Verður gullfiskaminni þitt með þér í aðdraganda næstu kosninga - eða fílsminnið? Hversu langt aftur manst þú .. eða hversu fljót/ur ertu að gleyma?

Steingrímur og JóhannaÞetta er náttúrulega dálítið brilljant, en næsta víst er að ég vona að þetta verði ekki til þess að fólk fari að misnota þetta. Það er alltaf til fólk sem reynir að misnota það sem gott er verið að reyna að gera, fólk sem skoðar hvað sem er með það í huga að hvernig get ég notfært mér þetta og hvað get ég komist upp með hérna ... því miður!

Málið er að ef fólk skuldar slatta, stendur í skilum en er á "nippinu" með að halda hlutunum saman - getur það samt - hættir fólk núna bara ekki að borga og lætur setja sig í gjaldþrot .. hugsar "iss, gjaldþrota bara tvö ár og svo get ég byrjað á startreit aftur án allra skuldanna"! Ég verð að viðurkenna að ég er hrifinn af þessari breytingu og vona að hún komi til með að hjálpa þeim sem sannarlega eru í neyð - en eins og með svo margt og mikið annað - þá eru alltaf skemmd epli innan um allt sem sett er fram og eyðileggur það góða sem verið er að reyna að gera..

Mér sýnist á öllu - samkvæmt blaðamannafundinum í morgun - að þessi ríkisstjórn sé að gera heilmikið og reyndar meira en nokkur önnur ríkisstjórn hefur gert áður - og allt á hvað löngum tíma núna - tveim vikum eða þrem?

Það er von mín að gullfiskaminni fólks sé grafið og gleymt - og að fílsminnið sé uppi á borði - munið hver hefur siglt skútunni síðustu ár eða tug - þangað sem skútan nú hangir á bláþræði í briminu og er hálfsokkin .. látið fílsminnið standa uppúr og kjósið ekki yfir ykkur sama óþjóðalíðinn sem hefur verið við völd alltof lengi. Burt með spillinguna - burt með Sjálfstæðisflokkinn.


mbl.is Kröfur fyrnast á tveimur árum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingrímur Helgason

& latté fyrir því ...

Steingrímur Helgason, 17.2.2009 kl. 23:44

2 Smámynd: Tiger

Haha... jamm Steini, þú þekkir mig - i love Latté! Ég skála líka við þig gormurinn minn..

Tiger, 17.2.2009 kl. 23:45

3 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Já nú skal ekki gleyma neinu.  Sjálfsstæðisflokkurinn, Framsókn og Samfylking eru öll samsek vegna ástandsins í þjóðfélaginu núna   Ég er ennþá að bíða eftir nýju framboði, annars veit ég ekki hvað ég á að kjósa.    Knús í þitt hús. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 18.2.2009 kl. 00:30

4 Smámynd: Tiger

 Já Jóna .. kjósa bara mig!! Ég kýs .. frið á jörð! Lalala ..

Nei, ég kýs sko allt annað en Sjálfstæðismenn - aldrei aldrei þá!  Knúsknús.

Tiger, 18.2.2009 kl. 00:58

5 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Fílsminni mitt er á hápunkti

Jónína Dúadóttir, 18.2.2009 kl. 07:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Tiger
Tiger

Ég eyði fúlum og neikvæðum athugasemdum - svo það er tímaeyðsla að henda slíkum fjársjóð hingað inn. Verð hérna bara í flugumynd - lítið sem ekkert sem sagt. Þýðir ekkert að bíta af mér hausinn þrátt fyrir það...

***

Þakka öllum innlitið, en það er ekki þar með sagt að þú sjáir mig spora út síðuna þína!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • jesumynd
  • jesumynd2
  • jesumynd4
  • blómabeðið
  • blómabeðið
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband