Er það nektin og kynþokkinn sem selur eða er það söngröddin? Sönghvað?...

Var bara að reyna að laga textaútlitið aðeins... ekkert nýtt samt! Meira sex en söngur - er það söngurinn eða er það kynlífið sem selur plöturnar/diskana/myndböndin??? 

Hér á eftir koma pælingar um söngkonur og menn, fyrst erlendar söngkonur og svo smá bull um íslenska poppliðið – bullað en ekki staðreyndir – bara mitt álit en ekki alhæfingar um hvað og hvernig þetta á að vera eða vera ekki.

Byrjum erlendis: 

Britney Spears:

Klæðaburður – Skólabúningurinn í Baby, One More Time var svolítið barnanýðingslegur en hún fær 8,5 fyrir rauða leðurdressið í Oops, I Did It Again.Miðað við stöllur sínar úr Destiny´s Child og Janet Jackson og fleiri, kemur á óvart hvað Britney getur stundum stillt sig um að sýna bert hold. En.. það er þó mikið farið að sjást í bert síðustu ár...

Kroppurinn – Ungur og sexy án þess að líkjast anorexíutilfelli en rosalega uxu brjóstin á henni hratt *bros* ...

Andlitið – 9,5 það er ekki hægt að fara fram á meiri náttúrulega fegurð.

Sviðsframkoma – Dansatriðin minna of mikið á alla hina, hvar er frumleikinn?

Söngröddin – Sæt, án þess að vera áhrifamikil. 

Niðurstaða:Það þyrfti kraftaverk til að gera Britney að langtímastjörnu – en sem dægurfluga er hún með þeim betri.

--------------------

 Courtney Love:

Klæðaburður – Dýr og ósmekklegur - druslulegur.

Kroppurinn – Allt sem ekki er úr plasti er í meðallagi.

Andlitið – Á góðum degi er það í lagi, á slæmum degi: Hryllingur!

Sviðsframkoma – Eins og drukkin skækja í gólfklúbbnum.

Söngröddin – Söng hvað? 

Niðurstaða:Ekkja Kurt Cobain er undantekningin sem sannar regluna: það borgar sig ekki alltaf að fækka fötunum og gala hátt. Love gleymist fljótt sem söngkona.

--------------

Destiny´s Child:

Klæðaburður - Er hægt að vera meira sexy en þetta? Allir blautlegir draumar rætast. Hvernig væri að kaupa svona dress eins og þær klæðast, á konuna? Silfurlitaður g-strengur, leðurbrjóstarhaldarar og lakkstígvél uppá læri! Sumum þykir stundum um of og skelfilegt hve lítill klæðnaðurinn í raun er - en þetta höfðar til enn fleiri sem kaupa sannarlega allt sem frá þessum glæsimeyjum kemur.

Kropparnir – Vel má vera að þær séu mótaðar af bestu lýtalæknum vestra en útkoman gæti ekki verið betri.

Andlitin – þrisvar sinnum “Gyðja” ..

Sviðsframkoma – þessu skilaði síðkvennabaráttan – réttinum til að vera bæði áreitin og sexy. Karlmenn lepja þær í sig!Söngraddir – Hlustið á þær syngja “Emotion” eftir Bee Gees. Þær syngja eins og englar. 

Niðurstaða:Kannski eiga þær ekki eftir að vera í brasanum til æviloka en þær eru þegar búnar að setja sín nettu fingraför á tónlistarsöguna.

-------------

Janet Jackson:

Klæðaburður – Getur gert hvað mann sem er brjálaðan.

Kroppurinn – Janet er eins og Oprah að því leyti að hún margfaldast ef hún fer í frí en þegar Janet er í toppformi er hún fegurðardís.

Andlitið – Getur verið að Janet sé á fílaskammti af Fontex? Hvað finnst ykkur um þetta eilífðarbros?Sviðsframkoma – Dansatriðin eru lýtalaus en vitanlega sjá allir að þetta er allt fengið að láni hjá Michael bróður.

Söngrödd – Snotur en engan veginn minnisstæð. 

Niðurstaða: Janet er mikill dansari en það er ekki hægt að tala um hana sem söngstjörnu.

