Hlutir breytast og kannski umturnast bara ...

  Endalaust fyndið að skoða hvernig hlutirnir þróast og breytast með tíð og tíma. Sumt virðist ekkert breytast á meðan annað hreinlega umvarpast og líkist ekkert því sem upprunalegt var. Nú er ég ekki að tala um fólk heldur hluti, eins og t.d. tölvur, myndavélar, leikföng og símar, svo eitthvað sé nefnt.

farsimar Ég var að gramsa í gömlum kassa úr geymslunni og fann þar nokkra síma sem ég hef átt síðan farsímarnir litu dagsins ljós. Hef átt einhverja 5 síma frá upphafi og á þá alla ennþá og alla í góðu lagi. Hér til hliðar er fyrsti síminn minn - Nokia - og núverandi sími sem er Sony Ericsson. Ég hef aldrei verið að eltast við betri og flóknari og fullkomnari síma, bara endurnýjað þegar batterí er úr sér gengið eða eitthvað álíka.

  

Finnst sími bara vera sími svo lengi sem hægt er að ná í mann og maður getur náð í sína. Fyndið líka með tölvur. Var að festa kaup á nýrri tölvu um daginn, ásamt nýjum skjá (flatskjá) og ryðja gamla álkinum út af borðinu mínu um leið. Ótrúlegt! Ég sá í skrifborðið mitt í fyrstsa skiptið í örugglega tíu ár. Gamli skjárinn var þessi líka hlunkur - stór og mikill með mikið feitt bak. Skjárinn gamli einn og sér tók meira en helminginn af skrifborðinu. Turninn er svipaður en nánast allar snúruflækjurnar hurfu núna með gamla dótinu og fátt er eftir nema þráðlaust dót, þráðlaus mús, þráðlaust lyklaborð, þráðlaust innbyggt netkort og ég veit ekki hvað. Hefði átt að uppfæra þetta miklu fyrr - það birtir yfir í kringum tölvuna þegar svona mikið dót og snúrur hverfa og fáir fallegir hlutir taka við...

  Fréttatími ... byrjaður.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingrímur Helgason

Þráðlaus bloggari ???

Steingrímur Helgason, 18.2.2008 kl. 22:08

2 Smámynd: Tiger

  Hallgrímur ... Ezzzga þig til baka kúdurinn minn...

Vona að þú hafir fengið eitthvað gott að borða um helgina razzgatið þitt og sért búinn að jafna þig á öllu þessu bleika stúffi...

  

Tiger, 19.2.2008 kl. 02:54

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ég fór í svipaðar tölvuaðgerðir í haust, svakalegur munur

Ehh... Steingrímur.... Hallgrímur.... jæja, munar kannski ekki öllu...

Jónína Dúadóttir, 19.2.2008 kl. 06:18

4 Smámynd: Tiger

  Já Jónína, alveg nauðsynlegt að uppfæra þetta dót af og til því tækninni fleygir svo fram að bara á ári eru tölvurnar okkar úreldar. Og sammála - Hall-Stein- eitthvað - skiptir engu - hann er alveg jafn mikil rúsína þessi ezzga sama hvað hann er kallaður ....

Tiger, 19.2.2008 kl. 12:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Tiger
Tiger

Ég eyði fúlum og neikvæðum athugasemdum - svo það er tímaeyðsla að henda slíkum fjársjóð hingað inn. Verð hérna bara í flugumynd - lítið sem ekkert sem sagt. Þýðir ekkert að bíta af mér hausinn þrátt fyrir það...

***

Þakka öllum innlitið, en það er ekki þar með sagt að þú sjáir mig spora út síðuna þína!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 139774

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • jesumynd
  • jesumynd2
  • jesumynd4
  • blómabeðið
  • blómabeðið
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband