Fyrir þá sem ganga í svefni.. skot í myrkri!

wrong turn

Ok, það er ekki eins og ég hafi tekið ranga beygju einhvers staðar - en þetta getur náttúrulega komið fyrir hven sem er!

Eins gott að sofa bara alla nóttina þegar maður er eins ruglaður og þessi náungi - enda ólíklegt að morgunmaturinn hans eigi eftir að bragðast vel miðað við mynd.

 

En, ég hef ekki verið á blogginu í dag eða lítið bara síðan í gærdag. Verð ekki á ferðinni núna heldur því ég er með gesti sem ég vil ekki skilja eftir í reiðuleysi. Ekki gott að láta gesti ganga um eina því maður veit aldrei uppá hverju þeir taka sko.. *flaut*..

Ég verð hugsanlega ekki hérna fyrr en annaðkvöld á bloggrúntinum - en hver veit.. ég mun allavega ekki kvittast mikið fyrr en annaðkvöld allavega.

Það hefur líka verið mikið um að vera, stór veisla sem er í undirbúningi vegna útskrifta og ég að vinna í slíkum uppákomum náttúrulega.

Ætla bara að bjóða ykkur góðrar nætur og vona að þið hafið það yndislegt kæru vinir, saknið mín nú pínulítið - eða kannski bara helling - jamm það er miklu betra. Faðmlag út í loftið ..

   .... P.s. Ég sagði ykkur það! Júróbandið vann sig uppúr forkeppninni! Hef heilmikla trú á þeim Friðrik og Regínu - enda stórglæsileg bæði tvö!

 ....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Sko einn sonur minn var skæður með þetta. Hann pissaði á eldhússtól. Einu sinni vaknaði systir hans við að hann miðaði á hana, eiginlega á nebbann á henni og hún rak upp þvílíkt öskur. Það dugði, snáðinn skottaðist á réttan stað til að spræna.

Sakna þín helling....faðmlag til baka

Ragnheiður , 22.5.2008 kl. 23:59

2 Smámynd: Steingrímur Helgason

Kví nótera ég þig ~myndarlegri~ í dag, en þú varzt í gær ?

Steingrímur Helgason, 23.5.2008 kl. 00:00

3 Smámynd: Brynja skordal

Var nú einu sinni stödd í partíi og allt í einu stendur einn gæinn upp hafði sofnað eftir mikla drykkju og hann strunsar beint að stóru flottu blómi sem var í flottum potti og tekur út sprellan og pissar var ekkert að pæla þótt við sem þar sátum fengum kast og hlóum mikið hann bara lagðist til svefns aftur sæll og ánægður eftir að hafa vökvað blómin minnir nú að því hafi verið hent skil það nú ekki hin fínasti áburður með smá áfengiskeim jújú þín verður saknað en verðum að deila þér með húsgestum þínum minn kæri hafðu það ljúft og góða nótt Flottur á myndinni

Brynja skordal, 23.5.2008 kl. 00:09

4 Smámynd: G Antonia

hehe!!! ég á nú þrjá syni og enginn hefur náð þetta langt að "pizzzza" inn í ísskáp
Ég sé þú ert alltaf að eldast (og þroskast) myndrænt... bara GLÆSI strákur og var svo sem ekki von á öðru. Gaman að hafa þig svona aðeins eldri.... ( þetta er þú eða hvað ?) hehe!!! jújú!...
Ég verð nú að segja eins og er.....það er ekkert gaman ef þú ert ekki hér... og ekkert blogg frá þér né comment, þá vantar MARGT...... Takk fyrir að vera "til" bloggvinur. Enjoy life"
Áfram Eurovision.... sinntu gestunum og veizlunni og hlakka til að sjá þig á ný!
knús yfir hafið...**

G Antonia, 23.5.2008 kl. 00:21

5 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Sem betur fer kannast ég ekki við svona vandamál, glæsileg mynd af ungum manni sem þú hefur sett inn hjá þér

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 23.5.2008 kl. 00:58

6 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Það eru áreiðanlega til margar sögur af svefndrukknum fullorðnum börnum. - En hvað þetta er myndarlegur ungur maður á myndinni sem þú hefur tyllt niður þarna efst til vinstri í horninu ! Þú sérð hana ef þú lítur snöggt NÚNA!

