Mannleg og hlýleg hlið Bessastaða. Er forsetafrúin sextán eða er hún nær fimmtugu - eða er hún orðin fimmtug?

Segi ykkur það að hún kemur sífellt á óvart þessi elska.

forsetafrúin

Man þá tíð er hún tiplaði á tánum - með stjörnur í augunum - nýlega orðin húsmóðir að Bessastöðum, kallandi úr eldhúsinu;

"Óli, Óli .. Hvar ertu Óli?"

Sé í minningunni Forseta okkar labba inn í eldhúsið með bros á vör sem hefði hæft vel í áttina að sextán ára yfirspenntum ungling sem var að fara að taka sinn fyrsta ökutíma - en ekki húsmóður lands og þjóðar.

"Já Dorrit mín, ég er hér"..

"Óli, heldur þú að það sé ekki í lagi að taka afgangana af skötuselnum og setja í frost ef hann klárast ekki allur á eftir? Hann er svo bragðgóður, hreinasta lostæti!"

Málið var nefnilega að háæruverðugur var staddur við eldavélina í eldhúsi Bessastaða og var að steikja skötusel í kókosolíu, eitthvað sem mér finnst algert konfekt - og greinilega frú Dorrit líka. Hún hafði komið inn í eldhúsið með eitt ljúfasta og hreinasta bros sem ég hef nokkurn tíman séð á einhverjum sem í raun tilheyrði "elítunni" en ekki almúganum, boy was i wrong að halda að hún liti stórt á sig og væri snobbhænsn...

Ólafur gekk að forsetafrúnni, tók blíðlega um mitti hennar og þrýsti henni hlýlega að sér..

"Jú Dorrit mín, það er ekkert mál að setja eitthvað í frost ef eitthvað verður eftir" sagði hann og brosti blikkandi til kokksins .. sem steinlá fyrir þessum tveim ljúfu manneskjum sem að mati kokksins hafa fært steingeldan fjaðraskrautsbæ nær fólkinu í landinu með því að vaða yfir ákveðnar hefðir og reglur - forsetaembættið sjálft er komið nær fólkinu í landinu en það hefur nokkurn tíman verið.

P.s. megnið af samtali þeirra fór fram á ensku en með íslensku ívafi.


mbl.is Dorrit: Ísland verði svalari útgáfa af Dubai
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Hún er svo mikil skvetta, og algjör dúlla.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 2.2.2009 kl. 14:15

2 Smámynd: Ragnheiður

Yndisleg saga, takk tiger fyrir þetta

Ragnheiður , 2.2.2009 kl. 14:28

3 Smámynd: Tiger

 Lilja Guðrún; Já, það er heilmikið til í því - hún er skvettudúlla kerlingin.

Ragnheiður mín; Gaman að sjá þig og ekkert að þakka.

Takk báðar fyrir innlit hjá mér ..

Tiger, 2.2.2009 kl. 14:33

4 Smámynd: Tiger

  Hey búkolla; You´re so blaming right luv ...

Tiger, 2.2.2009 kl. 14:49

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Hún er allra og ekki snobb það þekkja þeir sem hittu hana á Ísafirði skoppandi úti á morgnanna, (Ólafur örugglega steinsofandi) segjandi halló við alla,
Hún er flott þessi stelpa.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 2.2.2009 kl. 15:22

6 Smámynd: Tiger

  Millan mín; Já, þar er henni rétt lýst - skoppandi um allt með glettni og stjörnublik í augum, brosandi og með hlýleg orð til allra sem henni mæta. Hún er flott - ekkert flókið við það ..

Tiger, 2.2.2009 kl. 15:24

7 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Hún er mjög sérstakur persónuleiki, hún Dorrit.  Skemmtileg, hress og ófeimin.  Skvettugangurinn er bara plús hjá henni, gott mótvægi við Ólaf.   

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 2.2.2009 kl. 15:28

8 Smámynd: Tiger

  Já Jóna, hún er einmitt frábær mótpartur fyrir Ólaf sem er svona hægur og rólegur kappi. Hún er einmitt töffaralegat mótvægi við karlinn ..

Tiger, 2.2.2009 kl. 15:50

9 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

held hún sé orðin 17?

Brjánn Guðjónsson, 2.2.2009 kl. 16:18

10 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Hún er bara yndisleg manneskja hún Dorrit. Alþýðleg og flott kona.

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 2.2.2009 kl. 16:35

11 Smámynd: Guðrún Una Jónsdóttir

Glæsileg kona hún Dorrit og sagan er ljúf :-)

Guðrún Una Jónsdóttir, 2.2.2009 kl. 17:13

12 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Mér finnst hún bæði falleg og góðleg og skemmtilegur fjörkálfur

Jónína Dúadóttir, 2.2.2009 kl. 17:19

13 Smámynd: María Guðmundsdóttir

Hún er yndisleg, elska hennar fleygu ord " Ísland er stórasta land i heimi"  fékk bara gæsahúd thegar ég sá thad i sjónvarpinu, kom alveg frá hjartanu og held thad lýsi henni vel.

Frábær frásøgn, gaman ad "heyra" svona hlidar af lifinu á Bessastødum  takk fyrir thad. Hafdu góda viku kæri minn, knús og kram hédan

María Guðmundsdóttir, 2.2.2009 kl. 18:14

14 Smámynd: Tiger

  Boxari góður, það gruna ég líka. Tel að hún hafi flogið yfir seventeen áður en hún flaug yfir Óla ..

Sigrún; Satt og rétt skrifað hjá þér - yndisleg, alþýðleg og flott kona hún Dorrit!

Guðrún Una; Takk fyrir, já glæsileg forsetafrúin okkar..

Jónína Dúa; Svei mér þá ef það er ekki bara eitthvað líkt með þér og henni .. haha.. fjörkálfurinn þinn góði.

María Guðmunds; Einlæg og heavý krútt .. það er hún sannarlega. Mannlegu hliðarnar gleymast oft þegar um opinberar manneskjur er að ræða, en auðvitað verða þær mannlegu að fylgja með stundum ..

Tiger, 2.2.2009 kl. 21:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Tiger
Tiger

Ég eyði fúlum og neikvæðum athugasemdum - svo það er tímaeyðsla að henda slíkum fjársjóð hingað inn. Verð hérna bara í flugumynd - lítið sem ekkert sem sagt. Þýðir ekkert að bíta af mér hausinn þrátt fyrir það...

***

Þakka öllum innlitið, en það er ekki þar með sagt að þú sjáir mig spora út síðuna þína!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • jesumynd
  • jesumynd2
  • jesumynd4
  • blómabeðið
  • blómabeðið
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband