Nú kem ég og gramsa í garðinum þínum! Engin ljótur arfi lifir góðu og glórulausu stóðlífi í mínu nágrenni! ..

Jæja já ..

Það er uppgjör og myndafærsla þetta sinnið. Eins og þið sem hafið lesið mig hingað til hafið séð - gruna ég - þá hef ég ekkert verið hér síðan í Maí. Nú er komið að því að kasta hér fram smá myndasýningu af blómasnúningum síðasta - og núverandi vors!

Ég byrjaði í fyrravor - 2008!

Upphafið var auðvitað þessi ljóti grasblettur - en ég fattaði ekki að taka mynd af honum áður en ég hreinsaði hjólagrind með riðguðum hjólum og alls skyns rusli af áður en ég tók fyrstu myndina.

Það var heilmikið púl að stinga þetta allt upp með einni lítilli stunguskóflu og rífa upp torfið - segi það satt.

blomin 040  blomin 042  blomin 043

Það var lítil mold undir torfinu svo ég þurfti að byrja á því að ná mér í fyllingu þegar ég var búinn að taka torfið burt ásamt grjóti og drasli sem var grafið þarna undir - ussuss.. átti allt eins von á að rekast niður á beinagrindur á tímabili.

Nú, svo var farið af stað í verslun Móður Náttúru - þar sem þú færð frítt svo framalega sem þú getur náð því án þess að skemma jarðveg eða gróðursæla staði. Mikið var tínt af grjóti og var það bæði sótt í fjöll og fjörur. Stuðlaberg og steinar sem komu úr jarðgöngum eftir sprengingar - sem og bara venjulegt hraun úr heiðmörk og af Miðnesheiði.

blomin 052  blomin 059  blomin 056

Nú, þá var það arfahliðin - en þar er blessunin hún Móðir Náttúra nokkuð gjöful þeim sem treysta sér til að nýta það sem hún býður uppá - og það nennti ég. Ótal ferðir eftir grjóti og blómum til að koma upp einhverri mynd á nýfætt garðsfrímerkið mitt. Margar ferðir með fullan bílinn af alls skyns blómum og arfa.

garður framhald 048  garður framhald 047 garður framhald 049

Öllu var komið niður í mold eftir knúnstarinnar reglum - bæði steinum og blómum - og ekki allt búið ennþá - en Kisa fylgdist sko vel með til að ekkert færi úrskeiðis! En allt var sett niður bara svona - hingað og þangað til bráðabirgða - með von um að blessaðar jurtirnar hafi ekki fengið of mikið sjokk þegar þær voru rifnar upp með rótum úr faðmi Móður Náttúru og troðið niður í lítinn einmannalegan blómareit.

garður framhald 050  garður framhald 053  garður framhald 054

Afraksturinn er byrjaður að láta sig sjást og hvert blómið á fætur öðru kíkir uppúr moldinni - en þessar myndir hér fyrir neðan voru teknar í enda Maí núna í vor.

ferming og sund 140  ferming og sund 144

 Nú þá er það síðasta myndin og jafnframt sú nýjasta - en hana tók hún Helga frænka sem býr í sama húsi og ég. Þarna má sjá að það er þó nokkuð af fallegum plöntum frá náttúrunni komnar saman - en líka eitthvað aðeins af fjólum og svo nokkur sem ég fékk úr garði litlu systur minnar sem var dugleg að grisja og gefa mér. Mágur minn, maðurinn hennar kom með mold og eitthvað af grjóti fyrir mig á kerru. 

Svo núna í vor fór ég í fjörurnar á Reykjanesinu og náði í nýtt sjávargrjót sem ég setti utan með beðinu - sérvalið og sértínt auðvitað.. haha!

Enn er ég þó ekki búinn - er að mála nokkra vel valda steina sem munu prýða skrúðgarðinn og ný planta bætist við af og til - og hjálpi mér ef maður á ekki bara eftir að riðjast inná bletti nágranna til að stækka við sig í framtíðinni.

blómabeðið

 

En hér læt ég staðar numið - enda ætlunin alls ekki að vera á blogginu mikið eins og er - bara smá uppdeit og hæhó!

Sendi knús og kremjur á ykkur öll sem leggið leið ykkar hingað inn núna og bið guð og gæfu að fylgja ykkur á þessum erfiðu krepputímum!

Luv you guys!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Svei mér þá, þetta er bara stórglæsilegt hjá þér  og ég er sérlega hrifin af Burnirótinni  sú á eftir að verða flott hjá þér.

(IP-tala skráð) 25.6.2009 kl. 19:28

2 identicon

Viltu koma í garðinn til mín ljúfurinn?.Gott að lesa loksins blogg hjá þér.Kærleiksblómakveðjur.

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 25.6.2009 kl. 19:42

3 Smámynd: Ragnheiður

þetta er þrælfínt hjá þér...vildi að ég væri svona dugleg hehe

gott að sjá þig, saknaði þín ekkert enda sé ég þig hinumegin sko

Ragnheiður , 25.6.2009 kl. 20:05

4 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Það er gaman að geta gert fínt í kringum sig. Þetta er mjög flott hjá þér, svo eiga fjölæringarnir eftir að breiða úr sér um allt. Iss, þú verður kominn inn í garð til nágrannans áður en þú veist af  Knús á þig blómálfur

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 25.6.2009 kl. 20:29

5 Smámynd: Hjóla-Hrönn

En þú duglegur, og þetta er bara ansi huggulegt hjá þér.  Ég verð að viðurkenna að ég er með aðeins of stóran garð, og allt of mikið af illgresi, elting, skriðsóley og fleiri miður skemmtilegar tegundir sem gera það að verkum að ég hef varla nennt út í garð í ár.  Er mikið að spá í að leigja gröfu, moka upp öll beðin niður á 1 metra dýpi og byrja upp á nýtt.  Stundum er það auðveldara en reyna að tjónka við illgresið.

Hjóla-Hrönn, 25.6.2009 kl. 21:36

6 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Það eru aldeilis flottheit

Jónína Dúadóttir, 25.6.2009 kl. 22:02

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Myndarskapur er þetta, flottur garður, til lukku með hann..

Ásdís Sigurðardóttir, 25.6.2009 kl. 23:10

8 Smámynd: Sigrún Óskars

Flott hjá þér Tiger og til hamingju með þetta flotta blómabeð. Komdu endilega í minn garð - mig vantar einmitt einhvern myndarlegan í garðinn

Helgarknús til þín

Sigrún Óskars, 25.6.2009 kl. 23:18

9 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Það hefur tekist vel með þetta beð.  Flottar myndir

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 26.6.2009 kl. 00:51

10 Smámynd: Steingrímur Helgason

Takk, nú fæ ég rennandi móral yfir mínum garði & því merki um mína leti zem hann er...

Steingrímur Helgason, 26.6.2009 kl. 01:15

11 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þú ert eins og ég hef alltaf sagt algjör snilli elskan, sjáumst á facebook

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.6.2009 kl. 14:17

12 Smámynd: JEG

Glæsó :) Nú veit ég hvern ég fæ í að meikóvera minn garð :)

kveðja úr sveitinni

JEG, 27.6.2009 kl. 00:14

13 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Heldur betur flottar myndir af flottum beðum.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 1.7.2009 kl. 00:27

14 Smámynd: Baldur Gautur Baldursson

TIl hamingju með lagfæringarnar!  :) 

Baldur Gautur Baldursson, 6.7.2009 kl. 18:48

15 Smámynd: Erna

Flott hjá þér Blomberg minn     Bestu kveðjur Erna.

Erna, 13.7.2009 kl. 21:33

16 identicon

Það er sem ég hef alltaf sagt minn kæri vinur þú ert sannkallaður snillingur og er þá vægt til orða tekið. Ég hef saknað þess að geta ekki komið alveg svona ég sjálf hér á bloggið þitt en það máttu vita að ég er samt ekki 1/2 he, he,  ;-)   ég er samt ég sjálf.

Til hamingju með fallega reitinn þinn og ef nágranni þinn vill ekki láta þér eftir sína lóð, ef hann væri ég þá væri ég alveg meiri háttar  ;-(

egvania (IP-tala skráð) 20.7.2009 kl. 20:59

17 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gaman að þessu og flottur garður TíCí minn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.7.2009 kl. 10:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Tiger
Tiger

Ég eyði fúlum og neikvæðum athugasemdum - svo það er tímaeyðsla að henda slíkum fjársjóð hingað inn. Verð hérna bara í flugumynd - lítið sem ekkert sem sagt. Þýðir ekkert að bíta af mér hausinn þrátt fyrir það...

***

Þakka öllum innlitið, en það er ekki þar með sagt að þú sjáir mig spora út síðuna þína!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • jesumynd
  • jesumynd2
  • jesumynd4
  • blómabeðið
  • blómabeðið
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband