25.6.2009 | 19:15
Nú kem ég og gramsa í garðinum þínum! Engin ljótur arfi lifir góðu og glórulausu stóðlífi í mínu nágrenni! ..
Jæja já ..
Það er uppgjör og myndafærsla þetta sinnið. Eins og þið sem hafið lesið mig hingað til hafið séð - gruna ég - þá hef ég ekkert verið hér síðan í Maí. Nú er komið að því að kasta hér fram smá myndasýningu af blómasnúningum síðasta - og núverandi vors!
Ég byrjaði í fyrravor - 2008!
Upphafið var auðvitað þessi ljóti grasblettur - en ég fattaði ekki að taka mynd af honum áður en ég hreinsaði hjólagrind með riðguðum hjólum og alls skyns rusli af áður en ég tók fyrstu myndina.
Það var heilmikið púl að stinga þetta allt upp með einni lítilli stunguskóflu og rífa upp torfið - segi það satt.
Það var lítil mold undir torfinu svo ég þurfti að byrja á því að ná mér í fyllingu þegar ég var búinn að taka torfið burt ásamt grjóti og drasli sem var grafið þarna undir - ussuss.. átti allt eins von á að rekast niður á beinagrindur á tímabili.
Nú, svo var farið af stað í verslun Móður Náttúru - þar sem þú færð frítt svo framalega sem þú getur náð því án þess að skemma jarðveg eða gróðursæla staði. Mikið var tínt af grjóti og var það bæði sótt í fjöll og fjörur. Stuðlaberg og steinar sem komu úr jarðgöngum eftir sprengingar - sem og bara venjulegt hraun úr heiðmörk og af Miðnesheiði.
Nú, þá var það arfahliðin - en þar er blessunin hún Móðir Náttúra nokkuð gjöful þeim sem treysta sér til að nýta það sem hún býður uppá - og það nennti ég. Ótal ferðir eftir grjóti og blómum til að koma upp einhverri mynd á nýfætt garðsfrímerkið mitt. Margar ferðir með fullan bílinn af alls skyns blómum og arfa.
Öllu var komið niður í mold eftir knúnstarinnar reglum - bæði steinum og blómum - og ekki allt búið ennþá - en Kisa fylgdist sko vel með til að ekkert færi úrskeiðis! En allt var sett niður bara svona - hingað og þangað til bráðabirgða - með von um að blessaðar jurtirnar hafi ekki fengið of mikið sjokk þegar þær voru rifnar upp með rótum úr faðmi Móður Náttúru og troðið niður í lítinn einmannalegan blómareit.
Afraksturinn er byrjaður að láta sig sjást og hvert blómið á fætur öðru kíkir uppúr moldinni - en þessar myndir hér fyrir neðan voru teknar í enda Maí núna í vor.
Nú þá er það síðasta myndin og jafnframt sú nýjasta - en hana tók hún Helga frænka sem býr í sama húsi og ég. Þarna má sjá að það er þó nokkuð af fallegum plöntum frá náttúrunni komnar saman - en líka eitthvað aðeins af fjólum og svo nokkur sem ég fékk úr garði litlu systur minnar sem var dugleg að grisja og gefa mér. Mágur minn, maðurinn hennar kom með mold og eitthvað af grjóti fyrir mig á kerru.
Svo núna í vor fór ég í fjörurnar á Reykjanesinu og náði í nýtt sjávargrjót sem ég setti utan með beðinu - sérvalið og sértínt auðvitað.. haha!
Enn er ég þó ekki búinn - er að mála nokkra vel valda steina sem munu prýða skrúðgarðinn og ný planta bætist við af og til - og hjálpi mér ef maður á ekki bara eftir að riðjast inná bletti nágranna til að stækka við sig í framtíðinni.
En hér læt ég staðar numið - enda ætlunin alls ekki að vera á blogginu mikið eins og er - bara smá uppdeit og hæhó!
Sendi knús og kremjur á ykkur öll sem leggið leið ykkar hingað inn núna og bið guð og gæfu að fylgja ykkur á þessum erfiðu krepputímum!
Luv you guys!
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Nýjustu færslur
- 19.8.2009 Kveðjur og knús!
- 25.6.2009 Nú kem ég og gramsa í garðinum þínum! Engin ljótur arfi lifir...
- 19.5.2009 Stutt innlit og sólblómakveðja. Ekki kominn til að vera - bar...
- 7.5.2009 Andskotans dómharka alltaf í fólki, manni blöskrar bara.
- 29.4.2009 Það rigndi gulli og gimsteinum úr himnaríki í dag! Hversu mik...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- blekpenni
- asthildurcesil
- jenfo
- lehamzdr
- skessa
- brjann
- jodua
- ringarinn
- hross
- jogamagg
- gurrihar
- christinemarie
- roslin
- jeg
- hneta
- majaogco
- madddy
- eddabjo
- lillagud
- angelfish
- skjolid
- stebbifr
- heidistrand
- sigro
- laugatun
- ollasak
- rasan
- skordalsbrynja
- antonia
- lindalinnet
- emm
- svala-svala
- kiza
- hran
- gellarinn
- katlaa
- danjensen
- snar
- tofulopp
- janey
- heidihelga
- skattborgari
- ellasprella
- icekeiko
- pollyanna
- perlaoghvolparnir
- bifrastarblondinan
- storyteller
- handtoskuserian
- strumpurinn
- siggathora
- jari
- disadora
- egvania
- um683
- veland
- sisvet
- wonderwoman
- brandarar
- borgarfjardarskotta
- jakobk
- gudrununa
- sp
- must
- jyderupdrottningin
- hrannsa
- einari
- engilstina
- manisvans
- himmalingur
- agny
- almaogfreyja
- gattin
- dittan
- dora61
- draumur
- gelin
- lis
- ace
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Ferðalög
- Fjölmiðlar
- Formúla 1
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Svei mér þá, þetta er bara stórglæsilegt hjá þér og ég er sérlega hrifin af Burnirótinni sú á eftir að verða flott hjá þér.
(IP-tala skráð) 25.6.2009 kl. 19:28
Viltu koma í garðinn til mín ljúfurinn?.Gott að lesa loksins blogg hjá þér.Kærleiksblómakveðjur.
Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 25.6.2009 kl. 19:42
þetta er þrælfínt hjá þér...vildi að ég væri svona dugleg hehe
gott að sjá þig, saknaði þín ekkert enda sé ég þig hinumegin sko
Ragnheiður , 25.6.2009 kl. 20:05
Það er gaman að geta gert fínt í kringum sig. Þetta er mjög flott hjá þér, svo eiga fjölæringarnir eftir að breiða úr sér um allt. Iss, þú verður kominn inn í garð til nágrannans áður en þú veist af Knús á þig blómálfur
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 25.6.2009 kl. 20:29
En þú duglegur, og þetta er bara ansi huggulegt hjá þér. Ég verð að viðurkenna að ég er með aðeins of stóran garð, og allt of mikið af illgresi, elting, skriðsóley og fleiri miður skemmtilegar tegundir sem gera það að verkum að ég hef varla nennt út í garð í ár. Er mikið að spá í að leigja gröfu, moka upp öll beðin niður á 1 metra dýpi og byrja upp á nýtt. Stundum er það auðveldara en reyna að tjónka við illgresið.
Hjóla-Hrönn, 25.6.2009 kl. 21:36
Það eru aldeilis flottheit
Jónína Dúadóttir, 25.6.2009 kl. 22:02
Myndarskapur er þetta, flottur garður, til lukku með hann..
Ásdís Sigurðardóttir, 25.6.2009 kl. 23:10
Flott hjá þér Tiger og til hamingju með þetta flotta blómabeð. Komdu endilega í minn garð - mig vantar einmitt einhvern myndarlegan í garðinn
Helgarknús til þín
Sigrún Óskars, 25.6.2009 kl. 23:18
Það hefur tekist vel með þetta beð. Flottar myndir
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 26.6.2009 kl. 00:51
Takk, nú fæ ég rennandi móral yfir mínum garði & því merki um mína leti zem hann er...
Steingrímur Helgason, 26.6.2009 kl. 01:15
Þú ert eins og ég hef alltaf sagt algjör snilli elskan, sjáumst á facebook
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.6.2009 kl. 14:17
Glæsó :) Nú veit ég hvern ég fæ í að meikóvera minn garð :)
kveðja úr sveitinni
JEG, 27.6.2009 kl. 00:14
Heldur betur flottar myndir af flottum beðum.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 1.7.2009 kl. 00:27
TIl hamingju með lagfæringarnar! :)
Baldur Gautur Baldursson, 6.7.2009 kl. 18:48
Flott hjá þér Blomberg minn Bestu kveðjur Erna.
Erna, 13.7.2009 kl. 21:33
Það er sem ég hef alltaf sagt minn kæri vinur þú ert sannkallaður snillingur og er þá vægt til orða tekið. Ég hef saknað þess að geta ekki komið alveg svona ég sjálf hér á bloggið þitt en það máttu vita að ég er samt ekki 1/2 he, he, ;-) ég er samt ég sjálf.
Til hamingju með fallega reitinn þinn og ef nágranni þinn vill ekki láta þér eftir sína lóð, ef hann væri ég þá væri ég alveg meiri háttar ;-(
egvania (IP-tala skráð) 20.7.2009 kl. 20:59
Gaman að þessu og flottur garður TíCí minn.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.7.2009 kl. 10:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.