Skollinn hafi dómsyfirvöld vegna lúðalegs framlags við að sleppa hendinni af glæpahyski og óþjóðalýð.

  Ég trúi þessu nú varla. Hvað er málið með þessa bavíana sem stjórna þessum málum hérna á klakanum. Ég hefði haldið að það eitt að minnsti grunur væri fyrir sekt myndi tryggja að þeir sem að málum koma geti ekki bara vippað sér á sólarströnd og látið sem Ís-land bara bráðni niður í minningunni...

Eru dómsyfirvöld orðin hreinlega klikkuð að gefa svona eftir og leyfa hugsanlegum morðingja lítils gullmola úr keflavík að bara ulla á okkur og hlaupa úr landi eins og ekkert hafi í skorist? Á maður að þurfa að eiga von á þessu í öllum þeim tilvikum sem sannarlega eiga eftir að koma upp í framtíðinni - að glæpamenn geta komið hingað - framið illvirki sín - og svo bara gefið okkur langt nef og stungið af í ró og næði?

  Maður missir alla trú á yfirvöld þegar svona kjánaskapur leyfist. Get ímyndað mér hve hrygg fjölskylda unga drengsins er yfir þessum lúðaskap dómsvaldsins (mín fjölskylda hefur líka lent í aðstæðum þar sem lítið barn var hrifið burt frá okkur en sá sem var valdur dauða þess fékk litla áminningu og málið dautt). Hvað er í gangi? Hvers vegna er svona sakamönnum bara ekki stungið beint í steininn og þeir látnir byrja að taka út refsingu sína þegar svona augljós tenging er við glæpinn?

Big hug til fjölskyldu litla gullmolans í Keflavík, megi Guð styrkja ykkur öll!

  

  see ya all later...


mbl.is Farinn úr landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörg Sigurðardóttir

Er búinn að skrifa um að lögreglann og allt dómskerfið er eithvað breinglað.Eru sérstök lög á Islandi? Því dómkerfið er allt öðruvísi en í öðrum löndum.

Sigurbjörg Sigurðardóttir, 17.2.2008 kl. 18:20

2 Smámynd: Tiger

Já Sigurbjörg, ég er mjög hissa á þessu. Því í ósköpunum fékk maðurinn bara að fara athugasemdalaust burt af landinu? Ég skil ekki svona lagað. Best hefði verið að setja hann bara strax í afplánun því þá hefði hann ekki farið úr landi. Hvaða tryggingu telur dómsvaldið að það hafi til að ná aftur til mannsins? I wonder...

Tiger, 17.2.2008 kl. 18:51

3 Smámynd: Vendetta

"Hvaða tryggingu telur dómsvaldið að það hafi til að ná aftur til mannsins? I wonder... "

Enga tryggingu. Það hefur komið fram að Pólland framselji ekki ríkisborgara sinna til annarra landa. Þannig að líkurnar fyrir því að hann fái einhverja refsingu er 0%. Annars væri gaman að fá nafnið á viðkomandi ökuníðngi svo að hægt sé að setja það á pólska netsíðu. Svo að allir viti hvernig hann hefur myrt lítinn dreng og komizt upp með það. 

Vendetta, 17.2.2008 kl. 23:30

4 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég bara spyr er ekki eigandi/umráðamaður ábyrgur fyrir ökutækinu sem er í hans vörslu?  Það ætti að vera sama hver keyrði bílinn, umráðamaðurinn er sekur þar til annað hefur verið sannað.  Þannig að hann er sekur þrátt fyrir að hann hafi aldrei játað, það er bara mín skoðun.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 18.2.2008 kl. 01:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Tiger
Tiger

Ég eyði fúlum og neikvæðum athugasemdum - svo það er tímaeyðsla að henda slíkum fjársjóð hingað inn. Verð hérna bara í flugumynd - lítið sem ekkert sem sagt. Þýðir ekkert að bíta af mér hausinn þrátt fyrir það...

***

Þakka öllum innlitið, en það er ekki þar með sagt að þú sjáir mig spora út síðuna þína!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 139809

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • jesumynd
  • jesumynd2
  • jesumynd4
  • blómabeðið
  • blómabeðið
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband