Hvern á maður að berja, ef maður nær ekki í skottið á þeim sem manni langar að berja? Hvaða rass á mahrr að kyssa til að fá smá snjókomu? Pirrhhmmmpp ...

nóg komið, tími til að mótmælaJá, nú er ég að hugsa um að fara og lúskra á eins og einum Guði eða svo ...

Það er ekki að því að spyrja með suð-vesturhornið - það er ekki fyrr farið að hvítna en að það fari allt í bál og brand. Ég fór glaður að sofa um hálf fjögur síðustu nótt - vaknaði enn glaðari - en um leið og ég kíkti á gluggann minn hvarf sú gleði í bjevuðum vatnsaustrinum sem var fyrir utan.

Fjárans rigning alltaf - að snjómuggan skuli ekki geta haldist smá stund hérna á þessu landshorni er bara ömurlegt.

Og ég sem var svo glaður þegar ég kom heim rétt fyrir þrjú í nótt sem leið - allt hvítt - bylur og hvasst - skaflar að myndast upp með útidyrunum mínum - og ég þurfti að krafsa snjó frá þeim svo ekki skaflaðist innfyrir .. en núna! Skömm og synd bara .. ég sem hlakkaði svo til að fara á þoturassinum mínum niður brekkuna hér fyrir ofan.

Over and out .. hundfúll, hundblautur og hundlatur!

Á samt bara einn kött .. og Fríðu litlu .. nýjasta fjölskyldumeðliminn .. hamstrastelpan sem ég get bara ekki hugsað mér að fara með til dýralæknis.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tiger

  Jamm Búkolla mín .. minns ætlar sér sko ekki að halda stelpuskottinu sjálfur!

Einhverra hluta vegna bara langar mig til að reyna betur með að finna Fríði litlu heimili - nenni samt ekki sjálfur að hafa hana og hef bara reyndar ekki tíma til að hugsa um hana. Það er rosalega gaman að fylgjast með henni og kisan mín er æst í að leika sér með hana .. en .. jamm! Knús og kram á þig.

Tiger, 14.3.2009 kl. 22:17

2 Smámynd: Ragnheiður

æj ég vorkenndi þér smá þegar ég sá að snjórinn fór aftur..

Ragnheiður , 14.3.2009 kl. 22:22

3 identicon

Ja heiti potturinn minn er enn sneysafullur af þessu hvíta er reyndar að spá í að moka upp úr honum núna og láta renna heitt í hann og njóta þess að ganga berfætt í  snjónum og sökkva mér svo ofan í þennan dásamlega hita og horfa á stjörnurnar   slaka á með popp og kók því þetta er á víð bestu bíómynd að horfa til himins nú í kvöld.

Þú veist hvar ég verð gæskur

(IP-tala skráð) 14.3.2009 kl. 22:23

4 Smámynd: Tiger

  Ragnheiður mín; ég verð bara að hætta þessari sjálfselsku og fara að virða það að líklega er ég einn um að þrá kafald, skafla og ófærð - en allir hinir á suðvesturhorninu vilja sumar og sól - með blóm í haga .. lala ..  en, takk samt ljúfustu fyrir vorkennið og hafðu það ljúft skottan mín.

  Sigurlaug .. grrr .. hættessu addna skömmin þín! Ég fer að taka þig .... jamm jamm .. veit að þetta er opið börnum hérna á blogginu ... ætlaði bara að taka þig á orðinu sko! Spurning um hvort þú eigir bara ekki eftir að finna eins og einn Tiger í pottinum þínum einn vondan vetradaginn!

Tiger, 14.3.2009 kl. 22:33

5 Smámynd: Sigrún Óskars

hringdu bara á veðurstofu íslands og bidd´um snjó - kannski þarftu að kyssa einhvern rass þar  

eða bara leggjast á bæn og biðja englanna að senda okkur snjó

Knúsíknús  - ég get líka prófað leggjast á bæn - (mætti ég ekki vera í sófanum, ég ligg þar hvort sem er)

Sigrún Óskars, 14.3.2009 kl. 22:38

6 identicon

Það munar  sko ekki um einn röndóttann og malandi,  já og hann má meira segja hvæsa smá   reynslan sýnir mér að þeir enda samt alltaf á því að mala

(IP-tala skráð) 14.3.2009 kl. 22:40

7 Smámynd: Tiger

  Sigrún .. haha .. þeir eru hættir að svara mér þar, er búinn að hringja á hverjum degi síðan um áramótin! Held þeir séu komnir með leiða á mér - en ég neitaði að kyssa rassinn á veðurfræðingunum! Jú, endilega liggðu bara kyrr .. sem lengst og biddu fallega um snjó og læti skottið mitt! Knús á þig!

Sigurlaug .. ég er sko ekkert röndóttur .. en ég gæti verið malandi .. svona inná milli þess sem ég urra á þig! Ég gruna nú að ég myndi mala fyrir þig .. mala gull jafnvel.. eða kaffi. Farrru annars bara í rass og rófu addna og go in your pot!

Tiger, 14.3.2009 kl. 22:47

8 identicon

mmmmmmmm  

(IP-tala skráð) 14.3.2009 kl. 22:53

9 Smámynd: Tiger

  Haha .. abi addna!

Tiger, 14.3.2009 kl. 23:04

10 Smámynd: Steingrímur Helgason

Pempían & pjattrófan þú að mæra snjókomu ? 

& þezzu trúir fólk ?

Já, & síðan hvenær vilt þú nú ekki kúra með hamstur þér við hlið.

Öfugmælabloggerí, zegi & zgriva ða....

Steingrímur Helgason, 14.3.2009 kl. 23:38

11 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Þetta er svindl hjá veðurstofunni að spá snjókomu svo kemur bara smá él og svo rigning.   Helgarknús í þitt hús. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 14.3.2009 kl. 23:51

12 Smámynd: Tiger

  Haha .. Hamztur .. ehh .. meina Steingrímur! Abinn minn ... alltaf til í að kúra með þig mér við hlið sko hahaha! Pjattrófa .. haha...  luv ya!

Jóna mín - algert svindl bara og svínarí - en svo mikið í takt við nútímann! Knús á þig skottið mitt.

Tiger, 15.3.2009 kl. 00:24

13 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Ég held þú verðir bara að fara að leggja land undir fót og taka með þér þoturassinn þinn, þó það sé ekki lengur vinsælt að tilheyra þotuliðinu sko .. Ég er viss um að Dúa myndi taka vel á móti þér, og jafnvel lána þér skófluna sína  Knús í snjó-laust-húsið þitt

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 15.3.2009 kl. 01:04

14 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Endurtek, legg áheyrslu á og undirstrika: Þú mátt eiga allan snjóinn hérna, mér svoleiðis algerlega að meinalausu... þú getur annaðhvort komið og sótt hann eða fengið að renna þér á þoturassinum þínum hérna niður einhvern skaflinn  Er það satt sem hann Steingrímur segir, ertu pempía og pjattrófa ?

Knús til þín þarna á regnblautt flatlendið

Jónína Dúadóttir, 15.3.2009 kl. 06:38

15 Smámynd: María Guðmundsdóttir

æ hvada leidindi eru thetta i vedurgudunum?? gætu nú splæst á thig eins og smá slatta snjókomu,theim munar ekkert um thad.

Hér rignir reyndar lika,allt i drullu og leidindum...en vonandi fer sólin ad láta sjá sig..allavega ef thad yrdi snjór thá pakka ég honum i umræddan kassa og sendi med expressinu til thin audvitad.. knús hédan

María Guðmundsdóttir, 15.3.2009 kl. 18:40

16 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Það var ákveðið þarna efra að Ísland væri svona Demo fyrir alls kyns veðráttur.

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 16.3.2009 kl. 00:12

17 Smámynd: Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir

Komdu bara hingað vestur, minn kæri!

Alveg búin að sjá að þú býrð á vitlausu landshorni

Hér er nægur snjór og fullt af brekkum fyrir svona þoturassa.....

Snjókveðjur

Ragnheiður Ása Ingvarsdóttir, 16.3.2009 kl. 00:37

18 Smámynd: egvania

Hefurðu dansað snjódansinn minn kæri

egvania, 16.3.2009 kl. 00:42

19 Smámynd: egvania

Passaðu hamsturinn annar kötturinn hennar dóttir minnar át einn !!

egvania, 16.3.2009 kl. 00:44

20 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Æ þeir eru svo sætir hamstrarnir þú verður að kaupa nammí handa henni og gefa henni eitt á dag, þegar þú kemur með boxið þá dansar hún af kæti.
Dúllusnúðurinn minn þú þarft ekki að rasskella neinn þeir eru ekki þess verðir.
Knús í krús til þín míó míó
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 16.3.2009 kl. 12:57

21 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Vil bara að fara að fá sólina - hún er í uppáhaldi hjá mér. Guð hefur örugglega keypt sér Head and Shoulders svo það er engin meiri flasa til!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 16.3.2009 kl. 18:49

22 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þú er bara yndislegur TíCí minn ekkert minna en það  Vildi að ég gæti sent þér smá snjó.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.3.2009 kl. 21:31

23 Smámynd: Guðrún Una Jónsdóttir

Sé að þú ert búin að fá heimboð víða þs nóg er af snjónum. Akureyri er ekki undanskilin í þeim efnum. Hér hefur verið snjór frá því í haust og þótt það sé búin að vera hláka í allan dag sér ekki högg á vatni. Vertu því ævinlega velkominn norður fyrir heiðar :0)

Guðrún Una Jónsdóttir, 17.3.2009 kl. 21:43

24 identicon

Ha ha ég var náttúrulega bænheyrð og nú mun rigna og rigna (“,)

Ég má nú aðeins,

knús og kveðja

Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 17.3.2009 kl. 23:55

25 Smámynd: Solla Guðjóns

Hæj !! Sem snjókellingu finnst mér leitt hvað snjórin og rigningin þurfa alltaf að vera rembast um yfir ráð.

Solla Guðjóns, 18.3.2009 kl. 08:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Tiger
Tiger

Ég eyði fúlum og neikvæðum athugasemdum - svo það er tímaeyðsla að henda slíkum fjársjóð hingað inn. Verð hérna bara í flugumynd - lítið sem ekkert sem sagt. Þýðir ekkert að bíta af mér hausinn þrátt fyrir það...

***

Þakka öllum innlitið, en það er ekki þar með sagt að þú sjáir mig spora út síðuna þína!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • jesumynd
  • jesumynd2
  • jesumynd4
  • blómabeðið
  • blómabeðið
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband