Verð að viðurkenna að ég hef aldrei verið hrifinn af þessum náunga - og gæti trúað honum til að stinga hvern sem er í bakið - og stela hverju því sæti sem honum hugnast! Myndi ekki treysta honum í pólitík - frekar en að ég myndi treysta Árna Johnsen fyrir buddunni minni!
Hann minnir mig á þá allra verstu í íslenskri pólitík - og víðar ef svo ber við. Mitt atkvæði myndi hann aldrei fá og ef eitthvað er frá mér til hans í kjörklefanum - þá myndi það vera strik - yfir nafnið hans!
Það er ömurlegt þegar menn pota sér áfram með látum og hamagangi í pólitíkinni. Menn eru fljótir að stinga jafnvel félaga sína ef það hentar þeim sjálfum og kemur þeim sjálfum í feitara sæti. Menn eru hættir að hugsa um málefni og hættir að reyna að verða að gagni á þingi - hugsa bara um feit sæti og feita bitlinga sem og feita mánaðarlega tékka inn um bréfalúguna. Um leið og þeir alverstu byrja að pota sér áfram í aðdraganda kosninga - hafa þeir hátt, rífa fólk og málefni niður og lofa öllu fögru. Hvað gerist svo ef þeir ná að plata fólk til að kjósa þá? Jú, þeir grafa öll loforðin - ýta öllu viðkvæmu eða erfiðu til hliðar og stinga sér sjaldan eða aldrei til sunds þar sem vatnið gæti gárast því þá gætu þeir misst tékkann og stólinn.
Sem sagt - þegar framapotari kemst áfram í stjórn - eftir gól, gal og öskur á allt og alla - steinþagnar hann og passar sig að ýfa ekki við einu eða neinu sem gæti reynst "óþægilegt" pólitískt séð. Passa bara stólinn og gefa skít í loforð og kjósendur ...
๑۩۞۩๑ ๑۩۞۩๑ ๑۩۞۩๑ ๑۩۞۩๑ ๑۩۞۩๑๑۩۞۩๑
Í lítilli þriggja sæta flugvél sem flaug hátt yfir Íslandi - sátu þrír menn - flugstjórinn, Geir H. Haarde og Davíð Oddson. Þeir líta niður til landsins og Geir glottir ..
Geir H. Haarde; "Ef ég myndi henda út um gluggann einum þúsundkalli þá myndi ég gleðja einn mann duglega!" ..
Davíð Oddson; "Haahh.. auli ég myndi henda út tíu þúsundkalli og þar með gleðja tíu manns!"
Flugstjórninn stamaði í hljóði með sjálfum sér ..
"Ef ég myndi henda ykkur báðum út úr flugvélinni núna - þá myndi ég gleðja heila þjóð!"
Þessi var í boði Seðlabanka Íslands.
Ekki erfiðasta prófkjörið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- 19.8.2009 Kveðjur og knús!
- 25.6.2009 Nú kem ég og gramsa í garðinum þínum! Engin ljótur arfi lifir...
- 19.5.2009 Stutt innlit og sólblómakveðja. Ekki kominn til að vera - bar...
- 7.5.2009 Andskotans dómharka alltaf í fólki, manni blöskrar bara.
- 29.4.2009 Það rigndi gulli og gimsteinum úr himnaríki í dag! Hversu mik...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- blekpenni
- asthildurcesil
- jenfo
- lehamzdr
- skessa
- brjann
- jodua
- ringarinn
- hross
- jogamagg
- gurrihar
- christinemarie
- roslin
- jeg
- hneta
- majaogco
- madddy
- eddabjo
- lillagud
- angelfish
- skjolid
- stebbifr
- heidistrand
- sigro
- laugatun
- ollasak
- rasan
- skordalsbrynja
- antonia
- lindalinnet
- emm
- svala-svala
- kiza
- hran
- gellarinn
- katlaa
- danjensen
- snar
- tofulopp
- janey
- heidihelga
- skattborgari
- ellasprella
- icekeiko
- pollyanna
- perlaoghvolparnir
- bifrastarblondinan
- storyteller
- handtoskuserian
- strumpurinn
- siggathora
- jari
- disadora
- egvania
- um683
- veland
- sisvet
- wonderwoman
- brandarar
- borgarfjardarskotta
- jakobk
- gudrununa
- sp
- must
- jyderupdrottningin
- hrannsa
- einari
- engilstina
- manisvans
- himmalingur
- agny
- almaogfreyja
- gattin
- dittan
- dora61
- draumur
- gelin
- lis
- ace
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Ferðalög
- Fjölmiðlar
- Formúla 1
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Brandarinn í lokin var frábær, en víkjum að honum Guðlaugi. Hann hefur aldrei sagt orð frá eigin brjósti, hann talar alltaf í nafni flokksins og það þoli ég ekki. Ég hef aldrei þolað manninn, þrátt fyrir það að hann sé giftur henni Ágústu sem er alveg ágæt ein og sér
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 23.2.2009 kl. 02:14
Já Jóna, mér hefur alltaf fundist hann yfirborðskenndur og hann reynir ætíð af alefli að segja það sem hann heldur að falli í kramið hverju sinni. Gruna að hann sé músin sem læðist ..
Satt, brandarinn er flottur og damn hvað það hefði verið gott að vera flugstjórinn - myndi nefnilega láta hendurnar tala en ekki munninn sko!
Tiger, 23.2.2009 kl. 02:20
Ég hef ekki orku í pólitíkina núna
egvania, 23.2.2009 kl. 02:47
Sæll Tiger minn.
Veistu það
að ég hef verulegar áhyggjur af því að í næstu Alþingiskosningum verði nokkuð stór hópur fólks af báðum kynjum úr ÖLLUM flokkum inni á Alþingi með framapot í huga.
Einmitt núna þegar við þurfum EINSTAKLINGA sem eru virkilega tilbúnir að leggja sig alla fram DAG OG NÓTT
til þess að vinna af ósérhlífni OG koma okkur út úr þessu ástandi sem er í þessu augnabliki.
ALDREI mun verða svo illveðra vetur
að ekki komi fallegt og gott VOR.
Kær Kveðja til þín og þinna.
(þegar ég nota þetta fallega rauða hjarta þá þýðir það kærleikskveðja til allra)
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 23.2.2009 kl. 03:25
Pólitík er mannskemmandi...
Góður brandari
Jónína Dúadóttir, 23.2.2009 kl. 05:58
sammála Jónínu og thér lika Tiger, nú er bara ad vona ad fólk sé búid ad læra lexíu og láti ekki blekkjast af svona fólki lengur. Thad hlýtur ad vera til heidarlegt stjórnmálafólk , thad er bara ad finna thad....
Hafdu gódan dag kæri minn,knús hédan
María Guðmundsdóttir, 23.2.2009 kl. 06:06
Góður
Auður Proppé, 23.2.2009 kl. 09:39
Egvania; Reyndar er ég alveg sammála þér - maður er einhvern veginn búinn að fá upp í háls af pólitík.
Þórarinn; Ég er sammála þér - gruna að það sé heilmikið til í þessu hjá þér að við eigum eftir að sjá mikið af fólki koma inn sem hefur engan áhuga á að gera góða hluti - bara fá stóla og tékka í pósti. Kærleikskveðja til þín líka vinur!
Jónína Dúan mín; Uss, maður verður bara gáttaður stundum á því hversu mikið fólk getur breyst við það eitt að verða "eitthvað" í pólitík. Ótrúlega mannskemmandi að taka þátt í þessu og því miður er lítið hægt að gera við því. Knús í þitt hús dúllan!
María Guðmunds; Já María mín, það er til heiðarlegt stjórnmálafólk - það eru flestir stjórnmálamenn og konur heiðarlega þenkjandi - alveg þar til þau komast í einhvern stól - þá grípur framapot og fégræðgi fólkið og málstaðurinn fer undir teppið. Knús í bús ..
Búkollabaular; Ómæ ..já þetta hefur maður heyrt og er kominn með grænar yfir ... stanslaust baul í kallinum!
Auður Proppé; Knús á þig skottan mín..
Tiger, 23.2.2009 kl. 12:32
Takktakk Helga - ég hefði sko ekkert haft á móti því að sporðrenna nokkrum góðum bollum í viðbót. Ég borða mikið af bollum og það bæði á daginn - og nóttunni! Satt að pólitíkin er leiðinleg bara .. bollurnar eru betri! Hafðu ljúfan daginn og vikuna alla bara!
Tiger, 23.2.2009 kl. 13:13
ég hef lítið vit á pólitík og þá fer það mér klárlega betur að þegja:) En nettur brandari í lokin svo langaði mig bara koma hingað hérna inn og segja hæ þar sem ég hef alveg verið andlaus á bloggi og gleymt mér á þessu facebook ;) en þú ert alltaf jafnfrábær ;)
Halla Vilbergsdóttir, 23.2.2009 kl. 15:58
Já það er sorglegt hvað fólk verður persónuleikabreytt á því að tengjast stjórnmálum. Og ekki til hins betra! Sannarlega dauð trist!
Baldur Gautur Baldursson, 23.2.2009 kl. 16:14
Það er afskaplega fúlt að fólk sé í framapoti að hugsa um eigið rassgat í stað þess að vinna heils hugar að því að koma heimilum landsins til hjálpar.
Og vælið í þessum manni undanfarið "ég fann sko upp á þessu" minnir mig á krakka í sandkassa "pabbi minn er sterkari en pabbi þinn" Hlægilegt bara.
Knús á þig rjómabollan mín
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 23.2.2009 kl. 17:08
Segi bara: ,,Er ekki gott veður hjá ykkur?" Jú auðvitað eru allir í góðu skapi
Love you Tiger minn
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 24.2.2009 kl. 14:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.