Vonandi kemur smá kuldatíð með miklum snjóum, mikilli ófærð og látum núna í lok Apríl...

veturmyndÞá hefur vetur konungur sungið sitt síðasta, sennilega. Næsta víst er að ég fékk ekki nógu mikið af snjó í vetur, nema bara af myndum frá bloggvinum mínum - þá kannski sérstaklega vetramyndir frá okkar kæru Queen Ásthildi, drottningu af Vestfjarðarríki! Einnig fengum við skemmtilegan skammt frá Ólínu þar sem hún var á björgunarsveitaæfingum í vetur. Einhverjir hafa líka aðrir skellt inn góðum myndum úr ríki veturs konungs og kann ég þeim líka þökk fyrir það.

Ég er mikið fyrir snjó og læti, elska skafla og ófærð - líkt og ég hef eitthvað bloggað eða athugasemdast um í vetur. Nú er sá kaldi á undanhaldi - þannig séð.

 

sumarhusid

 Nú er sumarið mætt á svæðið. Reynda er þegar kominn ákveðinn vorilmur í loftið hérna á höfuðborgarsvæðinu, maður finnur það vel á morgnanna og reyndar á kvöldin líka. Slatti af gróðri hefur þegar byrjað að kíkja uppúr kaldri jörð og brosa nú gleðilega framan í hækkandi sól og birtumeiri dögum.

Nú er tími til að huga að útiverkum, sinna trjáklippingum og huga að umhverfinu sem og bara sumarbústaðnum. Ég læt að mestu svoleiðist hamagang í hendurnar á öðrum, enda nóg að gera á öðrum vígstöðvum hjá mér þó ég bæti þessum hamagangi ekki líka á mig. Nú og taka út grillið og fægja það, undirbúa sólpallinn og taka fram sumarborðið.

 

situppiafjalli

 

Það sem mér finnst mest heillandi við sumartímann er að fara á fjöll, sitja langt uppi á fjalli og hlusta á - ekki neitt. Jú, kannski fuglana og lækjarniðinn sem skoppar niður eftir fjallinu. Ég gerði þetta oft sem lítill pjakkur, fór á fjöll og sat á toppinum - og horfði yfir bæ og borg - eins og konungur í ríki mínu virti ég fyrir mér það sem fyrir neðan mig lá svo fallegt. Ég dýrka einmitt svona aðstæður, náttúruna og kyrrðina - fátt annað en náttúruleg hljóð og söngur - eða garg fuglanna.

 

sumartindur

Já, sumartoppurinn núorðið er reyndar ekki bjartur og útsýnið ekki par glæsilegt. Oftast er ég að vinna alla daga út í gegn allt sumarið og hef gert undanfarin ár. Stundum tek ég mér ekki einu sinni einn dag frí yfir sumarmánuðina. En ég fæ samt mitt sumar, kemst daglega út seinnipartinn og nýt kvöldsólarinnar. Svo fer ég ætíð til heitari landa þegar hausta fer og fæ mínar sólbaðsstundir svo vikum skiptir.

Munið nú kæru bloggarar - að ganga inn í nýtt sumar með fallegu hugarfari og ljúfleika að leiðarljósi. Veturinn kvaddi og sumarið heilsaði - núna um miðnætti. Vonandi verður sumarið eins rólegt og yndislegt og við vonumst auðvitað öll eftir.

 

j0323740

Friður og gleði fylgi ykkur í sumar og sól góðu vinir og bloggarar. Vonandi fáið þið gott sumar og ljúft veður, hvar sem þið verðið stödd. Munið líka að taka saman höndum um að gera daga ykkar nánustu gleðilega, grillið saman, ferðist saman, veiðið saman, farið í sólbað saman og gerið allt þetta ljúfa sumarlega saman. Maður veit aldrei hvenær maður á síðasta sumarið með sínum nánustu, notum sumarið vel og látum eins og það sé okkar síðasta í þeim skilningi að gera saman hluti með þeim sem eru okkur næstir.

Ég vil líka nota tækifærið til að þakka ykkur öllum frábæran bloggvetur, stórkostlega pisla og þakka ykkur öllum sem hafið verið að samathugasemdast með mér, bæði hérna og hjá öðrum. Faðmlag inn í nýtt sumar til ykkar allra.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingrímur Helgason

Gleðilegt sumar vinur, vona að það blómstri um þig..

Steingrímur Helgason, 24.4.2008 kl. 02:08

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Gleðilegt sumar  það er alltaf jafn gaman að lesa bloggið þitt

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 24.4.2008 kl. 02:10

3 Smámynd: Tiger

  Takk Steini minn - þú ljúfi blómaálfur. Takk líka Jóna mín fyrir góð orð og skemmtilegan bloggvetur. Líka gaman að kíkja á þig ljúfan.

Tiger, 24.4.2008 kl. 02:12

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Gleðilegt sumar Högni minn og takk fyrir þrælskemmtilegan bloggvetur

Jónína Dúadóttir, 24.4.2008 kl. 06:00

5 identicon

Gleðilegt sumar ! Takk fyrir veturinn

Guðrún B. (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 08:47

6 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Gleðilegt sumar kæri Spékoppur og friður á jörð. Mikið er frískandi að fá svona fínt blogg eftir leiðinda-borgarastyrjaldarumræðu gærdagsins. Ætla að byrja sumarið á trimmi ... Megi friður ríkja í hjörtum okkar allra  í dag sem alla daga.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 24.4.2008 kl. 08:50

7 identicon

Sæll elskulegur,

ætla láta sem ég hafi ekki heyrt/lesið þetta með snjóinn.

Ég er líklega manna glöðust með að nú er farið að vora, þoli mjög illa þetta hvíta kalda stöff. En vildi bara segja hér Gleðilegt sumar og bloggumst!

knús á þig

Ofurskutlan

Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 10:14

8 Smámynd: Þorsteinn Gunnarsson

Gleðilegt sumar og megir þú hljóta langþráð atvinnuleysi

Kv. Steini

Þorsteinn Gunnarsson, 24.4.2008 kl. 10:31

9 Smámynd: María Guðmundsdóttir

  Gledilegt sumar kæri Tiger. Vonandi verdur thad thér sem best .Alltaf gaman ad koma hér og lesa,thú ert frábær penni og frábær persóna 

María Guðmundsdóttir, 24.4.2008 kl. 10:53

10 Smámynd: Helga skjol

Gleðilegt sumar og takk fyrir yndislegan bloggvetur.

RISA sumar knús á þig og þína.

Helga skjol, 24.4.2008 kl. 11:24

11 Smámynd: M

Gleðilegt sumar Tiger (Högni ?) og takk fyrir skemmtileg kynni hér

M, 24.4.2008 kl. 11:32

12 Smámynd: Tiger

  Já kæru vinir, gleðilegt sumar og takk fyrir bloggvetur góðan...

Högni er svona .. innanhús/innanblogg viðurnefni sem ákveðin forpokuð kerfisvilla - festi sig við vegna þess að ég var eitthvað að stríða henni á blogginu hennar, og kvaddi með "Högni Hrekkvísi" eða eitthvað álíka minnir mig ...

Takk öll fyrir góðar kveðjur og kvitterí.

Tiger, 24.4.2008 kl. 12:43

13 Smámynd: Brynja skordal

Gleðilegt sumar og takk fyrir allar frábæru færslurnar þínar í vetur og fallegu kommentin frá þér já sammála yndislegt að vera á stöðum þar sem kyrrðin er allgjör úti í náttúrinni á fallegum sumardegi Hafðu lúfan dag minn kæri bloggvinur

Brynja skordal, 24.4.2008 kl. 13:05

14 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gleðilegt sumar og takk fyrir góðar óskir TíCí minn, þú ert alltaf jafn yndæll og hlý persóna, og gefandi.  Takk fyrir veturinn og allar fallegu kveðjurnar þínar og gleðina sem þú hefur veitt mér.  Knús á þig inn í daginn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.4.2008 kl. 13:16

15 Smámynd: Tiger

  Þakka ykkur ljúfurnar mínar líka fyrir yndislegar kveðjur og frábæra pistla í vetur. Hvernig er hægt að vera annað en hlýr við svona ljúfa bloggvini eins og ykkur öll... segi það bara!

Tiger, 24.4.2008 kl. 13:37

16 identicon

Gleðilegt sumar elskulegi snúðurinn minn, sumarið er minn tími og ég ætla sko að njóta og njóta, búin að fá nóg af sólarlandaferðum og finnst best að vera á Íslandi. 

Gott að lesa bloggið þitt, takk fyrir skrifin og öll kommentin í vetur, þau hafa oft hlýjað mér í vetrarkuldanum, sumarknús til þín ...

Maddý (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 14:47

17 Smámynd: Tiger

  Sömuleiðis mín kæra Maddy. Myndirnar þínar hafa gefið mér mikið í vetur líka, yndislegar bara og svo mikil snilld. Njóttu sumarsins og gerðu allt sem þú getur til að finna gleði og ævintýri í sumarsól og hlýju. Knús á þig ljúfan.

Tiger, 24.4.2008 kl. 14:54

18 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Elsku vinur ég vil taka undir með þessu öllu frábæra fólki hér fyrir ofan migþú ert yndislegur, ljúfur og svo hlýr og svo góður og  gefur okkur svo mikið með þessum fallegum ljúfum pistlum þínum og gleðin þín og hrekkvísi gefur okkur tilefni til að brosa og sjá spaugilega hliðina á þessu öllu saman

Gleðilegt sumar vinur minn og vonandi verður sumarið þér gott og skemmtilegt

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 24.4.2008 kl. 15:36

19 Smámynd: Solla Guðjóns

VÁ erfitt að toppa Lindu en allt sem hún segir er akkúrat sú mynd sem ég hef af þér Og ekki er verra að þú fílar skafla ófærð og læti eins og ég þó ég sé kelling

Gleðilegt sumar og takk fyrir óborganleg blogg

Solla Guðjóns, 24.4.2008 kl. 15:46

20 Smámynd: Huld S. Ringsted

Það er svo sannarlega ekki hægt að bæta neinu við það sem er sagt hérna fyrir ofan svo ég segi bara.................................sammála öllum kommentum!

Gleðilegt sumar Tící minn

Huld S. Ringsted, 24.4.2008 kl. 17:49

21 Smámynd: Tiger

  Þakka ykkur elskurnar fyrir falleg orð og ljúfar kveðjur. Get sannarlega send slíkar til ykkar allra til baka, þið eruð perlur.

Tiger, 24.4.2008 kl. 19:22

22 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Forpokaða kerfisvillan ætlar bara að bjóða góða nótt

Jónína Dúadóttir, 24.4.2008 kl. 21:24

23 Smámynd: Tiger

  Ohh...sko, Jónína með Dúvu á öxlinni - alveg er þetta typískt, maður sleppir orðinu kerfisvilla og inn sleppur eins slík í kjölfarið. Okok, Kannski ertu ekki alger kerfisvilla - en þú ert allavega forpokuð trukkaskotta sem leggur trukknum þínum inni í stofunni þinni - eða var það inni á klóakinu sem syngur svo ljúft á vatnslausum dögur. Good night sweety, i´ll sing for you a vögguvísu - just to make það öruggt að you fall to sleep.

Tiger, 24.4.2008 kl. 21:48

24 Smámynd: JEG

Gleðilegt sumar !!

Þú ert sannkallaður gleðigjafi minn kæti bloggvinur. Vonandi verður þetta sumar villulaust og indælt. Knús á þig

JEG, 25.4.2008 kl. 00:00

25 Smámynd: Tiger

  Takktakk JEG .. það eruð þið bloggvinir mínir sem dragið út í mér gleðipinnann, enda hvernig hægt annað en að vera glaður með ykkur öll nálæg? Segi það bara ... knús á þig líka!

Tiger, 25.4.2008 kl. 01:30

26 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Hvar er margmiðlunarefnið? ég fæ bara þessa gömlu færslu þegar ég smelli á þessa nýju færslu???

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 25.4.2008 kl. 02:51

27 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

þetta var bara tóm færsla!! Eða hvað ???

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 25.4.2008 kl. 02:52

28 Smámynd: Tiger

  Úpsss... nei mín kæra Jóna - ég var að prufa en eyddi henni því það kom ekkert inná hana! Ég var að reyna að setja inn tónlist, reyni aftur á morgun bara - en er að fara að henda inn smá ammmmmæliskveðju samt núna. Knús á þig ljúfan!

Tiger, 25.4.2008 kl. 04:06

29 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Gleðilegt sumar bloggvinur - takk fyrir fína pistla og skemmtileg og góð bloggsamskipti í vetur.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 25.4.2008 kl. 06:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Tiger
Tiger

Ég eyði fúlum og neikvæðum athugasemdum - svo það er tímaeyðsla að henda slíkum fjársjóð hingað inn. Verð hérna bara í flugumynd - lítið sem ekkert sem sagt. Þýðir ekkert að bíta af mér hausinn þrátt fyrir það...

***

Þakka öllum innlitið, en það er ekki þar með sagt að þú sjáir mig spora út síðuna þína!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 139733

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • jesumynd
  • jesumynd2
  • jesumynd4
  • blómabeðið
  • blómabeðið
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband