Karlmenn og krabbamein, hefur þú gripið í punginn í dag - þinn pung sko!? Ef ekki, þá ættir þú kannski að hugleiða það...

Ávaxtaborðið.Þættir eins og heilbrigt mataræði, að vera í kjörþyngd, forðast reykingar - drekka sem minnst áfengi og forðast sólbruna - eru meðal þess sem getur hjálpað ykkur að lenda ekki í krabbanum.

Það segir sig sjálft að heilbrigt líferni er heillavænlegast yfir höfuð - hvort sem það snýr að krabbameini eða öðrum sjúkdómum, heilbrigt líferni er það sem líkaminn þarfnast helst af öllu til að funkera rétt, vel og lengi.

Árlega greinast 630 karlar með krabbamein á Íslandi, almennt gera þeir sér seinna grein fyrir einkennunum en konur. Á morgun hefst formlega átak Krabbameinsfélagsins - Karlmenn & krabbamein. Yfirskrift viðtalsins í ár er Lífsstíll, heilsa og mataræði og er höfuðáherslan á að með því að stunda heilbrigða lífshætti sé hægt að draga úr líkunum á krabbameini.

Mælt er með því að borða mikið af tómötum, hvítlauk og gulrótum. Mikið af grænmeti og ávöxtum og eins er gott að neyta mikilla trefja, t.d. grófs korns og bauna.

Átakið hefst með pomp og prakt í Vodafone-höllinni á morgun kl. 14:00 en þá etja kappi helstu knattspyrnuhetjur landsins eldri en fjörtíu ára og núverandi landsliðshetjur.

Í tengslum við átakið verður sala á "Miðum" í matvöruverslunum - sem fólk getur keypt fyrir 250, 500 eða 1000kr. Þá verða falleg bindi með litum átaksins (blátt, fjólublátt og hvítt) til sölu í verslunum Herragarðsins. Litlar álnælur (svipaðar og bleiki borðinn) verður einnig seldar til fyrirtækja.

Peningurinn sem safnast fer til Ráðgjafarmiðstöðvarinnar, sem veitir körlum og konum ókeypis ráðgjöf, námskeið og þjónustu af ýmsum toga, og í frekari forvarnir.

Kíki yfir ykkur - í dag - sem hér hafið verið á ferðinni undanfarið ljúflingar.

Knús á línuna og takk fyrir innlitið!

P.s. tekið úr Fréttablaðinu - Laugardaginn 28 Febrúar 2009. (Og nei, ég ætlaði ekkert að fjalla um einhver hreðjatök hérna - þó það sé gott að grípa í punginn til að fyrirbyggja og athuga krabbamein ..haha)...


mbl.is Hreyfing og hollt fæði í baráttunni við krabbamein
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Flott ! Skjáumst

Jónína Dúadóttir, 28.2.2009 kl. 13:33

2 Smámynd: Tiger

  Haha .. Dúa, þú færð aldrei frið fyrir mér - hvorki hér né þar - eða þar og hér - eða bara .. jamm! Fer að koma norður bráðum til að flengja þig .. ehh .. nei sko til að sjá Fúlar á móti (þig og nágrannakonuna þína) ..

Tiger, 28.2.2009 kl. 13:42

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Hm... enginn friður... jæja...ætli ég verði ekki bara að reyna að lifa við það þá  Var einmitt að panta miða á sýninguna Fúlar á móti

Jónína Dúadóttir, 28.2.2009 kl. 14:14

4 Smámynd: Tiger

 Ohhh .. mig langar á Fúlar á móti ... ehhh .. nei sko mig langar ekki Á þær - bara sko kíkja á þær .. ehh .. sko ég er ekki með kíkiþörf .. bara fara á leikverkið .. ehh ... sko ég er ekki perri sem fer á hvað sem er sko en bara   .......

Æi, já.. mig langar að sjá þetta verk og ég mun sjá það  

Tiger, 28.2.2009 kl. 14:21

5 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Þarna vafðist þér aldeilis tunga um höfuð og háls, ekki bara tönnKemur stundum fyrir mig líka... en bara stundum...

Ég held þessi sýning sé frábær og ég hlakka mikið til að sjá hana

Jónína Dúadóttir, 28.2.2009 kl. 14:32

6 Smámynd: Tiger

  Haha .. jamm tótally tunguvafningur af bestu gerð stundum sko!

Knús og jamm, held að allt sem Edda kemur nálægt sé/verði æði og sannarlega þess virði að sjá!

Tiger, 28.2.2009 kl. 15:06

7 Smámynd: María Guðmundsdóttir

flott framtak  kominn timi til. en sorry,finnst fyrirsøgnin asskoti fyndin  en hrikalega gódur punktur i henni.

knús og krammar,góda helgi

María Guðmundsdóttir, 28.2.2009 kl. 15:43

8 Smámynd: Tiger

 María mín, jamm - kannski svolítið dónó fyrirsögn - en samt svo háalvarleg. Haha ...  knús og kram!

Tiger, 28.2.2009 kl. 15:51

9 Smámynd: Sigrún Óskars

hún er ekkert dónó þessi fyrirsögn - segir bara það sem þarf - það þarf að grípa í punginn á sér reglulega og þeir sem ekki hafa pung grípa bara í annarra manna   

Helgarknús til þín

Sigrún Óskars, 28.2.2009 kl. 18:47

10 Smámynd: Tiger

  Haha .. Sigrún! Ég er allavega feginn að hafa minn eigin pung til að grípa í ... hafðu ljúfa helgina líka skotta.

Tiger, 28.2.2009 kl. 19:10

11 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Gott framtak! Vonandi þú hafir ekki orðið pungsveittur við það! :D ...

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 28.2.2009 kl. 19:31

12 identicon

Er ekki nóg að strjúka bara.......

En karlmenn og krabbi er ekkert gamanmál, þrjóskan í ykkur kallar er svo ótrúleg stundum að .....

Ef ekki hefði verið fyrir frekjuna í mér, væri minn bóndi nú að berjast við slíkt (ristilkrabba) ég sendi hann með harðri hendi í rannsókn sem leiddi í ljós hvorki meira en minna 32 hnúta ( æxli) í ristli og þar af voru 3 að byrja frumubreytingar sem þýða krabba. Þetta var allt fjarlægt og nú mætir hann einsu sinni á ári í eftirlit. Næstu ferð voru fjarlægð 12 stk sem ekki hafði tekist eftir í fyrstu aðgerð, og sum alveg ný. Læknirinn sagði að þetta hefði ekki mátt vera mikið seinna og spurði hvað hefði valdið því að hann kom ( frekjan í kjellingunni) var svarið Bræður hans settir í skoðun líka, því þeir töldust nú í áhættuflokki.  En ég ætlaði nú ekki að rausa svona elskurnar, en þið kallar þarna úti, það getur borgað sig að gera eins og frúin segir, þó ykkur finnist ekkert að ykkur. það eru stundum einkenni með þessum ófögnuði, sem lýsa sér kannski bara eins og smá kveisa, en þegar sú kveisa er farin að koma reglulega...... farið þá að hugsa ykkar gang. Fyrirgefðu Tiger minn þennan átroðning og fyrirlestur hér.  

(IP-tala skráð) 28.2.2009 kl. 21:17

13 Smámynd: egvania

 Tiger ég á pung svona G3 ég meðhöndla hann nokkuð oft

 Svona án alls gríns þá eru karlmenn ekki nægilega vakandi yfir því að gæta þess sem gerir þá frábrugðna okkur kvenþjóðinni en það er held ég að lagast til allra hamingju og vonandi verður það þannig að þeir fái boð með reglulegu og sinni því kalli.   Það kemur að því að það verður töff og þá verður þetta ekkert mál.

egvania, 28.2.2009 kl. 21:35

14 Smámynd: Huld S. Ringsted

En ég hef engan pung!...............................bara kallinn minn og það yrði nú upplitið á honum ef að ég færi að grípa í hann í tíma og ótíma!!

Annars er þetta góð áminning hjá þér, karlmenn mættu vera duglegri að fylgjast með hjá sér, vonandi fara þeir að fara reglulega í skoðun eins og við konurnar.

Huld S. Ringsted, 28.2.2009 kl. 23:10

15 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Karlmenn ættu að grípa í pung sinn mánaðarlega, eins og konum er ráðlagt að þreifa brjóst sín mánaðarlega.  Það getur bjargað mannslífum að þreifa.  Við konur förum flestar á tveggja ára fresti í legháls skoðun, og eftir fertugt förum við líka í brjóstamyndatöku.  Það eru fyrirbyggjandi aðgerðir, kannski verður sett upp leitarstöð fyrir karlmenn í náinni framtíð.  Knús og klemm

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 28.2.2009 kl. 23:59

16 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Hæ .. gleymdi að segja að mér finnst karlmenn á hvítum hlírabolum svolítið scary .. kannski er það bara ég, vil fá betri mynd af þér!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 1.3.2009 kl. 18:58

17 Smámynd: Solla Guðjóns

Góð áminning hér að ofan og enn  þá meiri ástæða að þreifa pung bóndans

EN ég er á facebokk og heiti Solla Guðjóns......Ég ætla að finna þig og vona að þú heitir Tiger eða þá bara nafnið þitt.

Solla Guðjóns, 1.3.2009 kl. 21:58

18 Smámynd: Tína

Það eru fáir sem geta komið með fyrirsagnir eins og þú. Þær vekja hjá manni forvitni og spennu. Svo eru þær líka oftast svo fyndnar.

En mér finnst vera kominn tími til að vekja athyglina á krabbamein karla. 

Gaman að sjá aftur svona blogg frá þér vinur. Meira svona

Þín eilifðarvinkona

Tína, 2.3.2009 kl. 11:24

19 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Eins gott að þú tilgreyndir að maður ætti að grípa í eigin pung en ekki annarra  ég hefði getað orðið mér til skammar hehehehe 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.3.2009 kl. 12:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Tiger
Tiger

Ég eyði fúlum og neikvæðum athugasemdum - svo það er tímaeyðsla að henda slíkum fjársjóð hingað inn. Verð hérna bara í flugumynd - lítið sem ekkert sem sagt. Þýðir ekkert að bíta af mér hausinn þrátt fyrir það...

***

Þakka öllum innlitið, en það er ekki þar með sagt að þú sjáir mig spora út síðuna þína!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 139725

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • jesumynd
  • jesumynd2
  • jesumynd4
  • blómabeðið
  • blómabeðið
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband