Glæsilegt eða hitt þó heldur. Því geta stjörnur ekki klætt sig aðeins bjartara??

ReginaSvei mér þá - hvað er stelpurassgatið búin að gera við hárið á sér? Eins og hún er falleg, bara stórglæsileg en svo eyðileggur hún sjálfa sig algerlega með svona skelfilegum kolli.

Kannski er þetta einhvers skonar stjörnugreiðsla en mér líkar þetta ekki! Það er svo oft sem fólk kann ekki að greiða sér eða klæða sig (að mínu mati) þegar það kemur fram opinberlega. Alltof mikið af svörtu og undarlegustu túrbínur á kollinum... undarlegt!

Hugsið ykkur hve glæsileg hún væri ef allt  hárið væri sleikt afturábak - ekki bara fremsti hlutinn. Samt finnst mér hún ógisslega sæt og wild svona sko .. á djamminu í rvk en ekki in front of the world.

**********************************************

Jæja, við erum orðin 7 vikna gömul systkynin. Elskum lífið og okkur líður vel. Vorum komin fram á gang í síðustu viku, enda kunnum við algerlega á wc-ið og erum búin að sýna að við séum traustsins verð í að stækka umhverfi okkar. Svo núna um helgina fengum við að fara lengra og lengra - alveg um alla íbúðina að lokum. Við vorum reyndar sett í sandinn öðru hvoru svo við myndum rata þangað aftur .. en það gengur svo vel.

Picture 001  Picture 003

 

Mútta er alger skvísa, hrikalega sniðug við að finna uppá hinum ótrúlegustu svefnstöðum. Núna um helgina var lítill pjakkur í heimsókn svo mútta fann uppá því að hreiðra um sig undir stólnum hans litla gutta, fyrirtaks hús handa okkur. En við fengum ekki að eiga nýja húsið, bara vera þar af og til..

Picture 004  Picture 006

 

Svo fengum við að fara út úr húsi og út á pallinn á bakvið hús, geggjað alveg. Við urðum alveg óð, skoðuðum allt og hoppuðum og skoppuðum eins og beljur sem sleppa út á vorin - ekki það að við vitum hvað beljur eru en u know what we mean. En, auðvitað þurfti mútta að gera skammarstrik - hún fór í að kenna okkur á að opna látinn á hurðinni á pallinum svo við gætum sloppið út í stóra heiminn. Hún er hrikalega flott á því, kann á hurðina sko ..  svo þurfti maður að rannsaka allar körfur og blómapotta sem reyndar hafa engin blóm ennþá ...

Picture 070  Picture 085

 

  From our keeper .. no need to make comment on this ..


mbl.is Konunglegar móttökur í Serbíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varla rotta á kreiki eða reiki - eða hvað? Er kannski eitthvað undarlegt á sveimi í mínum heimi? Jammerí ...

nightchampingHér á bæ er rólegt í augnablikinu, varla mús á ferð - enda náttúrulega þrjú heljar ljón hérna sem myndu matreiða kvekendið á augabragði ef það væri hér. Hell no .. skítt með matreiðsluna - þessi ljón myndu bara gleypa skepnuna lifandi með hár og hala, rassgat í bala.

OMG.. man einhver eftir því að hafa verið á spáni fyrir kannski 20- 30 árum og fengið að fara frítt inn á skemmtistaði ef maður gat sagt "rassgat í bala"? Það voru einhverjir fleiri geggjaðir íslenskir frazar sem notaðir voru líka á þessu tímabili en ég man þá samt ekki - einhver?

En skondið hvernig fólk/fyrirtæki reyna að tæla til sín viðskiptavini. Það voru náttúrulega margir Íslendingar sem sóttu til spánar og við sannarlega þekkt fyrir heljar mikla drykkju og eyðslu á börunum svo því var það hagur pöbbanna og skemmtistaðanna að ná til sín Íslendingum - með fríum aðgangi.

Næsta víst að þetta er ekki lengur til siðs, eða maður heyrir ekki lengur svona fraza og enginn kannast lengur við svona orðalag sem inngangseyri. Allavega hef ég ferðast mjög víða um spán án þess að verða var við svona lengur.

 

draumaferdin

 

Skelfing held ég að það væri ljúft ef Ísland hefði verið eyja einhvers staðar nálægt Kanarí. Það hefði verið ljúft að lifa og maður hefði ekki þurft að eyða helling í að ferðast til heitari landa, reyndar myndi maður þá eyða enn meira í að ferðast til Grænlands - eða til Guðrúnar í Færeyjum - en það er önnur Ella.

Pálmatré og Jólastjarna myndu vaxa um allt landið og heljar mikill gróður um allt - fullt af yndislegum kóngulóm og alls skonar ógeðspöddum! Dásamlegt, right!

  

Ég er dauðfeginn að geta farið á heitar slóðir en komið alltaf aftur heim í kulda og trekk, rigningu og slyddu og rok og leiðindi og logn - allt á sama degi. En, væri samt ekkert á móti smá meiri hita á landinu.

Romanticmoments

 

En, eins og ég sagði er rólegt hérna í augnablikinu. En það varir ekki lengi. Ég er kominn með litla "skáafakútinn" og verð með hann eitthvað um helgina. Því mun ég ekki vera mikið online í kvöld eða morgun, fyrr en kannski annaðkvöld en í síðasta lagi á sunnudaginn.

Ætla samt núna að hlaupa á handaskrolli yfir ykkur og senda inn hjá ykkur bara broskall og glott! Tek ykkur svo betur í gegn á sunnudaginn allavega. Vona að allir hafi það yndislegt um helgina, óska ykkur öllum ljúfleika og hlýju og verið góð hvert við annað. Munið kærleikann! Aldrei of mikið af knúsi og fallegum orðum í umferð.

Mér finnst þið algerir krúttmolar að nenna að kvitta hjá mér af og til - er auðvitað þakklátur öllum sem láta vita af sér, jafnvel bara með broskalli.

Hlakka til að heyra betur í ykkur en ætla að kveðja núna í bili því það styttist í að ég vekji litla guttann minn - og þá verð ég sko ekki viðræðuhæfur heldur í krúttkasti og ljúfasta hlutverki ever. Mun senda einhverjar myndir inn eftir helgi - en nei - þið þurfið ekki að hafa áhyggjur - ég sendi ekki inn 1002 myndir, bara eina eða tvær eða þrjár eða fjórar eða fimm eða tíu eða fimmtíu og fimm eða .... knús í helgina ykkar ljúfa lið!

   


Á maður að henda sér í helgan stein, eða helgan vegg? Er munur á helgum vegg Ráðherra og steinvegg almennings?

allirintothewallGott og blessað að það skuli nú eitthvað vera að hreyfast þarna á þessu blessaða brunahorni. Ég man ekki betur en svo að Vilhjálmur REI hafi staðið fremstur í flokki lofandi í hástert að viðkomandi brunahorn yrði tekið í gegn strax og ekkert til sparað í því að koma þessu horni í upprunalega mynd. Verkið, sem verið er að setja upp á þessu horni núna er eftir pólsku listamennina Önnu Leoniak og Fiann Paul og þar sjást andlit tæplega þúsund barna frá þorpum og bæjum víðs vegar af landsbyggðinni á Íslandi. 

Verkið er sett upp í tilefni af Listahátíð í Reykjavík.

 

Þó svo að barnsandlitin séu sannarlega örugglega falleg þarna á veggnum, enda íslensk landsbyggðabörn, þá hefði ég frekar viljað sjá þetta horn uppbyggt eins og skot - eins og Sjálfstæðisflokkurinn lofaði á sínum tíma með Vilhjálm í fararbroddi. Borgarstjórnarmeirihlutinn hefði t.d. frekar átt að byggja þetta horn upp en að henda millum í hús sem sannarlega hefðu mátt hverfa eða brenna á laugarveginum. Kannski hefur borgin ekki lengur efni á því að standa sig á þessu horni - kannski hefur nú þegar verið of miklu fé verið varið í mannaráðningar og stólaskipti. Það er nefnilega hellingur af fé sem fer í stólaskiptin ein og sér. Tala nú ekki um þá fjármuni sem hafa örugglega farið í það að skipa nefnd sem fara átti í gegnum tillögurnar um Vatnsmýrina, sem nú hefur unnið heilmikið að því er virðist - en allt saman heljar fúskvinna samkvæmt borgarstjóra.

 

veggurinn

Skreytingar eru svo sem alltaf flottar þegar eitthvað hefur farið miður eða eitthvað þarf að fela. Sumar eru til að fegra það sem ekki þykir nógu fallegt fyrir, aðrar skreytingar eru til að gera fallegt fallegra. Sumt er bara nauðsynlegt en annað er bara fáránlega kjánalegt, eitthvað sem hefði ekki átt að þurfa t.d. Nú er það svo að mínu mati að ef þetta horn hefði verið byggt upp líkt og Vilhjálmur REI sagði að gert yrði tafarlaust - þá væri ekki þessi feluleikur þarna á þessu horni. Kannski er borgarstjórnarmeirihlutinn að draga athyglina frá rústunum sem liggja á bakvið vegginn? Spurning?

Ég myndi allavega vilja að þeir brettu upp ermarnar og tækju til við að byggja upp það sem á að byggja upp. Það er svo margt sem manni finnst ótrúlega miður í borgarmálum að það hálfa væri nóg. Ef blessaður borgarstjórinn myndi taka á málum þar sem skiptir sannarlega máli, í stað þess að vera í einhverri einkaherferð í tilraun til að sanna að hann einhvert númer en ekki leppur sjálfstæðismanna.

Stone wall building

 

En, svona í lokin - ég er að byggja upp nýjan vegg handa öllum þeim sem vilja sýna samstöðu með hvaða málefni sem er og leggja sitt höfuð að veði í góð málefni. Veggurinn er handa þeim sem vilja "henda sér í vegg" af einhverjum ástæðum.

Veggurinn mun verða byggður upp með ýmsum steinastærðum svo hver og einn ætti að geta fundið stein í veggnum sem samsvarar sínu höfði.

Nú getur enginn afsakað sig með því að hafa ekki vegg til að kasta sér í ef á þarf að halda.

Hræin sem liggja eftir þá allra hörðustu munu fara í að búa til listaverkið "líkamsleyfar" og mun verkið vera sett upp í Vatnsmýrinni til framtíðarveru. Hver og einn sem langar til að leggja kropp sinn í framtíð Vatnsmýrarinnar er ráðlagt að senda hér á eftir inn athugasemd því til staðfestingar.

Borgin mun ekki greiða skaðabætur, ekkert frekar en að hún muni taka ábyrgð á þeim sem ekki liggja - eftir veggjakastið. Ellilífeyrisþegar og Öryrkjar, sem og sjúklingar eru hvattir til að sýna borginni samhug sinn með því að henda sér í viðkomandi vegg - og láta eftir kropp sinn á listaverkavegginn. Það mun spara borginni og ríkisstjórninni mikla fjármuni ef þessir hópar hverfa á vit veggsins.

Athugið að nú hefur nýr Spa- nudd og sælureitur verið opnaður í Vatnsmýrinni við hliðina á "líkamsleyfa" listaverkinu - sælureiturinn er handa forríkum eftirlaunaforstjórum og þeim þingmönnum og ráðherrum sem kjósa munaðarlíf - á elliárunum - í stað þess að kasta sér í helgan steinvegg, sælureiturinn er ekki opinn almenningi.

  Ok, ég er mættur aftur eftir smá sólarbloggfrí. Ég er búinn að vera way to busy í svo mörgu svo ég notaði tímann í hluti sem ég veit að ég mun ekki hafa tíma til að gera í sumar, segi ykkur frá því seinna. Ég er þó búinn að stökkva örlítið inn hérna og lesa ykkur eitthvað en án þess að athugasemdast neitt, en nú bæti ég úr því og læt ykkur sjá mig í kerfinu ykkar. Njótið góða veðursins og verið til friðs. Sit hérna úti í sólinni með lappann og ætla að kíkja smá hring, en ég mun klára að henda inn hæji á ykkur öll, eða svo - í dag eða með kvöldinu. Luv ya all og over and út - into the sun.


mbl.is Andlit barna á heilum vegg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er það svo að dagurinn og nóttin eru elskendur sem hittast augnablik tvisvar á sólahring??

Day Surrendering Unto NightÞessi dásamlega skemmtilega mynd heitir "Day Surrendering Unto Night" - eða dagurinn að gefa sig nóttunni á vald.

Um þessar mundir er nóttin þó að gefa sig meira og meira dagsljósinu á vald.

Mér leiðist öll þessi birta því það er endalaust erfitt að sofna við dagsbirtu. Svo er erfitt að reyna að hafa rómó kvöldstund með kertaljósum og dúllerí þegar ekkert er myrkrið.

Málið er náttúrulega að setja upp myrkratjöld, sem virka bara heavy vel. En, gott er þó að vakna á morgnanna í dagsbirtu - maður er mun fljótari að vakna vel og vera up and about.

 

Ég hef ekki verið neitt á netinu eiginlega í dag og gær, og því ekki verið að athugasemdast neitt eða skrifa. Mun kíkja á ykkur fljótlega og gera ykkur lífið leitt aftur, don´t worry - i i´ll be back!

Segi bara knús á ykkur öll og farið vel með ykkur. Njótið vikunnar og munið að vera góð hvert við annað, maður veit aldrei hvenær það er of seint að sýna vináttu og ástúð - svo gerið það af og til svona til að vera örugg um að hafa skilað ykkar ástarpakka.

 

Power of Prayer

 Þessi mynd hérna heitir aftur á móti "Power of Prayer" - eða máttur bænarinnar. Notið ykkur bænina oftar og notið hana til góðra hluta. Maður á að þakka líka í bæn - ekki bara biðja um hitt eða þetta, þakka þú fyrir eitthvað í kvöld þegar þú ferð með bænina þína.

Kenndu barninu þínu líka að nota bænina rétt - kenndu barninu þínu að þakka í bæn, rétt eins og að biðja fyrir fólki eða dýrum.

Máttur bænarinnar er mikill, sér í lagi þegar margir biðja saman eða margir biðja fyrir sömu manneskju t.d...

 Adda bloggvinkona er að leita eftir bænastuðning við unga konu sem á í miklum veikindum, hvernig væri að setja þessa ungu konu í bænir ykkar í kvöld? Ekki gleyma mér heldur náttúrulega... *bros*.

En, ég segi bara góða nótt í bili því ég verð ekkert á netinu í kvöld - kíkti bara til að minna ykkur á mig elskurnar. Eigið yndislega nótt og glaðan draumapakka ykkur til handa.  

  


Er Doris Lessing rithöfundur bara lítil dónakerling - eða elskar hún leiki með hænur?

halloween2Femínistafrömuðurinn og rithöfundurinn frú Brúnka Lesbó-nónó hét áður Langbrók Jónsdóttir. Frú Brúnka ákvað að breyta nafninu þegar hún gaf út bókina sína "How to be a chicken" árið 1950. Mjög mikið fjaðrafok var í kringum útgáfu þessarar bókar, en frú Brúnka Lesbó-nónó er fædd árið 1919 á hænsnabúi í Löppulandi(nú Lappland) en þegar bókin var gefin út var einmitt verið að slátra hænum á bænum, sem útskýrir fjaðrafokið. Löngu síðar, árið 1962 komst hún svo á kortið sem rithöfundur með útgáfu bókarinnar "Doin it in the bushes".

"Nafnið mitt dreg ég frá ferðalagi einu fyrir margt löngu. Ég ferðaðist með vinkonu minni og við áttum oft ekki fyrir gistingunni svo við gistum bara í Runnum og kjarri, oftar en ekki vöknuðum við löngu eftir sólarupprás og þá var sólin búin að baka okkur og við vel brúnar - þaðan fékk ég nafnið Brúnka. Svo er vinkona mín Lessa og í runnanum á nóttunni þegar hún var eitthvað að reyna að færa sig uppeftir mér - sagði ég alltaf "nónó" og því ákvað ég þegar fyrri bókin kom út að taka mér listakonunafnið "Brunka Lesbó-nónó".

Fyrri bókin fjallar um lífið á hænsnabúinu. Fjörugt fuglalíf og eggjandi hljómur á vorin er eitthvað sem fólk hefur alltaf verið hrifið af. Fjallar hún meðal annars um ýmis bernskubrek á hænsnabúi foreldra sinna.

"Ég man t.d eftir því að ég gerði tilraun með liti og hænur þegar ég var 5 ára. Allar hænur foreldra minna voru hvítar - en ég ákvað að reyna að búa til svartar hænur, fá smá lit í kofann - þannig séð. Ég tók nokkrar hænur og dýfði þeim í tjörutunnu - sannarlega urðu hænurnar svartar - en ég var sett í strangt útgöngubann í kjölfarið." sagði Brúnka gamla og þerraði skraufþurr tár af hrukkóttu andlitinu við góðar minningar úr æsku.

Seinna hélt feykileg klámvæðing innreið sína inn í Löppland (núna Lappland) svo það er ekki að undra þó Frú Brúnka Lessbó-nónó hafi síðar hlotið Nóbelinn fyrir bókina "Gerið það í runnanum - runnaleikir".

"Ég veit bara að ég verð óð þegar ég sé runna, alveg runnaóð. En eins gott að fólk rugli ekki Bush saman við Bush - sko ekki rugla runna saman við illgresi".. segir kerlingin og grettir sig tannlaust framan í spyrilinn ..

Frú Brúnka hefur lítinn frið fengið til að skrifa meira en þessar tvær bækur vegna þess að fjölmiðlar hafa í 40 ár elt hana á röndum til að komast að meiru varðandi seinni bókina, runnaleikina..

"Ég hef sennilega lítinn tíma til að skrifa hér eftir, enda orðin 88 ára gömul og hálf heilsu- og orkulaus. Enda þurfti ég að stunda miklar rannsóknir á runnum og leika mér heilmikið í runnunum til að fá efni í bókina. Fjölmiðlar elta mig um allt og reyna að fá mig til að sitja fyrir, sérstaklega í Playboy og Hustler - enda var síðari bók mín mjög heit og djörf - eiginlega hálfgerð subba þannig séð" segir frú Brúnka og um leið og hún gerir tilraun til að vera sexy - en á einhvern undarlegan hátt fer kjánahrollur um spyrjandann þegar hann horfir á þessa 88 ára gömlu kerlingu iða eins og gamall kartöflupoki.

Frú Brúnka tók við Nóbels bókmenntaverðlaununum fyrr á þessu ári í Wallace Collection-safninu í Lundúnum. Sendiherra Svía í Lundúnum studdi kerlingunni uppá sviðið og veitti henni verðlaunin - ársbirgðir af runnafræjum og tjörutunnu ásamt 30 kjúklingum sem tístu heil ósköp. 

Kanínufrú"Nú get ég hætt að bögglast við að skrifa, enda orðin of skjálfhent - og snúið mér að uppáhaldshugarefnum mínum í framtíðinni, runnarækt og tilraunum með litabrigði hænsnfugla. Nú hendi ég pennaræskninu og er ánægð þó ég þurfi aldrei aftur að líta bókstaf enda aldrei þolað stafi hvort sem er - en sit nú föst með einn slíkan í hendi sem ég þarf að ganga með hvert sem ég fer" sagði Femínistakerlingin örg um leið og hún barði spyrjandann með stafnum sínum.

Spyrjanda þótti nú nóg komið og ákvað að forða sér frá þessari kerlingu áður en í illt færi. Seinna frétti spyrillinn af því að kerlingin hefði stofnað samtökin "Rúllað og púllað á runnahól við hanagól" - en þau samtök miða við að allir geti fengið sér vagg og veltu í runna uppi á hólnum sem er á bakvið bæinn hjá frú Brúnku. Spyrillinn selur það ekki dýrara en hann heyrði það og kveður bara.


mbl.is Lessing: Enginn friður fyrir fjölmiðlum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mæður á MoggaBloggi sem og bara allar mæður - skyldulesning hérna!!!!

Gift of Love

Ég vil byrja á því að senda minni kæru bloggvinkonu Ragnheiði kærar kveðjur í tilefni dagsins í dag!  Til hamingju með mæðradaginn Ragnheiður mín. Vil einnig senda öðrum mæðrum sem standa í sömu sporum og hún Ragnheiður kærar mæðradagskveðjur! Kveðjur til annarra í lokin...

Þá er að renna upp heilmikill dýrðardagur. Hvítasunnuhelgin er í algleymi og allir á ferð og flugi hugsanlega, en samt gruna ég að margar mæður landsins séu samt ætíð með börnin sín sér við hlið eða í hjarta.

Það er hálf skrýtið að hugsa um það hve mæður eru miklar hetjur í raun og veru. Þær þurfa að bera barn sitt í kvið sínum í níu mánuði á meðan það vex og dafnar. Síðan þurfa þær að standa oft í miklum kvalafullum aðgerðum til að koma börnum sínum í heiminn. Einstaka sinnum þurfa mæður líka að glíma við að taka á móti barni í heiminn sem haldið er erfiðum sjúkdómum - en móðirin tekur barnið samt í faðminn og elskar það alveg jafnheitt og öll heilbrigðustu börn í heiminum - eða jafnvel meira ef eitthvað er.

 

 

Angelcomfort

Þegar barnið er komið í fang móður sinnar þarf himinn og jörð að farast áður en móðirin lætur frá sér barnið. Hún verndar það með öllum hugsanlegum og óhugsanlegum ráðum og er ætíð ótrúlega fórnfús í garð barnsins.

Oft stendur móðirin í mikilli baráttu við hinar ýmsu utanaðkomandi hættur og vá sem ógnað gæti barninu hennar á meðan það vex og dafnar - en hún gefst aldrei upp! Hún fæðir, baðar og klæðir barn sitt - huggar það og hughreystir, skemmtir því og elskar það skilyrðislaust alla æfi.

Dagurinn í dag, 11 Maí 2008, er mæðradagurinn. Þessi dagur er tileinkaður ykkur öllum kæru konur sem orðnar eru mæður og hafið lagt að baki svona mikla hetjuför frá fyrstu stundu og þar til yfir líkur. Ég vil óska ykkur öllum hér sem og allsstaðar hjartanlega til hamingju með daginn og þakka ykkur svo mikið vel fyrir það að hafa fætt okkur öll í heiminn og hugsað um okkur ætíð og skilyrðislaust.

Ekkert afl í heiminum jafnast á við móðureðlið - þið mæður moggabloggs - sem og allar mæður - þið eruð stórkostlegar hetjur og ég þakka fyrir mig.

  Til hamingju með daginn kæru Bloggvinkonur!

Jenný Anna - Angelfish - Ólína Þ.Gurrí - Jónína Dúadóttir - Guðrún B. - Maddy - Huld Ringsted - Ásthildur Cesil - Guðrún Emilía - Edda Björgvins - Kurr mín kæra systir - Ragnheiður - Ásdís - Jóhanna M&V - Hallgerður Pétursd. - Helga Guðrún - Sigrún Óskars - Adda Laufey - Helga Skjol - Sólveig M. - Ragnheiður Ása - Anna Einarsdóttir - Linda Linnet - Brynja Skordal - Halldóra Rán - Guðbjörg Ofurskutla - G. Antonia - EMMHelga Valdimarsdóttir - Svala Erlendsdóttir - Lilja Guðrún - María Guðmunds. - Helga Magnúsdóttir - Jóna Svanlaug.

Svo eru náttúrulega einhverjir sem ég er ekki alveg 100% viss um hvort séu konur eða menn en fá samt líka kveðju!

JEG - Handtöskuserían ..

Og svo töffararnir mínir - þeir fá bara svona auka kveðju til að vera með ...

Steingrímur minn besta skinn - Brjánn Boxari hinn ljúfi - Stefán Friðrik ofurbloggari - Tófulöpp reiðmaður

Og svo að lokum nýjasti bloggvinurinn ..

Herbert hinn knúshræddi ...

 

Einnig vil ég óska öllum konum sem eru mæður - og lesa moggablogg og rekast hingað inn - til hamingju með daginn!

 

Að þessu loknu kveð ég bara í bili og óska ykkur öllum ánægjulegrar helgar og njótið lífsins. Adjö ...

  


Er málið að prumpa á Gasfélagið - eða að Gasa JúróPrumpið?

  ÞvEgill swarssernegger Boddyprumper og trúður, segir íslensku þjóðina misskilja sig. Þvegill óskar eftir leiðréttingu og uppreisn gegn Femínistum vegna áhugaleysis þeirra á himnesku boddyPrumpi sínu. ÞvEgill segist heitur reitur sem brennir brýr að baki sér, en hann hafi ætíð bimbóbananastöng innan klæða til að stangastökkva til baka þegar á þarf að halda.

"Vonar maður ekki alltaf að opnist hjá femmunum gloppa - og þá er ég tilbúinn að hoppa?" segir ÞvEgill prumper og glottir kjánalega eins og honum einum er lagið, þó ekki júrólagið.

"Ég á þó ekki von á að Femmurnar rifni upp í gleði og stuði - þó Merzedes Club Prumpi daglangt. Enda erum við boddyprumpararnir stórir og uppblásnir bitar sem ekki er auðvelt að móttaka, meðtaka eða handtaka" segir trúðurinn og setur upp trúðaglott - hann prumpar létt og andvarpar ánægjulega.

  Talið er hugsanlegt að ÞvEgill sé að undirbúa land og þjóð undir ... sig sjálfan. Heyrst hefur að ÞvEgill girnist eingöngu þó gamlar bakraddaPrumpur, enda séu þær duglegar að trúa á bodyprump frekar en júróbólgur. Hefur ÞvEgill nú lagt hald á miklar byrgðir af ljóskuháralitprumpi enda er  það hans álit að ljóskur muni frekar Prumpa á júrólag við boddyprumphópinn.

"Sjáið bara KaPamelu FlAnderson sem er sko ljóska niður undir G-streng, hún Prumpar sér undir hvern sem er ef boddyið er eins og mitt" segir ÞvEgill með ljóskusvip. Hann prumpar aftur og það fer aðeins um spyrilinn sem nær sér í Gas-grímu til vonar og vara.

Heyrst hefur að siðgæðisGasmann komi af og til aftan að ÞvEgli boddyprump - enda mun Gasmann vera aftanhneigður með boddyprumpfetish á háu stigi.

"Menn eru bara ekkert að skilja mig, þetta á að vera grínuppistand en ekki raddbandaflippflapp" segir ÞvEgill þegar hann er spurður um það hvort Solla stirða og Bjössa bolla séu góðir kandídátar til Serbíu með sitt flotta boddyprumpatriði og söng.

 

  „Vonar maður ekki alltaf að boddyprumpi vegni vel? Ég á samt ekki von á því Eurobollan vinni keppnisprumpið, til þess er írska kalkúnaPrumpið of mikið boddyprump. Írar skilja að JúróPrump er Prumpukeppni en ekki söngvakeppni. Íslendingar eru því miður ekki ennþá búnir að fatta að þetta er Prump. Annars hefðu þeir valið mig - aðalprumparann!" segir ÞvEgill og gefur duglegt Gas frá sér með Prumpugatinu. Ilmurinn sem fyllir umhverfið hefði getað steindrepið hvern sem er, en spyrjandinn var búinn að setja upp Gas-grímu svo hann slapp fyrir horn..

  "Fúskararnir hérna heima fengu tækifæri til að senda brilljant Prumputriði og lag eftir eitt mesta tónlistarPrump þjóðarinnar til Serbíu en ég gerði rækilega í brækurnar mínar. Ég mæmaði of væmið í ræktinni og gleymdi að prumpa á nokkrum stöðum í keppninni, en söngprumpan okkar er náttúrulega algert prump og á allt gott skilið“

ÞvEgill er heljar Prumpari, en kveðst þó ekki vera í fýlu nema í fimm mínútur við hvert Gas-verk. Hann segist þó stundum ekki vera upplagður og því ekki til í að láta Félaga sína Gas-brúnka sig inni á baði - stundum sé hann með hausverk og bara ekki upplagður fyrir Gas-verk.

  „Það þýðir ekkert að væla yfir þessu og eftir á að hyggja er ég bara feginn að ég rústaði þessari keppni ekki. Ég er líka langtum vinsælli en JúróPrumpið sem vann. Það sér fyrir endann á mínu ævintýri en ég ætla að Prumpa á Merzedes Club meðan ég nýt þess Gasa-lega vel. Hvernig er ekki hægt að hafa gaman af þessu, við félagarnir inni á klósetti að bera á okkur brúnkukrem - prumpugatið opið og GAS GAS GAS GAS.…“ segir þessi  ótrúlega illa lyktandi boddyprumpari um leið og hann Gas-ar svo mikið að úr honum verður allt loft. Því er ekkert annað en að hætta viðtalið að sinni en - Ítarlega er rætt við Egil í sunnudagsblaði Morgunblaðsins um áframhaldandi Gasa-lega skemmtilegt Prumpuævintýri hans og félaga.


mbl.is Skilja ekki Júróvisjón
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Michelle hin kynóða að gefa prik í kvennafangelsinu? Hvert fór Róbert? Verðlaun fyrir rétta svarið...

  Robert Kosilek, morðingi með meiru, kallar ekki hvaða kerlingu ömmu sína. Nú afplánar hann lífstíðardóm fyrir morðið á konunni sinni, en hann gekk frá henni í afbrýðikasti þegar hún vann hann í blautbolakeppni - en hún hafði voldugra mjólkurbú en eiginmaðurinn. En, nú er komið bobbingur í bátinn. Robert virðist horfinn úr fangavistinni en engin veit hvað af honum varð ...

  Robert kom auga á gloppu í kerfinu, gloppu sem hugsanlega gæti orðið til að hann sleppi við að sitja lífstíð innan rimlanna. Hann skellti sér í kjól og sokkabuxur, setti upp hárkollu og breytti nafninu sínu í Michelle - nú þekkist  hann ekki lengur og Robert er horfinn en Michelle komin í ljós.

  Michelle hefur farið í mál við fangelsisstofnun Massachusettríkis í Bandaríkjunum - fyrir að vera lokuð inni fyrir verknað sem hinn illi Robert, framdi. En hún - Michelle - sé sko alvöru kona en karlinn - Robert - sá sem framdi verknaðinn sé henni alls ótengdur.

Hugsanlega mun Michelle þó þurfa að dúsa lengur á bakvið lás og slá en hún var færð yfir í kvennafangelsið og mun hún bíða þar ásamt hundruðum annarra kvenna eftir að mál hennar verði tekið fyrir. Fréttir herma að hún sé að hugsa um að taka á sig sök Roberts eftir að hún var flutt yfir í kvennó, enda njóti hún þar mun meiri virðingar en í karladeildinni. Hún er sérbúin skörungur og greinilega hefur hún náð að gefa prik hingað og þangað á kvennadeildinni sem hafa orðið til þess að hún er að hugsa um að grafa Robert endanlega.

  Mál hennar verður ekki tekið fyrir á næstu árum þar sem hún reynist ekki vera mikil ógn - en tekið hefur verið eftir því að sam-kvenna-fangar hennar séu nú mun ánægðari með dvöl sína innan rimla en áður og mun meiri ró er yfir öllu þar. Haldið verður áfram að leita af Robert á karladeildinni, en fatnaður og fleira hefur fundist þar sem tilheyrir honum en hann virðist hafa gufað upp...

Þessi stíll að ofan var í anda Boxarans okkar góða - sem kemur oft með hina skemmtilegustu pisla!



  


mbl.is Andmælir kynskiptiaðgerð fanga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er aulahúmor bara fyrir aula - eða mega allir vera með?

  

    

 

    





       HereOnly a.. 

 

   for you all and ..   people!

 

 Into the great big world out there.   


Prufa, saga sem enginn ætti að lesa - enda óhemju ruddaleg og óhefluð, ekki fyrir hjartasjúklinga og enn síður fyrir húsmæður í Vesturbænum!

Athugið að ef þið lesið þetta allt þá er það á ykkar ábyrgð, Hr. Gráðugur og Frú Rudda taka enga ábyrgð á neinu hérna, og þið hafið verið vöruð við bæði í fyrirsögn og hérna í upphafi! 

Í eldhúsinu hjá Hr. Gráðugum á Gröðustöðum réð frú Rudda ríkjum.  Hún var ráðskona herra Gráðugs og hafði verið það um árabil.  Ruddu fannst ekkert eins gott og greddulegt eins og að ráðskast með starfsfólkið á Gröðustöðum og hún lét þjóna sem og þjónustustúlkur fullnægja sér til hægri og vinstri.  Hún bar mikinn losta og umhyggju fyrir herra Gráðugum húsbónda sínum og var alltaf með nefið niðri í öllu sem hún vissi að kveikti í gamla karlinum. 

**********

Reyndar virtist Rudda vera dálítið ástfangin af húsbónda sínum hana dreymdi rennandi blauta pútudrauma um hann á næturnar.  Hún vann að því hörðum höndum að allt væri eins og Gráðugur vildi hafa það, en líka eins og hún vildi hafa það.  Hún ætlaði sér að verða húsmóðir á Gröðustöðum seinna meir – og það sem meira var – hún ætlaði að hömpa feita folanum á hverju kvöldi þegar hún væri búin að krækja í hann.

*************

Þó að langt væri liðið á morguninn var herra Gráðugur enn í rúminu og svaf – hann hafði dreymt allsskyns lostafulla drauma sem settu á hann þvílíkan bóner að hann átti erfitt með svefn fyrr en undir morguninn …

************

Frú Rudda vissi nákvæmlega hvenær átti að vekja húsbóndann – og með hverju … grrrrrr!  Hún hafði lagað dýrðlegan morgunverð og beið aðeins eftir póstinum sem kom yfirleitt um það bil sem húsbóndanum þóknaðist að fá morgunverðinn í rúmið.  Frú Rudda heyrði þegar póstmanninn bar að garði og flýtti sér út á hlað til að geta skoðað hann dálítið, enda ungur og stæltur foli þar á ferð sem hún blotnaði við að skoða. Stundum blotnaði hún svo mikið að hún varð að kalla á einn þjóninn eða þjónustustúlkuna eftirá og neyddi þau til að strjúka á henni pjötluna þar til greddan róaðist niður – gamla buddan gat þetta ennþá sko - mjeoowwww. 

*************

,,Þér komið með póstinn snemma í dag ungi maður" kallaði Rudda lostafull til unga póstberans sem hún hafði séð og skoðað svo oft áður með greddublik í augunum.  Hún gekk að stráklingnum og greip eins og óvart í klof stráksins og kreisti … grrrr … stór gæðingur þar á ferð urraði kellingin og glotti.

*************

Ungi maðurinn, sem var úr borginni, var nýbyrjaður að bera út póstinn í sveitinni og var þetta sumarvinna hjá honum.  Hann hafði komið þarna nokkrum sinnum áður en aldrei áður lent í því að kellingartuðran leitaði svona beint á hann en hann hafði verið varaður við ráðskonunni á Gröðustöðum og var því tilbúinn þegar Rudda ráðskona leitaði frekjulega á hann. 

*************

,,Ó, þér hljótið að vera frú Rudda ráðskona hér" sagði drengurinn og brosti sínu blíðasta til gröðu druslunnar á hlaðinu.  Því næst greip hann um báðar tútturnar á kellingunni og snéri duglega uppá þær – kellingin gargaði hátt af sársauka og sleppti ruddalegu takinu á bungunni á stráknum sem var ekki lengi að hoppa á bak graðfolanum sínum og þeysa aftur af stað – hann kastaði bréfabunka í haus kellingarinnar og skelli hló af þessari beyglu sem leit út eins og ofnotað skar.

*************,,Eeewwww" heyrðist í Ruddu um leið og hún beygði sig til að týna saman fjandans póstinn. 

,,Helvítis unga trippið kann örugglega hvort sem er ekki að fullnægja reyndum konum eins og mér" hugsaði Rudda – ég fæ tækifæri til að nýðast á honum seinna hugsaði hún og flýtti sér inn til að láta þjónustuliðið nudda á sér aumar tútturnar sem strákhvolpurinn snéri uppá. 

*************

,,það er kannski ekki svo áliðið, og herra Gráðugur er enn í rúminu svo það ætti að vera í lagi að fá sér einn röndóttan á einhverjum af þjónustuliðinu núna" hugsaði Rudda talsvert rólegri en í upphafi og það kom einhver gretta á andlitið á henni, einhvers konar greddubrosgretta. 

*************

,,Hvar eruð þið letidýrin ykkar" öskraði hún ruddalega þegar hún gekk inn í eldhúsið - hún sendi frá sér brosgrettu sem hefði sómað sér mjög vel á skelfilegri persónu í draugasögu. 

*************

,,Hvar eru eiginlega mannasiðirnir á þessum bæ?  Á ekki að þjónusta madömmunna í morgunsárið?" galaði Rudda um leið og hún flýtti sér inn í eldhús.  Þegar þangað kom tókst henni að ná einum að flýjandi þjónunum og misnotaði hann á eldhúsgólfinu innan um kál og kartöflur. 

*************

,,Hérna hefur þú dágott nesti og svo ertu velkominn aftur í eldhúsið mitt hvenær sem er" kurraði hún hróðug um leið og hún var búin að suddast á strákgreyinu, hún rétti unga þjóninum nestispinkil með káli og kartöflum í þakkarskyni fyrir “greiðann”. Hún skellti uppúr og nuddaði blauta pútuna sína um leið og hún lagaði aftur kjóldrusluna sem hékk allur krumpaður utaná henni.

*************

,,Morgunstund/dráttur gefur gull í munn – eða pjásu" raulaði gamla brussan með sjálfri sér um leið og hún gekk inn í sjálft húsið frá eldhúsinu. 

*************

Frú Rudda flokkaði niður póstinn eins og húsbóndinn vildi hafa hann.  Því næst lagði hún af stað með póstinn ásamt  morgunverðinum til herra Gráðugs.  Hún bankaði létt á svefnherbergisdyrnar hjá húsbónda sínum og gekk inn þegar hún heyrði eitthvað þrusk fyrir innan.  Þarna á miðju gólfinu stóð herra Gráðugur hálfnakinn en kominn á ról.  Hann var reiðilegur, reiðilegri en venjulega - hún gekk inn í herbergið.  Hr. Gráðugur klæddi sig og gerði sig svo líklegan til að fara í skóna.

*************

,,Stendur eitthvað til í dag?" spurði Rudda varlega og horfði á húsbóndann sem átti í erfiðleikum með að komast í skóna vegna ístrunnar.  Hún var vön því að herra Gráðugur væri enn sofandi þegar hún færði honum morgunverðinn og morgunstrokkið. 

*************

,,Nei, það stendur ekkert til" hreytti Gráðugur fúll út úr sér, það var greinilegt að hann var úrillur – enda illa sofinn og ekki enn búinn að láta kellingargerpið fróa sér hvað þá meir.  ,,Ég vaknaði við einhver hróp og skræki hérna áðan og leit út til að athuga það og sá þig tala við póstaulann" hélt spikfeitur húsbóndinn áfram og leit reiðilega á ráðskonuna sína.  Hann var nú svo sem ekkert sérstaklega reiður við ráðskonuna, honum þótti bara svo gott að hafa alla undirgefna og hálfhrædda við sig. 

*************

,,Ég gat ekki heyrt betur en að þú værir að væla eitthvað utaní honum og strjúka á honum Bévítis klobbann" hélt Gráðugur áfram og skapið batnaði aðeins við tilhugsunina um að fá morgunrúnkið sitt fljótlega.  Hann vissi auðvitað um lostan og gredduna sem alltaf var í þessari gömlu belju – en honum var sama því lóðatíkin þessi fullnægði hans losta hvort sem er líka. 

**************

,,Var eitthvað spennandi á milli stóru tánna á póstinum í dag" urraði Gráðugur og lét sem hann væri ekkert spenntur, auðvitað var hann búinn að bíða eftir því að geta losað um stífluna sína síðan hann vaknaði og alveg frá því að hann hafði heyrt af öllu tilstandinu þarna úti á hlaði – fjandans hryssan sem ætlaði að brynna öðrum staur  á undan honum sjálfum.

***************

,,Taka útburðarstrák sem er ekki einusinni með hár á stubbalingnum fram yfir sjálfan húsbóndann á Gröðustöðum, háttsettari verða menn varla" hugsaði Gráðugur feiti um leið og hann reif póstinn sinn af skelkaðri kellingardræsunni.  Hann flétti í gegnum bréfin á meðan frú Rudda lagðist á hnén til að eiga við húsbóndann.  Allt í einu hrökk Rudda við og stökk á fætur.  Ógurlegt hróp bergmálaði í svefnherberginu. 

**************

 ,,JÁ, JÁ, JÁÁ!" hrópaði Gráðugur eins og smákrakki og hann svitnaði af áreynslunni.  ,,Loksins komu klámblöðin sem ég pantaði úr bænum" hrópaði hann og greip utan um Ruddu ráðskonu sem sökk í stóra ístru húsbóndans. 

,,Hjálp" æpti ráðskonan skelkuð og var mjög brugðið.  Hún ýtti við graða og feita húsbóndanum. 

**************

,,Ætlar þú að láta mig drukkna í spikinu á þér drulluhali" æpti Rudda reiðilega á Gráðugan húsbónda sinn og ýtti harkalega á hann.  Hún ýtti helst til of fast á þungan kallfjandann.    Herra Gráðugur hrökk undrandi undan reiðri ráðskonunni. 

**************

,,Hvaða æsingur er þetta eiginlega hræið þitt?" hrópaði Gráðugur reiðilega um leið og hann hrökklaðist aftur á bak.  En um leið og hann hafði bakkað örlítið varð eitthvað fyrir honum.  Herra Gráðugur féll með miklum tilþrifum og látum beint á rúmið sem hafði verið beint fyrir aftan hann.  Það skipti engum togum að rúmið mölbrotnaði með miklum hávaða og stórskorinn karlinn lá kindarlegur í miðri ruslahrúgunni. 

**************

Frú Rudda horfði dauðskelkuð á sjálfan húsbóndann á Gröðustöðum lenda með látum á rúminu sem hún hafði svo oft hömpað honum í – sá rúmið brotna og síðan lá fituhlunkurinn hálfnakinn grafkyrr í öllu brakinu.  Hún æddi að honum og henti sér niður á hnén við hlið hans. 

**************

,,Ertu í lagi tuddinn minn?" hrópaði hún og rogaðist við að reyna að lyfta risastórum manninum á fætur hún tosaði með annarri hendinni í hárið á kallinum en með hinni náði hún góðu taki á litlum tillanum á honum – hún tosaði af öllum kröftum. 

**************

,,Svaraðu mér belgurinn þinn!" vældi ráðskonan upphátt og leit skelkuð á húsbónda sinn sem allt í einu byrjaði að skellihlæja  - og um leið fann hún að lillevinen á honum var byrjaður að harðna. 

**************,,Hvað er að tarna!" hló feiti karlinn í rúmbrakinu. 

,,Þú ert þó ekki að reyna að slíta af mér dindilinn" hló Gráðugur frekjulega um leið og hann reisti sig upp.  Herra Gráðugur var svo ánægður með að hafa nú loks fengið klámblöðin sín – og  af því að fá nú loksins Krúnk og ríð, sem hann vissi auðvitað alltaf að hann fengi, að hann gat ekki reiðst þessari uppákomu.  Þar að auki fannst honum ráðskonan bara standa sig sæmilega vel í að tosa í bibbann á honum svo að hann var alveg til í að bjóða henni aðeins hærri stöðu á Gröðustöðum – kannski hjásvæfu eða súludanskellingarstöðu . 

**************

,,Þú vilt kannski að við ruglum saman reitunum okkar fiskibollan mín" sagði Gráðugur sjálfsánægður og hélt áfram að hlæja.  Rudda ráðskona horfði undrandi á alveg nýja hlið á húsbónda sínum.  Aldrei fyrr hafði hann gantast svona og gert að gamni sínu á þennan hátt þegar hún var að reyna að veita honum frið og fró þarna í miðju rúmbrakinu - hún sótroðnaði og flýtti sér að standa á fætur. 

***************,,Þú ættir ekki að vera með þennan fíflagang við mig" sagði hún til að fela gredduna sem óð um gamla kroppinn hennar. 

,,Hvaða læti voru þetta eiginlega líka að öskra svona og hræða mig næstum því úr nærbuxunum?" gargaði Rudda áfram því hún hafði ekki tekið eftir klámblöðunum í póstinum.  Herra Gráðugur brölti á fætur með talsverðum erfiðleikum og hann blés eins og hvalur þegar honum loksins tókst að standa upp í tvennum skilningi – kellingin hélt nefnilega enn um litla feita úbersúpermanninn á honum og virtist ekkert ætla að sleppa strax.

***************,,Litla stranga og ruddalega Rudda mín" urraði Gráðugur og setti stút á munninn.  Hann þóttist ekkert taka eftir hneykslissvip ráðskonu sinnar. 

,,Ég var ekki að fíflast neitt með þig" sagði húsbóndinn og teygði fram sveittar hendurnar og ætlaði að grípa í ráðskonuna. 

***************

,,Hvað hefur eiginlega komið yfir þig?" spurði ráðskonan um leið og hún hopaði undan höndum Gráðugs – hún fann að greddan var að ná tökum á sér.  Hún hafði gaman af því að Gráðugur skildi nú loksins reyna eitthvað við hana. 

***************,,Ég held að við ættum bara að láta pússa okkur saman" sagði húsbóndinn hryssingslega og náði loksins taki á Brussunni sem var allt of horuð í raun. 

,,Ég fékk klámblöðin mín úr borginni" hvíslaði Gráðugur hrannalega í eyra Ruddu.  Ráðskonan greip andann á lofti og hrópaði upp yfir sig. 

***************,,Klámblöð – þarftu klámblöð fjárans klessan þín – mjólka ég þig ekki nógu vel fíflið þitt?" gargaði Rudda sármóðguð og þorði varla að draga andann. 

,,Allir draumar mínir ætla þá að hrynja" hugsaði ráðskonan með sér og það kom hræðslublik í augun á henni -  ætlaði hann bara að díla við sig sjálfur yfir klámblöðum þetta selspik. 

***************,,Auðvitað þarf ég klámblöð, bollan mín" hló sveitastjórinn og sló ruddalega á rassaboru Ruddu. 

,,Við pössum svo vel saman, bæði gráðug, gröð og ruddaleg – við ættum að láta pússa okkur saman" hélt Gráðugur hlægjandi áfram og dróg kellinguna að sér – hann reif af henni kjóldrusluna og reyndi að troða lillemann - sem var alltof stuttur inn í gegnum ömmunærbuxurnar hennar og í skjól - hann sá að ráðskonunni virtist líka vel þessi tilraun. 

*****************

,,Við eigum eftir að verða þau allra gröðustu og flottustu á landinu" hélt Gráðugur áfram og belgdi sig allan.  Ruddu fannst þetta glæsilegt. 

 ,,Já þegiðu nú og leggstu á gólfið belgur – þú getur ekki komið pípunni á þér í rennuna mina svona – ég verð að setjast klofvega á þig apinn þinn" æpti Rudda og það hlakkaði í henni við tilhugsunina um að nú mundi hún fá að hossa sér á hestbaki á hverjum morgni á þessum hval.  Gráðugur og Rudda héldu áfram að fitla og klessast saman í skammarlega ömurlegum tilþrifum sem ég legg ekki á ykkur hérna í sögunni þannig að ég enda hana hérna svo þið fáið ekki martröð! 

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Tiger
Tiger

Ég eyði fúlum og neikvæðum athugasemdum - svo það er tímaeyðsla að henda slíkum fjársjóð hingað inn. Verð hérna bara í flugumynd - lítið sem ekkert sem sagt. Þýðir ekkert að bíta af mér hausinn þrátt fyrir það...

***

Þakka öllum innlitið, en það er ekki þar með sagt að þú sjáir mig spora út síðuna þína!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • jesumynd
  • jesumynd2
  • jesumynd4
  • blómabeðið
  • blómabeðið
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband