29.4.2009 | 03:00
Það rigndi gulli og gimsteinum úr himnaríki í dag! Hversu mikið er hægt að græða á einum degi! Þrefallt meira en maður átti fyrir .. segi það satt!
Já sæll ...
Ég er að segja ykkur það satt - að það falla gullmolar af himnum ofan yfir mig aftur og aftur. Í dag - 28 Apríl - féllu þrír gullmolar úr himnaríki og beint inn í fjölskylduna mína.
Okok, ég ætlaði að setja inn myndir hérna af þeim sem voru að framleiða .. og nei - það voru ekki storkar að fljúga hér yfir í dag - en ... netið er svo hrikalega slow eitthvað og ég nenni ekki að hanga eftir niðurhali myndanna, þær koma bara seinna.
En, sem sagt. Systurdóttir mín eignaðist 15merkur og 53cm dreng í dag um þrjúleytið og svo núna með kvöldinu eignaðist bróðurdóttir mín ekki bara einn - heldur tvo drengi - tvíbura.
Tvíburarnir voru held ég 10 merkur hvor.
Skemmtilegt að báðir foreldrar mömmunnar - bróðir minn og konan hans - eru líka tvíburar!
Mömmum heilsast brilljant vel og börnin eru glæsileg - en ekki hvað ha! :)
Ég verð alltaf ríkari og ríkari með hverju árinu - og á þessu sviði mun aldrei ríkja kreppa í kringum mig sko! Hvert fætt barn er þvílíkur gimsteinn í mínum augum að mér finnst ég bara eiga það hvert og eitt þegar þau koma.
En,... over and out! Er farinn að þakka himnaföður fyrir gullin sem rigndu niður frá honum í dag! Luv ya all too .. :)
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Nýjustu færslur
- 19.8.2009 Kveðjur og knús!
- 25.6.2009 Nú kem ég og gramsa í garðinum þínum! Engin ljótur arfi lifir...
- 19.5.2009 Stutt innlit og sólblómakveðja. Ekki kominn til að vera - bar...
- 7.5.2009 Andskotans dómharka alltaf í fólki, manni blöskrar bara.
- 29.4.2009 Það rigndi gulli og gimsteinum úr himnaríki í dag! Hversu mik...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
blekpenni
-
asthildurcesil
-
jenfo
-
lehamzdr
-
skessa
-
brjann
-
jodua
-
ringarinn
-
hross
-
jogamagg
-
gurrihar
-
christinemarie
-
roslin
-
jeg
-
hneta
-
majaogco
-
madddy
-
eddabjo
-
lillagud
-
angelfish
-
skjolid
-
stebbifr
-
heidistrand
-
sigro
-
laugatun
-
ollasak
-
rasan
-
skordalsbrynja
-
antonia
-
lindalinnet
-
emm
-
svala-svala
-
kiza
-
hran
-
gellarinn
-
katlaa
-
danjensen
-
snar
-
tofulopp
-
janey
-
heidihelga
-
skattborgari
-
ellasprella
-
icekeiko
-
pollyanna
-
perlaoghvolparnir
-
bifrastarblondinan
-
storyteller
-
handtoskuserian
-
strumpurinn
-
siggathora
-
jari
-
disadora
-
egvania
-
um683
-
veland
-
sisvet
-
wonderwoman
-
brandarar
-
borgarfjardarskotta
-
jakobk
-
gudrununa
-
sp
-
must
-
jyderupdrottningin
-
hrannsa
-
einari
-
engilstina
-
manisvans
-
himmalingur
-
agny
-
almaogfreyja
-
gattin
-
dittan
-
dora61
-
draumur
-
gelin
-
lis
-
ace
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Ferðalög
- Fjölmiðlar
- Formúla 1
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Til hamingju með þennan mikla fjársjóð
Þau eru sannarlega bæði gull og gersemar blessuð börnin, ég er að bíða eftir ömmubarni númer tvö núna

Jónína Dúadóttir, 29.4.2009 kl. 06:24
innilega til hamingju med gullin thin( ykkar)
já børnin eru svo sannarlega fjársjódur og thvi skal madur aldrei gleyma, enda ég svo sannarlega rík lika
María Guðmundsdóttir, 29.4.2009 kl. 06:52
3 börn á sama degi.Það er Guðsgjöf og það þreföld.Innilega til hamingju með þessi frændsystkini þín.



Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 29.4.2009 kl. 07:39
Elsku Tiger minn þú er sannarlega heppinn frændi, til hamingju með elsku litlu börnin sem féllu þér í skaut í dag, heilsist þeim vel og þú setur svo inn myndir þegar það er hægt.



Knús til þín ljúfastur
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 29.4.2009 kl. 09:31
Innilegar hamingjuóskir með gullmolana þína
Megi gæfan fylgja þeim í framtíðinni 


Sigrún Þorbjörnsdóttir, 29.4.2009 kl. 09:51
Innilega til hamingju með gullin
Alltaf gaman að þessu ....ég er einmitt að verða "amma" á ská núna einhvern næstu daga
Mikil spenna í gangi.
Knús og kossar úr sveitinni.
JEG, 29.4.2009 kl. 10:58
Til hamingju með gullmolana ekkert er yndislegra en að hlotnast sú gæfa að eignast börn þau eru lífið sjálft.Kveðja
gaddur, 29.4.2009 kl. 11:06
Til hamingju með litlu frændurna
það verður fjörugt í fjölskylduboðunum í framtíðinni
Hjóla-Hrönn, 29.4.2009 kl. 11:54
ertu þá afa-ömmubróðir Tiger minn ? Systir mín fékk þann titil 2002 að vera ömmusystir, hún var ekki sérlega hrifin-sá fyrir sér kellingu með gleraugu og grásprengt hár í stífum hnakkahnút...
Til hamingju með molana litlu, ég hlakka til að sjá myndir af þeim
Ragnheiður , 29.4.2009 kl. 12:44
Þetta er frábært og óska ég þér innilega til hamingju með nýju frændsystkinin
M, 29.4.2009 kl. 12:51
Innilegar hamingjuóskir. Þrír drengir sama daginn. það er ekkert smá.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 29.4.2009 kl. 15:56
til hamingju með gullmolana þína - ég held að þessi börn séu heppin að eiga slíkan frænda eins og þig
Það er alltaf kraftaverk þegar börn fæðast - þvílík Guðsgjöf. Njóttu þess að eiga þessa gullmola. Helgarknús til þín Tiger

Sigrún Óskars, 2.5.2009 kl. 08:37
Til lukku með systursoninn :) Vonandi fær hann eitthvað frá móðurbróður sínum :) hmmmm... :D
Baldur Gautur Baldursson, 2.5.2009 kl. 10:14
Innilega til hamingju með þetta mikla ríkidæmi. Kærleikskveðja
Ásdís Sigurðardóttir, 2.5.2009 kl. 14:27
Til lukku með gullmolana.
Guðrún Una Jónsdóttir, 3.5.2009 kl. 04:29
Innilega til hamingju með gullmolana þína TíCí minn. Ég fékk líka einn um daginn og á von á öðrum mamman sett á 15 maí. En ég hlakka til að sjá myndir. Knús og hamingjuóskir.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.5.2009 kl. 09:50
Innilega til hamingju með nýju gimsteinana! Það er alveg satt hjá þér, maður eignast aldrei of marga svona gullmola.
Kveðja að vestan.
Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 4.5.2009 kl. 21:33
Tiger minn ég óska ykkur öllum til hamingju með gullmolana hvert og eitt barn er Guðs gjöf sem okkur ber öllum að gæta að.
Kveðja Ásgerður Einarsdóttir.
Ásgerður (IP-tala skráð) 4.5.2009 kl. 21:51
VÁ það hefur aldeilis hækkað í gullmolakarinu þínu, þvílíkt ríkidæmi. - Það verður fjör þegar þeir koma allir í heimsókn til þín í einu. - Til hamingju með frændgarðinn. Þrjú kraftaverk á einum degi, mikið ertu heppinn.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 5.5.2009 kl. 01:23
Sæll Tiger.
Þú kannt að koma orðum að því. Og til hamingju með þau öll.
Börnin eru það dýrmæsta sem að foreldrar eignast....ekkert jafnast á við þau !
Kærleikskveðja
á þig og alla þína.
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 5.5.2009 kl. 04:43
Tiger, 7.5.2009 kl. 02:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.