Enn skelfur jörð fyrir austan!

ugglyest1Ekkert lát virðist ætla að verða á jarðskjálftunum - en núna rétt áðan varð eitt stykki á Hellisheiðinni uppá 4-5 stig á Richter.

Þessi fannst á höfuðborgarsvæðinu meðal annars. Reyndar fann ég ekkert fyrir þessu en var bara að lesa um skjálftann. Vonandi fer þetta nú að hætta, skelfilegt fyrir fólk þarna fyrir austan að búa við þessi læti.

Það eru þónokkur hús sem nú teljast ónýt eða um það bil ónýt - hvað sem það þýðir - annað hvort eru hús ónýt eða ekki. Ljótast af öllu er þó að það hafa borist fréttir af því að óprúttnir aðilar eru farnir að gera vart við sig þarna fyrir austan - og eru að stela úr yfirgefnum húsum. Það er sko ekki beint til fyrirmyndar og ættu viðkomandi að skammast sín fyrir ljótleikann!


mbl.is Snarpur kippur á Hellisheiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

-Eru þá engin takmörk fyrir því hversu lágt er hægt að leggjast?

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 2.6.2008 kl. 19:13

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hæ dúllan mín.  Hér er erfitt að vera, takk fyrir að fylgjast með okkur. Knús

Ásdís Sigurðardóttir, 2.6.2008 kl. 19:25

3 Smámynd: María Guðmundsdóttir

já alveg var thetta nú nóg thótt bætist svo ekki vid. Aumingjans fólkid bara.

og já,alltaf skrída skriddýrin upp thegar svona ber undir..koma undan øllum steinum bølvud greinilega ekkert heilagt i theim efnum.

Gódan dag til thin,knus og krammar

María Guðmundsdóttir, 2.6.2008 kl. 19:33

4 Smámynd: SigrúnSveitó

Er þetta rétt??!! Rosalega getur fólk verið óprúttið og ósvífið!

SigrúnSveitó, 2.6.2008 kl. 19:35

5 Smámynd: M

Á fólk nú ekki nógu erfitt fyrir austan, svo óprúttnir aðilar séu ekki að valsa um skemmdar eigur þeirra

M, 2.6.2008 kl. 20:10

6 Smámynd: Hansína Hafsteinsdóttir

Ég er bara orðlaus, stela úr yfirgefnum hús þvílíkt pakk 

Hansína Hafsteinsdóttir, 2.6.2008 kl. 20:23

7 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Við dóttir mín vorum ósammála hvort um skjálfta væri að ræða eða að hún hefði rekið sig í eldhúsborðið. Hún var að leggja sig rétt í þessu og ég opnaði tölvuna og sá að ég hafði rétt fyrir mér. Að sjálfsögðu var hún hrist hressilega og mamma sagði henni að hún hefði SKO haft rétt fyrir sér. Hún játaði sig sigraða og sofnaði strax aftur! ..

Æ vonandi verður nú ekki meira úr þessu...

Knús og krams.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 2.6.2008 kl. 20:33

8 Smámynd: Helga skjol

oj hversu lágt getur fólk lagst fussum svei seigji ég bara ef satt reynist.

Risa knús á þig ljúfastur

Helga skjol, 2.6.2008 kl. 21:20

9 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Mikið andsk... getur fólk verið ómerkilegt ef það er komið á stjá til að stela frá þeim sem hafa þurft að flýja heimilin sín.

- Það á að handtaka svona fólk, og setja stimpil á ennið á þeim, með orðinu ÞJÓFUR öðrum til viðvörunar, og þeir eiga ekki að geta þvegið stimpilinn af sér.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 2.6.2008 kl. 21:23

10 Smámynd: Tiger

  Æi já .. það eru alltaf jafnmikil vonbrigði þegar maður heyrir af vosku manna - að geta lagst svo lágt að stela frá þeim sem standa í svona erfiðleikum! Hversskonar hjarta er svona fólk með - ef það er þá með hjarta?!

Knús á ykkur öll elskurnar og vonum bara að þeir óprútnu náist og hegnist fyrir svona ljótan verknað.

Tiger, 2.6.2008 kl. 22:26

11 Smámynd: JEG

Já sumir lifa á því að stela. Ljúga og svíkja.

Vona að þú sért heiðarlegur því það er það besta í fari fólks. Knús á þig sæti.

JEG, 2.6.2008 kl. 22:26

12 identicon

Það víbrar ekki neitt í Klettaborg skal ég segja ykkur.  Það er allt með kyrrum kjörum hjá mér.

ég er komin heim, og það er himnasæla að vera hér og njóta þess að finna kyrrð og ró.

Ljótt er að heyra af svona óprúttnu fólki, ég vona bara að það skammist sín til að bæta fyrir brot sín.

Guðrún B. (IP-tala skráð) 3.6.2008 kl. 01:43

13 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Það er ótrúlegt að þjófar hafi verið á ferð til þess að ræna samborgara sína sem hafa kannski misst næstum aleigu sína, þessu fólki er ekkert heilagt  

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 3.6.2008 kl. 01:49

14 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Það eru bara viðurstyggilegir karakterar sem gera svona lagað,
eða kannski ferlega veikir, hvað veit maður? svo sem ekki neitt.
En vonandi er þetta búið.
Knús kveðjur Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 3.6.2008 kl. 06:23

15 Smámynd: Tína

Sumi fólki er bara því miður ekki viðbjargandi. En varðandi það að sum hús séu um það bil að verða ónýt þá held ég svei mér að mitt sé eitt af þeim, en ég er búsett á Selfossi. Eftir skjálftann á fimmtudaginn þá virtist eingöngu innbúið hafa eyðilagst. Á föstudaginn sá ég að sprunga hefði myndast í gólfið eftir endilöngu húsinu. Á laugardaginn var ég farin að sjá enn meiri sprungur um alla veggi. En svo var mér allri lokið á sunnudaginn þegar ég tók eftir því að panelklætt loftið í forstofunni var farið að gliðna ískyggilega. Hef ekki farið heim síðan þannig að ég veit ekki hvernig ástandið er þar núna. Vonum bara það besta. Ef þjófur fer inn á mitt heimili meðan ég er í burtu þá er ég hrædd um að hann sé að fara fýluferð  Ekki mikið eftir þar nefnilega.

Hafðu það gott í dag Tigercopper

Tína, 3.6.2008 kl. 06:46

16 Smámynd: Tína

Snöggvast að öðru - þessu málið algjörlega óviðkomandi. En ég bætti þig við sem bloggvin því ég er búin að lesa undanfarnar færslur hjá og er að fýla húmorinn í ræmur. Og getur maður lengi á sig blómum bætt. Og manni veitir aldrei af að kitla hláturtaugarnar sérstaklega núna upp á síðkastið.

Tína, 3.6.2008 kl. 07:07

17 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Oj, ógeð getur sumt fólk verið

Jónína Dúadóttir, 3.6.2008 kl. 07:24

18 Smámynd: Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir

Það er alveg með ólíkindum hvað sumt fólk getur lagst lágt!

Er ósköp fegin að búa hér fyrir vestan núna.....

Vona bara að þessum látum fari að linna!

Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 3.6.2008 kl. 08:30

19 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Vonandi að þessu fari að linna svo fólk geti farið aftur að lifa eins eðlilegu lífi og hægt er eftir þessar hremmingar. Verð að segja að ég varð ekkert hissa þegar ég las um að fólk væri að ræna auðu húsin. Fólk getur verið svo ómerkilegt að það tekur engu tali.

Helga Magnúsdóttir, 3.6.2008 kl. 11:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Tiger
Tiger

Ég eyði fúlum og neikvæðum athugasemdum - svo það er tímaeyðsla að henda slíkum fjársjóð hingað inn. Verð hérna bara í flugumynd - lítið sem ekkert sem sagt. Þýðir ekkert að bíta af mér hausinn þrátt fyrir það...

***

Þakka öllum innlitið, en það er ekki þar með sagt að þú sjáir mig spora út síðuna þína!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • jesumynd
  • jesumynd2
  • jesumynd4
  • blómabeðið
  • blómabeðið
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband