Hér er kisuuppdate og kisusaga síðustu viku og áfram ...

  Ok, síðasta föstudag voru teknar myndir af okkur - enda vorum við orðin 5 vikna og svaka mikil villidýr orðin. Við höfðum þar til bara drukkið mjólk hjá múttutúttu en vorum líka byrjaðir að drekka mjólk úr skál, enda var hún góð sko - gamli karlinn hitaði hana upp í fyrstu skiptin til að við gætum vanist henni - en svo fáum við hana núna bara kalda.

Síðasta föstudag fengum við að borða Wiskas dósamat í fyrsta skipti. Sá gamli er harður á því að Wiskas dósamatur fyrir fullorðnar kisur sé stórkostlegt fyrir lítil kisubörn líka - og hann veit hvað hann syngur sá gamli. Reyndar vorum við búin að heyra það að það ætti að kaupa svokallaðan sérstakan kettlingamat, en slíkur matur er bara trix til að fá fólk til að kaupa einhvern spes mat handa kettlingum. Oftar en ekki er svo bara venjulegur matur í þessum pakkningum, sem stundum eru rándýrar - svo kettlingafóður er út úr myndinni á þessum bæ og við fáum bara venjulegan mat og erum hæst ánægð með það. Við hvæstum og vorum næstum því farin að slást fyrst þegar við fengum að smakka... namminamm sko! En gamli refurinn sá til þess að við systkynin værum hvert við sinn stall á disknum og að við fengjum nóg hvert fyrir sig. Bráðum fáum við að smakka bara venjulegan mat, fisk og kjöt og samloku með skinnku og osti - mamma er búin að segja okkur að svoleiðis samlokur bráðni hreinlega uppí manni.. auðvitað trúum við henni rétt mátulega. 

Picture 075 Picture 074 Picture 072

Stundum læðist mamma gamla á diskinn okkar - jafnvel þó hún sé með miklar kræsingar á sínum disk sem er inni í eldhúsi. Hún er dáldið skrítin stundum sko, heldur alltaf að maturinn sé grænni hjá okkur en hjá henni. Ef hún kemst að okkur þá ýtir hún okkur stundum bara frá og græðgin í henni bara gleypir allt í sig á augabragði, hún borðar á nokkrum sekúndum það sem myndi taka okkur marga daga að borða. En hún er náttúrulega svo stór en við svo litlir ennþá. Sem betur fer kemur Foxerinn og skakkar leikinn og fer með múttu frá svo við fáum eitthvað, svo fær hún restina ef við skiljum eitthvað eftir. Hún elskar það ...

Picture 077 Picture 076

Nú hefur ekki verið mikið um að vera hjá okkur og fábrotið leikherbergið okkar. Enda þurfti í upphafi að passa að ekkert væri á gólfinu, engar snúrur og ekkert sem hægt var að hlaupa á bakvið og óvart pizzast þar. Það var bara á meðan við vorum litlir og vorum að læra á að það eina sem á gólfinu var - var náttúrulega WC-ið okkar. En núna erum við orðin svo stór, kunnum algerlega á klóið og höfum aldrei subbað út neinstaðar annarstaðar en þar. Svo núna er rebbakallinn búinn að setja upp nokkrar þrautir og ýmislegt sem má hlaupa uppá og í gegnum - en geggjaðasta skemmtunin er samt þegar rebbi sest á gólfið hjá okkur og leikur við okkur. Hann er í gallabuxum sem er svo auðvelt að klifra í og hann hefur alltaf eina löppina bogna og aðeins frá gólfinu - og hina beina en hnéð aðeins upp - og við elskum að hlaupa undir og yfir og klifra um allar lappirnar hans og elta puttana á honum og slást við hann. Við grunum að honum þyki það ekkert minna gaman sko - enda hálfgerður refur í sér.

Picture 085

Í gær fengum við svo að víkka út sjóndeildarhringinn, en bara afmarkað því við fáum ekki frjálsar fætur í því að vaða um alla íbúðina strax. Karlormurinn setti spegil til að hólfa af svo við kæmumst ekki lengra. Reyndar var það dálítið sniðugt og ótrúlega gaman að sjá hvað okkur fjölgaði þegar við stukkum fram og til baka þarna. Þegar við erum búin að sýna Rebba að við rötum alltaf aftur í sandinn okkar - þá fáum við að fara lengra og lengra þar til við fáum að vera all over his place. Við reiknum nú með því að við fáum fljótt að fara lengra - enda með eindæmum þrifin systkyn og kunnum okkur nákvæmlega...

Picture 086 Picture 087 Picture 088

 

En, nú er kisuuppdate á enda.. Ef einhver veit um einhvern sem langar í kisu eftir sirka hálfan mánuð þá er eitt okkar sem hefur enn ekki verið ráðstafað. Það er kisustrákur ... knús í daginn ykkar og takk fyrir að skoða okkur.


Nú er skotið út í loftið - myndir stækka við að ýta við þeim, ef ykkur langar til að skoða mig nánar.

Hér með viðurkennist að Foxy frændi er algerlega óður - í mig! Hann er líka óður í að vera góður, með myndavélina. Þvílík stjarna sem ég hlýt að verða þegar ég er orðinn stór! Hérna eru myndir því til sönnunar! Hann er oftast í formúluskapi þegar ég og myndavélar eru annars vegar!

Hérna er ég að vakna, spái í því hvað kaddlinn er að gera en glotti svo bara af honum. Ég sef náttúrulega ekki í rúminu mínu, enda er það heima hjá mínum yndislegu foreldrum.

vaknatími hvaaad fyndinn ertu kaddl

Svo er ég rosalega duglegur, get snúið mér í marga hringi sko - án þess að fara nokkuð framúr - enda setur Copperinn alveg helling af púðum og læti í kringum mig svo ég skelli ekki utaní neitt. Ég hef samt nóg pláss til að brölta smá.

á ég að sýna þér og snúa sko hva eg er dullegur

Sjáið flottu tennurnar mínar! En, maður nennir ekki að hanga hérna allan daginn, á ekki að gefa manni að borða og svoleiðis?

look at my teeth tritill hmmmm

OMG.. svo fann ég ísskápinn hans frænda - hér er sko hægt að dunda sér helling! Endalaust af nýjum hlutum til að færa til og jafnvel smakka smá, en þeir eru samt ekki góðir undir tönn - enda tennurnar mínar ekki mjög stórar ennþá, mar er náttúrulega bara 7 mánaða og einhverra daga gamall sko!

isskapurinn gaman ennþá gaman

Já, þessi blörraði refur er jú frændi minn - hálfgerður vandræðagemlingur sem stanslaust hamast í mér með myndavél. Hann er óður í mig og ég fæ varla að sofa sko í friði. En hann elskar mig rosalega mikið svo ég fyrirgef honum það alveg, kannski. Hann gaf mér að borða svona banana mat og svo pelann. Því næst fór ég bara að leika mér á gólfinu - eða á leiksvæðinu sem gamli útbjó handa mér. 

Foxyfraendi leika Picture 049

Það er heavy gaman að leika sér sko..  

Picture 049 Picture 048

Svo fór ég í lestrartíma hjá honum, hann er óður í að reyna að ná myndum af mér lesa skrípó eins og hann náði af pabba mínum þegar hann var lítill. En svo brá mér, haldið þið að það hafi ekki komið heljarstórt hvítt ljón labbandi.. en svo var þetta bara afbrýðisöm kisa sem vildi vita hvað var í gangi.

Picture 056 Picture 054

Svo fékk ég smá hvíldartíma og dúllaði mér uppí sófa þar sem varnarveggirnir ógurlegu voru til staðar svo ég færi nú ekki að stinga af. Það er naumast að gamli kaddlinn er hræddur um að eitthvað komi fyrir mig, stóra strákinn sko! 

Picture 041 Picture 042 Picture 043

Svo fékk ég mér smá lúr en að því loknu komu pabbi og mín fallega mamma og sóttu mig loksins - enda var ég orðinn hálf þreyttur á öllum þessum myndatökum hjá Foxyfrænda. Ég hugsa að hann eigi eftir að liggja í miklum söknuði þegar ég er farinn - og kannski mun ég sakna hans smá. En ég er svo sem ekki á flæðiskeri staddur heima heldur - með glæsilegan stóran hálfbróður og fulltaf yndislegu fólki úr báðum ættum sem elska mig líka. 

Picture 047 Picture 067 Picture 068

 

Þá er þessum myndahamagangi lokið og maður bara horfinn inn í sólarlagið... *krúttkastbros*.


Sexual harassment in this blogg will not be reported, so let´s cum to gether and pray for good ending 4 all!

Sexual-Harrassment-Posters

 

Nei, ég segi nú bara svona - ég mun ekki taka alvarlega á því þó einhver sýni mér dónaskap eða áreitni, enda fíla ég það bara dúndrandi vel - þannig séð.

 

 

Nú eru broskallarnir mínir komnir aftur í hús, Jihaaaaa!

Þessi færsla er bara til að fá broskallaútrás!

 

Þessir tölvubizznesskarlar eru hinir mestu sjóræningjar - selja manni tölvu með galla í harða diskinum, eða svo er mér sagt. Mr. YfirBýfluga afsakaði sig í bak og fyrir og auðvitað borgaði ég ekkert fyrir þennan skandala.

  
Kæru bloggvinir - þið eruð best fyrir að hafa skoðað mitt fátæklega bloggerí - broskallalaust og myndalaust, og hálfinnantómt. Nú get ég þó skrifað eitthvað í athugasemdakerfið ykkar með brosi og veifandi eða baðandi út öllum öngum, loksins!

  

Hvað mér finnst geggjað að vera með svona kjánalegt skraut og læti í blogginu, svo upplífgandi og hmmm ... truflandi fyrir suma auðvitað, en þá verða þeir bara að sleppa því að kíkja á mig - my loss auðvitað!

  

   


To you all 4 keep cumming all over my bloggz - you messý pípúl - now it´s my turn to cumm all over your athugasemdakerfi, hope you all have handklæði ready 2 wipe off my slutty bíheifíor next few days.


Over and út of here - but i´ll be back - i will always be back - i am one of those who can alwys come again ... and i will come again - what, hvar fór ég af sporinu?

Bara stutt og snubbótt innlit. Fæ hugsanlega tölvuna mína í kvöld, jibbý - kannski! Þá get ég loks sett inn myndir og broskalla sem og gert eitthvað án þess að eiga á hættu að allt frjósi og hverfi í tíma og ekki tíma.

Heyri betur í ykkur á kvöldrúntinum og reynið nú að vera kát og góð - eða óð, skiptir svo sem engu máli á meðan þið haldið því fyrir ykkur sjálf.

Over and út of here, see ya gæs (lesist Gæs auddað)...


Hvernig væri að binda hnút á ristilinn og stöðva óheft flæði ósóma yfir þjóð og land?

Er ristill þjóðfélagsins Alþingi - og þingmennirnir okkar það sem flýtur þaðan yfir þjóðina? Eru stóru málin sem upp koma í hinu venjulega þjóðfélagi ekki mál sem heila þjóðin ætti að hafa áhrif á en ekki bara nokkrir ristilbúar ásamt sínum undirtyllum? Mér finnst það algerlega ótækt að ég, sem hluti úr þjóðinni, fái ekki að hafa áhrif á það þegar stór mál koma upp sem skipta framtíð lands og þjóðar miklu máli. Sjálfsagt að ráðherrar eða þingmenn fari með hin ýmsu mál og vinni í því að skoða allar hliðar, vega & meta kosti og galla málanna og sendi síðan niðurstöður og uppástungur til þjóðarinnar til ákvörðunar. Ég myndi gjarnan vilja geta kosið um það t.d. hvort skemma ætti ýmsar náttúruperlur víða um land - (sjá pistla Láru Hönnu) - hvort her eða erlendir aðilar geti komið hingað með herlið- og eða herþotur og annað tengt hernaði hingað - vil geta verið með í því að ákveða hvort hin eða þessi stóru mannvirki verði reyst hér eða þar, og svo framvegis.

**********

Ég myndi vilja geta stoppað af hinar ýmsu uppákomur í pólitík eins og t.d. valdabrölt og stólagærðgi. Hefði viljað að það væri í lögum að ef menn sýna af sér græðgi í feitari embætti í t.d. borgarstjórn - að þá hafi kjósandinn vald til að stoppa það af - eða styðja það ef þörf er á. Enda myndi slíkt vald okkar spara mikla fjármuni og mikinn tíma sem fer til óþarfa vafsturs í stað þess að nýtast í það að gera eitthvað af viti okkur til hagsbóta og eins & til er ætlast af þeim sem kosnir eru til þeirra verka fyrir okkur. Enda finnst mér það algerlega ótækt að valdagráðugir menn í pólitík skuli geta haft okkar ákvörðun (kosningu) að vettugi og bara ætlast til að við tökum því með þögninni þegar þeir koma sjálfum sér í stóla sem við sannarlega kusum þá ekki í! Sjá síðustu stólagræðgi í bæði borginni og á vestfjörðum þar sem núna er komið fólk í stöður sem sannarlega þjóðin kaus ekki yfir sig. Svona pólitísk slagsmál vil ég einmitt geta stoppað af án þess að það kosti okkur fé og dýrmætan tíma.

**********

Ég myndi vilja hafa eitthvað með það að segja hvort þjóðkjörnir aðilar séu á fleygiferð um allan heiminn, í einkaþotu eða bara á bíl - eyðandi mjög dýrmætum tíma og miklum fjármunum sem sannarlega ætti að nýta hérna heima við að hlúa að þeim okkar sem minna mega sín, til uppbyggingar velferðar allra okkar landa sem hvergi eiga höfði að halla til dæmis.

Ég myndi vilja geta sagt mitt í því hvort þjóðin eigi að greiða 15 milljónir í að byggja upp skrjóð, sem kannski hefur sögulegt gildi, til að nota undir rassinn á þjóðhöfðingjum vorum á hátíðarrúntinum.

**********

Ég myndi vilja geta sagt nei - eða já ef mér líkar málið - þegar stórar ákvarðanir eru teknar, þegar feitir karlar skaffa sjálfum sér feit eftirlaun og starfslokasamninga (Sjá Davíð Oddson). Ég vil að þjóðin fái vald og hafi rétt á því að geta haft áhrif á allt svona bruðl og vesen með t.d. undirskriftasöfnun um í hverju landshorni fyrir sig. Síðan myndi meirihlutinn ráða því hvort eitt eða annað væri samþykkt eða yfir höfuð gert. Undanfarinn væri þá auðvitað sú vinna sem til þess kjörnir menn og konur myndu vinna og kynna okkur, leggja svo ákvarðanatökur í okkar hendur. Mér leiðist að sjá glottandi stjórnmálamenn og pólitíska framapotara æða með vanvirðingu yfir það sem við kjósum okkur til handa, stíga á kosningar og koma sjálfum sér til valda þvert á það sem þjóðin kaus.

Ég vil vald til fólksins, að kjósendur geti í krafti laga safnað undirskriftum í öllum hornum þjóðfélagsins og að sett væri í lög að lokaniðurstaða úr slíkri söfnun væri tekin til skoðunar og löguð að vilja og óska þjóðarinnar eftir því sem hægt verður - í stað þess að örfáir einstaklingar fái bara að velja og hafna með eigin vinsældir og hag að leiðarljósi.

Ok, þetta eru draumórar - en hve mikið væri hægt að spara með svona taumhaldi á pólitíkusa - og hve miklu mætti koma í verk án þess að eyða of miklu fé og tíma í endalausa umræðu og riflildi á milli flokka og pólitíkusa, sem oft leiða bara til nýrra stólaskipta og engin málefni leysast.


Bíóferð og náttúruperlur...

Jæja, ég fór í bíó áðan - Laugarásbíó -  á myndina SpiderWick. Stórgóð ævintýramynd fyrir börn og unglinga sem og mig/ykkur. Ég fór með 8 ára systurson sem hefur aldrei í bíó komið áður og fylgdist með honum upplifa spennuna og hávaðan í bíósal nútímans. Sjálfur hef ég nú ekki komið í bíó í þónokkuð langan tíma, en ég hef alltaf gaman að bíóferðum. Sá að það er búið að setja sætispúða á öll sætin, sem er blessað og gott fyrir okkur stóra fólkið - en púðarnir eru algerlega fyrir ungafólkinu. Reyndar er boðið uppá plastvaskaföt sem snúið er á hvolf og geta börnin setið á þeim en ég hugsa að það sé nú ekki beint þægilegt að sitja á hörðu plastinu í 1 og hálfan til tvo tíma. Eins mætti alveg lækka aðeins niður í hávaðanum - maður hreinlega missir andann þegar mestu lætin eru - eða er maður bara orðinn svona gamall ... hahaha!

En, að öðru sem mér finnst ekki síður spennandi og mikilvægt - náttúruperlur Íslands. 

Svona er lífið, aðra stundina er Vin/afdrep hérna en hina stundina er búið að eyðileggja Vinina/afdrepið og upp er komið eitthvað ferlíki sem spúir fire and brimstone into the air, eða þannig sko. Nú er lag að taka saman höndum og setja fót í gin ferlíkissins, stoppa af svona vitleysu sem náttúruperlueyðing er. Mér finnst persónulega ekki öllu skipta máli hversu margir Íslendingar eða útlendingar fara og skoða eða heimsækja náttúruperlurnar - nóg er að einn til tíu skoði til að það sé þess virði að bjarga fallegum stöðun sem aldrei koma aftur ef þeim er eytt.

Lára Hanna er með frábær skrif um náttúruperlur og færslurnar hennar eru sannarlega þess virði að líta á og lesa. Ef þið hafið einhvern minnsta áhuga á Íslandi og perlum landsins - þá hvet ég ykkur til að fara á síðuna hennar og lesa eða fylgjast með gangi mála og taka þátt í að láta ykkar álit í ljós. Hvet alla til að sitja ekki kyrra og yppa öxlum heldur fara á síðuna hennar og skoða hvað þið getið gert til að vera með.

Reyni að kíkja blogghringinn í kvöld en ég fæ vonandi að vita eitthvað um tölvuna mína fyrir lokun á morgun, mánudag. Mikið hlakka ég til að fá skútuna mína aftur heim. Mér finnst óþolandi að geta ekki verið með broskalla og/eða myndir í færslunum mínum, allt svo tómlegt. Lifið heil og kát þennan vindasama sunnudag essgurnar mínar.


Er borgarstjóri bara Ragnar Reykás í felubúning ...?

Ólafur F. Magnússon borgarstjóri fór í dag hörðum orðum um vinningstillögu um skipulag Vatnsmýrarinnar, sem fulltrúar nær allra flokka hafa hælt að undanförnu. Hann sagði að ef tillaga hætti ekki að trufla skipulagsvinnu í borginni, gæti niðurstaðan orðið skipulagsklúður sem hefði alvarlegar afleiðingar með uppbyggingu Vatnsmýrarinnar.

Þegar vinningstillagan var kynnt fyrr á árinu fór blessaður borgarstjórinn marga hringi í hrifningu yfir sömu vinningstillögu ef ég man rétt..

Spurning um hvort hann hafi gleymt að taka röndóttu í morgun? Eða bleiku... svona viðsnúningur minnir slatta vel á ákveðinn Ragnar Reykás, ef þið munið eftir honum...

 


mbl.is Borgarstjóri gagnrýnir vinningstillöguna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjölmiðlar geta haft mikil áhrif á líf einstaklinga og ættu undantekningalaust að sýna varkárni í umfjöllun um persónuleg málefni sem engum kemur í raun við.

Já, valdið er heljarmikið þegar fjölmiðlar eru annars vegar og viðkvæm málefni hins vegar. Sannarlega hægt að segja að fjölmiðlar geta haldið fólki í heljargreipum, ofan í skúffu eða í skápnum. Vitanlega er vandmeðfarið að fjalla í fjölmiðlum - um eitthvað sem er eins viðkvæmt og samkynhneigð þegar leikarar eru annarsvegar, sem og opinberir aðilar eða þeir sem á einhvern hátt eru frægir.

Ég hugsa að það sé ætíð erfitt fyrir samkynhneigða aðila að komast út úr skápnum, hvort sem þeir séu þekktir eða ekki. Það erum við hin sem gerum þeim þetta svona erfitt með fordómum og bölvuðum kjaftagangi. Það hafa alltaf verið til fordómafullir einstaklingar sem trúa því að við getum orðið samkynhneigð bara af því að koma nálægt og/eða umgangast samkynhneigða, sem vitanlega er eins mikil heimska og frekast getur verið. Mín reynsla af samkynhneigðum er góð, enda eru nokkrir samkynhneigðir einstaklingar á meðal minna allra bestu vina. Þeir eru dásamlegir vinir og leggja ætíð alúð í allt sem þeir gera eða taka sér fyrir hendur og ætíð með opið hjarta fyrir vini sína. Þeir samkynhneigðu einstaklingar sem ég þekki til sem eiga börn - eru bestu foreldrar sem ég þekki bara.

Því segi ég bara að fjölmiðlar ættu að sýna mikla varkárni í því að fjalla um persónuleg málefni, málefni sem engum kemur við nema bara þeim samkynhneigðu og þeirra fjölskyldum og vinum. Auðvitað ættu fjölmiðlar ætíð að sýna varkárni þegar þeir eru að fjalla um persónuleg málefni yfir höfuð og um hvern sem er. Það sem gerist innan veggja heimilisins er málefni fjölskyldna og vina þeirra, ekki fjölmiðla eða Jóns og Gunnu uti í bæ.

InLoveEn, núna er ég kominn með litla gullmolann minn í heimsókn. Þessi dásamlegi pjakkur er systursonarsonur - en ég ætla mér að eignast hann að lokum. Ég ætla að spilla  honum svo mikið að hann vilji bara mig, ekki sína yndislegu móður og ekki sinn dásamlega faðir - og alls ekki fallegu ömmurnar sínar og afana sína - bara mig mig mig mig ... .muhahaha! Ég elska þennan litla dreng.

Allavega verð ég mest lítið á netinu á morgun, eða svo - og hver veit - ef allt gengur vel þá neita ég að skila honum á morgun!Heart

En, ég er farinn að horfa á hann sofa... ég get ekki sett inn myndir af honum fyrr en eftir helgi því ég fæ flaggskipið mitt ekki fyrr en þá Crying Hringdi í dag í tölvulistann og þá var mér sagt að þeir BYRJA ekki á því að vinna í tölvunni fyrr en 4 DÖGUM EFTIR AÐ HÚN KEMUR Í HÚS TIL ÞEIRRA!!! Hot damn ... sem þýðir að þeir byrja á að líta á hana á mánudaginn til að sjá hvað þeir þurfa að gera. Gallagripir sem þeir eru, rétt eins og tölvurnar þeirra. En knús á ykkur öll og munið að ég kíki yfir ykkur öll af miklum krafti þegar tölvan kemur heim til pabba síns ... *snýt*Crying

Yfir og out of here...


mbl.is Fjölmiðlar „halda leikurum í skápnum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef samviskusemin er virkjuð á jákvæðan og ævintýralegan hátt þá er hægt að leysa margan vandann sem áður virtist óyfirstíganlegur eða óleysanlegur, þannig séð.

Besta leiðin til að fá börn til að hlýða, borða matinn sinn, taka til í herberginu sínu, læra eða bara vera stillt - er að virkja þau í leikjum sem miða við að hlutirnir gangi upp. Það eru til mjög margir dásamlegir leikir sem hægt er að nota og sem börnin bæði skilja og hafa áhuga á að kynna sér og læra meira um. Nú er ég ekki að tala um hefðbundna leiki sem allir þekkja og alls ekki að tala um að "verðlauna" börnum fyrir það að gegna eða plata þau á einhvern hátt. Nei, þetta er bæði leikur og kennsla því börnin hafa gaman af þessu og læra um leið að skilja ýmislegt í lífinu betur en áður.

Skoðum t.d. málin með börn sem eru matvönd og harðneita að smakka ákveðinn mat. Öll börn hafa gaman af leikjum og því er auðvelt að virkja þau til þátttöku ef maður tekur sig til og útskýrir leikinn á ævintýralegan hátt.

T.d. bjó ég til sögu til að segja litlum syni vinahjóna minna, drengur sem elskaði ævintýri - en var óláta pjakkur og neitaði að ganga vel um herbergið sitt. Sagan var um blinda prinsinn og blindu prinsessuna og um líf þeirra við að bjarga sér í ævintýraheimi þar sem ýmsar hættur voru - án þess að sjá neitt. Þessi frændi elskaði þetta ævintýri, fannst mjög merkilegt að sjónlausir gætu t.d. takið til í herberginu sínu og búið um rúmið sitt og raðað öllum hlutum á sinn stað án þess að sjá nokkuð. Síðan batt ég slæðu um höfuð drengsins þannig að hann gat ekkert séð og fékk hann með mér í að laga til í herberginu sínu og búa um rúmið sitt og fleira, hann varð óður í að gera alla hlutina sem "blindur prins" og spennan var í hámarki þegar maður hrósaði honum þegar hann gat leyst ákveðið verkefni í tiltektinni. Í dag nota vinahjón mín þennan leik á hann í ýmsu öðru líka og fá þau hann ætíð til að gera það sem hann á að gera, án vandamála eins og áður.

Núna í dag var ég með 3 börn hérna sem systkyn mín eiga. Tvö þeirra eru með eindæmum matvönd og vilja sumt alls ekki smakka. Ég tók ýmislegt góðgæti sem ég vissi að þeim þótti gott og setti í litlar skálar, stillti skálunum á eldhúsborðið og útbjó borðið þannig að það var mjög girnilegt. Síðan setti ég ýmislegt í aðrar skálar sem ég vissi að þau vilja ekki einu sinni smakka, en lét þær skálar vera á öðrum stað nálægt en svo að þau gætu ekki séð þær.

Því næst fékk ég þau með mér í leikinn að þekkja hvaða mat þau væru að borða. Einhvern tíman las ég um veitingastað sem var á einhvern hátt á þá vegu að fólk fékk að borða án þess að sjá réttina, smökkun fyrst og sjá svo seinna.  Ég lét þau sitja við borðið, virða fyrir sér girnilegu skálarnar á borðinu - allar með einhverju sem þeim þótti gott - og batt síðan fyrir augun þeirra og sagði þeim að ég myndi gefa þeim smakk af einhverju úr skálunum og þau áttu að reyna að átta sig á því hvaða skál ég tók úr. Svo gef ég þeim eitt eða tvennt sem þau elska - til að gefa þeim öryggi og vissu um að þetta væri gaman, þau þekktu matinn. En, svo gaf ég þeim að smakka eitt stykki úr földu skálunum það sem þau höfðu aldrei viljað smakka - og svei mér þá - þau borðuðu - reyndar ekki alveg með bestu lyst og frekar hugsi, en gátu náttúrulega ekki getið uppá hvaða kræsingar það voru sem ég gaf þeim. Næst gaf ég þeim úr því sem þau þekktu og svo aftur úr földu skálunum, og svo koll af kolli.

Þau voru ekki mjög hrifin þegar ég leyfi þeim að uppgötva að ég hafði snúið á þau, en þau voru samt hissa á því að ekkert af því sem þau smökkuðu úr "vondu" skálunum skildi hafa drepið þau. Ég fékk þau til að smakka aftur án "blindfold" og ég gruna að foreldrar þeirra eigi eftir að verða hissa þegar þau vilja meira en þau voru vön áður en þau komu hingað.

Með svona leikjum, leikjum sem virkja börnin - er hægt að gera stórvirki í að fá börn til að gera hluti sem það fengist aldrei til ef eingöngu væri notað strangur agi eða gal  og gól. Málið er að börnin hafi líka gaman af og finnist þau vera cool töffarar í því að geta leyst þrautir eða gert eitthvað merkilegt eins og hluti sem okkur þykir lítið mál með góða sjón en gætum eiginlega ekki án sjónarinnar.

Reyndar væri hægt að vinna svona líka í unglingum og jafnvel sumum fullorðnum líka. Virkja fólk frekar en að refsa eða skamma og nöldra. Ég t.d. bjó á leiðinlegum stað fyrir nokkrum árum þar sem mikið var af börnum á öllum aldri í allt í kring. Reynt hafði verið að útbúa falleg blómabeð um langt skeið hjá þessu húsi, sem er fjölbýli, en börnin í hverfinu höfðu alltaf skemmt beðin og jafnvel börn lengra frá verið að skemma. Ég virkjaði öll börnin í það að koma og planta sínu eigin blómi, einu fyrir sig og einu fyrir pabba og þriðja fyrir móður sína. Síðan fékk ég þau til að samþykkja það að þau yrðu að passa extra vel uppá að engin kæmi og skemmdi blómabeðið og þar með þeirra eigin blóm. Sagði þeim að engin í nágrenni þeirra ætti svona garð, garð með blómum sem þýddu þau sjálf og foreldrar þeirra. Fékk þau til að sameinast í því að hafa augu með því að engin ókunnur myndi koma að drepa blómin þeirra og einnig til að taka arfa eða steina úr beðinu ef þau sæju slíkt þar. Vitið þið hvað - jú mikið rétt - mér var sagt að þetta hafði verið fyrsta sumarið í mörg ár sem fallegur blómagarður fékk að lifa og blómstra við þetta hús í heilt sumar.

Málið er líka að koma fram við börn og unglinga eins og við viljum láta koma fram við okkur sjálf, með virðingu en ekki látum og æsingi. Ef við vinnum börnin á okkar band, fáum þau til að vera með okkur í hlutunum - ekki ætlast til að þau bara geri eins og maður segir - og höfðum til samviskusemi þeirra og ævintýraþrá - þá er okkur allir vegir færir í því að hafa hlutina ætíð eins og við viljum hafa þá og engin vandamál. Börnin okkar eiga það skilið að við virðum þau og kennum þeim af virðingu en ekki með skipunum og valdi.

En, stoppum hérna. Ég er svo fenginn að tölvan hefur ekki ennþá frosið og því ætla ég að flýta mér að henda þessu inn til ykkar. Þetta var bara létt og kát hugleiðing inn í helgina sem er að nálgast óðfluga. Vonandi eigið þið öll yndislegan Föstudag og stórkostlega helgi framundan. Þið sem eruð í fríi, njótið vel - þið sem vinnið vaktavinnu - gangi ykkur vel og farið nú öll vel með ykkur. Hugs and kisses all over bloggheima...

InLove


Hver á að stíga af stallinum og setjast í helgan stein? Hér eru nokkrar hugmyndir um þá sem eru barn síns tíma!

Það er sannarlega gott og blessað þegar menn eða konur átta sig á því hvenær nóg sé komið, nú sé tími fyrir helgan stein. Dágóður þorri núverandi alþingis- og stjórnmálamanna ættu að taka Bjarna Tryggvason sér til fyrirmyndar og hendast inn í framtíðina - í helgum stein.  Persónulega væri ég til í að sjá nokkra valinkunna aðila í þjóðfélaginu leggja leið sína í þennan helga stein.

Davíð Oddson; Löngu kominn tími til að maðurinn átti sig á því að hann á ekki land og þjóð, ekki heldur bankakerfið. Tími hans er löngu liðinn og því væri það öllum til góðs ef hann skoðaði helga steininn. Pot hans í allar áttir og valdagræðgi gerir meira ógagn en gagn...

Borgarstjóri ásamt fylgifiskum; Hefðu aldrei átt að komast til valda, hafa gert meiri usla en nokkuð annað. Hversu háar fjárhæðir ætli valdagræðgi þeirra hafi kostað borgina og borgarbúa? Ef maður skoðaði málið frá A-Ö .. allt það fólk sem er í vinnu við að breyta merkingum á hurðum valdabröltaranna - til allra þeirra "verkefna" sem borgarstjórnin er að ausa hinum og þessum fjárhæðum í - á atkvæðaveiðum fyrir stólaskiptin - þegar Villi REI mun aftur máta stólinn, vonandi það að við séum búin að gleyma öllum þeim hamagangi sem hann og fólk hans olli okkur. Tími fyrir þetta lið að setjast í helgan stein, eða allavega stíga til hliðar og halda sig þar.

Dómarar skipaðir af Sjálfstæðisflokknum; Lélegar dómsniðurstöður í alvarlegum málum, sem og allt of vægir dómar fyrir t.d. kynferðisbrot - einkenna þessa sjálfstæðisstétt. En, einu sinni sjálfstæðismaður - alltaf feitir stólar með súperglú á setunni. Tími til kominn að þessir dómarar stígi af pallinum og setjist í helgan stein, eða í það minnsta tími kominn að sjálfstæðisflokkurinn hætti að skipa minna hæft fólk í sínum röðum í feit embætti þegar mun hæfari einstaklingar standa til boða.

Nágrannakonan mín; Löngu orðið tímabært að hún hætti að margelta mig á náttkjólnum um nætur með loforðum um nýbakaða kanelsnúða og ilmolíunuddmeðferð, enda er hún mun eldri en ég og að auki er hún með karluglu þarna inni hjá sér. Tími til kominn að hún annaðhvort setjist í helgan stein eða standi við stóru orðin.

Bankastjórar og forstjórar; Nú er lag fyrir þessa stóru karla að taka þátt í því að hemja verðbólguna, stíga til hliðar - yfir í helga steininn - eða sætta sig við EINA MILLJÓN á mánuði - á meðan verkamaðurinn neyðist til að gera allt það sem þarf til að lifa mannsæmandi lífi fyrir 100 til 200 þúsund á mánuði. Tímabært að þessir stóru karlar hætti að væla um lítil laun sín og láti sér nægja hærri laun á dag en mánaðarlaun verkamanns.

Starfslokasamningar, dagpeningar og bitlar; Alger tímaskekkja. Maður með fjöldan allan af milljónum á dag ætti ekki að þurfa á því að halda að rífa af skattgreiðendum fé til að nota á ferðalögum sínum "í nafni hins opinbera". Maður með milljónir í laun á mánuði á ekki að þurfa að vera með puttana í skattfé almennings og slíkur maður á allra síst að þurfa á "starfslokasamningi" að halda - samningi sem setur í vasa hans tugi milljóna sem betur væri varið í góð málefni um víðan völl - t.d. til að stofna velferðakerfi sem ofurskutlan gæti haft umsjón með. Löngu tímabært að setja slíka samninga, sem og dagpeninga - í helgan stein!

Móttaka fleiri flóttamanna; Það er sannarlega gott og blessað að taka á móti flóttamönnum, jafnvel eyða í þá þessum 160 milljónum sem nú eru allt í einu til hjá ríkisstjórninni. Því ekki að setja svona upphæð í velferð þeirra sem liggja á götunni hérna heima? Því ekki að byggja upp velferð okkar hér á landi? Löngu kominn tími á að staldra við í málefnum erlends fólks til landsins, tími til að endurskoða þróun undanfarin ár. Mál til komið að taka til, hreinsa aðeins og koma lagi á núverandi ástand - senda þá sem hafa brotið lög okkar aftur heim til sín og átta sig á því hvernig má taka á móti fleirum án þeirra vandamála sem hafa komið upp síðustu mánuði og ár. Yndislegt að taka á móti flóttafólki, og setja 160 milljónir í það að búa þeim velferð í ár í nýju landi - en hlúum að okkar fólki fyrst - tökum svo til í núverandi vanda varðandi lögbrjóta - og bjóðum svo nýja landa velkomna.

Bloggarar með nafni; Löngu tímabært að bloggarar sem koma fram undir nafni hætti að vaða um allan bloggheim. Það hefur alla tíð verið mjög augljóst að nafnlausir eru þeir sem halda uppi blogginu með gríni og glens, beinu orðalagi og ófeimni við að segja skoðun sína - án ábyrgðar. Sannarlega tími á það að nafngreindir bloggarar átti sig á því að bloggið er ekkert án nafnlausra bloggara, enda eru nafnlausir þeir einu sem þora að segja skoðun sína án þess að draga neitt undan. Nafnþekktir bloggarar reyna hvað þeir geta til að blogga milliveginn til að tapa ekki lesningu og hætta ekki á að fá á sig skítkast með því að vera reiðir þar sem við á, illir og orðljótir þar sem þess er þörf og hrauna yfir þá sem þeim ekki hugnast - eins og þeir nafnlausu þora svo sannarlega, enda nafnlausir og ábyrgðarlausir - en samt hugrakkur skríll.

Ok, nú gæti ég haldið endalaust áfram að mótmæla - enda er kominn upp í mér 1. Maífílingur. Kannski ég skreppi út í göngutúr, ætla að æða um kringluna í mótmælahamagangi og mótmæla hinu og  þessu. Hlakka endalaust mikið til að fá tölvuna mína aftur, enda þarf ég að vera svo fljótur að pikka og ýta á "vista og birta" svo það frjósi ekki allt hérna og hverfi. Er orðinn hundleiður og mótmæli tölvuvírusum og göllum í hlutum sem maður er að kaupa dýrum dómi. En, áður en ég hverf af braut, segi ég bara gleðilegan 1. Maí og munið að finna ykkur eitthvað skemmtilegt til að mótmæla í dag. Út og yfir héðan af 1830 vélinni og stórt broskallalaust faðmlag til ykkar kæru bloggvinir og blogglesendur.


mbl.is Bjarni sest í helgan stein
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Tiger
Tiger

Ég eyði fúlum og neikvæðum athugasemdum - svo það er tímaeyðsla að henda slíkum fjársjóð hingað inn. Verð hérna bara í flugumynd - lítið sem ekkert sem sagt. Þýðir ekkert að bíta af mér hausinn þrátt fyrir það...

***

Þakka öllum innlitið, en það er ekki þar með sagt að þú sjáir mig spora út síðuna þína!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • jesumynd
  • jesumynd2
  • jesumynd4
  • blómabeðið
  • blómabeðið
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband