mig bara á Dúu nokkra .. *hux*.

   love you all ---> NOT. JÚJÚ - víst geri ég það.


Fjandinn hafi það að maður pungi út fé fyrir skósvein Landspabba, fuzz&fojjjj.

  Ja svei. Hvort sem er um grín eða alvöru að ræða - þá er þetta gersamlega siðblint og fáránlegt. Maður á borð við Hannes ætti að geta bjargað eigin rassgati sjálfur án þess að hann - eða vinir hans - séu að seilast í vasa fólksins í landinu eftir fé til að greiða niður óheiðarleika og ritstuld. Veit ekki betur en að fólk almennt sem brýtur af sér og gengur á svið við lögin - borgi sínar skuldir sjálft eða fari í fangelsi ella. Sendum þennan ritþjóf og aula í fangelsi þar sem hann getur tekið út þá refsingu sem hann sannarlega á skilið. Hver veit, kannski kemur Landspabbi hlaupandi til að bjarga skómottunni sinni og sér til að rottan þurfi ekki að greiða sekt sína eins og allir venjulegir brotamenn í þjóðfélaginu...

  Ég fór í heita pottinn í gær, líkt og oft áður náttúrulega. Er að spá í að breyta tímanum þar og fara í pottinn fyrr en venjulega - til að losna við ótrúlega leiðinlega og uppáþrengjandi persónu sem sækir pottinn á sama tíma og ég.. Okok, ég er dálítið leiðinlegur hérna, en persónan er gersamlega óalandi og óbjargandi blaðurskjóða sem kann sér ekki hóf. Þetta er karl, sirka 65-70 ára - hann veit allt betur en allir hinir, þekkir fleiri þjóðþekkta en aðrir, getur, kann og þekkir allt - og vei þeim sem reynir að leiðrétta hann eða taka af honum orðið. Það eru sirka 7-10 aðilar sem sitja pottinn á "mínum" tíma og allt yndislegt fólk. Við sitjum þarna saman í bæði þögn og rólegheitum, stundum detta inn ein og ein setning um daginn og veginn, þannig séð - en - Þegar sá pirrandi kemur haltrandi byrja flestir að ókyrrast og tala um að nú sé tími til að fara heim í mat eða ná í konuna eða keyra köttinn út í fuglabúð... Sá leiðinlegi kemur og kastar sér ofnaí pottinn með miklum látum og liggur við að kjötbitar og gúrkur fljúgi uppúr pottinum í látunum.

  Hann byrjar strax að æpa á okkur, nýkominn frá því að hlusta á fréttir - "Sko, ég sagði ykkur það - þetta er svona og svona og hinsegin og þannig og blabla blabla og blalalabla¨!" - helv... kallinn. Friðurinn úti og helmingur pottfélaganna farinn með gusuganginum. Ég nýsestur og langaði í smá ró og næði í heitum potti - ég blótaði í hljóði og sagði "óvart" og kannski heldur kvasst "Haltu kj.. í smá stund - reyndu einu sinni að anda rólega og leyfa pottfélögum að slaka á í friði"... Þögn í pottinum! Ég með lokuð augun, rjóður af skömm og bítandi á jaxl.

Allt í einu byrjaði kallinn aftur - eins og ekkert hafi gerst - með ný málefni en sama hamaganginn.. Hann byrjaði þó á því að fussa á mig og kalla mig ókurteisan og illa alinn krakkabjána - blabla fjasblabla og blabla. Eins og ég sagði - óalandi og kann sig ekki. Ég stóð upp og fór út í laug til að synda, synti tvær ferðir - fram og til baka og þá var kallinn búinn að króa af eina gamla og góðlega konu af í pottinum og ég heyrði orðaskilin í honum þegar hann var að reyna að telja henni trú um að hann þekkti Ólaf Ragnar Grímsson persónulega og kerlingargreyið sat í hnipri undir þessum skelfilega manni og komst ekki framhjá honum. Ég fer klukkutíma fyrr í pottinn næst þegar ég legg leið mína þangað. Og já, ég veit - ég er óforskammaður og ætti að sýna mér eldri mönnum meiri virðingu og allur pakkinn... svo segir sá gamli að maður sé ókurteis! Í sturtunum heyrði ég nokkra pottfélaga spjalla létt um að það þurfi að taka kallinn í gegn, láta hann heyra það að potturinn sé til að slaka á í en ekki vera með æsiféttahamagang og læti. Ég fékk hrós fyrir að vera ókurteis í pottinum. Mér leið samt illa og fann til í hjartanu því innst inni er ég viss um að karlgreyið hefur enga til að tala við nema þá sem hann getur króað af í sundlauginni. Ég vil engum illt og mér er virkilega illa við að segja eitthvað ljótt við aðra, er alinn upp í því að sýna mér eldri virðingu - og geri það sannarlega - en stundum bara missir maður sig... *sigh*.

  Tíminn líður ótrúlega hratt. Núna um daginn var Desember og jólin handan við hornið. Núna er ekki mánuður í fyrsta sumardaginn og því orðið stutt í sumarfrí og læti. Ég vinn að vísu allan sólahringinn meira og minna allt sumarið og fæ ekkert sumarfrí - en ég fer líka á haustin í tveggja til þriggja mánaða frí á erlenda grundu. Evropa hefur alltaf verið heillandi og hef ég verið á flestum stöðum þar en núna langar mig mikið til að fara vestur um haf og skoða Bandaríkin. Ég er að spá í því allavega að breyta til í ár og eyða allavega tveim mánuðum, Sept og Okt - í því að ferðast og skoða eins mikið og hægt er in USA.. Ef þið vitið um einhverja "must see" staði í Bandaríkjunum þá myndi ég vera feginn ef þið segðuð mér frá þeim stað/stöðum. Einnig væri gott ef þið vitið um ódýra staði til að gista á eða ef einhverjir Íslendingar eiga húsnæði einhversstaðar sem hægt væri að leigja í ferðinni - væri gott að vita af því líka.

  Fara að baka brúntertu fyrir smá krakkakaffi seinna í dag .... jihaa!


mbl.is Söfnun fyrir Hannes Hólmstein
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mótmælastand og kettlingar...

  Usss... svona lagað hefur ekkert að segja - nema smá tafir örstutta stund og svo allt búið. Nær væri að bílstjórar stórra trukka tækju sig nú til og leggðu trukkum sínum um allar bensínstöðvar á höfuðborgarsvæðinu og blokkuðu þær svo ekki væri hægt að kaupa bensín - þá fyrst yrði allt vitlaust og einhver færi að taka mótmælin alvarlega! En svona er þetta alltaf á Íslandi, við kunnum ekki að mótmæla þannig að tekið sé eftir því og þannig að mótmælin hafi raunverulega einhver áhrif.

  Viti menn... kisan mín eignaðist 5 litla kettlinga í morgun. Hún var búin að vera kvartandi í mér í alla nótt, sækjandi mig og böggandi með mjálmi og viðkvæmni. Klukkan átta í morgun kom fyrsti kettlingurinn, næsti klukkutíma seinna - og síðasti kom klukkan ellefu. Ohhh... tvö ár síðan ég leyði henni síðast að eiga og mar búinn að gleyma því hve miklar rúsínur þetta eru... nú taka við fjórar vikur á spena svo fjórar vikur útum allt hús - og svo læt ég þá fara á ný heimili, nema einn sem ég leyfi henni að hafa hjá sér þar til hún sjálf rekur hann burt. Ef einhver er að spá í að fá sér kisu eða veit um einhvern sem vill fá kisu - eftir sirka ein og hálfan til tvo mánuði - þá endilega benda þeim á mig sko.. hehehe. Knús í daginn ykkar allra!


mbl.is Vegi lokað við Rauðavatn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæpagengjafyndni ... eða hvað?

  Jæja, þá eru það nýjustu glæpóseríurnar. Alltaf heyrir maður eitthvað nýtt, nýtt og ótrúlega útsmogið. Hugsa sér ef þetta verður ekki stoppað strax, þá verða margir fátækari en þeir héldu að þeir væru - en þó með fleiri ábúendur en þeir vissu af. Laumuíbúar, er það eitthvað sem skal koma - eða eru þetta bara einhver örfá tilfelli sem þarf ekki að hafa áhyggjur af? Ég mæli allavega með því að þetta verði athugað á nóinu - hin háa Hagstofa á skilyrðislaust að ganga í málið og sjá til þess að þetta verði upprætt áður en út í óefni er komið.

  Málið er að hjón í Garðabænum fengu bréf stíluð á pólskan mann sem þau könnuðust ekkert við heim til sín. Fyrst eitt bréf frá Glitni, þau héldu að um misskilning væri að ræða og bentu póstbera á það. Því næst blað frá Eflingu - síðan nýtt bréf frá Glitni - þá fóru þau í heimabanka sinn og skoðuðu þjóðskrá. Jú, viti menn! Þar kom upp að þau voru með heimilismann skráðan hjá sér sem þau könnuðust bara ekkert við - Pólverja. Við eftirgrennslan kom í ljós að fleiri í Garðabæ höfðu fengið bréf stíluð á útlendinga. Kannski best fyrir hvern og einn að skoða málin, kanna það hjá hagstofunni hvort það sé búið að skrifa inn einhvern á heimilið sem ekki á heima þar.

  the fuck ... Jú, það er nefnilega fáránlegt en samt satt - að það er hægt að skrá lögheimili á stað án samþykkis þinglýsts eiganda. Dæmin hafa sannarlega komið upp hjá t.d. félagsbústöðum þar sem átti að bera út mann með lögregluvaldi - en þar sem hann hafði skráð lögheimili sitt á viðkomandi stað var ekki hægt að bera hann út. Hugsa sér, það er hægt að vernda þá sem sannarlega ætla sér að brjóta af sér!!! Athugum það nánar...

  Hópur glæpamanna - skiptir engu hvort það séu Íslendingar eða útlendingar - fylgist með ákveðnum húsum, já það hefur alltaf verið þannig. Núna geta þeir komist að því hvenær t.d. fjölskyldur fara venjulega í frí erlendis t.d. og hagað hlutunum þannig að nokkru áður en að fríi kemur - þá skráir sig inn á heimilið einn af þessum glæpamönnum - hagstofa Íslands gerir engar athugasemdir við það heldur gleypir málið hrátt. Svo um leið of fjölskyldan er farin í frí þá bara flytja okkar menn sallarólegir inn í húsnæðið - halda sitt partý og byrja svo að týna út alla hluti til að selja eða what ever. Hvað gerist? Jú - löggimann mætir á svæðið og ætlar að skakka leikinn - en hvað? Jú, þarna er á ferðinni sannarlega skráður heimilismaður, og þar sem sá sem er að stela öllu steini léttara er jú bara heima hjá sér að brjóta af sér - þá getur lögreglan ekki snert litla fingur á þeim sama nema brjóta lög... snilldarleikur eða þannig. Auðvitað væri auðvelt eftirá að finna svona ræningja, nema þeir séu með falsaða pappíra - nú eða ef um útlendinga sé að ræða - þá væru þeir náttúrulega löngu farnir úr landi aftur áður en heimilisfólk snýr aftur úr fríinu sínu... skelfilegt ef þetta yrði að veruleika. Nú er lag, það er ekki bara nauðsynlegt heldur bara algert skilyrði að Hagstofan taki sig á og sjái til þess að ekki sé hægt bara fyrir hvern sem er að koma inn af götunni og segja "ég á heima þarna og vil að það sé sett í þjóðskrá" - og gera það bara sí svona án þess að athuga málin hjá þinglýstum húseiganda hvort viðkomandi sé heimilismaður eða krimmzi...

  Upplýsingar um þetta hagstofusúrblæti fékkst frá 24 stundum í dag, fimmtudag 27mars...

  En smá svona í lokin að léttara hjali - eða mistali... Ýmis fræg mismæli!

1.   Mér er nú ekkert að landbúnaði. (sumum verður ekki heldur klæðin úr kápunni).

2.   Allt fór afsíðis sem gat farið afsíðis. (ég hef nú líka farið afsíðis, en það er önnur saga).

3.   Þau eiga þvílíka myllu, lifa eins og greifingjar og leika á als eggi.. (leika á alsoddi).

4.   Hann sló tvær flugur í sama höfuðið. (já eða þannig)..

5.   Þarna hefði ég sko viljað vera dauð fluga á vegg.. ehh? (splatch - you´re dead).

6.   Ég sá svo sæta stelpu að ég fór alveg framhjá mér.. (gott að fara ekki framhjá stelpunni).

7.   Ég var svo þreyttur að ég henti mér beint undir rúm. (eins gott að ég var með svefnpokann þar).

8.   Hann sat bara eftir með súrt eplið. (kannski hefði hann átt að skella því í ísskápinn yfir nóttina).

9.   Og, nú, góðir farþegar, er einmitt fengitími Melóna! (hmm eða kengúra eða mörgæsa, ekki satt?).

10. Ég hreinlega vissi ekki í hvorn fótinn ég átti að setjast. (þennan bið ég ekki um sem barnapíu).

11. Hann kom bara eins og skrattinn úr heiðskíru lofti. (þrumaði ekki eitthvað úr sauðaleggnum?).

12. Þar stóð hundurinn í kúnni. (þar lá hundurinn grafinn og hnífurinn stóð í kúnni hélt ég, en hvað veit ég svo sem).

13. Maður fer í bæinn til að sjá sig og sýna aðra. (sumir fara líka vitlausu megin framúr á morgnanna).

14. Svo handfléttir maður Rjúpurnar. (þennan kokk vil ég ekki í mitt eldhús).

15. Já, fólk er nú orðið svo loðið á milli lappanna. (what the fuc.... ahh.. loðið um lófana).

  Svo var það Tælenska stúlkan sem kunni lítið í íslensku en bjagaði sig áfram - hún vann hjá "þvotta Höllinni". Karlmenn elskuðu að hringja þangað...

*Rinnnnnngggg* Hún svarar: Totta böllinn ... þeir: jááá takk!... uss kvenfyrirlitning satt?

Og Færeyingnum sem var boðið nammi úr poka. Hann stingur hendinni eftir namminu og segir glaður "ég tygg tad með tökkum" ...

  Og góða nótt kæru bloggvinir ...


Ætla ekki að kasta mér í æluvegg þó ég sé yfirfullur af Páskaeggjum og góðum mat...

  Jæja, þá eru sælgætisdagar mínir að baki og nú tekur hollustan við - kannski. Jólin, þrettándinn, árshátíðir og þorrablótin - og nú síðast páskar og fermingar. Að vísu er ég með brilljant brennslukerfi og það er næsta víst að ég á ekki eftir að geta nokkurn tíman verið kallaður feitur - en maður skal þó ætíð vera á varðbergi gagnvart hinu svikula fitugeni sem ræðst á allt og alla þegar minnst varir. Allur sá góði matur og það mikla sælgætisát sem fylgir svona hátíðsdögum er auðvitað ekkert annað en æði, að vissu marki þannig séð. Núna síðast um helgina nýliðnu borðaði ég t.d. 4 stór og mikil Páskaegg með öllu innihaldi og öllu tilheyrandi *rob*... og skammast mín ekkert fyrir það! Ég naut páskanna mjög vel og hvíldi mig vel, enda var ég strax á Skírdag orðinn veikur (surprise, frí og maður veikur) og núna í dag þriðjudag er fyrsti góði dagurinn minn - fyrsta vinnudaginn er ég orðinn góður... Ég held að ég hafi ekki fengið svona leiðinlega pest árum saman, meðfylgjandi allt heila tilstandið. Ég ældi þó ekki í fötu, er ekki ælugjarn og verð yfirleitt ekki mjög flökurt - nema þegar ég sé "ælufærslu" á blogginu þar sem allir eru bullandi meðvirkir í því að æla í sömu fötuna - þá fyrst verður mér flökurt og flýti mér burt af þeirri færslu svo ég æli ekki hinum bloggurunum til samlætis...

  Það er ótrúlegt að sjá hvernig við látum á blogginu, ja eða flestir svona. Að skoða hve meðvirk við erum hvert með hinu í hinu og þessu, þannig séð. Ef færsla kemur sem fjallar um eitthvað sem bloggarinn þolir ekki og bloggarinn skrifar í lokin t.d. "þoli þetta ekki, nú fer ég og æli!" þá koma runur af bloggurum sem eru virkilega ælugjarnir og æla með ælufærslunni í þvílíkri meðvirkni að mér verður flökurt þegar ég hef lokið lestrinum og spyr því í mínum athugasemdum hvort það sé ekki örugglega pláss við ælufötuna - undur og stórmerki - hef í nokkur skipti hætt að lesa ælufærslur þegar ég hef séð ---> Sick <--- þennan græna útum allt í færslunni, enda ekki mikið fyrir ælupestir og mikil veikindi svona þannig séð. En þetta er bara ég, ég t.d. sem kasta mér ekki heldur í veggi öðrum til samlætis - en á það til að taka smá krúttkast þegar þeirra er vænst.

  En svona er vaninn. Ég er t.d. í kasti - þó ekki í veggjakasti - yfir því að hafa ekki getað farið í sund og heita pottinn síðan á þriðjudag fyrir Páska. Ég fer í sund á næstum hverjum degi, er duglegur að synda og pottast. Ef ég missi úr dag, hvað þá daga, er ég bara alveg tótally lost - rútínan rugluð og þessar fáu sellur sem eru í lagi þarna uppi eru í einhverri undarlegri tilvistarkreppu. En það stendur til bóta núna því ég er að verða 100% borubrattur aftur og fer því í sund í kvöld eða á morgun, og svo er það ræktin sem fylgir. Allar þessar venjulegu rútínur sem nú fara í gamlar skorður - og verða þannig þar til að næstu jól nálgast því rútínuvandamálaflippið byrjar alltaf með jólum. Flippinu fylgir svo áramótaogeftiráramótaástand fram yfir páska, en þá fellur maður loks aftur í gömlu hjólförin og heldur sig þar, svona oftast.. En augnablik ...

  Ok, I´m back... (fékk nefnilega óþægilega mikla munnræp...jamm!)

 Góður matur og nammerí hefur verið fljótandi um allt hjá mér síðustu daga svo - Já, ég er ekki búinn að blogga neitt síðan á Skírdag - og ekkert verið að skella mér á netið yfirhöfuð. Ég vona að þið kæru bloggvinir hafið ekki saknað mín of mikið þó ég hafi ekki verið ofvirkur á blogginu ykkar yfir páskana, líkt og ég er oftast en hugsanlega hafði ég bara gott af þessu fríi - og hugsanlega þið gott af því að losna aðeins við mig í leiðinni. Ég hef því ekki fylgst mikið með því sem hefur verið í gangi hérna á blogginu frekar en á öðrum vettvangi. Jú, reyndar hef ég svo sem leyft sjónvarpinu að rúlla í lausum taumi og séð eitthvað af fréttum. Mér finnst þó fátt vera þess vert að skoða mikið eða blogga um, en á eftir að kíkja aðeins í blaðið í dag og glugga aðeins á mbl.is - hver veit nema maður finni eitthvað bitastætt. Ég er allavega mættur aftur, hversu mikið eða lengi er þó önnur ella en ég er allavega ekki hættur bloggeríi - nema bara núna - í bili. Farinn að kíkja blogghring og sjá hverju ég hef misst af í páskastússinu... luf u guys.


Páskakveðja og knúserí..

  Ójá, ég er bara kominn í Páskagírinn. Ég mun ekki vera mikið inni á blogginu yfir páskana, þannig séð - en mun samt eitthvað kíkja af og til. Ég er ekki hættur að blogga, mun bara minnka það núna allavega yfir páskana en sjá svo til með framhaldið - en líklegt er að ég verði ekki eins mikið í bloggheimum og hingað til. Ég mun þó halda áfram að detta inn hjá bloggvinum mínum og lesa eins mikið og ég kemst yfir þar, og kvitta með kveðjum og látum eins og ég er vanur... Málið er að það mun líklega verða mun meira að gera hjá mér eftir páska en hingað til svo ég eyði bara litlum tíma hér en mun þó alls ekki hverfa alveg.

      ?

Well, hvað get ég sagt? Jú, ég mun áfram henda hingað inn smá kjánaskap og einnig mun ég halda áfram með mitt ágæta "ekkineittsérstaktbullblogg". Ég hef gaman af því að blogga en ég hef samt ekki gaman af því að henda bara inn 10 bloggfærslum á dag sem eru bara svona til að gera eitthvað. Ég hef yfirleitt bara hent inn einu eða tveim færslum á dag og líklega verða litlar breytingar á því. Það er náttúrulega miklu sniðugra að vera ekki að dæla yfir ykkur fulltaf bulli daglega, heldur láta nægja eitt bullverk á dag. Annars veit maður aldrei, það gætu alltaf komið dagar þar sem maður hefur meira að segja og þá bara gusar maður öllu yfir ykkur..

  Eins og þið sjáið/lesið - þá hef ég ekkert að skrifa um hérna, vildi bara nota tækifærið hérna til að óska ykkur öllum gleðilegra Páska. Vonandi fáið þið öll stórt og gott páskaegg, svona til að svala súkkulaðiþörfinni. Lifið heil og verið góð hvert við annað kæru bloggvinir, og aðrir bloggarar. (Guli liturinn er í tilefni páskanna).


Dýrin kærð, hver borgar brúsann (hunangið)..

  Já, sko! Þó ekki virðist vera um peningaplokk hérna hjá viðkomandi bónda - enda jamm, bangsi örugglega ekki mjög fjáður fyrst hann þarf að hnupla sér mat - þá er næsta víst að maður gæti komið ár sinni vel fyrir borð með því að ákæra hin ýmsustu dýr í nágreni sínu..

  Maður gæti ákært ketti sem flykkjast um umhverfið með pissi og fleiru misgóðu. Þreytandi þessir kettir stundum, sér í lagi fressin því þau eru svo mikið í því að "merkja" sínar læður eða húsnæði eigenda læðanna. Stækjan sem kemur frá fressi - tala nú ekki um eftir heilan vetur - gýs upp þegar fer að vora og fer oft langur tími í að reyna að sápa niður þessa voðalykt..

  Nú, svo er það hundur nágranna míns. Hann er óður, hreinlega. Í hvert sinn sem hann er úti, reynir hann að eta læðuna mína. Hún fær bara ekki stundarfrið - hugsanlega væri hægt að ákæra hundinn með tilliti til svona eineltis og rof á friðhelgi einkalífsins. En líklega væri best fyrir mig að láta þetta grey í friði, enda læðan mín heljar tígrisdýr sem kallar ekki allt ömmu sína. Hún ræðst á hundinn með miklum látum þegar hann byrjar og hundgreyið endar oftast uppi hágrátandi heima hjá sér, sundurtætt og flygsurnar all over the place.. Hef þurft að ná í læðuna á tröppurnar hjá nágranna mínum, eftir að hann hafi hringt í mig og hellt úr reiðiskálum sínum vegna óargadýrsins míns.. whutt? Þetta er ungur séffer sem um er að ræða sko!...

  Nú, svo gæti maður líka farið í mál við hænur nú til dags. Þær neita að verpa páskaeggjum - hvað þá gulleggjum - og láta bara eins og þær séu heilagar. Reyndar eru þær hálfheilagar í mínum kokkabókum, elska þær - á grillið eða djúpsteiktar.

  Ójá, hvers skonar vitleysa ætli velti yfir mann næst? Það er endalaust hægt að finna hinar undarlegustu fréttir af kjánalegustu hlutum, eins og það að kæra bangsa fyrir hunangsstuld. Væri ekki bara betra að byggja betri girðingar eða auka öryggi á annan hátt? Væri ekki hægt t.d. að setja rafmagnsgirðingar til að halda bangsa úti. Eða bara gefa honum t.d. matarleyfar á ákveðnum stað fyrir utan girðingu svo hann verði saddur áður en í óefni er komið? ... Skrýtin þessi veröld.


mbl.is Dæmdur fyrir hunangsstuld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Tiger
Tiger

Ég eyði fúlum og neikvæðum athugasemdum - svo það er tímaeyðsla að henda slíkum fjársjóð hingað inn. Verð hérna bara í flugumynd - lítið sem ekkert sem sagt. Þýðir ekkert að bíta af mér hausinn þrátt fyrir það...

***

Þakka öllum innlitið, en það er ekki þar með sagt að þú sjáir mig spora út síðuna þína!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • jesumynd
  • jesumynd2
  • jesumynd4
  • blómabeðið
  • blómabeðið
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband