Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

Leigðu bílinn, sé hann grænn og vænn, en ekki glíma við fiðrildin í bænum...

  Jæja já elskurnar mínar, litlar og stórar. Ég er hérna ennþá og ekki hefur mér verið eytt út af moggabloggi. En, nú er að baki þessi líka subbulega færsla sem ég var neyddur í að henda hérna inn - og mun ég ekki leggja slíkt óæti á ykkur aftur í bráð. Þessi færsla hérna mun ekki innihalda eins mikið jarðrask og kynlífsbrölt, eða þannig. Samt skulið þið ekki halda að ég sé alveg hættur því það er aldrei að vita hvenær eitthvað slíkt poppar upp - en með varnaðarorðum samt ætíð... En, nú ætla ég bara að skoppa inná hitt og þetta í stuttri yfirferð. Tek nokkrar fyrirsagnir sem ég rakst á í morgunlestrinum og hendi svo einhverju inn um þær..

1. Að leigja bílinn til að hafa fyrir afborgunum (24 stundir, þriðjudagur 4 mars.).

  Góð hugmynd. Það eru jú fullt af óðum bíleigendum sem vaða út í það að kaupa geggjaða bíla á alltof háum afborgunum, og ráða svo ekkert við málin eftir eina eða tvær slíkar. Sagan segir af bíleiganda sem þurfti að greiða 37Þ. á mánuði en var tvo á eftir með greiðslur - leigði bílinn til skyldmennis í 6 mánuði á meðan hann náði í skottið á sér. Mun betra en að missa bílinn í dráttartógi. Málið er þó að ef maður er löghlýðinn, þá hefður átt að fara 4 þúsund af þessari upphæð í skattinn...

2. Léttari og "grænni" bílar.(24 stundir, þriðjudagur 4 mars.).

  Allt er vænt sem er meira grænt jú. Er það ekki? Nei það held ég nú bara ekki sko! Kannski að grænar plöntur séu vænar, grænn útblástur geti verið vænn ehh.. og kannski er hægt að flokka sorp svo grænt sé. Æi, kannski er allt vænt sem er grænt eftir allt. Hyundai er að senda frá sér fjölskylduvænan grænan bíl sem verður til sýnis á bílasýningu sem haldin er í Genf í Sviss. Bíllinn verður jafnstór og aðrir sambærilegir bílar en mun léttari, sem þýðir minni mengun. Gott mál það.

Munið svo eftir því að skafa vel af bílnum þegar snjóar, ekki keyra af stað með litla sjónrönd á framrúðunni en allar aðrar rúður á kafi - og það með börn í bílnum í þokkabót. Þegar mikill snjór er - þá fer ég út með kúst og sópa af bílnum, fljótlegt og þægilegt. Og.. elskurnar mínar sem keyra liggur við í bakkgírnum í mikilli umferð - þar sem tvær eða fleiri akreinar eru - haldið ykkur HÆGRA megin í umferðinni! Vinstri akreinin er fyrir hraðari umferð... óskráð lög okkar sem keyrum eins og kappakstursökuþórar í umferðinni. Munið líka að sleppa bæði REYKINGUM og FARSÍMANUM á meðan þið eruð með líf ykkar og farþega ykkar - ásamt lífi allra hinna - í umferðinni. Virkilega ljótt að sjá fólk keðjureykja, tala í símann og reyna að hafa vald á bifreiðinni í þungri umferð.

3. Glímuskutla á ferð í Reykjavík.(24 stundir, þriðjudagur 4 mars.).

  Jæja strákar, og stelpur auðvitað. Glímuskutlan Kanadíska Trish Stratus, mun taka létt glímuspor við hina íslensku Svönu Hrönn Jóhannsdóttur, annaðkvöld í glímusal Ármanns í Laugardal. Frítt inn og hefst sýningin klukkan átta. Nú er um að gera að setja sig í glímustellingar og horfa á fallegar stúlkur glíma. Er nú hræddur um að GlímuKóngurinn hann afi minn sálugi myndi snúa sér við í gröfinni ef hann vissi að ungar og fallegar stúlkur væru að berjast - en hann myndi líka brosa og fylgjast með af athygli. Og Brjánn: það verða engin brjóst þarna - eða hvað? Ehh..

4. Fiðrildafundur á Vegum UNIFEM. (24 stundir, þriðjudagur 4 mars.).

  Tilgangur er góður og vænn. Sjónum er beint gegn ofbeldi á konum, í Austur-Kongó, Líberíu og Suður-Súdan. Halló. Afhverju þurfa samtökin að hlaupa burt fá okkar konum? Hér á landi eru fulltaf konum sem þurfa að sæta ofbeldi. Ok, stígamót já.. og örugglega eitthvað fleira. En ég myndi frekar vilja að svona samtök tækju uppá því að styrkja konur á Íslandi - áður en þær fara til annarra landa. En svona erum við Íslendingar, þurfum alltaf að bjarga öllum heiminum en horfum sjaldan á vandann í okkar eigin garði. Hver er eiginlega tilgangurinn - að vekja hrifningu á erlendri grundu? Varla. Enda hver tekur svo sem eftir því þó nokkrar hræður frá þessari litlu eyju rétti út litla putta?

  En svona að lokum. Hafið þið einhvern tíman horft á sjónvarpstöðina ÍNN? OMG, segi ekki meira. Hef tvisvar dottið inn á hana og lent á Fuglabjargi hinu versta. Þar eru konur allsráðandi og bara hreint skelfilegt á að horfa. Það eru þær Ásdís Olsen og Kolfinna Baldvinsdóttir sem eru stjórnendur þáttarinns. En þvílíkt fuglabjarg! Í þau tvö skipti sem ég reyndi að ná áttum og skilja um hvað þær voru að tala um - ásamt tveim gestakonum - gekk það ekki betur en svo að ég skildi varla orð hjá þeim. Þessar fjórar konur óðu svo yfir hverja aðra, blöðruðu svo hrikalega og kláruðu aldrei eitt frekar en annað. Það eina sem stendur uppúr - er ekki neitt nema hausverkur og gleði yfir því að vera ekki kerling í kerlingakjafta- og saumaklúbbi, er viss um að svona er einmitt á þeim samkuntum.. hihihi.

  Kem kannski með eitthvað sætt og sóðalegt í lok dags. Eigið góðan dag og passið ykkur á hálkunni sem oft leynist undir snjóalögum þegar þau rigna niður...Woundering


Gríla Gamla fær sér #Leppa Lúða# í morgunmat. Ekki fyrir viðkvæma!

Ok, ég var hvattur til að senda þessa færslu hérna inn - og þrátt fyrir að ég telji þetta ekki beint heppilegasta staðinn fyrir svona "verk" þá ákvað ég að taka áskoruninni og láta vaða. Ef þú lesandi góður ert eitthvað viðkvæm/ur eða smjattpattaleg/ur - þá bið ég þig um að hætta að lesa núna - því eftirfarandi er ekki fyrir viðkvæma né uppkastgjarna... Ef þessi færsla fer fyrir brjóstið á einhverjum þá er ekki útilokað að ég eyði henni, en það á eftir að koma í ljós... þið sem ákveðið að lesa til enda - góða og óða skemmtun svona fyrir svefninn.. *glott*. 

   

Gríla var í slæmu skapi og ekkert virtist ganga henni í hag þessa dagana – hún var örg og ófullnægð. Hún hafði farið í bæinn í fjögur skipti frá mánaðarmótum til að ná sér í óþekka karla sem hún gæti kitlað kynferðislega undir beltisstað á aðventunni en ekki fundið neinn ennþá. Hver skollinn er eiginlega í gangi – það er eins og einhver fjárans friður og ró sé að færast yfir manndruslurnar í ár tuðaði hún við sjálfa sig.

Hún gekk um hellisgólfið í reiðikasti og stoppaði fyrir framan loðið skinn sem einhvern tíman hafði verið dauðskelkuð rolla sem jarmað hafði aumkunnarlega eftir miskun þegar Gríla glottandi greip vesalings rolluna á heimleið, súpukjöt hugsaði Gríla með sér. Hún þreif drusluna af gólfinu og skellti henni á milli fóta sinna – því næst nuddaði hún saman lærunum og reyndi að hemja fiðring og losta sem hríslaðist um gamla hruma og óálitlega kroppinn.

Því næst urraði Gríla illilega, hún bölvaði hátt og gargaði svo undir tók í fjallinu hennar. Straumurinn sem lak niður úr miðju hennar og á tær henni varð að litlum læk undir fótum hennar og stækkaði ört á meðan hún reyndi að hemja fossinn með gömlu skjátunni sem hún hafði stolið. Hún hugsaði um síðustu jól – nýr óþekkur gaur á hverjum degi og nógar stunur og mikil læti alla aðventuna – hún var óvenjulega ólgandi núna og lækur hennar byrjaði að leka niður fjallið sem stórfljót væri ...
******
Leppur Lúði hét hrotti nokkur tröll að vexti, ætíð uppnefndur tröllatilli - þrammaði í þungum hugleiðingum á milli bæjanna í dalnum. Hann var póstberi sveitarinnar og öllum stóð ógn af honum vegna dólgslátanna og tröllslegs útlits hans. Allar konurnar í dalnum óttuðust hann en voru jafnframt veikar af sælu og kiknuðu í hnjám sínum í hvert sinn sem hann sást nálægt bænum þeirra.

Þær vissu uppá hár hvenær Leppur Lúði tröllatilli var væntanlegur með póstinn svo þær voru allar sem ein vanar að koma sér fyrir í leynum uppi á háalofti með öllu tilheyrandi, víbrador, dildó, fiðrildi og titrara, nú eða bara gúrku og banana sem nýta mátti til ýmissa hluta annarra en að eta. Við þurfum ekki að fara nánar út í hvaða hlutverki allir þessir hlutir gegna, en ljóst er að þarf ekki mikið ímyndunarafl til að átta sig á því.

Síðan sátu heimasæturnar við gluggann á háaloftinu og störðu lostafullar og hálf geðsjúkar út um háaloftsgluggan og fundu leikföngum sínum verkefni við hæfi um leið og limastóri póstkarlinn gekk að og frá bænum þeirra. Víða mátti heyra full mikil sæluvein kvennana þegar Leppur Lúði greddugaur hvarf fyrir hornið, hann horfinn en eftir sátu uppgefnar en fullnægðar og óttaslegnar heimasæturnar.

Leppur Lúði staurtilli var í óvenjufúlu skapi því enn hafði hann ekki fundið kerlu sem gat tekið við stóra uppnefninu hans og það var að fara með hann að geta ekki fengið sér duglegan dráttarleik án þess að þurfa hreinlega að hætta í miðjum klíðum til að kerlingarnar hreinlega spryngju ekki í búta undan honum.

Leppur Lúði átti eftir að bera póstinn í síðasta bæinn í dalnum – hjá Álagafjalli þar sem sögusagnir um Grílu gröðu gengu manna á milli. Hann hafði oft heyrt sögur um þessa forljótu kerlingu sem rændi saklausum sveinum í dalnum og skilaði þeim ekki aftur fyrr en eftir þrettándan – og þá útnotuðum og hálfgeldum greyjunum.

Skelfing varð Leppur alltaf óður af losta þegar hann heyrði þessar sögur. Honum bálstóð og stóra uppnefnið hans lá stíft eins og staur niður að stígvélinu hans. Hann nuddaði upp og niður lærið á sér - yfir uppnefnið sem lá þar niður - og við hverja stroku stækkaði uppnefnið og fór fyrsti stafurinn í uppnefninu alltaf lengra og lengra niður í stígvélið og áður en hann vissi hafði hann óvart stigið á uppnefnið sitt. Hann öskraði svo undir tók í dalnum. Allar heimasæturnar sem sátu rennandi og uppgefnar á háaloftinu heima hjá sér fengu aukasæluhristing um leið og þær hrukku í kút við þetta öskur, en karlpeningurinn læsti enn betur húsum sínum og lá svo skjálfandi af hræðslu á bakvið dyrnar.
*******
Gríla, sem hafði verið að þurrka sér með restinni af rollunni, sperrti forljót eyrun og lagði við hlustirnar. Sársaukagól sem líktist helst losta og fullnægingar ópi frá greinilega kraftmiklum mannsbarka barst henni til eyrna sem ljúfir tónar sem lofuðu öllu fögru.

Hún kastaði því litla sem eftir var af gærunni loðnu ofaní súpupottinn, gærusúpa í kvöldmat og hana nú, síðan hljóp hún að hellisdyrunum og góndi niður í dalinn fyrir framan fjallið. Langt í fjarska, rétt við síðasta bæinn í dalnum, greindi hún með skörpum lostafullum augum sínum karl sem greinilega var miklu stæðilegri en allir getulausu strákbjálfarnir til samans sem hún hafði hingað til hömpað í tilefni aðventunnar.

Kræklóttu eyrun hennar titruðu af losta og titringurinn leiddi niður kræklóttan líkama hennar. Titringurinn leitaði og rann um allar fellingar og stellingar og endaði í kafloðnu gjótunni - sem var full af gæruskinni af runkrollunni sem lá nú í tætlum í mallandi súpupottinum.

Lækur hennar stækkaði um helming og beljaðist út um hellismunnan og niður fjallið, líkt og stærðar fljót. Gríla bretti uppá varirnar í lostakasti og hentist af stað niður fjallshlíðina í fryggðar- og fullnægjuvon.

Leppur Lúði tröllatilli öskraði þegar hann steig á staf sinn sem nú náði niður í stígvél. Hann bölvaði og hótaði öllum heiminum öllu illu um leið og hann hoppaði um á öðrum fætinum svo jörðin skalf og nötraði langar leiðir um dalinn.

Jarðraskið sem myndaðist við þessi læti í honum olli nýrri sælubylgju á hverjum bæ í dalnum. Hann sér hvar kaldur og svalandi stórlækur rennur úr Álagafjalli og hoppaði þangað til að dýfa uppnefninu sínu ofaní í von um að kalt vatnið slái nú aðeins á þann sársauka sem hann fann fyrir.

Þegar Leppur kom að ánni reif hann af sér stígvélið og stakk því ónefnda ofaní lækinn en um leið og uppnefnið hvarf í fljótið fann hann undarlegan þef – fjárinn – Gríluþefur urraði Leppur Lúði spólandi og gólandi um leið og hann fann að lækurinn sem nú umlukti feykistóran félagan var ilvolgur og þéttur í sér svo hann gleymdi augnablik sársaukanum. Um leið og sársaukinn hvarf var sem vellíðunarstraumur hríslaðist um hann allan.

Leppur Lúði greip um þann sem ekki má nefna og slengdi honum á loft svo endinn nam við andlit hans – hann dýfði tungunni í til að finna bragðið af þessum undarlega, heita og feita læk. Súr og rammur keimur var af bleytunni en um leið svo lostafullur að heili Lúða, sem reyndar var í þeim sem ekki má orða beint. Sá ónefndi stækkaði um nokkra þumlunga – þetta er ástardjús svei mér þá kallaði hann undrandi og leit upp með fljótinu í leit af upphafi þess.

Hann starði undrandi og glaður uppeftir Álagafjalli, alla leið að miðju fjallsins þar sem hann kom auga á heljarinnar kerlingarómynd sem var á hraðahlaupum niður fjallið í áttina að honum. Hann urraði lostafullur og ánægður þegar hann sá að þetta myndi vera goðsögnin Gríla með stóra og meðfærilega miðju sem ekki heldur má nefna með nafni en sem hæglega myndi geta tekið við öllum hans ónefndu líkamspörtum. Leppur Lúði reif af sér fataleppana og hljóp af stað á móts við ómyndina sem skrölti niður fjallið á móti honum, nú skildi sko náttúran ráða ferðinni.

Gríla veinaði af fryggð og baðaði út öllum öngum þegar hún sá hvar karlómyndin niðri í dalnum reif af sér fataleppana og kom svo askvaðandi á móti henni með eitthvað ónefnt en stíft eins og olíubor sem tilbúinn var að fara á mikið dýpi í leit af olíu og auðæfum – hennar olía rann og hennar auðæfi voru svo sannarlega hans ef hann vildi og nú skildi ekkert til sparað.

Hún tætti larfana af sér og henni var nákvæmlega sama þó fellingar og hárlufsur þeyttust í allar áttir, hún vildi þennan karl og stóra nafnleysið hans, sama hvað fyrir varð hún ruddi því um koll og óð niður hlíðina að karlinum sem nálgaðist líka með miklum látum.

Gríla greip með báðum höndum um skógi vaxnar lendur sínar og greiddi með fingrunum í heljarmiklum brúskinum til að skipta honum í miðju, því næst greip hún í ónefnda hliðavængi sína og tosaði þá í sundur svo hyldjúp gjá kom í ljós þarna í allri óreiðunni, gjáin sem myndaðist var meira en tilbúin í það að fá heljarmikin borinn sem var í olíu og fjársjóðsleit.

Leppur Lúði greip báðum höndum um gilda ónefnið sitt og beindi því framávið. Hann sá hvar kerlingargerpið hafði rutt úr vegi afmynduðum kjarrgróðrinum og vissi að nú var ekkert til fyrirstöðu, nú fengi hann loksins að bora sér á kaf í gjótu sem ekki myndi springa í tætlur þegar hann botnaði hana. Hann herti á sér og áður en þau vissu – skullu þau saman með miklum látum þar sem ekki er sniðugt að lýsa í smáatriðum en segja má að ónefndur bor hafi ratað beina leið inn í olíu og auðlindir kerlingar.

Miklir jarðskjálftar riðu yfir dalinn um leið og þessi heljartröll mættust og ópin í Grílu brutu rúður í húskofum mannana og varð einnig til þess að það leið yfir alla ungu sveinana í þúsundir kílómetra fjarlægð af hræðslu við þessi skelfilegu lostaóp sem þeir könnuðust svo vel við svo lengi sem þeir mundu.

Ánægjugargið í Leppa Lúða hellti einnig úr sér fullnægingarbylgjum yfir kvennþjóðina í dalnum þar sem margar þeirra voru enn að reyna að jafna sig eftir leikföng sín, leikföngin sem höfðu viðamikið hlutverk á meðan þær horfðu á gaurinn með stóra nafnleysið henda póstinum á hlaðið hjá þeim.

Leppa Lúði og Gríla veltust um hlíðina með miklum látum. Leppur Lúði lét borleysið vinna sterklega á kerlingunni en Gríla reif upp trjáhríslur í grenndinni, hríslur og runna sem hún notaði sem písk á karlugluna til að fá hann til að herða á sér og hún öskraði upp ýmsum ónöfnum til að hvetja sinn mann duglega.

Þau voru ánægð hvort með sitt, hún með að fá loks alvöru stoppunál í stað títuprjóna áður - en hann með að finna loks nógu djúpa og gjafmilda gjá, gjá sem hafði nógan olíuforða og víddir til að taka við ónefndum félaga hans. Eftir heljarinnar mikil átök, barsmíðar og ruddaskap sem endurómaði um alla landsbyggðina, virtust þau ætla að ná hátindinum.

Gríla gargaði og barði karlinn af öllum kröftum með stóru jólatré sem hún hafði náð taki á en Leppa Lúði bölvaði kerlingunni og boraði enn dýpra um leið og hann kleip þétt og ruddalega um stóru blöðrurnar sem héngu eins og risastór pungur framan á bringunni á henni.

Lokaspretturinn náði hámarki með miklu jarðraski og stór gjá myndaðist undir þeim þegar hæst leikurinn stóð. Lætin sem fylgdu lokahátindsveinum þeirra náðu út fyrir landssteinana og spruttu upp ýmsar goðsagnir um óvætti og drauga í kjölfarið.

Mikil eyðilegging lands og gróðurs er enn þann dag í dag að bera þess vitni sem þarna átti sér stað og hin heilmikla gjá sem enn stendur þar sem lokasprettur þeirra náði hámarki hefur hlotið nafnið “Almannagjá á Skeiðvöllum” en dalurinn fékk viðurnefnið Skeiðvellir eftir þennan skelfilega atburð.

Eftir fullkomnunina hjá þessum ómyndum drösluðust þau saman upp hlíðar Álagafjalls því harðákveðin voru þau í því að örlögin ætluðu þeim að vera saman um aldur og ævi. Mörgum árum eftir þessa heljarreið fór að bera mikið á litlum vinalegum körlum um landsbyggðina. Þeir klæddust rauðum fatnaði og voru með hvítt skegg og hár í stíl. Margir þeirra læddust um dalinn í desember og oftar en ekki hurfu ýmsir hlutir frá fólkinu í dalnum, t.d. kerti, pottar, kjöt, skyr, bjúgur og fleira í þeim dúr en einstaka sinnum bar við að ýmsar gjafir voru skildar eftir á dyrapallinum hjá fólki í stað þess sem hvarf – og til þess að bæta þann skaða sem fornir óvættirnir áður höfðu valdið í dal og bæ.

  áður en færslunni verður eytt - og mér í leiðinni... Knús á ykkur.


Hvað er það sem hristir jörðina helst - jarðskjálfti? Nei, hommserí í sextíuogníu stellingunni.

  Ohmy derest.. Nú er ég viss um að margir ofsatrúamenn/konur eigi eftir að smjatta vel og nota tækifærið. Miklir jarðskjálftar, þýðir bara eitt - og því verður ekki breytt. Þessi var nokkuð öflugur - 6.9 á Richter - sex komma níu... sexníu = 69 -----> Sixtynine... Ohmy.

Það vita allir hvað 69 þýðir - ekki á sviði jarðskjálfta heldur öðru öllu ljúfara sviði. Og allir vita, sérstaklega ofsatrúafólk, að þegar jarðskjálfti á sér stað - þá eru samkynhneigðir að hossa sér einhversstaðar. Það vita jú allir að Guð hefur sagt ofsatrúafólki í bænheitum löndum að ef hommsi hossar sér þá muni hann láta jörðina hossa sér til að hegna okkur trúuðu.

  Hjálpi mér hvað sumt fólk getur átt bágt - að trúa öðru eins og þessari þvælu. Ef þetta væri í raun svona þá væri jörðin löngu horfin. Hún væri löngu búin að hristast í sundur - og til baka. Sem betur fer er þó til fólk sem er eins og ég - og kannski þú - sem veit að hommsar hafa ekkert með jarðskjálfta að gera. Hommsa 69 hristir jörðina ekkert frekar en Streit 69, engin munur og ekkert jarðrask - kannski smá rúmhristingur - en jörðin er kyrr, nema undir ofsatrúafólki sem hristir bara hausinn í vanþekkingu og kjánaskap...

  Skrifa nýja færslu - eina sem er subbuleg og ekki birt fyrr en eftir klukkan miðnætti eða svo...Whistling


mbl.is Öflugur jarðskjálfti á Filippseyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er þetta eiginlega með þennan blessaða mat? Á þetta sér stoð í raunveruleikanum?

  Get ekki borðað nautakjöt - riðuveiki....  

  Get ekki borðað kjúkling - fuglaflensa... 

  Get ekki borðað egg - Salmonella 

  Get ekki borðað svínakjöt... - óttast að fuglaflensan herji á svín! 

  Get ekki borðað fisk... þungmálmar hafa mengað fæðu þeirra 

    Get ekki borðað ávexti eða grænmeti... - skordýraeitur og illgresiseyðir! 

Hmmmmmmmmm!!!!!!!!!!!!! 










  Mér sýnist að eftir standi SÚKKULAÐI!!!!!!!! 


 
MUNDU AÐ - - - 
STRESSEDSTAFAÐ AFTUR Á BAK ER... DESSERTS!

  Skrifaðu athugasemt hér og þú losnar við 1 kíló. 

  Segðu öllum sem þú þekkir (eða hefur einhvern tíma þekkt) frá þessu og þú léttist um 5 kíló. 
 

  Ef þú skrifar ekki athugasemd hér - bætirðu samstundis við þig 5 kílóum.. *glott*.

  Í þínum sporum myndi ég ekki taka neina áhættu!

Bloggeigandi tekur fulla ábyrgð á breytingu texta en á ekki höfundarrétt á hugmyndinni sjálfri...

   Matur er manns/konu gaman... ekki satt?


Ok, Eldur skíðlogaði upp um alla veggi hjá mér í dag - húsið er brunnið en allir heilir á húfi þó, næstum því.

  Húsið mitt stóð í ljósum logum í dag, allt á tjá og tundri - en tölvan slapp ómeidd og órispuð. Hún var það fyrsta sem ég greip í fangið og bar úr í bíl, því næst hljóp ég aftur til að athuga hvort ég gæti náð kerlingunni og kettinum, gullfiskarnir er steiktir en þeir voru svo sem hálf grillaðir líka áður en að brunanum kom. Það munaði ekki miklu á að illa færi, en ég er sáttur. Kerlingin var að fikta með kleinuolíu og það gerist allt svo hratt í svona gömlum timburhúsum. Ég skil hvers vegna svona margir verða eldi að bráð í heiminum - eitthvað að bagsla við að draga kerluna út eftir að hafa komið tölvu og gólfkylfum ásamt flatskjánum og öðru svona týpísku karlahobbýdóti út fyrst.. Æi, svona er lífið.

  Núna er ég að hugsa um að skilja, svona áður en að næsta bruna kemur. Hefði getað bjargað skanna, prentara og fleiru tengdu tölvunni ef ég hefði ekki þurft að hringsóla svona með rykmettaða konuna. Ég ætla að lögsækja hana - en svo sem ekki mikið á því að græða. Getur einhver gefið mér upp góðan skilnaðarlögfræðing? Best væri ef lögfræðingurinn væri kona, helst mikil tölvukerling - svona svipuð áhugamál og ég sko. P.s. ef einhver á afdankaða fatalarfa á hálfútbrunna konu - þá tek ég við því í messunni í Bústaðakirkju á morgun. Ég náði einhverju af mínum fötum og svona því helsta um leið og ég tók tölvuna, en hennar drasl brann niður - var svoddan rusl anyhow..

  Ég er búinn að fá inni hjá frænda mínum sem býr úti á Arnarnesi, allavega í bili. Ég held auðvitað bílnum og tölvunni, sem og fötunum mínum.  Fékk pláss á hjálpræðishernum fyrir þá bökuðu en hún þarf að deila herbergi með 5 Tælenskum konum og 1 Grænlenskri. Hún var eitthvað að röfla um að fá að vera hjá mér á Arnarnesinu, en það kemur ekki til greina segir frændinn - rétt eins og að maður vilji fá brunalykt í svona stórt og flott hús - hún skilur þetta ekki en ég skil vel og er sáttur. Enda þarf hún ekki að hafa áhyggjur þó hún sé á hernum - hún á ekkert sem hægt er að ræna frá henni, svo hvað væll er þetta.. hefur ekki einusinni föt til skiptanna.

  Ég vona að þið hafið lesið þetta allt, með kímni í huga og áttið ykkur á að allt hér fyrir ofan er bara hreinasta bull. Ef ekki - þá fæ ég náttúrulega fullt af commentum út á fyrirsögnina - eins og "ÆÆ, vona að þið séuð tryggð" eða "Gott að þið sluppuð heil og ósködduð úr eldinum" eða álíka.

Ég vona að ég hafi ekki sært tilfinningar neins og auðvitað vona ég að ég verði ekki lögsóttur fyrir að skrökva svona að bloggvinum mínum og öðrum góðum bloggurum. Elska ykkur þrátt fyrir allt, nema kannski Jenný - uppáhaldsnöldurbloggarann minn. Dýrka pirringinn og súmíariverið hennar...

  Before you turn me on fire - and kick the daylight out of my ego.


« Fyrri síða

Höfundur

Tiger
Tiger

Ég eyði fúlum og neikvæðum athugasemdum - svo það er tímaeyðsla að henda slíkum fjársjóð hingað inn. Verð hérna bara í flugumynd - lítið sem ekkert sem sagt. Þýðir ekkert að bíta af mér hausinn þrátt fyrir það...

***

Þakka öllum innlitið, en það er ekki þar með sagt að þú sjáir mig spora út síðuna þína!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 139770

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • jesumynd
  • jesumynd2
  • jesumynd4
  • blómabeðið
  • blómabeðið
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband