Saumaklúbbafélagsfólk í útsaumsherferð ...

 funnybunnylogo

Já, ótrúlegt en satt - playboy útsaumurinn er góður ránsfengur. Það er ýmislegt hægt að gera við svona púða. Gefa ömmu og afa, enda eru þau löngu búin að gleyma playboy tilfinningunum og er þetta góð leið til að endurvekja æskuæslin. Næsta víst að svona útsaumur mun gefa lífinu á Grund gildi. Reyndar erum við sannarlega að vanmeta ellikerlingu varðandi fiðringinn helgráa. Man eftir því þegar ég sat í eldhúsinu hjá afa og ömmu í gamla daga, þá mjög ungur og þau mjög gömul. Man eftir því að afi hafði uppi miklar playboytilfæringar til ömmu - á meðan amma snéri baki við okkur - og afi að fíflast fyrir augunum á litla pjakknum.

KanínufrúHann beygði sig fram og kleip í bossann á ömmu og hún gargaði upp, snéri sér við og ýtti við playboykarlinum sínum með uppgerðar hneykslun. Man eftir Afa elta ömmu um húsið og stundum úti í fjárhúsum - með uppgerðar spangóli og ljúfum playboy ástarorðum sem þó var stillt innan ramma þess siðlega með ungan áhorfanda sem skemmti sér hið besta með svona hamagang fyrir augunum. Flashback augnablik um Afa og ömmu sko .. bara skemmtilegar playboykanínur þar á ferð...

Að sjálfsögðu man ég líka þær stundir sem ég byrjaði sjáfur að eltast við mína playboykanínu. Þá var nú stuð og snögglegheit, enda æskan fljótari en kanína að klára málin á bakvið næsta hól - nei ég segi nú bara svona. Auðvitað var ég óspjölluð playboy-kanína alveg fram að giftingu, right? Nobb, sooo wrong - en það er náttúrulega önnur Ella og ekki ætlunin að fara nánar út í þá playboysálma hérna.

Mér skilst að Frakkar séu með blóðheitari þjóðum, svo ég skil vel að Playboy útsaumur sé í þeirra augum miklar gersemar - en að ræna heila lest af playboy púðum ... ótrúlegt! Hlýtur að vera grín eða glettni - líkt og Ástþór í framboði - eða Stella í orlofi. Hvernig skildu ræningjarnir ætla sér að losna við fenginn? Svona lagað er auðvelt að rekja þegar kemur að dreifingu, enda Playboy dúllerí vel þekkt og merkilegt nokk, ekki satt?

Lifið heil elskurnar - og ef þið fáið senda playboypúða - þá skulið þið endilega nota þá vel, rifja upp það sem hleypir adrenalíni og orkuflæði upp - og blóði niður, þannig séð.

Púðaslagsmál eru alltaf skemmtileg, líka með playboypúðum - jafnvel þó púðarnir séu illa fengnir.

 


mbl.is Rændu Playboy-púðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 27.4.2008 kl. 20:53

2 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

ég á engan pleiboj púða

ég verð þá bara að sjá alveg sjálfur um allt pleibojjið

Brjánn Guðjónsson, 27.4.2008 kl. 20:59

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 27.4.2008 kl. 21:28

4 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Playboyhvað ????

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 27.4.2008 kl. 21:58

5 Smámynd: Huld S. Ringsted

Huld S. Ringsted, 27.4.2008 kl. 22:01

6 Smámynd: JEG

Ja nú er ég ekki að flygjast nógu vel með *flaut* En knús á þig og sofðu rótt.

JEG, 27.4.2008 kl. 23:00

7 Smámynd: Tiger

  Ussuss.. þið eruð nú öll hálfgerðar playboykanínur sko! Sérstaklega Boxerinn okkar! Viss um að við erum öll svona pínu play something inn við beinið allavega ... grrr!

Tiger, 28.4.2008 kl. 00:33

8 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Geggjað!!!  Hvaða efni ætli þeir noti í púðafyllingar hjá Playboy?

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 28.4.2008 kl. 00:40

9 Smámynd: Tiger

  Hahaha ... Lilja Guðrún.. ég er handviss um að í þessum púðum er ekkert annað en kanínur! Enda eru þetta playboy púðar og allir vita að playboy fylgir alltaf kanína - svo jú - playboypúðar eru stuffed with bunnys. But i hope not samt ... *horror*.

Tiger, 28.4.2008 kl. 00:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Tiger
Tiger

Ég eyði fúlum og neikvæðum athugasemdum - svo það er tímaeyðsla að henda slíkum fjársjóð hingað inn. Verð hérna bara í flugumynd - lítið sem ekkert sem sagt. Þýðir ekkert að bíta af mér hausinn þrátt fyrir það...

***

Þakka öllum innlitið, en það er ekki þar með sagt að þú sjáir mig spora út síðuna þína!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • jesumynd
  • jesumynd2
  • jesumynd4
  • blómabeðið
  • blómabeðið
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband