29.10.2008 | 02:58
Myndir. Are you being a good friend, or am i just peeing in my pants? Hvernig lítur þú út - up side down? Bloggkreppa mæ ass...
Ef þetta er ekki daglegt líf kreppunnar - þá veit ég ekki hvað það er.
Þessi skilaboð eru til stjórnvalda og Landspabba ...
Ef við værum egg - þá væri þessi gaffall í hendi Landspabba!
Ætli þetta sé ekki mynd af hinni týpísku fjölskyldu á krepputímum! Í það minnsta helmingur fjölskyldunnar "steiktur" ...
Ok, ég er í bloggkreppu. Hef haft of mikið að gera til að eyða tíma á blogginu eða netinu yfir höfuð. Ég átti reyndar von á því að verða dálítið óvirkur þegar ég kæmi aftur úr fríinu og það reynist rétt - en ég vona bara að ég fari að hafa meiri tíma hérna því ég verð bara að viðurkenna að ég sakna atsins hérna og bloggvinanna.
En, samt - bloggið mætti alveg loga minna af kreppukjaftæði. Það eru einhvern veginn allir að eyða púðri í kreppuna, eins og maður fái ekki nóg af henni í öllum fjölmiðlum landsins...
Er annars bara góður. Reyni að fara að verða virkari hérna. Over and out...
Thanks for being my good and true friend!
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Nýjustu færslur
- 19.8.2009 Kveðjur og knús!
- 25.6.2009 Nú kem ég og gramsa í garðinum þínum! Engin ljótur arfi lifir...
- 19.5.2009 Stutt innlit og sólblómakveðja. Ekki kominn til að vera - bar...
- 7.5.2009 Andskotans dómharka alltaf í fólki, manni blöskrar bara.
- 29.4.2009 Það rigndi gulli og gimsteinum úr himnaríki í dag! Hversu mik...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- blekpenni
- asthildurcesil
- jenfo
- lehamzdr
- skessa
- brjann
- jodua
- ringarinn
- hross
- jogamagg
- gurrihar
- christinemarie
- roslin
- jeg
- hneta
- majaogco
- madddy
- eddabjo
- lillagud
- angelfish
- skjolid
- stebbifr
- heidistrand
- sigro
- laugatun
- ollasak
- rasan
- skordalsbrynja
- antonia
- lindalinnet
- emm
- svala-svala
- kiza
- hran
- gellarinn
- katlaa
- danjensen
- snar
- tofulopp
- janey
- heidihelga
- skattborgari
- ellasprella
- icekeiko
- pollyanna
- perlaoghvolparnir
- bifrastarblondinan
- storyteller
- handtoskuserian
- strumpurinn
- siggathora
- jari
- disadora
- egvania
- um683
- veland
- sisvet
- wonderwoman
- brandarar
- borgarfjardarskotta
- jakobk
- gudrununa
- sp
- must
- jyderupdrottningin
- hrannsa
- einari
- engilstina
- manisvans
- himmalingur
- agny
- almaogfreyja
- gattin
- dittan
- dora61
- draumur
- gelin
- lis
- ace
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Ferðalög
- Fjölmiðlar
- Formúla 1
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Ekkert að þakka, það er ágætis tilfinning að vera pissið í buxunum þínum Sammála með kreppukjaftæðið, ég er virkilega farin að forðast mestu kreppubloggin... Meira að segja hjá sumum af mínum eigin bloggvinum... Eigðu góðan dag og ekki vinna yfir þig, trúðu mér það fer ekki vel með mann
Jónína Dúadóttir, 29.10.2008 kl. 05:49
Knús á þig ljúfurinn
Helga skjol, 29.10.2008 kl. 06:39
Sammála þér með þetta krepputal á blogginu, ég les helst ekki orðið blogg í dag þar sem allir virðast ekki geta gert annað en að tala um ástandið í landinu. Við fáum víst nóg af því í fréttum. Það er upplyfting að koma hér inn og lesa þínar jákvæðu færslur
Huld S. Ringsted, 29.10.2008 kl. 07:43
Þetta er nú aldeiliz notaleg nærvera, án þess að ég fari mikið út í því nálægt hverju pissið liggur. Ég held, eftir að hafa skannað karlmenn bloggsins að þú sért sá al-erótískasti og eftrisóknarverðasti hér á blogginu. Guðrún Helga er erótískasta konan, að vísu að mér frátaldri. Sé að allar konurnar slefa yfir þér og þú nærð svo vel að hjartarótum þeirra með að sýna ást þína á dýrum og börnum. Víð ósamkynhneigðar konur elskum það. Ég veit að vísu ekkert um líðan samkynhnegiðra kvenna en þær eru kannski einz.
Þetta eru eggjandi myndir hjá þér Tígriz.
persóna, 29.10.2008 kl. 09:35
Það er aldrei kreppa þegar maður kíkir á bloggið þitt. Og það er miklu notalegra að vera pissið í buxunum þínum heldur en að hlusta á endalausar kreppufréttir. Ég viðurkenni alveg, að það rænir orkunni frá mér allt þetta tal um kreppuna. Knús á þig erótíski Tígur
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 29.10.2008 kl. 10:39
mikid er ég sammála thér med kreppukjaftædi á øllum vigstødvum, má alveg taka sér pásu frá thessu helv...thetta er jú alvarlegt mál og allt thad,en thad má alveg tala um eitthvad annad af og til
hafdu thad gott kæri minn, kreist og krammar til thin
María Guðmundsdóttir, 29.10.2008 kl. 11:29
Ég er sko bara glöð þessa dagana.
Ásdís Sigurðardóttir, 29.10.2008 kl. 11:41
Kærleikskveðja héðan
M, 29.10.2008 kl. 12:22
Þú ert bara flottur þó þú hafir eigi tíma til að sinna okkur, enda er það engin skylda Tiger míó míó æði að heyra í þér er við heyrum í þér.
Knús í knús
Milla
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 29.10.2008 kl. 13:22
Össs já þessi umræða er orðin toooo much. En þetta með pissið er dáldið *hrollur* kjánaleg samlíking .....verð nú bara að segja það. En það er nákvæmlega málið að vinaátta er eitthvað sem er svo óútskíranlegt ....oft á tíðum allavega. Vinátta er margskonar og á sér svo margar myndir.
Vetrarknús á þig sæti mann sem ert með pissið í buxunum hihihihii......og það alveg helling. Já svona bloggpiss hahahaha.... Luvya
JEG, 29.10.2008 kl. 14:04
Hvaaaaððð .. er mahrr bara kominn á bloggmarkaðinn sí svona?
Jónína mín Dúa; Svo satt hjá þér - ég viðurkenni það líka að ég les ekki alla bloggvini mína um þessar mundir. Þegar ég byrja og sé strax að færslan er kreppufærsla - þá stoppa ég lestur og held áfram á næsta blogg. Knús á þig jólaskottið mitt ..
Helga Skjol; Knús til baka ljúfust ..
Búkollanbaulandi; Takk skottið mitt - kramerí á þig til baka!
Huld mín; Sammála þér, fulltaf bloggi sem maður bara hjólar framhjá nú orðið - enda fær maður allan pakkann í öllum öðrum ljósmiðlum og hvar sem er. Knús og kram á þig sweetypie!
Ábyrga Blaðakonan; Takk fyrir ljúfust og velkomin í heimsókn hér, bara gaman að sjá þig. Er sammála þér hvað Helgu varðar, en hún er ein af mínum uppáhaldsbloggvinkonum og hennar er sárt saknað héðan af blogginu. Mínar bloggvinkonur eru alls ekki slefandi yfir mér á neinn hátt, þær eru bara ljúfar, hreinar og beinar. Þær koma fram við mig eins og ég kem fram við þær - af ljúfleika og virðingu. En, knús á þig hotty og vertu velkomin anytime!
Sigrún Þorbjörnsd; Alveg sammála - kreppubloggin og kreppan öll er ekkert annað en orkusuga sem skilur ekkert eftir nema eitthvað neikvætt. Því hef ég ákveðið að blogga sem minnst um kreppuna þannig lagað. Knús á þig snúðurinn minn!
María Guðmunds; Já, satt og rétt - það mætti alveg blogga um eitthvað annað af og til - enda kreppan sannarlega alvarlegt mál en alger óþarfi að eyða allri bloggorkunni í það sama og maður fær um allt þjóðfélagið öllum stundum, knúserí á þig sweety.
Ásdís mín; Þú ert bara rúsína, alltaf glöð og kát - yndislegt bara! Knús á þig gleðipinninn minn!
EMM; Sömuleiðis kærleiksknús og kveðjur héðan til þín ljúfan!
Milla mín; Takk fyrir það ljúflingurinn minn, ég verð alltaf af og til sýnilegur og mun alltaf láta í mér heyra af og til líka. Stundum forgangsraðar maður bara og þá neyðist maður til að láta sumt bíða á meðan annað gengur yfir. Knús ljúfan!
JEG; Mín kæra .. reyndar alveg satt - þetta er nú dáltið svona *hrollugt* í kuldanum - að vera blautur á versta stað sko! Sammála því að vináttan er á margan hátt óútskýranleg en alltaf af hinu góða samt! Fulltaf vetrarknúsum til baka í sveitina ljúfa lambakjötið mitt! *glott*..
Tiger, 29.10.2008 kl. 14:36
Hahahahha þú ert alveg frábær...og þessi mynd af bíbí fékk mig til að skella uppúr einmitt þegar ég átti að hafa hljóð....:) en alveg glimrandi flottur....;)
Halla Vilbergsdóttir, 29.10.2008 kl. 15:53
Ussuss ... Halla þó .. mahrr á ekki að hlægja af því þegar maður sér hluta fjölskyldu - hvers sem er - steikta! Eða þannig sko ... *glott*.
Æi, maður þarf á því að halda að sjá af og til eitthvað spaugilegt eða létt - nú þegar allt logar í umfjöllun um kreppuna og hverju því sem henni fylgir.
knús á þig skottið mitt ..
Tiger, 29.10.2008 kl. 16:28
Fallegar myndir, og skemmtilegar líka.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 29.10.2008 kl. 16:43
Ha - hvaða kreppu? Alveg til í að vera buxnapissið þitt mun betra en að vera kúkur í lauginni........ Nú - svo eru jólin komin í Hagkaup. Ætla að kaupa mér jólasvein sem heldur um magann og veinar af hlátri
knús á þig eró:)
Lísa Björk Ingólfsdóttir, 29.10.2008 kl. 16:44
Jamm ... kreppa hvað!
Jóna mín; Flottar myndir gleðja alltaf .. kram og knús á þig!
Lísa B; Hey, sko .. alveg nóg að sko .. það er hugurinn sem gildir! En, jólin koma sannarlega fyrr og fyrr. Gruna að þau skelli á með látum núna - bara svona til að létta lundina og fá fólk til að hugsa um annað en kreppuna. Auðvitað geta margir ekki haldið jól vegna kreppu - en það er önnur ella... Flottastur þessi jólasveinn sem skellir uppúr með magakreppu! Knús í krús ..
Tiger, 29.10.2008 kl. 16:52
Ástandið er ekki svo slæmt. við þurfum allavega ekki að óttast að verða sprengdir í loft upp eins og í Írak.
Kær kveðja Skattborgari.
Skattborgari, 29.10.2008 kl. 19:21
Vinur minn ég held að ég sé eins og þú bara með bloggkreppu.
Knús
egvania, 29.10.2008 kl. 20:06
You are my sunshine, my only sunshine, you make me happy when skies are grey ....
Mikið skrifar þú fallega þegar þú kemur í heimsókn. Er ekki hægt að fá þig í þjóðarpepp "væni" spékoppur!
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 29.10.2008 kl. 20:40
dásamlegt.
Tóti (IP-tala skráð) 29.10.2008 kl. 20:50
Ég kom hingað til að fá fréttir af kreppustöðunni...
Heiða B. Heiðars, 29.10.2008 kl. 21:58
Hæ, ég er alveg til í að vera pissið í buxunum þínum, en er það ekki skammgóður vermir eins og að pissa fyrst í skóna? Legg til að krepputal verði lagt til hliðar í bili - ef hægt er - þetta tröllríður öllu.
Helga Magnúsdóttir, 29.10.2008 kl. 22:17
Er ekki með nennu í að blogga eða lesa mikið blogg þessa dagana margt annað að pæla En alltaf gott að kíkja við hjá þér ljúflingur með meiru knúss í kotið þitt
Brynja skordal, 29.10.2008 kl. 23:06
Það er engin kreppa á þessu heimili. Við notum þennan tíma sem tækifæri til að fara vel með það sem við eigum að læra að minnka bruðl. Það gengur vel og ég er bara ánægð með mig. Segi sama og Jóhanna í 20. Gaman að fá þig í heimsókn, þú skrifar svo fallegt.
Hafðu það gott ljúfurinn.
Anna Guðný , 29.10.2008 kl. 23:57
Ég nenni heldur ekki ad taka tátt í krepputali ...Nema kannski svona endrum og sinnum tegar sjóda fer uppúr en tad tarf mikid til.
Madur hefur samúd med landanum og tad er tad.
Stórt fadmlag til tín minn snúlle pulle Tiger. (Snulle pulle tídir í minni familíu minn besti og meyra en tad)
Gudrún Hauksdótttir, 30.10.2008 kl. 07:28
persóna, 30.10.2008 kl. 12:15
Sammála með krepputalið.
Kristín Katla Árnadóttir, 30.10.2008 kl. 15:11
heyhey,flott færsla og sendi þér eldheitar draugakveðjur úaaaaaaa.kv bs
Borgarfjardarskotta, 30.10.2008 kl. 15:16
Takk fyrir mig Tici minnknús knús og ljúfar kveðjur
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 30.10.2008 kl. 19:34
Góða nótt gleðigjafi og takk fyrir brosin sem þú hjálpar okkur við að framkvæma
Erna, 31.10.2008 kl. 00:25
Kiss me upside down og allavega, sæti, sexý villivinurinn minn heitasti! Ég hef nú bloggað um "kreppuna" líka sossum... en sjálfsagt álíka Helgulega og mér er tamt. Ef hægt er að segja tamt um svona ótemjur og villifugla...
Annars sé ég alltof lítið af þér mín megin og svoleiðis vanræksla gengur nottlega ekki til lengdar, hjartahnoðrinn minn. Don´t make me come and get you! *Naughtyknús* www.blekpennar.com
Helga Guðrún Eiríksdóttir, 31.10.2008 kl. 01:06
Hahaha góð myndin af þjóðinni, þessi þar sem helmingurinn er steiktur Allof langt síðan ég hef komið hér inn minn kæri TíCí. Knús á þig inn í helgina.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.10.2008 kl. 09:41
Ji minn eini..eina færslan með viti þennan daginn held ég. Ég er orðin svo dauðleið á kreppugreiningarstjórnmálaskýringarseðlabankadissbloggum.....jæks.....Jú ar mæ feivorít...
Þarf að hugsa þetta með pissið aðeins.....
Ragnheiður , 31.10.2008 kl. 13:32
Halló kæri Tigercopper!
Ég er nú bara að droppa hér inn og athuga hvort þú getir sagt mér hvort eitthvað sé að frétta af henni "Kurr". Mér finnst eins og ég hafi séð það, annaðhvort á hennar bloggi eða þínu, að þið væruð eitthvað skyld eða tengd. Við vorum nýorðnar bloggvinir þegar hún tók sig upp og flutti til Spánar. Mér verður alltaf hugsað til hennar, öðru hvoru og langar bara að frétta af henni.
Kær kveðja og ósk um góða helgi
Ásdís Emilía Björgvinsdóttir (IP-tala skráð) 31.10.2008 kl. 14:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.