Þarf þá ekki að borga Davíð Oddssyni nema 6 mánaða biðlaun? Burt með þessa allaballa..

Ingimundur, Eiríkur og Davíð.

Kostnaður við biðlaun þriggja bankastjóra Seðlabankans verður 44 milljónir, að mati  fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins.  Þetta kemur fram í  umsögn með Seðlabankafrumvarpi forsætisráðherra.

 

Í umsögn fjárlagaskrifstofunnar um frumvarpið er m.a. fjallað um biðlaunarétt núverandi bankastjóra Seðlabankans. Fjárlagaskrifstofan telur að verði stöður þeirra lagðar niður vegna skipulagsbreytinga gildi ákvæði um biðlaunaréttindi í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

„Samkvæmt því er gert ráð fyrir að tveir bankastjóranna eigi rétt til 12 mánaða biðlauna, sem myndast eftir 15 ára störf í þjónustu ríkisins sem embættismenn, en einn til 6 mánaða þar sem starfstími alþingismanna og ráðherra telst ekki með þjónustualdri hjá ríkinu vegna biðlaunaréttar vegna þess að þeir teljast ekki vera embættismenn heldur falla undir lög um þingfararkaup. Tímabundinn launakostnaður bankans vegna þess er áætlaður um 44 m.kr,“ segir í umsögninni.

Frétt Mbl.is.

Verð að segja það að ég væri til í að henda út mánaðarlaununum ef það hjálpaði til við að koma þessum þrem út úr Seðlabankanum. Það væri vel þess virði ef það myndi duga til ...


mbl.is Biðlaunin áætluð 44 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég kíkti alltaf eftir ~kokkinum~ á myndum frá búzáhaldabyltíngunni.  Sá þig fyrir mér alveg ofvirkann berjandi heilt veizlueldhúz af pottjárni & pönnum einz & sá abi sem þú ert, ezzgan.

~zmútz~

Steingrímur Helgason, 4.2.2009 kl. 22:46

2 Smámynd: Tiger

  Hahaha ... sko ... Steini, ég lem ekki pottana mína - mér þykir of vænt um þá sko! Strýk þá og gæli við þá - og uppsker mun betri mat fyrir vikið... eða þannig!

Var samt staddur á nokkrum góðum samkundum án pottanna og skemmti mér bara alveg þokkalega vel - alveg þar til fólk fór að fara yfir strikið - þá nennti ég ekki meir .. Knús á þig kaddl!

Tiger, 4.2.2009 kl. 23:03

3 Smámynd: JEG

Burt með biðlaunin.

Eyðum Davíð eins og hverju öðru sorpi.

JEG, 5.2.2009 kl. 09:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Tiger
Tiger

Ég eyði fúlum og neikvæðum athugasemdum - svo það er tímaeyðsla að henda slíkum fjársjóð hingað inn. Verð hérna bara í flugumynd - lítið sem ekkert sem sagt. Þýðir ekkert að bíta af mér hausinn þrátt fyrir það...

***

Þakka öllum innlitið, en það er ekki þar með sagt að þú sjáir mig spora út síðuna þína!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • jesumynd
  • jesumynd2
  • jesumynd4
  • blómabeðið
  • blómabeðið
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband