Það besta í heimi hér er ...?

Ohhh... ég er að springa! Hvernig er þetta hægt? Ég stend á blístri og veit ekki alveg hvernig ég á að haga mér svo ég sest bara hérna niður við tölvuna og skelli þessu á prent, losa mig við og létti á mér... en þvílíkt og annað eins! *ROB* Whistling

 

Var að elda áðan, fisk. Sjófryst ísuflök á diskinn minn - það besta í heimi hér! Ákvað að steikja fisk í kvöld. Skellti saman eggjum, róma og sinnep - með season all og sítrónupipar. Þetta pískaði ég duglega og henti svo dass af karrý út í gumsið. Því næst skellti ég sjófrystri ýsu út í og lét hana standa í þessu sirka klukkutíma áður en að eldamennskunni kom.

Eldaði kartöflur og sauð hrísgrjón í karrý, ásamt því að gera létta karrýsósu. Því næst skellti ég ýsunni úr leginum í brauðrasp og steikti herlegheitin. Léttristaði grófskorna papriku og lauk sem ég hafði með ásamt því að skera niður gúrku og tómata sem meðlæti. Ljúfur eplasider var drukkinn með þessu öllu saman.

Nú er ég svo á blístri að ég get ekkert - nema bloggað. Sit hérna og halla mér aftur og hreinlega er afvelta sko.. *rop*. *Afsakið*... Blush

P.s. ég vaskaði líka upp sko - enda ekki með uppþvottavél og læt ekki aðra um að vaska upp eftir hamaganginn í mér þegar ég er að elda. Halo


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Óskars

Girnileg uppskrift, þarf að prófa þessa. Ég á alltaf sjófryst flök úr Bónus í frystinum. Svo sé ég að ég er ekki sú eina í heimi hér sem ekki á uppþvottavél, ég hélt að ég væri sú eina.

Sigrún Óskars, 3.2.2008 kl. 10:46

2 Smámynd: Tiger

Uss.. uppþvottavél er framlenging á hönd lata mannsins. Alger peningasóun á því að kaupa slíkan grip því það er svo fljótlegt og auðvelt að ganga frá eftir mat og kaffi - geri maður það strax.  En já, ýsa eða bara góður sjófrystur fiskur er æði, maður ætti alltaf að eiga slíkan dýrðarmat í frystikistunni.

Tiger, 3.2.2008 kl. 19:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Tiger
Tiger

Ég eyði fúlum og neikvæðum athugasemdum - svo það er tímaeyðsla að henda slíkum fjársjóð hingað inn. Verð hérna bara í flugumynd - lítið sem ekkert sem sagt. Þýðir ekkert að bíta af mér hausinn þrátt fyrir það...

***

Þakka öllum innlitið, en það er ekki þar með sagt að þú sjáir mig spora út síðuna þína!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 139776

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • jesumynd
  • jesumynd2
  • jesumynd4
  • blómabeðið
  • blómabeðið
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband