Ég vil að nútímakerlingin snúi sér aftur að eldavélinni og uppvaskinu.

 Já, það er af sem áður var. Hér áður fyrr var svo auðvelt að eiga við konur - en í dag - í dag er það álíka auðvelt og berhendisglíma við Ísbjörn.

wife-of-yesterday

Áður voru þær bara bljúgar og blíðar, gerðu allt sem maður sagði þeim að gera og ekkert vandamál.

Þær sátu, stóðu eða lágu rétt eins og maður vildi - hreinlega bara biðu eftir því að maður sagði þeim nákvæmlega hvað og hvernig hlutirnir ættu að vera svo manni mætti líða sem best.

Þær voru heima og elduðu - skúruðu - þurrkuðu af og þvoðu þvotta. Þær bökuðu og elduðu og aldrei vantaði matinn á borðið - né var hann seinn fyrir. Þær höfðu inniskóna tilbúna, pípuna og heitt í baðkarinu - tilbúnar að hjálpa útivinnandi þreyttum eiginmanni svo honum mætti líða sem best. Þær pössuðu börnin og sáu til þess að þau væru ekki að trufla bóndann þegar hann var heima.

wife-of-today

 

En, þetta er allt breytt í dag.

Í dag eru þær harðar og óblíðar, gera ekkert sem maður segir þeim og ætíð einhver vandamál á ferðinni.

Nú standa þær ef maður vill að þær sitji, og sitja ef maður segir þeim að standa - og leggjast bara ekki rassgat þó maður segi þeim að leggjast niður.

Þær bíða ekki lengur eftir því að maður segi þeim hvað maður vill að sé gert til að manni líði vel - heldur gera þær núna bara það sem þeim dettur í hug svo þeim sjálfum líði vel.

Þær berja í borðið, hlaupa frá eldavélinni og uppvaskinu og segja manni að elda sjálfur og vaska svo upp eftir sjálfan mann.. W00t

Þær henda í mann börnunum þegar maður kemur heim - og þjóta svo sjálfar út á kvöldvaktir! "Eru þetta ekki líka þín börn" hreyta þær í mann þegar maður mótmælir - og skella svo hurðum.

driller-bor

Sko, þegar maður kemur þreyttur heim eftir annasaman dag í vinnunni - þá vill maður að húsið sé hreint og maturinn heitur á borðinu, heitt vatn í baðkarinu og börnin sofnuð - frúin heit og falleg og bara ljúfleiki og léttúð í loftinu.

Nútíma konan hefur allt aðrar skoðanir á hlutunum - henda í mann börnunum og hlaupa út að vinna, berja mann ef maður mótmælir og heimtar svo sömu laun fyrir sömu vinnu og maður sjálfur er í og hefur!

Hvað er í gangi eiginlega? Hvert erum við að stefna?

Ég ætla rétt að vona að þetta sé bara smá bóla sem líður hjá á nokkrum árum. Á meðan ætla ég að láta það duga að vera með JapKínTæ-konu í eldhúsinu og aðra eins sem sér um að þrífa bílinn, versla inn og sjá um krakkana þegar þeir eru í heimsókn. Læt dúkkuna duga annarsstaðar - allt þar til nútímakonan er aftur komin í hellinn og farin að gegna bónda sínum..

Ég vil að nútímakerlingin snúi sér aftur að eldavélinni og uppvaskinu. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

  Ég veit ekki alveg hvort ég á að hlæja eða gráta.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 25.6.2008 kl. 17:42

2 Smámynd: Tína

 Nú hló elsti afleggjarinn minn af hjartans lyst og tók undir þessa færslu hjá þér af mikilli sannfæringu. Hann er svona "grín" karlremba og hefur gaman af því að æsa upp allar tjellingarnar í kringum sig (ég er búin að eiga hann of lengi til að taka mark á honum). Asskoti er ég nú samt viss um að hann hefði ekkert á móti því strákurinn að hafa þetta að miklu leyti svona eins og var  Gott að heyra að þú hafir fengið fullt af blómum í garðinn þinn.

Hafðu það sem allra ljúfast honey.

Tína, 25.6.2008 kl. 17:46

3 Smámynd: Heiður Helgadóttir

Og þetta kom frá hjartanu

Heiður Helgadóttir, 25.6.2008 kl. 18:23

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Áttu annan? gerðu þér glætu, þú færð aldrei svona konu, ja nema þú kaupir hana, Uss hvað er að þér að rugla svona vitleysu, þú vilt ekki svona konu,
þú vilt heldur ekki konu Ljúfurinn, sem lemur í borðið og öskrar, ef þú átt ekki konu nú þegar þá færðu konu sem þú munt dedúa við af fúsum og frjálsum vilja, því þannig ert þú.
Knús knúsTiger míó míó
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 25.6.2008 kl. 18:31

5 Smámynd: Svala Erlendsdóttir

Þessar gömlu þjónustulunduðu eru líka allar dauðar. Nútímakonan lifir enn þar til hún deyr með kallinn sinn sér við hlið eða bara ein og sjálfstæð

Svala Erlendsdóttir, 25.6.2008 kl. 18:57

6 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Karlrembugrís

Jónína Dúadóttir, 25.6.2008 kl. 19:28

7 Smámynd: M

Eigum við ekki að fara bakvið eldavélina eins og einhver remba sagði ?

Hættu nú þessu rugli kallinn minn svo þú farir ekki að tapa vinsældum

M, 25.6.2008 kl. 19:34

8 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

ég tek heilshugar undir þetta, Tígri minn. það er allt að fara til andskotans í þessu þjóðfélagi.

ég, búinn að vera kvennmannslaus í hálft ár og hef ekki fengið soðna ýsu og hamsatólg. hvað þá annað. maður er að drepast úr næringaskorti ef ekki væri fyrir næringargildið í bjórnum.

Brjánn Guðjónsson, 25.6.2008 kl. 19:38

9 Smámynd: María Guðmundsdóttir

  ég veit sko alveg hvort ég á ad gráta eda hlægja...hahhahaha....kaupi thennan ekki góurinn sko! er s.s ein af theim sem stunda ad "henda krøkkunum i kallinn og berjann ef hann mótmælir"  en tímarnir breytast og konurnar med.. og sumir kallar meira ad segja lika 

knus i daginn og kvøldid thitt 

María Guðmundsdóttir, 25.6.2008 kl. 19:50

10 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Hvorki skyldu menn vanmeta næringargildi humlanna né notagildi þumlanna!  

Nóttin var svo ágæt, ein... úr hverju hjarta gleðin skein.. (eða ikkað solleis)  

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 25.6.2008 kl. 19:56

11 Smámynd: Halla Vilbergsdóttir

Guð hvað ég er gamaldags hahahahahahaha shit.;)

Halla Vilbergsdóttir, 25.6.2008 kl. 20:06

12 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Ég vildi þá vera karl í þessum heimi ... úff hvað ég hef oft óskað þess að koma heim í hreint og fínt hús þar sem ilmurinn úr eldhúsinu mætir mér .. og makinn á svuntunni einni saman ... XXXXX

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 25.6.2008 kl. 20:56

13 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir... I´ve been there... og eftir matinn bendir maður nottlega á að svuntur séu ... svona freka óþarfar (og álíka sexý og femínösnur í labbitúr.. ) já og .. svo heldur mar bara áfram að vera tælandi og ómótstæðilegur!

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 25.6.2008 kl. 21:17

14 identicon

Einu sinni voru nýgift hjón að skoða nýju íbúðina sína. 

Maðurinn dró konu sína með sér um allt hús, og skipaði fyrir. 
Hérna eiga skórnir mínir að vera, burstaðir og hreinir á hverjum morgni, hvort sem ég nota þá eða ekki.
Her verður svo matur á borðum á hverju kvöldi, klukkan 7 hvort sem ég er heima til að borða eða ekki. 

Konunni varð nóg um og svaraði:

Hérna, sagði hún og dró hann inn í hjónaherbergi, -verður stundað villt og æsandi kynlíf á hverju kvöldi, klukkan 10 stundvíslega í 3 tíma í einu,  hvort sem ÞÚ ert heima eða ekki.

Var þetta nokkuð þú ??

Guðrún B. (IP-tala skráð) 25.6.2008 kl. 21:58

15 identicon

Guðrún B: SNILLD!!!!!

alva (IP-tala skráð) 25.6.2008 kl. 22:17

16 Smámynd: Steingrímur Helgason

Frá því að veiklundaðir menn öpuðust, sem þeirra forfaðir, & veittu konudýrinu málfrelzi & kozníngarrétt hefur allt húrrazt niður á við í mannlegu samfélagi.

Svo heimtar þetta kynlíf líka á ólíklegustu stöðum & stundum, & heldur að það eigi rétt á að 'fáða' líka.

Já, stun & dæz....

Steingrímur Helgason, 25.6.2008 kl. 22:54

17 Smámynd: Sigrún Óskars

Þetta er nú krúttlegt hjá þér TC, kemur þetta ekki annars frá hjartanu? Sendi þér knúsí knús

Sigrún Óskars, 25.6.2008 kl. 23:16

18 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Já, godforbid að ohjesúsminnkvaddarosalegagott hljómi frá heimtufrekum mökum eða mægodætlarettapakkaldreiaðþaggna frá pirruðum nágrönnum. Það er ekki fyrr en maður hljóðar ohhahhakkúratþaddnaelskan sem einhver tekur mark á manni. Og gegnir.

Það er vandlifað.

Virkilega.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 26.6.2008 kl. 00:18

19 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Segi nú bara svona. -Er ekki gott veður heima líka?

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 26.6.2008 kl. 00:20

20 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Skil þig vel Tísí minn. Maðurinn minn er heima og er alltaf tilbúin með matinn þegar ég kem heim. Hann er vitanlega nýbaðaður og rakaður með fínan rakspíra og svona. Þetta er dásamlegt líf. Óhreinu fötin mín hverfa bara og birtast svo aftur hrein og straujuð í skápnum. Svona á þetta að vera.

Helga Magnúsdóttir, 26.6.2008 kl. 11:23

21 identicon

Hahahaha   Helga GÓÐ !! 

Ertu með námskeið fyrir menn í þessum fræðum.

Guðrún B. (IP-tala skráð) 26.6.2008 kl. 12:17

22 Smámynd: Adda bloggar

Adda bloggar, 26.6.2008 kl. 12:35

23 identicon

Helga mín, á maðurinn þinn fallegan bróður á lausu sem leitar að fallegri konu á lausu!!

alva (IP-tala skráð) 26.6.2008 kl. 16:05

24 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Einu sinni var ég nú svona húsmóðir með lítið barn en maðurinn minn (fyrrverandi) linnti ekki látum og heimtaði að ég færi út að vinna. Hann kunni ekki gott að meta. Held að laun séu orðin of lág á Íslandi til að einn maður eða ein kona geti unnið fyrir heimilinu nema búa við fátækt, eins og flestir einstæðir foreldrar gera.

Væri til í að vinna og fá svona þjónustu þegar heim væri komið ... maðurinn minn kæmi með inniskóna í munninum á móti mér, nýrakaður og sætur, helst klæddur í ekkert nema svuntuna ...

Guðríður Haraldsdóttir, 26.6.2008 kl. 20:03

25 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Elsku drengurinn minn, aldeilis fjör hjá þér. En voru konur í den ekki hundleiðinlegar svona kúgaðar ? meira gaman af okkur í dag sem höfum vit á öllu og horfum á bolta með ykkur, eða þið með okkur.  Hressandi pistill að vanda

Ásdís Sigurðardóttir, 26.6.2008 kl. 20:23

26 Smámynd: Hulla Dan

Djöfull er ég sammála þér!!!
Vorkenni karlmönnum mikið í dag. Þeir nefnilega vita hvernig þetta var hérna áður fyrr.
Hlýtur að vera svakalega erfitt...
Ef ég væri karl, mundi ég a.m.k ekki nenna svona konum eins og mér!!!

Þú ert yndi. Knús og kossar

Hulla Dan, 26.6.2008 kl. 21:02

27 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Tigercopper.

Þú ert flottastur. Hvað er í boði ef ég athuga málin? Fæ ég vasapeninga og þá hvað mikla?  

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 27.6.2008 kl. 10:44

28 Smámynd: Óskar Arnórsson

..þess vegna skildi ég..algjör snilldarpistill.

Að karl skuli elda mat og vaska upp er dónaskapur gagnvart konum! Konan mín segir þetta, svo það hlítur að vera rétt!..

Óskar Arnórsson, 27.6.2008 kl. 14:23

29 Smámynd: Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir

Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 30.6.2008 kl. 09:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Tiger
Tiger

Ég eyði fúlum og neikvæðum athugasemdum - svo það er tímaeyðsla að henda slíkum fjársjóð hingað inn. Verð hérna bara í flugumynd - lítið sem ekkert sem sagt. Þýðir ekkert að bíta af mér hausinn þrátt fyrir það...

***

Þakka öllum innlitið, en það er ekki þar með sagt að þú sjáir mig spora út síðuna þína!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • jesumynd
  • jesumynd2
  • jesumynd4
  • blómabeðið
  • blómabeðið
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband