Er maður dæmdur í eitt ár í fangelsi fyrir hverja dónamynd sem maður tælir af öðrum einstakling? 300 myndir = 300 ára fangelsi.

Auga facebook.

Hvernig stendur á því að maður sem ekkert hefur gert af sér - annað en að skrifa hótanir, villa á sér heimildum á netinu og þannig tæla unga skólafélaga til að senda sér myndir - og hóta þeim myndbirtingum (og jafnvel birt einhverjar myndir) - geti átt yfir höfði sér allt að 300 ára fangelsi - á meðan annar maður getur misnotað fjöldann allan af börnum kynferðislega - eyðilagt líf þeirra og fjölskyldna þeirra, aftur og aftur en fær bara stutta og skilyrta dóma ..

Eða morðingjar - menn/konur sem taka líf annarrar manneskju - eru að fá hvað - 1 til 5 ára dóma.

Hvernig í ósköpunum dómskerfi heimsins er uppbyggt er mér ómögulegt að skilja. Þvílíkt hve lífið væri auðveldara ef dómskerfi heimsins væri eins uppbyggt svo að sömu brot hlytu sömu meðferð og sömu dóma um alla heimsbyggðina. Spurning um hvort ekki sé hægt að koma slíku á - að heimurinn myndi laga sig einhvern veginn saman þannig að dómar fyrir sömu glæpi yrðu meira svipaðir um alla jörð.

Það að geta mögulega dæmt mann í allt að 300 ára fangelsi er náttúrulega út úr kú - nema ef um barnanýðing væri að ræða - þá myndi ég skilja dóminn - en fyrir ungling sem er að hóta hægri vinstri og villa á sér heimildir til að fá nektarmyndir .. skilðaekki þó ljótur leikur sé!

Hér fyrir neðan er fréttin af þessu af Mbl.is. Oft nennir maður ekki að elta tengla til að kíkja yfir frétt sem tengt er við svo ég tek þann pólinn að birta fréttina í heild ásamt tenglinum.

"Átján ára bandarískur skólapiltur hefur verið ákærður fyrir að hafa villt á sér heimildir á Fésbók með því að hafa þóst vera stúlka og hafa gabbað 31 skólabróður hið minnsta til að senda sér nektarmyndir af sér og reynt að kúga þá til kynferðisathafna.

Var Anthony Stancl ákærður í gær fyrir að táldraga börn en hann er einnig ákærður fyrir sprengjuhótun. Er ákæran í fimm liðum. Lögfræðingur Stancl segir að hann muni neita sekt í málinu og reyna að ná sátt. 

Stancl var yfirheyrður í nóvember 2007 vegna sprengjuhótana sem hann var ásakaður um að hafa sent kennurum og skrifaði um á veggi salernis í skóla sínum, New Berlin Eisenhower Middle and High School. 

Samkvæmt ákærunni á Stancl að hafa haft samband við samnemendur á Fésbók það sama ár og þóttist hann heita Kayla í sumum tilvikum en Emily í öðrum. Segja piltarnir að þeir hafi verið tældir til þess að senda stúlkunni sem þeir kynntust á Fésbók nektarmyndir af sér eða myndbönd.  

Kennsl hafa verið borin á 31 pilt sem sendi Stancl slíkar myndir og yfir helmingur þeirra segir að stúlkan sem þeir hafi kynnst hafi reynt að fá þá til að hitta karlkynsvin og heimila honum að eiga kynmök við þá.

Var þeim sagt að ef þeir gerðu ekki það sem hún bað um þá myndi hún senda nektarmyndirnar eða myndböndin til vina þeirra og myndirnar yrðu síðan vistaðar á netinu. Í einhverjum tilvikum tókst Stancl ætlunarverk sitt samkvæmt ákærunni. Alls fundust um 300 nektarmyndir af ungum piltum í tölvu Stancl en þeir yngstu eru 15 ára gamlir.

Ef Stancl verður fundinn sekur á hann yfir höfði sér allt að 300 ára fangelsi." 


mbl.is Ákærður fyrir kynferðisbrot á Fésbók
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

300 ár !!

Það er ansi harkalegt

Ragnheiður , 5.2.2009 kl. 13:55

2 identicon

Ef hann er 18 ára, hefur hann sjálfur verið undir lögaldri 2007. Mér sýnast þetta vera jafnaldrar hans, alla vega allir börn þegar brotið er framið. Hvað með að gefa annan sjens.. kooománn. 300 ár!

Guðjón Atlason (IP-tala skráð) 5.2.2009 kl. 14:37

3 Smámynd: Promotor Fidei

Það eru engar fréttir að Bandaríkjamenn geta veirð miklir fasistar þegar kemur að kynferðisbrotum.

Og engar fréttir heldur að þar eru unglingar oft að fá þunga dóma fyrir það sem á Íslandi myndi verða afskrifað sem venjulegt fikt og kjánaskapur ungs fólks. Aron Pálmi bara eitt dæmi af mörgum þúsundum.

Það eru heldur engar fréttir að það er álitið alveg sérlega skelfilegt ef að "brotin" hafa eitthvað að gera með samkynhneigð.

Grey fólkið.

Promotor Fidei, 5.2.2009 kl. 15:24

4 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Það er með ólíkindum hvernig sumir dómar eru, sérstaklega í Bandaríkjunum. Barnaníðingar ættu að fá þunga dóma. En það sem er hægt að skrifa á kjánaskap krakka við jafnaldra sína...það hlýtur að vera hægt að gefa því fólki annað tækifæri og áminningu.

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 5.2.2009 kl. 15:32

5 Smámynd: Tiger

Já Ragnheiður - sannarlega skelfilegt ef drengurinn verður tekinn af lífi hreinlega fyrir svona greddufikt, nær væri að senda hann í meðferð eða eitthvað álíka þar sem hægt er að gefa ungum heila hans grein fyrir því hve alvarlegt það er að villa á sér heimildum og einnig hve alvarlegar afleiðingar það getur haft að hóta eða birta myndir af öðrum á netinu...

Gaui; Jú, mér finnst þetta einum of hart að honum gengið og vona bara að vel verði hugað að því hvernig niðurstaðan verður - líka á hann.

Promotor; það er sannarlega satt og rétt að Bandaríkjamenn eru ótrúlegir hvað svona lagað varðar - og sér í lagi hvað samkynhneigð varðar að því er virðist. Sannarlega er Aron Pálmi eitt dæmið um fáránlega dóma þarna ytra.

Sigrún; Já, áminningu og tækifæri - en samt gera þeim að skyldu að mæta í meðferð þar sem huga þeirra verður gerður grein fyrir alvarleika málsins og jafnvel láta hann standa auglits við einhverja sem hafa sannarlega farið illa út úr myndbirtingum á netinu eins og hann var að hóta. Það má sannarlega taka hart á honum fyrir hótanir og fyrir að villa á sér heimildum með þeim afleiðingum sem slíku fylgir - en 300 ár er bara broslega fáránlegt í Bandarísku dómskerfi.

Enda, til hvers er hægt að dæma fólk í 300 ár yfir höfuð - meina - við lifum ekki nema einhver 100 í það mesta ...

Tiger, 5.2.2009 kl. 16:00

6 identicon

"Kennsl hafa verið borin á 31 pilt sem sendi Stancl slíkar myndir og yfir helmingur þeirra segir að stúlkan sem þeir hafi kynnst hafi reynt að fá þá til að hitta karlkynsvin og heimila honum að eiga kynmök við þá.

Var þeim sagt að ef þeir gerðu ekki það sem hún bað um þá myndi hún senda nektarmyndirnar eða myndböndin til vina þeirra og myndirnar yrðu síðan vistaðar á netinu. Í einhverjum tilvikum tókst Stancl ætlunarverk sitt samkvæmt ákærunni. Alls fundust um 300 nektarmyndir af ungum piltum í tölvu Stancl en þeir yngstu eru 15 ára gamlir."

Þýðir þetta ekki að einhverjum þeirra var þröngvað til að hafa kynmök við annan karmann?

Dísa (IP-tala skráð) 5.2.2009 kl. 16:28

7 Smámynd: Tiger

Reyndar las ég þennan kafla eitthvað vitlaust og ætlaði að honum hafi tekist að birta myndir í einhverjum tilfellum - en greinilega hefur honum tekist að fá einhverja piltana til að hitta "vininn" og leika við hann. En, engu að síður - 300 ár ...

Tiger, 5.2.2009 kl. 17:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Tiger
Tiger

Ég eyði fúlum og neikvæðum athugasemdum - svo það er tímaeyðsla að henda slíkum fjársjóð hingað inn. Verð hérna bara í flugumynd - lítið sem ekkert sem sagt. Þýðir ekkert að bíta af mér hausinn þrátt fyrir það...

***

Þakka öllum innlitið, en það er ekki þar með sagt að þú sjáir mig spora út síðuna þína!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • jesumynd
  • jesumynd2
  • jesumynd4
  • blómabeðið
  • blómabeðið
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband