Heimiliskettir gerðir út af heilbrigðisstéttunum?

  Kettir draga úr líkum á hjartaáfalli. Gæludýrin hafa jákvæð áhrif á hjarta- og æðakerfi. Stórkostlegt - hlaða niður kisum út um allt hús og framtíðin verður björt, engir hjartasjúkdómar og áföllin ekki til staðar. Æi, þetta vissi ég sko - enda heljar mikill kattavinur - og með sterkt og gott hjarta! Þetta er, samkvæmt 24 stundum í dag, niðurstaða eftir 10 ára rannsóknir á 4300 manns í Bandaríkjunum. Er ekki málið að leyfa ótakmarkað kisuhald um allan bæ? Á ekki bara að koma kattholti upp á Spítala, staðsetja það viðhliðina á hjarta- og æðasjúkdómadeild? Ekki svo slæm hugmynd því kettir hafa sannarlega góð áhrif á heimilisfólk.

  Sagt er að kvíði og streita hafi neikvæð áhrif á hjarta- og æðakerfi líkamans, rétt og satt. Sagt er að kettir hafi streitulosandi áhrif á eigendur sína. Bingó. Út með hjartaskurðlækna og inn með kisur (og hunda). Amerísku hjartasamtökin birtu niðurstöður rannsóknar árið 2005 sem sýndi fram á að aðeins 12 mínútur á dag í návist heimilishunda eða katta hefði jákvæð áhrif á hjarta- og lungnastarfsemi einstaklinga með hjartabilun.

  Hlýja og ánægja sem gæludýr veita eigendum sínum hefur fyrirbyggjandi áhrif. Katta(hunda)eigendur eru síður líklegir til þess að látast af völdum hjartaáfalls en þeir sem ekki eiga kisu. Dauði af völdum hjartaáfalls var, samkvæmt Qureshi - einum af rannsakendum þessa við Háskólann í Minnesota, 30% minni hjá kattaeigendum en þeim sem engin gæludýr áttu.

  Love your cat - and your cat will give your heart some adrenalinkick.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Huld S. Ringsted

Rosalega er ég heppin! á eina kisu og þrjá hunda   ég verð örugglega hundrað og eitthvað, nema að sjálfsögðu eitthvað annað sjái um að koma mér yfir móðuna

Skemmtilegur fróðleikur. 

Huld S. Ringsted, 26.2.2008 kl. 16:19

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nú þarf ég að koma mér heim og knúsa hann Brand blessaðan.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.2.2008 kl. 16:34

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ég á einn kött.... gildir fjöldinn annars nokkuð ?

Jónína Dúadóttir, 26.2.2008 kl. 17:39

4 Smámynd: Sigrún Óskars

Æ, ég þarf að fá mér hund eða kött. Hef alltaf haft kött í húsinu og það fleiri en einn og svo var ég með hund í mörg ár. Ég er sammála þessu með dýrin og stressið, þau hafa sko mjög góð áhrif á mann.

Sigrún Óskars, 26.2.2008 kl. 18:38

5 Smámynd: Helga skjol

Hjúkk slepp fyrir horn er með bæði hund og kött,ætli ég verði ekki bara vel yfir hundraðið

Helga skjol, 26.2.2008 kl. 20:20

6 Smámynd: Angelfish

  Ohh ég elska kisur.. þín er líka alveg einstök.. annars á ég ekki kisu núna en ég á fullt af vatnaskrímslum og svo er ég að fara að passa einn svona í mánuð.. það kannski heldur í mér lífinu í einhvern tíma

Angelfish, 26.2.2008 kl. 21:54

7 Smámynd: Tiger

  Gæludýr eru frábær já.

Huld: Sko, fjögur gæludýr ættu að geta haldið þér fjórfalt lengur á lífi en eitt - sem gerir hvað - segjum meðal aldur frá einu sé 80 ára og það sinnum 4 gera þig allavega ... hmmm.... að þú verðir 4x80ára ... Omy, segjum bara að þú ættir að ná háum aldri.

Ásthildur: Ég er handviss um að Brandur á eftir að verða hundleiður þegar þú ferð að ná 109 árinu.. Spurning um að kremjann ekki of fast þessa dúllu?

Jónína: Einn köttur út í mýri gefur lífinu stýri. Þú verður eldgömul af einu stykki - treystu því sko!

Sigrún: Stelpuskott! Ertu ekki með gæludýr? Ekki einu sinni húsband? Hann gæti verið gæludýrið þitt sko...

Helga Skjol: Tvö gæludýr, tvöföld ánægja og tvöfalt mina stress. Jú þú sleppur sannarlega fyrir hornið.

Angelfish: Huhh... vatnaskrímsli? Stingdu hausnum ofaní búrið til þeirra og faðmaðu þau að þér - vel og lengi, ábyrgist ekki langlífi hjá þér sko! En fjaðraskrúðurinn gæti svo sem bjargað þér - og ef ekki vill betur þá bara kemur þú og faðmar mína kisu þar til hjartað kemst í lag..

Tiger, 27.2.2008 kl. 02:22

8 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ég gleymdi því að ég á líka tvo gullfiska, en mér líst ekki aaaalveg nógu vel á hugmyndina að stinga hausnum ofaní búrið og faðma þá.... held svei mér ég færi þá frekar með þá út að labba...

Jónína Dúadóttir, 27.2.2008 kl. 06:23

9 Smámynd: Angelfish

  Já takk fyrir það. Annars er hlátur líka góður fyrir hjarta og sál. Og eitt símtal til þín ætti að duga manni í langan tíma.

Angelfish, 27.2.2008 kl. 11:54

10 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Kisan mín gerir mér sko mikið gott, vildi ekki vera án hennar.  Við erum orðin tvö heima hjónin, börnin burtvaxin og flogin og þá er gott að hafa þriðja aðila til að tala um, hún er endalaus uppspretta gleði.

Ásdís Sigurðardóttir, 27.2.2008 kl. 13:25

11 Smámynd: Steingrímur Helgason

Mjá, ezzgan, alveg rétt hjá þér enda líf án loðdýra hálf hárlaust & dull, eiginlega.

Steingrímur Helgason, 27.2.2008 kl. 19:34

12 Smámynd: Tiger

  Jónína Dúa: nei ég mæli ekki með því að þú farir á kaf í faðmlagsleit - frekar í göngutúr með gullfiskabúrið. Sýna fiskunum frystihúsið - sko - þarna er líkhúsið.... ohmy.

Angelfish: Ég hlæ aldrei eins mikið - eins og þegar ég er að hlægja að þér! Sérstaklega þegar þú ert að bretta uppá nefið framan í myndavélina. (ætti ég kannski að birta þá mynd hérna?) *saklaussvipur*..

Ásdís: Hvet þig til að kreista kisu af og til - kannski líka karlinn - með kisu á milli ykkar - þá reddar kisa  ykkar beggja...

La Hamz .. missed you! Loðboltinn minn...

Tiger, 27.2.2008 kl. 20:24

13 identicon

Hvað með páfagauka?  Þeir gefa mér nú heldur betur mikla ánægju ...

Maddý (IP-tala skráð) 27.2.2008 kl. 22:26

14 Smámynd: Tiger

  Elskulegust.. ef þú ætlar að vera með páfagauka þá skaltu ekki kenna þeim að tala - óþolandi þegar fuglar eru ósammála manni - það getur stytt lífið heilmikið. En já, fuglar eru æði - söngur þeirra, ef þeir eru söngfuglar - geta létt manni lundina svo um munar. Svanirnir þínir t.d. gefa mikið af sér sko!

Tiger, 27.2.2008 kl. 22:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Tiger
Tiger

Ég eyði fúlum og neikvæðum athugasemdum - svo það er tímaeyðsla að henda slíkum fjársjóð hingað inn. Verð hérna bara í flugumynd - lítið sem ekkert sem sagt. Þýðir ekkert að bíta af mér hausinn þrátt fyrir það...

***

Þakka öllum innlitið, en það er ekki þar með sagt að þú sjáir mig spora út síðuna þína!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • jesumynd
  • jesumynd2
  • jesumynd4
  • blómabeðið
  • blómabeðið
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband