Nú á bara að skrá sig formlega inn í pólitíkina, þannig lagað. Sjálfstæðismannalausar ríkisstjórnir næstu áratugi er málið!

Jóhanna Sigurðardóttir Forsætisráðherra.

"Samfylkingin heldur landsfund sinn í Smáranum í Kópavogi helgina 26. -29. mars. Það er sama helgi og landsfundur Sjálfstæðismanna fer fram. 

Í dag stendur yfir Framtíðarþing og er því ætlað að marka upphafið á lokahnykk stefnumótunar sem ná mun hámarki á landsfundinum. Um 300 manns eru á Framtíðarþinginu sem lýkur um þrjúleytið í dag með ræðu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra."

Er að segja ykkur það að ég ætla mér að fara eftir helgi og skrá mig formlega inn í Samfylkinguna! Margir sem ég þekki persónulega - eru að gera slíkt hið sama um þessar mundir og því vil ég líka taka þátt í því að stuðla að "sjálfstæðismannalausum" stjórnmálum á næstu misserum - eða sem lengst helst. Ég myndi aldrei skila auðu - hef aldrei gefið sjálfstæðismönnum atkvæði mitt og mun aldrei gera - og ef eitthvað væri - þá líklega myndi ég skoða VG ef Samfylkingin væri ekki til staðar.


mbl.is Landsfundur Samfylkingar í lok mars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Tiger.

I´ll Love you because your understanding !

Velkominn til baka.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 7.2.2009 kl. 15:17

2 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Ég hef aldrei skráð mig í neinn flokk. En ég nota alltaf atkvæðið mitt og dytti ekki í hug að skila auðu. Fyndist ég vera að styrkja stærsta flokkinn sem í dag er sjálfumglaði flokkurinn og hann fær mitt atkvæði aldrei

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 7.2.2009 kl. 15:23

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ég get alveg kosið flokk þó ég sé ekki skráð í hann og ég get líka kosið einhvern annan flokk en þann sem ég er skráð í... held bara áfram að vera utanflokka Aldrei hef ég samt og mun aldrei kjósa Sjálfstæðisflokkinn, ekki séns í helv....

Annars vil ég geta kosið fólk, ekki flokka !

Jónína Dúadóttir, 7.2.2009 kl. 16:40

4 Smámynd: María Guðmundsdóttir

sammála,vildi helst geta kosid fólk en ekki flokka. Enn meira SAMMÁLA med sjálfstædismannalausa stjórn sem lengst...FOREVER helst bara.

Kvedja og góda helgi

María Guðmundsdóttir, 7.2.2009 kl. 17:46

5 Smámynd: Guðrún Una Jónsdóttir

Samfylkingin já... sjálfsagt ekki svo vitlaust. Sjálfstæðisflokkurinn fær vonandi ekki eins mikið fylgi og skoðanakannanir sýna. Ég held að verði erfitt að ákveða hvar krossinn á að lenda á kjörseðlinum þann 25. apríl.......En við sjáum hvað setur.

Guðrún Una Jónsdóttir, 7.2.2009 kl. 18:45

6 identicon

Nei takk, treysti þeim ekki nema kannski Jóhönnu og tveimur til. Ég vil fá að velja einstaklinga og mun ekki sætta mig við neitt annað, skila auðu til að lýsa vanþóknunn minni þar til því er náð. Ísland er of fámennt til að bera flokkapólitík það er búið að sanna sig svo um munar, ekkert nema klíkuskapur.

(IP-tala skráð) 7.2.2009 kl. 21:18

7 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Góða helgi og hafðu það gott.

Kristín Katla Árnadóttir, 7.2.2009 kl. 22:31

8 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Á meðan Ingibjörg Sólrún, Lúðvik, og margir aðrir eru í samfylkingunni mun ég ekki kjósa hana.  Ég er eiginlega í vandræðum, mér finnst ég ekki geta kosið almennilegt fólk með góð gildi í þessum flokkum sem eru til.  Ég vil sjá nýjan flokk, með almennilegu, venjulegu fólki sem hefur samkennd með öðrum og er ekki spillt.    Ein í klemmu, knús og klemm í þitt hús.. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 8.2.2009 kl. 02:27

9 Smámynd: Brynja skordal

ætla nú bara vera hreinskilin myndi aldrei kjósa  þá flokka sem eru við stjórnvöld núna en hafðu ljúfan sunnudag tiger minn fallegur sunnudagur til að fara út að leika

Brynja skordal, 8.2.2009 kl. 11:09

10 Smámynd: egvania

XD krakkar mínir XD er það eina rétta

Kærleikur til ykkar í þeirri von að þið kjósið það eina rétta

Kveðja Ásgerður

egvania, 8.2.2009 kl. 11:52

11 Smámynd: Tiger

Þórarinn; Luv ya too - and thax.

Sigrún; Einmitt það sem ég gruna - að með auðu sé maður að styrkja stærsta flokkin hverju sinni - þannig að ég myndi aldrei gera slíkt ..

Jónína; Algerlega á sama máli - vil geta kosið fólk en ekki flokka. Sannarlega getur maður kosið aðra flokka en þá sem maður er skráður í - og eins kosið hvað flokk sem er án þess að vera skráður inn í neinn.

Búkolla; Sannarlega satt - ég er líka sammála Jónínu - og satt og rétt að það er til gott fólk í öllum flokkum sem á skilið að fá góða kosningu eitt og sér - líka til gott fólk í sjálfstæðisflokknum - ef maður leitar mjög djúpt.

María Guðmunds; Ójá .. ósjálfstæðismannalausar ríkisstjórnir næstu áratugina bara vonandi!

Guðrún Una; Ég gruna nú að skoðanakannanir séu ekki mjög marktækar sem slíkar - en sannarlega vona ég að sjálfstæðismenn fái sem minnst atkvæði í komandi kosningum!

Sigurlaug; Satt er að það er pólitísk spilling og klíkuskapur um allt í stjórnmálaflokkunum öllum - á einhvern hátt allavega. Hvet þig til að skila ekki auðu - spáðu betur í spilin og leggðu exxið þitt þar sem þú telur að það geti komið best til nota að þínu mati.

Katla; Sömuleiðis, góða helgi!

Helga Valdimars; Gott hjá þér að sleppa XD - vonum bara að það komi þá fram flokkur með góðu fólki sem tengist ekki gamla hrokaflokknum.

Jóna Kolbrún; Æi, veistu - það koma reglulega upp einhverjir nýjir flokkar upp með fersku og flottu fólki - sem eftir augnabliksveru í pólitískum hamagang er orðið samloða hinum spilltu flokkum - og áður en maður veit af - sér maður að það er sama rassgatið á þessu fólki öllu. Lofa alltaf öllu fögru en hvar eru svo loforðin eftir að þau komast til valda ... jú .. undir teppinu.

Brynja; Hafðu líka ljúfan dag - satt að hann er fallegur þó hann sé kaldur!

Egvania; Uss .. skammastu þín addna að skella þessu svona eins og blautri tusku framan í mig - ég fæ hroll þegar ég heyri af einhverjum sem ætlar að exa við D ..   En það er þinn réttur og þín ákvörðun og hana virði ég fullkomlega ljúfan!

Tiger, 8.2.2009 kl. 12:29

12 Smámynd: Sigrún Óskars

á ekki bara að skella sér í framboð - þú ert örugglega góður "kanditat"

Sigrún Óskars, 8.2.2009 kl. 14:53

13 Smámynd: Tiger

Hahaha ... Sigrún - tek þig með mér! Værum frábært teymi sko!

Tiger, 8.2.2009 kl. 15:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Tiger
Tiger

Ég eyði fúlum og neikvæðum athugasemdum - svo það er tímaeyðsla að henda slíkum fjársjóð hingað inn. Verð hérna bara í flugumynd - lítið sem ekkert sem sagt. Þýðir ekkert að bíta af mér hausinn þrátt fyrir það...

***

Þakka öllum innlitið, en það er ekki þar með sagt að þú sjáir mig spora út síðuna þína!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 139743

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • jesumynd
  • jesumynd2
  • jesumynd4
  • blómabeðið
  • blómabeðið
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband