Fíflaháttur og fávitaskapur í mótmælum hafa skollan ekkert að segja. Hvernig væri að fá einhvern þjóðþekktan til að stofna ákveðnn hóp sem skipuleggur mótmælin til að þau gangi upp?

mótmælaÞetta er einmitt málið. Svona fær fólk við einhverju hreyft og einhverju áorkað gegn hækkunum ýmisskonar. Auðvitað er þetta líka eina leiðin til að fá stóru batteríin til að bæta kjör og hækka laun Dabba úti í bæ. Það fæst ekkert með því að láta 10 trukkakarla hamast í umferðinni og nokkra skapvonda bílstjóra sem blóta þeim þar sem þeir sitja fastir í umferðateppu. Það bara virkar ekki rassgat þannig og stóru kallarnir sitja glaðir í feitum stólum að þessari vitleysu. Málið er að það þarf miklu víðtækari samstöðu og það vantar líka að fleiri í þjóðfélaginu taki virkan þátt, en Íslendingar bara kunna ekki að standa saman í einhverju sem heitir mótmæli sem skipta máli.

Í Danmörku taka sig bara saman nokkrar stéttir, svo mikið sem 100 þúsund manns, og segja stóra bróður stríð á hendur. Þar standa allir saman í því að fá launin hækkuð um einhver 2,2% - eða úr 12,8% sem stjórnvöld bjóða næstu ár - í 15% sem stéttirnar/launþeginn krefst.

Þetta er nefnilega málið. Samstaðan og samtakamátturinn. Ef t.d. sendibílstjórar, leigubílstjórar, hópfluttingabílstjórar sem og Trukkakarlar - hefðu allir tekið sig saman og gert einhverjar gloríur þá hefði það haft miklu meiri áhrif. Tala nú ekki um ef allir þessir stóru bílar hefðu bara séð til þess að engin kæmist að til að kaupa bensín á bensínstöðvunum - í stað þess að atast í umferðinni. Margir hafa einmitt bloggað um það að slík aðgerð hefði einmitt verið mun áhrifameiri en kjánaskapurinn í umferðinni.

matarboðPersónulega myndi ég glaður taka þátt í slíku, hætta að versla þar sem maturinn á borðið mitt er rándýr og nauðsynjar til heimilisins svo fokdýrar að maður neyðist til að sleppa öllu nema því allra nauðsynlegasta til að komast hjá. Nú eða fara á mínum bíl - sem er nú ekki beint stór - og leggja honum og læsa á næsta bensínplani - miklu frekar en að vera með kjánaskap í umferðinni. Húrra fyrir Dönum sem kunna að mótmæla og kunna að standa saman í því að bæta kaup og kjör þeirra sem lág hafa launin. Hérna krumpast hver Íslendingurinn í sínu eigin horni - vælir um versnandi kjör og minnkandi lúxuslíf - barmar sér og hrópar á aðgerðir og að hann sé til í hvað sem er - en svo þegar einhver reynir eitthvað einhvers staðar - þá þagnar vælið og volið og í staðinn kemur krumpaður viðsnúningur um að þetta þýði ekkert, sé ekki á réttum stað eða réttum tíma - eða að stóru karlarnir hlusti aldrei og svo frv... það er jú málið - í stað þess að guggna og hörfa inn í eigin væluheim ættum við að reyna að standa upp og standa með þeim sem mótmæla, taka þátt og sjá til þess að mótmælin verði víðtæk og samtakamátturinn mikill - það er það eina sem virkar.


mbl.is Umönnunarstéttir í verkfall í Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Sameinuð stöndum vér - sundruð föllum vér! Er þetta ekki frá skátunum örugglega ??? ... Allir Íslendingar í skátana, eða bara í bátana og róa nú saman! Tigercopper þú verður í stafni og slærð taktinn, ró, ró, ró, ró .. og á endanum fellur kannski á  hin eina sanna stóíska ró!  

Sorry er að drepast úr bullmennsku/kvennsku þessa dagana.  

Totally sammála þér - en stundum kemur kóngaeðli Íslendinga okkur í koll..  Allir kóngar í sinni höll og ekki að pæla í náunganum!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 16.4.2008 kl. 21:43

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Heyr heyr

Jónína Dúadóttir, 16.4.2008 kl. 22:02

3 Smámynd: Solla Guðjóns

Flottur

Solla Guðjóns, 16.4.2008 kl. 22:24

4 Smámynd: Brynja skordal

Heyr heyr svo satt hjá þér

Brynja skordal, 16.4.2008 kl. 23:47

5 identicon

Bara láta þig vita að ég kom við hjá þér,

knús á þig kall

ofurskutlan

Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 17.4.2008 kl. 00:09

6 Smámynd: Tiger

  Takk elskurnar fyrir innlit - er að fara hringinn og kíkja á ykkur öll. Jóhanna: þú ert ofvirk - hahaha - en ég dýrka þig samt. þið hinar eruð allar óendanlega miklar skutlur..

Tiger, 17.4.2008 kl. 00:16

7 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Hahaha... hef heyrt þetta með ofvirknina áður frá samstarfsfólki, svolítið manísk þó það hafi sem betur fer aldrei farið upp í hið sjúklega stand! held ég ???  hmmm.. Kannski ég ætti að fara að slaka á, var eiginlega að ,,vonast" til að verða örlítið lasin svo ég gæti hvílt mig, en verð ekki lasin þar sem ég lifi svo heilbrigðu lífi! .. vesen er þetta!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 17.4.2008 kl. 06:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Tiger
Tiger

Ég eyði fúlum og neikvæðum athugasemdum - svo það er tímaeyðsla að henda slíkum fjársjóð hingað inn. Verð hérna bara í flugumynd - lítið sem ekkert sem sagt. Þýðir ekkert að bíta af mér hausinn þrátt fyrir það...

***

Þakka öllum innlitið, en það er ekki þar með sagt að þú sjáir mig spora út síðuna þína!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • jesumynd
  • jesumynd2
  • jesumynd4
  • blómabeðið
  • blómabeðið
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband