Tölvulaus töffarinn rífur í hár sitt og fleira, nei - þetta fleira er ekkert dónalegt addna þið sem þangað leidduð hugann! En, tölvan sjálf nýtur lífsins uppi í sumarbústað - liggur sennilega í heita pottinum í töluðum orðum. Halló, þurfum við að ræða þetta eitthvað frekar? Nei, hélt ekki ..
Hún var sótt - blessunin - hjákonan - í nákvæmlega sama ástandi og hún var fyrir tveim vikum síðan. Þeir félagar þarna á verkstæði tölvulistans höfðu sem sagt bara ekkert gert - annað en að ljúga bara beint framan í mig til skiptis ...
Ráðleggingar góðra vina voru að senda hana - Hjákonuna - upp í sumarbústað í afslöppun, þeir segja mér að hún hefur verið ofnotuð og ofdekruð af eiganda í kreppunni...
Ég sem er oftast ekki með nema sirka eitt blogg á dag sko ...
En, ég náttla gegni óvinsælum tilmælum fjandmanna minna og bað bróður minn um að ná í tölvuskottið mitt...
Hann náði í hana rúmlega hádegi í gær, föstudag - en fór svo beint í sumarbústað með kvekendið! Held að ég hefði miklu frekar átt það skilið að slaka á í sumarbústað .. með rómantík, kertaljós og heitan pott!!!
Nokkrir góðir vinir hafa boðið mér að skutla henni í fang sitt eða sinna - til aðhlynningar - og þakka ég það kærlega (sjá í commentum í síðustu færslum) - en bróðir minn ætlar sér að taka afrit af harða diskinum og svo ætla ég bara að setja hana sjálfur upp aftur, strauja hana og fara um hana höndum mjúkum .. nei reyndar höndum ekki svo mjúkum .. enda er ég með frekar rough tough vinnuhendur sem ekki geta kallast mjúkar sko!
Svo.. þetta segir mér að ég verð ekki með hjákonuna í mínum ekkisvosilkimjúkuhöndum - fyrr en um miðbik næstu viku. Þangað til mun ég bara halda áfram að bjarga mér í miðaldarlappanum hérna og reyna að halda áfram að lesa ykkur án þess að vera mikið að commenta.
Sannarlega veit ég að ég á eftir að taka flogakast í athugasemdakerfinu ykkar sem eruð alltaf að bögga mig með athugasemdum - þegar ég kemst á skrið aftur!
En, over and út of here - enn einni tölvufærslunni er hér með lokið.
Vona að þið hafið það öll ljúft og gott skottin mín. Munið að aðventan er handan við hornið - eftir sirka 15 daga - svo ég sé ekkert því til fyrirstöðu að þið farið að setja eina og eina ljósaseríu í samband. Nú þegar allt er svona svart víða .. bæði hvað myrkur varðar og kreppuna .. þá tel ég að við ættum öll að byrja bara strax á því að setja upp ljós í gluggana til að gleðja augu þeirra sem framhjá fara.
Meira segja er ég búinn að sætta mig við jólagardínurnar sem nágrannakerlan mín er búin að troða upp hjá sér.
Nú eru komin nokkur ljós í gluggum í kringum mig - og sjálfur er ég búinn að setja upp eina rauða í glugga - og kveikja á henni.
Upp með birtuna, ljósin í gluggann - ekki eftir neinu að bíða!
Knús og kveðjur á línuna alla!
Flokkur: Tölvur og tækni | Facebook
Nýjustu færslur
- 19.8.2009 Kveðjur og knús!
- 25.6.2009 Nú kem ég og gramsa í garðinum þínum! Engin ljótur arfi lifir...
- 19.5.2009 Stutt innlit og sólblómakveðja. Ekki kominn til að vera - bar...
- 7.5.2009 Andskotans dómharka alltaf í fólki, manni blöskrar bara.
- 29.4.2009 Það rigndi gulli og gimsteinum úr himnaríki í dag! Hversu mik...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.12.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- blekpenni
- asthildurcesil
- jenfo
- lehamzdr
- skessa
- brjann
- jodua
- ringarinn
- hross
- jogamagg
- gurrihar
- christinemarie
- roslin
- jeg
- hneta
- majaogco
- madddy
- eddabjo
- lillagud
- angelfish
- skjolid
- stebbifr
- heidistrand
- sigro
- laugatun
- ollasak
- rasan
- skordalsbrynja
- antonia
- lindalinnet
- emm
- svala-svala
- kiza
- hran
- gellarinn
- katlaa
- danjensen
- snar
- tofulopp
- janey
- heidihelga
- skattborgari
- ellasprella
- icekeiko
- pollyanna
- perlaoghvolparnir
- bifrastarblondinan
- storyteller
- handtoskuserian
- strumpurinn
- siggathora
- jari
- disadora
- egvania
- um683
- veland
- sisvet
- wonderwoman
- brandarar
- borgarfjardarskotta
- jakobk
- gudrununa
- sp
- must
- jyderupdrottningin
- hrannsa
- einari
- engilstina
- manisvans
- himmalingur
- agny
- almaogfreyja
- gattin
- dittan
- dora61
- draumur
- gelin
- lis
- ace
Færsluflokkar
- Bloggar
- Dægurmál
- Ferðalög
- Fjölmiðlar
- Formúla 1
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Löggæsla
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Það er nú meira 2 vikur og ekki byrjaðir virkilega góð leið til að fá viðskiptavini til að versla aftur eða þannig.
Kveðja Skattborgari,
Skattborgari, 15.11.2008 kl. 14:19
Vorum að kaupa seríu til að setja á þakskeggið og nýja ljósaslöngu á stóru stjörnuna sem spúsi smíðaði um áriðBaaaara gamanEigðu góðan dag minn kæri í aðdraganda aðventunnar
Jónína Dúadóttir, 15.11.2008 kl. 15:08
Pé ess: Æi gleymdi.... leitt með hjákonuna.... þú mátt fá lappann minn, hann er bara notaður sem tónlistarspilari svona dags daglegaHvað gerir maður ekki fyrir (blogg)vini sína
Jónína Dúadóttir, 15.11.2008 kl. 15:10
Fíbblin, þeir ættu að vera í pólitík, þar gera menn ekki neitt Þú verður bara að kósa þig með seríunni og kertaljósum. Minns er að fara að baka piparkökur og kannski að henda upp útiseríunni líka Knús á þig
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 15.11.2008 kl. 15:17
Sammála með jólaljósin. Hér er alltaf skreytt mjög mikið, einn gárunganna sagði að þetta minnti á rauða hverfið í Amsterdam .
Verst með tölvuskríflið þitt, en þér er velkomið að koma í heita pottin með mér
(IP-tala skráð) 15.11.2008 kl. 16:18
Knús til baka, hjákallinn minn er í örbylgjuofninun, skríð upp í með honum reglulega.
Ásdís Sigurðardóttir, 15.11.2008 kl. 16:20
Eigðu ljúfa helgi krúttlingur og farðu vel með þig. Kveðja úr Hrútósveitó.
JEG, 15.11.2008 kl. 16:33
já upp med ljósin bara,thad birtir til i hjartanu. hér er allt ordid fullt af kertum sem loga i skammdeginu,bara notalegt. fer ad styttast i seríurnar
hafdu góda helgi og kreist og kram á thig
María Guðmundsdóttir, 15.11.2008 kl. 17:00
Ég fer að finna bráðum til jólaskrautið mitt eða sko aðallega ljósin. Ég ætla samt að láta afmæli Hilmaranna líða áður...heldur beygð þessa dagana en það lagast -ég veit það.
Kær kveðja góði TíCí minn
Ragnheiður , 15.11.2008 kl. 20:00
snúðurinn minn passaðu að rífa eigi af þér allt hárið, er nú ekki þess vert þó þú hafir eigi viðhaldið hjá þér.
Þrátt fyrir allt þá eigum við öll hvort annað og það er mest um vert.
Ljós og kærleik til þín
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 15.11.2008 kl. 20:50
Gott að viðhaldinu var bjargað af verkstæðinu og komið til skyldmenna.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 15.11.2008 kl. 22:40
algjörlega sammála með jólaljósin - það er kominn tími á þau. Set í eldhúsgluggann á morgunn
Sigrún Óskars, 16.11.2008 kl. 00:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.