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 23.5.2008 kl. 01:19

7 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Góða skemmtunSakna þín ? Hm.. jú líklega

Jónína Dúadóttir, 23.5.2008 kl. 06:07

8 Smámynd: María Guðmundsdóttir

hahaha.,..já thetta er frekar erfitt ad eiga vid..veit um einn sem pissadi i kommóduskúffuna frammi á gangi..

En já, FRÁBÆRT hjá Fridrik og Regínu i gær,thau voru BARA flottust af øllum fannst mér og er ég audvitad algerlega hlutlausen eigdu góda helgi , knus og krammar til thin

María Guðmundsdóttir, 23.5.2008 kl. 06:58

9 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég hélt ég væri komin með nýjan bloggvin en þá varst þetta þú búinn að eldast svona þá líka hratt! Glæsilegur ungur maður þú bara eldist nokkuð vel Tící minn

Njóttu þín með gestum en þín verður saknað

Huld S. Ringsted, 23.5.2008 kl. 07:59

10 Smámynd: Solla Guðjóns

Þú hefur fullorðnast heilmikið og ert alger súkkulaðigaur....Flott mynd af þér þarna eða ert þetta ekki þú ???

Ég argaði mig hása og illt í háls í gærkvöldi þegar heyrðist Iceland.Þau voru óendanlega flott og kröftug á sviðinu og ekkert smá spenna fyrir annað kvöld....nú finnst mér gaman

Knús á þig stóri strákur.

Fann þig ekki í  fyrstu tilraun á meðal bloggvina

Solla Guðjóns, 23.5.2008 kl. 09:38

11 Smámynd: JEG

Helló sæti maður !

Hehehe... ég hef nú sloppið við þetta vandamál. En hér á bæ er annað vandamál. Mínir drengir sofa svo fast og þá sérstaklega sá yngri að það er vandamál og sé ég ekki fram á að hann hætti með næturbleyju í bráð. Sá stóri aftur fer jú á wc en hvort hann hittir á helv... klósettið er svo annað mál  Pínu orðin þreytt á klósettþrifum sko.

Jarmandi kveðjur úr sveitinni.

JEG, 23.5.2008 kl. 10:14

12 Smámynd: M

Þú hefur verið diskó gæi í denn Eða er þetta ekki "gömul" mynd af Þér ?

Eigðu góða helgi

M, 23.5.2008 kl. 10:24

13 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Hvaða súkkulaðigæi er á myndinni þinni ? ... hvaða árgerð er Tigercopper ? Ein forvitin ????????..

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 23.5.2008 kl. 11:13

14 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Bara til að forðast misskilning þá er ég ekki að spyrja um gaurinn sem er að pissa inn í ísskápinn!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 23.5.2008 kl. 11:14

15 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Bróðir minn pissaði ætíð er hann var mjög þreyttur í fatahengi sem var við hliðina á Wc inu. En Tiger míó þú ert æði á þessari mynd getur þú ekki súmað hana betur inn svo við getum séð hvort þetta sé einhver leikari eða þú sætastur. Sakna þín en skil ef þú ert að vinna.
                           Knús kveðjur
                                 Milla.  Beating Heart 





Guðrún Emilía Guðnadóttir, 23.5.2008 kl. 14:36

16 Smámynd: Jac Norðquist

Hahahahaha ég bara VISSI að þetta værir þú minn kæri !!! Var sko búinn að lesa það út úr skrifunum þínum og svo kannaðist ég ekkert smá við mynda af þér svona litlum og krúttlegum. Kærar kveðjur

Jac "Bói" Norðquist

Jac Norðquist, 23.5.2008 kl. 17:54

17 identicon

Knús, kreistur og kremj á þig og þína gesti... sakna þín ógurlega, langt síðan ég hef almennilega séð þig.

Þú ert bestastur flottastur og allt hitt líka.

Knúsa þig í klessu ...

Guðrún B. (IP-tala skráð) 23.5.2008 kl. 18:25

18 Smámynd: Sigrún Óskars

Ég hef líka fulla trú á Regínu og Friðriki - þau nutu sín í botn á sviðinu og eiga eftir að rúlla þessu upp.

Þú ert flottur TC og ég knúsa þig líka í klessu

Sigrún Óskars, 23.5.2008 kl. 22:04

19 identicon

Flott mynd

Knús og ofurskutlukveðja

Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 23.5.2008 kl. 22:23

20 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Bíddu í mynd.  Eretta þú einusinni?

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.5.2008 kl. 22:46

21 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ætla bara að segja þér smáviðbót frá því í gær,það skiptir engu máli hvernig þú lítur út, þú ert bara æðisleg persóna, allt sem þú talar til okkar er svo yndislegt
og mun ég ætíð hugsa um þig sem vin Tiger minn.
                             Knús kveðja til þín og þinna.
                                Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 24.5.2008 kl. 08:20

22 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll og blessaður.

Við höfum verið að hittast annað slagið á bloggi hjá sameiginlegum vinum okkar. Ég var á blogginu hjá Brynju okkar og sá að þú vars búinn að skipta um mynd. Fallegt barn búið að breytast í svaka töffara.

Fyndin færsla. Blessaður karlinn, þokkalega vel ruglaður.

Guð veri með þér og þínum skemmtilegi Tigercopper. Bráðum fáum við nafnið þitt og svo einn daginn kem ég með mynd af mér í staðinn fyrir þessa sem ég fann á bloggi hjá Gylfa bloggvinar míns.

Kær kveðja/Rósa 

Rósa Aðalsteinsdóttir, 24.5.2008 kl. 10:03

23 Smámynd: Tiger

   

Þið eruð alveg ótrúlega dásamlegur hópur sko! Hvernig á maður eiginlega að svara svona yndislegum commentum á sjálfan sig og sína persónu?? Það er varla hægt öðruvísi en að segja bara - takk þið eruð algerir gullmolar mínir kæru bloggvinir!!!

Myndin af mér er gömul - jamm. Ég er sirka 18 ára á henni, alger diskókappi sem elskaði fátt meira en að vera dansandi um allar tryssur. Hopp og skopp með vinum og vinkonum um allt - en án áfengis samt (byrjaði að smakka það um tvítugt en hætti því að mestu einhverjum tíu árum síðar og fæ mér bara bjór stöku sinnum nú orðið)..

Omg .. ég næ því ekki hvað þið commentið fallega á mig þarna prakkararnir ykkar - en viðurkenni að ég er mjög glaður sko!

Ég sit hérna roðnandi og knúsandi ykkur öll í tætlur - í huganum, og nú fer ég að kíkja á ykkur því ég hef svo lítið verið online í gær og stuff... luv ya guys!!!

Tiger, 24.5.2008 kl. 14:03

24 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.5.2008 kl. 14:30

25 Smámynd: Tiger

 Takk Jenný mín, þú ert the sweetest ...

Tiger, 24.5.2008 kl. 14:46

26 Smámynd: Brynja skordal

þú átt öll þessi fallegu komment skilið krútt hafðu ljúft júró kvöld

Brynja skordal, 24.5.2008 kl. 16:01

27 Smámynd: Huld S. Ringsted

Huld S. Ringsted, 24.5.2008 kl. 16:14

28 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Tigercopper.

Sammála Brynju vinkonu minni. Þú ert svaka sætur þarna. Stelpurnar hljóta að hafa verið brjálaðar í þig.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 24.5.2008 kl. 18:17

29 Smámynd: Tiger

  Brynja, Huld og Rósa mín .. takk fyrir ljúfurnar mínar. Yndislegar eruð þið. Auðvitað var maður alltaf eitthvað að skottast í vinkonum sínum í den, nema hvað sko! Fátt vissi ég skemmtilegra en að kela og knúsast - og knúsa ég ykkur hér með sem sönnun fyrir því ... *knúsípúsí*.

Tiger, 24.5.2008 kl. 18:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Tiger
Tiger

Ég eyði fúlum og neikvæðum athugasemdum - svo það er tímaeyðsla að henda slíkum fjársjóð hingað inn. Verð hérna bara í flugumynd - lítið sem ekkert sem sagt. Þýðir ekkert að bíta af mér hausinn þrátt fyrir það...

***

Þakka öllum innlitið, en það er ekki þar með sagt að þú sjáir mig spora út síðuna þína!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • jesumynd
  • jesumynd2
  • jesumynd4
  • blómabeðið
  • blómabeðið
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband