Fjárinn ... rómantískar unaðsstundir eru nú úr leik! Ekkert kelerí á ullargæru ..sem liggur á gólfinu fyrir framan snarkandi arineld.

arineldurNú sé ég fram á að þurfa að hætta að kveikja upp í arninum mínum, enda arineldur orðinn stórhættulegur. Í það fyrsta er alltaf rokna brunahætta þegar maður er að fikta með eld. En það er sannarlega ekkert miðað við hættuna sem skapast nú orðið og er orðin meiri dauðavaldur en óbeinar reykingar...

Notalegur arineldur er á við óbeinar reykingar samkvæmt nýjustu upplýsingum eða rannsóknum. Þegar Danir hjúfra sig við notalegan arineld hleypa þeir efnum út í loftið sem eiga þátt í jafnmörgum dauðsföllum og óbeinar reykingar. Samgönguráðuneyti landsins áætlar að 3.400 manns látist fyrr en ella vegna óhreindinda í lofti, en þar eiga 600 þúsund eldstæði stóran hlut að máli. Leggur umhverfisráðið til að síur séu settar á skorsteina til að vinna gegn vandanum.

Upplýsingar úr 24stundum, laugardaginn 12 apríl - 2008.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

aha..ég er ekki með arin

Ragnheiður , 12.4.2008 kl. 19:59

2 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Sko í morgun sagði bróðir minn mér að hafragrautur væri krabbameinsvaldandi og nú bætir þú þessu við! .. Ég er akkúrat þessa stundina með opinn arineld Relaxing By The Fire

og ætla svo sannarlega að elda minn góða graut í fyrramálið! Rosalegt að storka svona örlögunum..

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 12.4.2008 kl. 21:12

3 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 12.4.2008 kl. 21:18

4 Smámynd: Huld S. Ringsted

Og mig sem hefur alltaf langað í arinn...............................................

Huld S. Ringsted, 12.4.2008 kl. 21:28

5 Smámynd: Steingrímur Helgason

Af hverju finn ég þörf fyrir að minnast á að heimili þitt gæti verið mögulegur eldmatur í sagnfræðilegu tilliti á meðan ég ylja mér við þessa arinn-færslu ?

Mæli með ullarsokkum & álafossteppi, ef þér er kalt, elsku kúturinn minn, & sæta & sóðalega ást sendi ég til að ylja þér að innann, dona í leiðinni.

Steingrímur Helgason, 12.4.2008 kl. 21:43

6 Smámynd: M

Þá ættum við að vera búin að drepa heilt sumarbústaðahverfi og bæina í kring með árunum

Eigðu góða helgarrest Tigercopper. 

M, 12.4.2008 kl. 21:58

7 Smámynd: Tiger

  Grrr... notalegur eldur og heitur félagsskapur! Hvað gæti maður beðið um meira? Ekki nöldrandi eiginkonu sem maður er að fara að skipta út fyrir sportjeppa allavega... *skamm*. Heit geit væri tilvalin - á eldinn til grillingz!

Ragnheiður mín: Izz .. arinn er nú ekki endilega neitt möst. Hægt að kúra á gæru á gólfinu bara rétt við heitan ofninn eða bara undir sæng sko!

Kurr: Já, svo mikið satt - heilmikið sem er að gera útaf við okkur nú orðið og sennilega fátt sem ekki hefur morðóðar tilfinningar til okkar...

Jóhanna M&V: Veistu, ég fer ekki mjög mikið eftir svona "rannsóknum&ráðleggingum" eins og flæða um allan heiminn um að hitt og þetta sé að kála okkur. Um að gera að storka örlögunum og fá sér smá óhollustu af og til, þannig séð auðvitað.

Linda Linnet: knús og klemmerí á þig líka ljúfan..

Huld mín: Um að gera að fá sér einn, hlýtt og kósý kvöld er vel þess virði að enda lífið aðeins of fljótt ... eða hvað? hmmmm....

Zteini minn: Sko, ullarsokka færi ég aldrei í... né undir ullarteppi - enda er ég ekki að fíla mikið ullina blessaða. Sætt og sóðó er alltaf velkomið í mitt póstnúmer svo þér er alveg óhætt að póstleggja slatta yfir ljúfurinn. Þér er alltaf velkomið að ylja þér við minn eld sko ... *flaut*.

Tiger, 12.4.2008 kl. 22:02

8 Smámynd: Tiger

  Jammsí ... heilu samfélögin ættu að vera orðin útdauð ef eldurinn er svona stórhættulegur ... sem hann er auðvitað.

EMM: Já, alltaf eitthvað nýtt og nýtt sem ætti að vera búið að kála hinu og þessu - svo mikið satt. En skollinn hafi það að maður fari að lifa eftir þessum áhyggjum ... onei sko! knús á þig ljúfan...

Tiger, 12.4.2008 kl. 22:05

9 Smámynd: Tiger

   .. það er spurning um að bjóða bara liðinu að hringa sig uppvið minn arinn og sjá hvort maður komi ekki bara öllum fyrir þar.

Helga mín: Segi það - maður þarf sko ekkert á arinn að halda til að hafa það kósý og ljúft. Nóg að hafa bara ljúfan félagskap, t.d. maka - eða bara vin eða vinkonu - nú eða bara köttinn eða hundinn... Knús á þig og eigðu góða helgi líka ljúfan.

Tiger, 12.4.2008 kl. 22:43

10 Smámynd: JEG

Svona er þetta líf...... allt bannað sem er gaman og óhollt sem er gott.    Knús til þín og kvitt frá mér.

JEG, 12.4.2008 kl. 23:21

11 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ég ætla samt að fá mér arinn eða kamínu Það er ekki séns í helv... að ég fari allt í einu að lifa eftir einhverjum rannsóknaupplýsingum....

Jónína Dúadóttir, 13.4.2008 kl. 05:45

12 Smámynd: María Guðmundsdóttir

Ef madur ætti ad lifa eftir øllum thessum rannsóknum og vara sig á øllum krabbameinsvaldandi efnum og athøfnum thá getur madur allt eins grafid sig undir græna bara lige nu finnst einmitt svo huggó hérna i dk thar sem reykjalyktin leggur yfir allt og i gøngutúrum eldsnemma morguns snørlar madur thessu i nefid af mikilli áfergju...ummmmm...svo gód lykt

                                                          Góda helgarrest kæri Tiger,knus og krammer

María Guðmundsdóttir, 13.4.2008 kl. 07:02

13 identicon

Nákvæmlega, hver vill svo sem lifa endalaust! Ég er meira til í að hafa gaman :-)

knús

Ofurskutlan

Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 13.4.2008 kl. 11:10

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Vá alltaf heyrir maður eitthvað nýtt.  Og ég sem kynti ofninn minn í Danmörku alla daga vikum saman meðan ég dvaldi þar.  Það var bara svo mikið sport, og svo var ofninn eini upphitunarmöguleikinn.  En sumarbústaðurinn er seldur og enhver annar tekinn til við að menga lungu dananna.  En þetta er gott að hafa í huga svei mér þá. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.4.2008 kl. 12:41

15 Smámynd: Solla Guðjóns

Jújú...allt gott óhollt..nema eitt.......

Solla Guðjóns, 13.4.2008 kl. 14:25

16 identicon

Við sleppum aldrei lifandi héðan ... mjög gott að slaka vel á og njóta þess besta þegar maður kemst í þann gír, ekki gott að spá of mikið í hvað allt er hættulegt. 

Sunnudagaknús á þig snúlluraþþgatið mitt ...

Maddý (IP-tala skráð) 13.4.2008 kl. 15:31

17 identicon

Usssssss !!  Aldrei má maður ekki neitt !

Glatað!

Ég er farin að kaupa mér videóspólu með arineldi.  Eða fiskabúri, veit ekki hvort ég kýs mér.

Knús.  

Guðrún B. (IP-tala skráð) 13.4.2008 kl. 15:38

18 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Svo eru til lampar sem eru eins og arineldar er maður kveikir, svo hlustar maður á góða músik, borðar jarðaber, og kveikir í ja hverju?.
                              Knús Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 13.4.2008 kl. 20:11

19 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Ég á engan arin. Er þá bara ekki í lagi að ég haldi áfram að reykja? Ef það mengar minna.

Helga Magnúsdóttir, 13.4.2008 kl. 21:51

20 Smámynd: G Antonia

OMG gott að ég er bara með svona gel-arinn .....  *hlátur* ullargæran fyrir framan arininn, hún minnir mig bara á ljósmyndir af ungbörnum liggjandi á maganum í "svart-hvítu"   - en það er ekkert að marka, ég hef aldrei átt unaðstundir á ullargæru fyrir framan snarkandi arineldinn * heheheh!*  

G Antonia, 13.4.2008 kl. 22:18

21 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Ég hef einmitt verið að láta mig dreyma um arin, og hef þá haft í huga þessa nýju arna sem verið er að auglýsa núna þessa dagana fyrir fólk sem ekki er með skorstein.  Eru þeir þá líka hættulegir krabbameinsvaldar??

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 14.4.2008 kl. 02:28

22 Smámynd: Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir

Fussum svei, ekki alltaf hægt að hlusta á þessa kalla.

Örugglega gott, svona í hófi að hafa það kósý fyrir framan arinninn

þó auðvitað er alveg hægt að hafa það kósí líka, án arins

Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 14.4.2008 kl. 14:09

23 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Margt verður okkur mönnunum að meini kæri Tiger.

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.4.2008 kl. 10:14

24 Smámynd: Tiger

  Ójá.. mikið mikið satt. Það er svo ótrúlega mikið sem verður okkur mönnunum að meini - eða fjörtjóni. En málið er sannarlega að fara nú ekki að hræðast allt sem talið er geta gert hitt eða þetta. Um að gera að lifa lífinu lifandi frekar en eftir einhverjum stafi í bók ...

Þakka ykkur kærlega ljúfu bloggvinir og aðrir fyrir innlit og kvitterí. Kíki hringinn á brennandi bíl seinna í kvöld.. hlakka til að lesa ykkur öll. Knús í daginn.

Tiger, 15.4.2008 kl. 15:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Tiger
Tiger

Ég eyði fúlum og neikvæðum athugasemdum - svo það er tímaeyðsla að henda slíkum fjársjóð hingað inn. Verð hérna bara í flugumynd - lítið sem ekkert sem sagt. Þýðir ekkert að bíta af mér hausinn þrátt fyrir það...

***

Þakka öllum innlitið, en það er ekki þar með sagt að þú sjáir mig spora út síðuna þína!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 139799

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • jesumynd
  • jesumynd2
  • jesumynd4
  • blómabeðið
  • blómabeðið
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband