Glæsilegt eða hitt þó heldur. Því geta stjörnur ekki klætt sig aðeins bjartara??

ReginaSvei mér þá - hvað er stelpurassgatið búin að gera við hárið á sér? Eins og hún er falleg, bara stórglæsileg en svo eyðileggur hún sjálfa sig algerlega með svona skelfilegum kolli.

Kannski er þetta einhvers skonar stjörnugreiðsla en mér líkar þetta ekki! Það er svo oft sem fólk kann ekki að greiða sér eða klæða sig (að mínu mati) þegar það kemur fram opinberlega. Alltof mikið af svörtu og undarlegustu túrbínur á kollinum... undarlegt!

Hugsið ykkur hve glæsileg hún væri ef allt  hárið væri sleikt afturábak - ekki bara fremsti hlutinn. Samt finnst mér hún ógisslega sæt og wild svona sko .. á djamminu í rvk en ekki in front of the world.

**********************************************

Jæja, við erum orðin 7 vikna gömul systkynin. Elskum lífið og okkur líður vel. Vorum komin fram á gang í síðustu viku, enda kunnum við algerlega á wc-ið og erum búin að sýna að við séum traustsins verð í að stækka umhverfi okkar. Svo núna um helgina fengum við að fara lengra og lengra - alveg um alla íbúðina að lokum. Við vorum reyndar sett í sandinn öðru hvoru svo við myndum rata þangað aftur .. en það gengur svo vel.

Picture 001  Picture 003

 

Mútta er alger skvísa, hrikalega sniðug við að finna uppá hinum ótrúlegustu svefnstöðum. Núna um helgina var lítill pjakkur í heimsókn svo mútta fann uppá því að hreiðra um sig undir stólnum hans litla gutta, fyrirtaks hús handa okkur. En við fengum ekki að eiga nýja húsið, bara vera þar af og til..

Picture 004  Picture 006

 

Svo fengum við að fara út úr húsi og út á pallinn á bakvið hús, geggjað alveg. Við urðum alveg óð, skoðuðum allt og hoppuðum og skoppuðum eins og beljur sem sleppa út á vorin - ekki það að við vitum hvað beljur eru en u know what we mean. En, auðvitað þurfti mútta að gera skammarstrik - hún fór í að kenna okkur á að opna látinn á hurðinni á pallinum svo við gætum sloppið út í stóra heiminn. Hún er hrikalega flott á því, kann á hurðina sko ..  svo þurfti maður að rannsaka allar körfur og blómapotta sem reyndar hafa engin blóm ennþá ...

Picture 070  Picture 085

 

  From our keeper .. no need to make comment on this ..


mbl.is Konunglegar móttökur í Serbíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Guðmundsdóttir

  er svo algerlega sammála thér..! ømurleg hárgreidsla..en hugguleg kona engu ad sidur.

svo nottlega krúsírúsímúsídúllur ársins thar á eftir knus og krammar inní vikuna thina. 

María Guðmundsdóttir, 18.5.2008 kl. 21:02

2 Smámynd: Huld S. Ringsted

Mér finnst hún Regína svo sæt og töff svona en það sem ég hef meiri áhyggjur af er hvað hún er búin að horast!

En þessi kisuskott þín eru meiriháttar, gaman að fylgjast með þeim

Huld S. Ringsted, 18.5.2008 kl. 21:42

3 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Sætar kisur .. meow... Regína er sæt - soldið lík Shirley Temple með þessa greiðslu!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 18.5.2008 kl. 22:15

4 Smámynd: Brynja skordal

Regína er barasta flott svona smá tilbreyting að sjá hana með svona Lúkk En jem minn awww langar að stökkva inn í tölvuna og knúsa litlu kisubörnin þín þvílík krútt og mér finnst kisumamman svoooo falleg Hafðu ljúfa og góða viku Elskulegur

Brynja skordal, 18.5.2008 kl. 22:53

5 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Þetta sem barnið notar kallast göngugrind, ekki stóll   Ef ég væri að leita að kisu myndi ég panta einn kettling hjá þér.  En ég á sjálf yndislegan kettling sem við ætlum að halda, þá verða kisurnar okkar 5  

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 19.5.2008 kl. 00:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Tiger
Tiger

Ég eyði fúlum og neikvæðum athugasemdum - svo það er tímaeyðsla að henda slíkum fjársjóð hingað inn. Verð hérna bara í flugumynd - lítið sem ekkert sem sagt. Þýðir ekkert að bíta af mér hausinn þrátt fyrir það...

***

Þakka öllum innlitið, en það er ekki þar með sagt að þú sjáir mig spora út síðuna þína!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 139732

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • jesumynd
  • jesumynd2
  • jesumynd4
  • blómabeðið
  • blómabeðið
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband