Mbl.is < gegn > Facebook! Gamalt út og nýtt inn - í bili.

1thugged_out_golemJæja, ég verð víst að viðurkenna að nýr vettvangur hefur náð að heilla mig aðeins og því hef ég ekki gefið blogginu eins mikinn tíma.

Já, ég er farinn að leika mér á öðrum stað á netinu og þar hef ég verið að fíflast og atast í öllum í kringum mig. Málið er að maður verður að fylgja straumnum og taka þátt í því sem er "inn" í það og það skiptið.

Facebook er málið.

Undarlegasta fólk er þar að finna og næsta víst er að maður verður að passa að missa sig ekki þegar maður rekst á suma sem tilheyrðu fortíðinni - en eru núna að poppa upp í sinni undarlegustu mynd. Mikið af dásamlegu fólki er þar sem maður þekkti í denn. Skólasystkyn, fjölskylda, vinir - nú líka óvinir, og gamlir nágrannar. Flóran er frábær en næsta víst að maður verður að passa sig á því hvað maður lætur flakka þar því maður veit aldrei hver er að "skoða" mann og fylgjast með hverju spori manns.

Nokkur ykkar hérna hef ég fengið til mín þar, en marga hef ég ekki enn fundið - eða þannig - enda er ég nýbyrjaður á þessu og er enn að læra á þetta feisbókardæmi. Hef þó sent inn margar góðar og gamlar myndir þangað og undarlegt hvað margir muna og kannast við mann ennþá ..

En, eitthvað verður að láta í minni pokann í staðinn - og það er Mbl.is sem lýtur í lægra fyrir Facebook í þetta sinn. Ég mun þó halda áfram að fylgjast með blogginu og hver veit - þegar nýjabrumið er farið af feisinu þá kannski verð ég aftur virkur bloggari.

Vona að þið hafið það yndislegt, óska ykkur góðrar helgar og njótið lífsins öll ..

Knús á línuna ...


mbl.is Rekin vegna ummæla á Facebook
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: JEG

Já það fréttist allt á Fésinu sko.  Enda Fésið fyrst með fréttirnar.  Svei mér þá en Fésið er sko meiri tímaþjófur en bloggið.  Kannski rekumst við á þar hver veit ?  Knús á þig krúttlingur. 

JEG, 27.2.2009 kl. 15:33

2 Smámynd: egvania

Ég á síðu á fésinu en mér finnst bloggið meira spennandi.

egvania, 27.2.2009 kl. 15:40

3 Smámynd: María Guðmundsdóttir

ég er sko á fésinu,á mér heilmikid félagslíf thar...hehehe..svona er thad thegar madur kemst ekki svo mikid útur húsi sko  thá verdur madur ad finna sósíallíf annarsstadar. Madur verdur bara ad kunna sér hóf i thvi sem ødru, og láta thad ekki stjórna sinum tima ..ég á stundum erfitt med ad muna thad  en madur er alltaf gódur i ad gefa ødrum rád

knús og kram á thig ,hafdu súbergóda helgi

María Guðmundsdóttir, 27.2.2009 kl. 16:25

4 Smámynd: Sigrún Óskars

mér finnst bloggið skemmtilegra en fésið - er nú samt á fésinu

Góða helgi elskulegur og stórt knús

Sigrún Óskars, 27.2.2009 kl. 16:37

5 Smámynd: Tína

Ég verð að vera sammála þeim sem hérna eru búin að kvitta og segja að mér finnst bloggið skemmtilegra. En mig er að finna á fésinu og bind ég miklar vonir að fá að gerast vinur þinn líka þar. Þú finnur mig undir nafninu Christine Einarsson. 

Knús á þig að vanda elsku vinur og njóttu helgarinnar

Tína, 27.2.2009 kl. 16:58

6 Smámynd: Huld S. Ringsted

Sama hér Tící ég er líka fallin "á fésið" finnst það mjög skemmtilegt en bloggið kíki ég nú alltaf á þegar ég hef nægan tíma (sem er aldrei)

Huld S. Ringsted, 27.2.2009 kl. 19:40

7 Smámynd: Ragnheiður

Heyrðu heyrðu heyrðu..

Nú hvílir á þér sú skylda að finna mig þar og bæta mér í þinn hóp, annað er óásættanlegt. Ég kann vel við fésið, þar er maður innan um þá sem maður vill en ekki opinn og berrassaður eins og á moggablogginu

Ragnheiður , 27.2.2009 kl. 21:09

8 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Hvaða, hvaða er allt að verða vitlaust, bloggarar yfirgefa bloggið fyrir fésbókina.  Mér finnst bloggið miklu skemmtilegra, en ég þurfti náttúrulega að vera "maður með mönnum" og fara líka á fésbókina. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 28.2.2009 kl. 00:00

9 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

Ég er á feisinu og finnst það ágætt þó mér finnist bloggið heldur skemmtilegra. Feisbókin er samt sniðug að því leiti að maður getur fundið nánast alla þar.. Þú mátt alveg finna mig þar, er þar bara á mínu nafni, og ég skal atast með þér þar  Eigðu yndislega helgi ljúflingur

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 28.2.2009 kl. 00:33

10 Smámynd: Einar Indriðason

Sammála Röggu.  Hvernig á mar að finna "tíger" ?

Einar Indriðason, 28.2.2009 kl. 08:24

11 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Passaðu að missa þig ekki alveg

Jónína Dúadóttir, 28.2.2009 kl. 11:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Tiger
Tiger

Ég eyði fúlum og neikvæðum athugasemdum - svo það er tímaeyðsla að henda slíkum fjársjóð hingað inn. Verð hérna bara í flugumynd - lítið sem ekkert sem sagt. Þýðir ekkert að bíta af mér hausinn þrátt fyrir það...

***

Þakka öllum innlitið, en það er ekki þar með sagt að þú sjáir mig spora út síðuna þína!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • jesumynd
  • jesumynd2
  • jesumynd4
  • blómabeðið
  • blómabeðið
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband