19.12.2008 | 20:03
Ég vil jólagjöf og ekkert múður með það! Er skatan kæst - æst eða bara oohhh mæ kræst! Er kurr að fljúga til landsins fyrir jól ... Yeahhh jamm!
Kæri Jólasveinn! Í ár ætla ég að vera hógvær og lítill í mér - ætla mér bara að senda þér þennan litla óskalista og lofa að biðja ekki um neitt annað .. og vera góður allt næsta ár í staðinn!
Ekki segja neinum en ég ætla mér alls ekkert að vera góður allt næsta ár!
Frétti af Kurr systur minni - hún er væntanleg til landsins fyrir aðfangadag! Hún náðist á mynd - undir pálmatré á Spáni.
Annars er ég bara góður - ömurlega latur og heavy þreyttur - en ótrúlega glaður og hamingjusamur ... og fullsaddur!
Mikið framundan núna, tapasveisla á morgun - jólaball með kökuhlaðborði á sunnudag (Helga Möller og Maggi Kjartans) ..
Og .. svo er það vibbinn sjálfur í sinni ógeðslegustu mynd!
Skötuveisla á Þorláksmessu!
Okok, mér finnst skatan góð - að borða einu sinni á ári - en fyrr myndi ég láta ná mér með Grílu í rúminu en að ég færi að elda hana - sko skötuna - heima hjá mér!
En, ef þið viljið komast í góða skötuveislu - sem er alls ekki dýr - þá getið þið sent mér prívatskiló - og ég gef ykkur upp staðsetningu góðrar veislu - þar sem ég mun þjóna ykkur til borðs og halda á fötunni fyrir ykkur eftir matinn ... ælllll!
Dýrka ykkur í ræmur og tætlur ljúfu bloggvinir .. knús á línuna!
Er farinn að horfa á Nornirnar - Charmed!
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 20:04 | Facebook
Nýjustu færslur
- 19.8.2009 Kveðjur og knús!
- 25.6.2009 Nú kem ég og gramsa í garðinum þínum! Engin ljótur arfi lifir...
- 19.5.2009 Stutt innlit og sólblómakveðja. Ekki kominn til að vera - bar...
- 7.5.2009 Andskotans dómharka alltaf í fólki, manni blöskrar bara.
- 29.4.2009 Það rigndi gulli og gimsteinum úr himnaríki í dag! Hversu mik...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- blekpenni
- asthildurcesil
- jenfo
- lehamzdr
- skessa
- brjann
- jodua
- ringarinn
- hross
- jogamagg
- gurrihar
- christinemarie
- roslin
- jeg
- hneta
- majaogco
- madddy
- eddabjo
- lillagud
- angelfish
- skjolid
- stebbifr
- heidistrand
- sigro
- laugatun
- ollasak
- rasan
- skordalsbrynja
- antonia
- lindalinnet
- emm
- svala-svala
- kiza
- hran
- gellarinn
- katlaa
- danjensen
- snar
- tofulopp
- janey
- heidihelga
- skattborgari
- ellasprella
- icekeiko
- pollyanna
- perlaoghvolparnir
- bifrastarblondinan
- storyteller
- handtoskuserian
- strumpurinn
- siggathora
- jari
- disadora
- egvania
- um683
- veland
- sisvet
- wonderwoman
- brandarar
- borgarfjardarskotta
- jakobk
- gudrununa
- sp
- must
- jyderupdrottningin
- hrannsa
- einari
- engilstina
- manisvans
- himmalingur
- agny
- almaogfreyja
- gattin
- dittan
- dora61
- draumur
- gelin
- lis
- ace
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Ferðalög
- Fjölmiðlar
- Formúla 1
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Mér finnst skatan skemmtilega vondÉg er með eina skötuveislu í hádeginu á morgun og aðra annað kvöld, ég sýð hana sko alveg í eldhúsinu mínu og það verður sko ekkert æl neittÉg er líka að fara að horfa á sjónvarpið, ætla að hökta þangað hækjulaust
Góða helgi feitabollan þín
Jónína Dúadóttir, 19.12.2008 kl. 20:14
Ég elda alltaf skötu hérna heima hjá mér, og ég elda mikið. Vegna þess að pabbi og litli bróðir meiga ekki elda skötu heima hjá sér. Mamma hatar skötu og skötulykt. Mér og börnunum mínum þykir skatan góð, nema sonurinn sem gengur með nefklemmu á Þorláksmessu Knús í þitt hús
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 19.12.2008 kl. 21:56
Já skötunua máttu eiga fyrir mér og ég fer ekki að keyra suður til að éta hana enda borða ég ekki skötu og banna hana hér því fýlan er svo yfirgengileg að það verður ekki vottur af jólalegu yfirbragði í húsinu með stækjuna skíðandi um allt. Nei sko ef kallinn vill skötu getur hann bara farið í Staðarskála og troðið í sig óþverranum þar.
En það væri nú samt gaman að komast í veislu til þín Knús og klemm á þig og vona að þú eigir ljúfa helgi þrátt fyrir annir.
JEG, 19.12.2008 kl. 22:27
Ég segi líka pass við skötunni. Kæmi til þín í hvaða veislu sem er aðra... Ég ákvað að smakka skötu fyrir tíu árum eða svo en mér líkaði hún alls ekki. Mundi aldrei elda hana í mínu eldhúsi Gangi þér vel í veisluhöldunum, knús og kram á þig.
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 20.12.2008 kl. 00:16
Hahahahahahaha og fötuna eftir matinn, þú ert snilld
knús á þig ljúfurinn
Helga skjol, 20.12.2008 kl. 09:02
Eins og það væri gaman að hitta strákinn Tiger þá ætla ég enn og aftur að ELDA skötuna heima hjá mér, njóta þess að borða hana og sjóða svo hangikjötið til að eyða lyktinni.....bregst aldrei skom..
Gott að Kurr kemur heim um jólin
Ragnheiður , 20.12.2008 kl. 18:34
Ég lifi á öld ískápanna og borða ekki úldinn mat. Hef samt hjarta í mér gagnvart þeim sem það gera. Pabbi mátti alltaf húka á svölunum með pott á prímus undanfarin ár hefur hann þó haft bílskúr til afnota. Þetta árið má hann sennilega ekki borða skötu blessaður kallinn. Ég fæ mér pizzu á Þorláksmessu!
knús og kremja - óhemja
Lísa Björk Ingólfsdóttir, 20.12.2008 kl. 18:42
mmmmmm skatan er best með ekta verstfyrskum hnomör
Dísa Dóra, 20.12.2008 kl. 19:32
borða ekki skötu - en borða saltfisk með hamsatólg (kransæðakítti)
knús á þig tiger
Sigrún Óskars, 20.12.2008 kl. 20:38
Huld S. Ringsted, 20.12.2008 kl. 22:05
Vel kæzt ~zgada~ með óþokkalegum ~smámegluðum lángwerzdferzgum~ hnoðmör er herramannzmatur.
Erum við ekki annarz ennþá herramenn, hjúmanar og/eða danzarar ?
Hehe, hvorutveggja minnir mig & flottir slíkir.
Kyzza Kurrið frá Zteina ...
Steingrímur Helgason, 20.12.2008 kl. 22:24
Knús í hús og ljúfar kveðjur
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 20.12.2008 kl. 23:13
segi nei takk vid skøtunni,stíg ekki fætí í hús thar sem hún er eldud hvad thá étin..
en gaman ad Kurr kemur heim um jólin, alltaf best ef fjølskyldan nær ad vera saman um jól.
hafdu thad gott kæri minn og gódan sunnudag
María Guðmundsdóttir, 21.12.2008 kl. 08:01
Gleðileg jól og takk fyrir hressandi skrif.
Kærleiks kveðja Ásgerður
egvania, 21.12.2008 kl. 08:08
Því kæstari...ummmmmmm. því betri....bara kæst.....þá er hún miklu sterkari....og alveg unaðsleg að borða
Gleðileg jól til þín dúlla.....
Kveðja...Ingunn skötuunnandi
Ingunn Guðnadóttir, 21.12.2008 kl. 22:43
Ettu bara laufabrauð það er best.
Ásdís Sigurðardóttir, 21.12.2008 kl. 22:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.