---------------

 Jennifer Lopez:

Klæðaburður – J.Lo er oft eins og hún hafi týnst inni í stelpnadeild H&M en hún er samt svo sæt að hana myndi klæða að vera í eldhúsgardýnu.

Kroppurinn – Allt er gott þegar endinn er góður, og hann er það.

Andlitið – Laglegt en hún er ekki ægifögur í nærmynd.

Sviðsframkoma – Jennifer ætti að láta ógert að koma fram á live-tónleikum, myndbönd hennar eru flottari en tónleikahald hjá henni minna á ódýra útgáfu af Madonnu.

Söngrödd – Guði sé lof fyrir tækniframfarir í hljómplötuútgáfubrasanum. 

Niðurstaða:Augnakonfekt en tónlistarlega séð í mesta lagi neðanmálsgrein.

--------------

 Madonna:

Klæðaburður – Hún leggur línuna og hefur alltaf gert. Madonna stælir engan en allir stæla Madonnu.

Kroppurinn – Aðeins of vöðvuð, aðeins of lítil kvennleg mýkt.

Andlitið – Madonna eldist með reisn og sem betur fer má sjá aldur hennar á andlitinu.

Sviðsframkoma – Madonna stælir engan en allir stæla Madonnu – hún leggur línurnar og hefur alltaf gert.

Söngrödd – Madonna spilar vel úr því sem hún hefur. 

Niðurstaða:Það er ekki hægt að ofmeta þau áhrif sem Madonna hefur haft á tónlist og menningu síðustu 20 ára. Madonna verður alltaf “hot”. 

------------------------------- 

Kylie Minogue:

Klæðaburður – Ohhhhhhh!

Kroppurinn – Ohhhhhhh!

Andlitið – Ohhhhhh!

Söngröddin – Uhh! 

Niðurstaða: Ástralska poppdrottningin er í kringum hvað -  fertugt og nýtur meiri vinsælda og er meira sexy en nokkru sinni fyrr. Ef Kylie hefði verið dægurfluga væru dagar hennar taldir fyrir löngu en þess í stað er hún komin á réttu hilluna og þaðan getur hún í rólegheitum gert alla blóðheita karlmenn brjálaða! Tónlistalega séð er hún brilljant.-------------------

================================

 Kíkjum þá aðeins á íslenskt tónlistarfólk. Munið nú að þetta sem hér á eftir fer er eingöngu mín eigin persónulega skoðun en alls ekki það sem allir eiga að vera sammála mér um... 

Birgitta Haukdal:

Klæðaburður – Smekklegur en á stundum til að vera að reyna að líkjast einhverri barbí, mætti gjarnan vera örlítið djarfari í klæðaburði.

Kroppurinn – Vel vaxin, grönn og smart án þess að líkjast anorexíutilfelli - góð fyrirmynd.

Andlitið – Falleg stúlka en mætti vel hætta að reyna að vera “svonalítilstelpa” thíhíhí ...

Sviðsframkoma – Nokkuð fín á sviði, hreyfingar góðar og þokkafullar en þarf að vinna mikið í fótaburði, virkar stundum hrikalega “hjólbeinótt” ...

Söngrödd – Þokkaleg, finn þó enn fyrir þessum “barbídúkkuhljóm” hjá henni.  

Niðurstaða:Birgitta er heillandi söngkona sem nær vel til unglinga í dag, hún er jú stjarnan.  Hún mætti hins vegar alveg fara að vaxa uppúr því að leika einhverja saklausa dúkkulísu sem fáir fíla nema krakkar frá 5 ára til fermingar. Ef hún fer ekki að þroskast upp úr því að leika “saklausa” stúlkukind og taka áhættur í söng mun hún ekki lifa tónlistarlega séð mikið lengur - nema í augum nýrra og nýrra kynslóða - fyrir fermingaaldurinn. Það verður ekkert vandamál að “gleyma” Birgittu þegar hún fer af sjónarsviðinu. Sem dægurfluga er hún stórfín, en dægurflugur missa vængina fljótt.

---------------------

 Sigga Beinteins:

Klæðaburður – aðeins of íhaldssöm, mætti alveg poppa sig aðeins upp og vera djörf.

Kroppurinn – Glæsileg kona sem gaman er að horfa á, sómir sér vel hvar sem er.

Andlitið – Fallegt andlit, fallegt bros. Geislar af andliti hennar innri fegurð.

Sviðsframkoma – Virðist oft á tíðum feimin á sviði en samt örugg, má hoppa og skoppa aðeins meira.

Söngrödd – Stórkostleg!!! Vildi óska þess að ég ætti enn upptökuna af því þegar hún söng hjá Hemma Gunn lagið “when a man loves a woman” - það situr enn í mér og ég fæ enn gæsahúð þegar ég hugsa til baka um fjölmörg ár. 

Niðurstaða:Sigga er ein af þessum perlum sem aldrei falla í verði. Hún er og verður ætíð í hjarta okkar “Stjarna” og ef eitthvað er þá eldist hún eins og vínin, betri með hverju ári. Hún má þó alveg vera óhrædd við að poppa upp klæðnað sinn því hún er geggjað flott og verður alltaf “hot”... það verður auðvelt að muna eftir siggu löngu eftir að hún hættir að syngja fyrir okkur, sem ég vona að verði laaaannnnggggt í.

-------------------

Bubbi Morteins:

Klæðaburður – Klæðir sig eftir aldri sem er þokkalegt, ekkert að reyna að vera of mikill töffari þó hann virki þó alltaf alger gaur. Mætti reyndar loosin up örlítið, slaka á og hætta að horfa á alla hina af stallinum. 

Kroppur – heldur sér vel og eldist þokkalega, virðist koma til með að verða þokkalegasti fýr í ellinni.

Andlitið – Fjaskafallegur – ætti ekki að láta taka nærmyndir af sér því þær myndu verða misheppnaðar og einungis til þess gerðar að sýna hvað hann er orðinn gamall í raun og veru.

Sviðsframkoma – Sviðshvað? Steindauður náungi sem situr eða stendur og hreyfist ekki baun.

Söngrödd – Langt frá því að vera einhver söngstjarna. Hann er samt orðinn það frægur - fyrir eitthvað - að hann þarf ekki annað en að tauta eitthvað með sjálfum sér til að gera tautið vinsælt. 

Niðurstaða:Bubbi er og verður alltaf Bubbi. Þegar menn eru orðnir svona hrikalega þjóðþekktir þá skiptir eiginlega ekki neinu þó tónlistin sé orðin leiðinleg og stöðnuð hjá þeim – þeim tekst alltaf að selja það sem þeir eru að gera. Maður er bara vanur honum og hann kemur líklega til með að vera endalaust að troða á okkur “tónlist” vegna þess að hann er orðinn rótgróinn.

-------------

Björk:

Klæðaburður – Ohh my God! Einstök, hún er eins og Madonna – stælir engan! Það er auðvitað það sem gerir hana líka sérstaka.

Kroppurinn – Grönn og nett – getur klætt sig hverju sem er án þess að skammast sín vegna þess að hún er vel vaxin.

Andlitið – Stórkostleg, sérstök og ákveðin útgeislun sem líka gerir hana sérstaka, engin sykurmoli samt í útliti.

Sviðsframkoma – Fjörug og lifandi, live tónleikar eru einmitt eitthvað sem er sniðið fyrir hana en myndböndin eru alls ekki nógu lifandi – þrátt fyrir að vera góð, hún á að vera á sviði því þar nýtur hún sín langbest.

Söngrödd – Skræk, oft þreytandi en mjög sérstök og jú einstök – þess vegna er hún fræg. 

Niðurstaða:Björk er svo frumleg og sjálfri sér samkvæm að það fleytir henni alls staðar á toppinn. Hún er ekki með beint fallega rödd en hún er virkilega sérstök og manni langar alltaf til að heyra í henni aftur og aftur og aftur ... hún deyr aldrei út því hún er búin að skrifa nafn sitt í skýin og fólk kemur alltaf til með að muna eftir “Björk”.

-----------

Jónsi:

Klæðaburður – Alltof mikill töffari, þröngar buxur og litlir bolir – til hvers? Eingöngu til að sýna litlu stelpunum hvað hann er vöðvaður. Klæða sig betur og eftir aldri..

Kroppurinn – Virkilega skorinn og vel vaxinn, vöðvastæltur.

Andlitið – Sætur strákur í fjarlægð. Nærmyndir eru hans martröð, dettur alltaf í hug “hauskúpa” þegar ég sé nærmynd af honum. Æðar á t.d. hálsi alltof áberandi í nærmyndum á tónleikum sem skemmir mikið.

Sviðsframkoma – Mikill fjörkálfur og á vel heima á sviði – á sveitaböllum lengst uppi í sveit!

Söngrödd – Sönghvað??? 

Niðurstaða:Jónsi er langt frá því að vera góður söngvari,. Sem dægurfluga er hann á flugi eingöngu vegna þess að hann er svo mikill “töffari” og hann nær að heilla unglingana með hoppi og látum en án unglinga væri Jónsi ekki neitt. Hann ætti frekar að fara út í líkamsrækt og fara í keppnir þar, hann gæti náð langt í fitness. Fólk verður fljótt að gleyma honum þegar hann missir dægurfluguvængina svo líklega ætti hann að hafa eitthvað annað til að hlaupa í þegar þar að kemur.

-------------------

Diddú:

Klæðaburður – Alltaf flott á því. Virðuleg til fara og snyrtileg, sannarlega glæsileg kona.

Kroppurinn – Kona með sannarlega kvennlegar línur, dálítið þybbin stundum en samt svo kvennleg og þokkafull, getur vel komið mönnum til að snúa sér í marga hringi af hrifningu.

Andlitið – Stórkostlegt bros sem nær til augnanna, glansandi andlit sem nautn er að horfa á. Maður kemst í gott skap þegar maður horfir framan í Diddú.

Sviðsframkoma – Svífur um, stórkostleg og virðist algerlega veraldarvön – það sópar að henni og maður nýtur þess að horfa á hana á sviði.

Söngrödd – Gimsteinn hvernig sem á það er litið, bæði fyrr á árum sem og í nútíðinni skarar hún framúr flestum.  

Niðurstaða:Diddú er ein af þeim söngkonum sem alltaf ná til hjarta manns, hún syngur eins og lævirkinn sem lækna getur hvaða mein sem er. Hún er á heimsmælihvarða og mun aldrei gleymast – sígild og glæsileg kona sem alls staðar verður tekið eftir. Hún var stórkostleg dægurfluga á sínum tíma en er nú orðin stjarna sem situr föst á himnum, innan um hinar stórstjörnurnar, um ókomna tíð.

---------------- 

Ég gæti talið upp alla okkar stórkostlegu söngvara – sem og líka þá sem bara fljóta einhvern vegin áfram án sönghæfileika. En ég ætla að láta staðar numið hérna enda er þetta þegar orði nokkuð langt hjá mér. Vona að einhver hafi haft gaman af þessu og munið að flest af þessu er bara mín persónulega skoðun en á engan hátt eitthvað sem öðrum finnst, sumt er líka tekið úr gömlum tímaritum. Ég er alls engin sérfræðingur í að dæma svona hluti, er bara að pæla í þessu og langaði bara til að deila þessu með ykkur ... Sooo núna verður maður bara að vona að engin fari í mál við mig. En það er nú svo sem ekkert mál að eyða nafni út ef í það væri farið.

Njótið helgarinnar vel og vandlega ...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Guðmundsdóttir

nektin og kynthokkinn selur....ekki spurning..svo er bara dubbad i stúdíóinu en svo eru ein og ein drottning sem slær i gegn vegna SØNGS sjádu Celine Dion, Whitney,Mariuh Careyh..t.d .thetta eru adaldrottningarnar sem thurfa ekki ad rífa af sér spjarirnar til ad slá i gegn. ef thú tharft thess thá er thad af thvi eitthvad vantar...eller hva

Eigdu frábæra helgarrest,knus og kram   

María Guðmundsdóttir, 19.4.2008 kl. 06:58

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Þetta var gaman

Jónína Dúadóttir, 19.4.2008 kl. 08:07

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Æi þetta var krúsi dúlluleg upptalning, gaman að lesa þetta því ég pæli yfirleitt aldrei í þessu horfi heldur ekki, bara hlusta á, en hef aðallega hlustað á Japanska poppmúsík að undanförnu, þau hafa metnað krakkarnir og klæðnaðurinn eftir því. myndböndin afar vel gerð, hef neyðst til að hlusta og horfa, tvíburarnir mínir elska þessa músík og koma ætíð með ný og ný bönd á flakkaranum er þær koma um helgar. Hætt áður en ég held frekari ræðu um þennan músík smekk þeirra.
                                              Knús knús Tiger míó míó
                                                     Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 19.4.2008 kl. 08:49

4 Smámynd: JEG

Já sæll bara í stuði hehe.... já þetta er fín lesning þó að ég sé nú ekki dómbær á allt sem upptalið er. En hvað um það. Vantar jú nokkra sem mér finnast góðir - flottir og bera af.

Knús og njóttu helgarinnar.

JEG, 19.4.2008 kl. 10:13

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Margt til í þessu hjá þér.  Vildi hafa séð Tinu Turner þarna líka og Celina Dion, flottar söngkonur, Hera Björk, Regína Ósk eru flottar þó þær séu ekki barbiedúkkur. 

En það er gaman að þessari úttekt, og eins og ég segi margt af viti þarna hjá þér TíCí minn. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.4.2008 kl. 12:16

6 Smámynd: Tiger

  Ææææ... skelfing er að sjá. Ég setti þetta inn en skoðaði ekkert afraksturinn en sé núna að textinn hefur farið heilmikið úr skorðum. Skrifaði þetta í word og hafði þetta miklu betur uppsett en svona er það þegar maður skoðar ekki það sem maður er að henda inn ... *dæssss*...

María Guðmunds: Jamm, svo satt að það eru mjög margar dívur sem aldrei þurfa að fara úr svo miklu sem sokk, enda sannar söngkonur með englarödd.

Jónína Dúa: Uzz.. það þarf svo lítið til að gleðja fyrrverandi fjallabúa. Knús á þig ljúfust.

Milla mín: Ég horfi mjög mikið á tónlistamyndbönd og hef mikið gaman af því að pæla í hlutunum í kringum söngstjörnurnar. Endalaust hægt að hafa gaman af þeim ef út í það er farið sko ... :)

JEG: Ójá, það eru til svo margir sem ekki eru upptaldir hérna, endalaus listi yrði það ef þannig væri tekið á því og allir settir inn..

Ásthildur mín: Tina Turner er ein af mínum uppáhalds, Celina Dion alltaf glæsileg.. og Regína er ein af mínum uppáhalds hér heima og finnst mér hún alltaf æði - en hún mætti samt aðeins poppa upp litina í fatnaðinum. Knúserí í laugardaginn ykkar dúllurnar ...

Tiger, 19.4.2008 kl. 12:51

7 Smámynd: Brynja skordal

það er ein persóna þarna sem ber af Falleg/ur og góð/ur söngvari punktur hver skyldi það vera?  hafðu ljúfa helgi minn kæri

Brynja skordal, 19.4.2008 kl. 12:56

8 identicon

Hæ hæ elskulegur,

ja hér þú ert nú alveg ótrúlegur, hver ertu minn kæri? Allavega eitthvað skildur mér því það leynist í þér ofurskutl!

knús á þig og ofurskutlukveðjur!

Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 19.4.2008 kl. 13:13

9 Smámynd: Tiger

  Well Brynja mín ... Diddú er alltaf langflottust að mínu mati og ber hún alltaf af hvar sem hún fer. En það eru auðvitað til mjög margir fallegir og góðir listamenn/konur í þessum geira og það vantar helling sem ég ekki taldi upp hér. Gaman væri að vita hver það er sem þér finnst bera svona mikið af.. *bros*..

Tiger, 19.4.2008 kl. 13:14

10 Smámynd: Tiger

  Ofurskutlan mín ... veistu - ég er handviss um að við gætum vel ofurskutlast um allar tryssur ef út í það er farið. Það er heilmikil ofurskutla eða töffari í okkur öllum, en sumir þora bara ekki að hleypa slíku fram í dagsljósið - sérstaklega ekki núna þegar allt þetta "Gay" flæði er í svo mörgu í þjóðfélaginu .. án þess að það sé á neinn hátt slæmt! Skutl- og töff kveðjur til baka ljúfan..

Tiger, 19.4.2008 kl. 13:18

11 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

3D Prom Queen  3D Prom Queen 3D Prom Queen  allt of mikill pjölluhristingur að mínu mati hjá þessum berrössuðu  flott samantekt hjá þér

Ásdís Sigurðardóttir, 19.4.2008 kl. 13:56

12 Smámynd: Tiger

  Já Ásdís mín.. stundum gæti maður haldið að einn og einn listamaður sem á að kallast söngvari - sé frekar að reyna að selja G-strengi eða súludans.

Tiger, 19.4.2008 kl. 13:59

13 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

hmmm....jammm...ok....amm.....nú jæja, Diddú...ha! búið?

hvar er Palli? hann á það líkt með stóru systur að vera einlægur.

ætla ekki að fjasa mikið meira, en er þó ósammála þessu sem þú segir um Jónsa. Að hann ætti að klæða sig eftir aldri.

þann dag sem ég hætti að hlæðast því sem ég fíla og fer að klæða mig samkvæmt staðalímynd eð hvað það er.....þann dag er ég orðinn gamall, í huga og hjarta.

hevva næs víkend

Brjánn Guðjónsson, 19.4.2008 kl. 15:30

14 Smámynd: Tiger

  Hóhóho... Brjánn minn flotti Boxer. Palla þarf varla að tala um - ekkert frekar en systur hans - enda alltaf mjög flottur með ljúfustu rödd sem ætíð er hugljúft að hlusta á. Fíla Palla mjög vel og fylgist vel með drengnum.

Þegar ég segi að Jónsi eigi að klæða sig eftir aldri - meina ég á sviðinu - hætta að reyna að höfða til unglinganna og litlu stelpnanna. Hann er töffari, flottur náungi og mér fyndist hann bara vinna á ef hann væri svalari í fatavali og hætti þessum þröngu fötum bissness á sviðinu. Mér finnst aldrei flott að sjá rúllupylsuklæðnað þegar fólk er að hoppa eða skoppa fyrir framan fjöldann..

Er algerlega sammála þér með að maður á alls ekki að klæða sig eftir staðalímynd heldur bara því sem manni líður vel í og fílar í botn. Almennt á maður alls ekki að klæða sig eftir aldri - finnst það bara eiga við þegar fólk er opinber eign - þannig séð... knús á þig ofurbloggari!

Tiger, 19.4.2008 kl. 15:40

15 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Sko - Tigercopper, hvernig ferðu að þessu ? þú hlýtur nú að vera í einhverskonar snyrti/músíkgeira. Blanda af Hemma Gunn og Páli Óskari sýnist mér!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 19.4.2008 kl. 18:16

16 Smámynd: Sigurbjörg Sigurðardóttir

Mjög skemtilegt að lesa,Hrós,hrós.

Sigurbjörg Sigurðardóttir, 19.4.2008 kl. 18:38

17 Smámynd: Tiger

  Alltaf jafn gaman að spá í hitt og þetta - aðallega þetta... þannig séð.

Helga mín: Diddú er æðisleg, sammála því - en Jónsi er ekki í neinu uppáhaldi hjá mér, en hann væri það kannski ef hann væri líkamsræktarfrömuður.

Jóhanna M&V: Uzzzz... nei ég er sko engin snyrti/múzík dúddi. Ég er alger blanda af pípara og kokki, grallara og heimsflakkara ... :)

Sigurbjörg: Takk kærlega fyrir, og takk fyrir innlit...

Tiger, 19.4.2008 kl. 21:15

18 Smámynd: Adda bloggar

Adda bloggar, 19.4.2008 kl. 23:59

19 Smámynd: Brynja skordal

Ja há Bros þú hlýtur að vita hvern ég meina ekki satt enda held ég að það hafi oft komið framm bæði í kommentum og mínu bloggi en já misjafn er smekkur manna sem betur fer segi ekki annað

Brynja skordal, 20.4.2008 kl. 00:00

20 Smámynd: Tiger

  Knús til baka á þig Adda mín...

  Brynja... ! Átss.. auðvitað ertu skotin í Bubbanum, hvað annað..

Ég hef reyndar aldrei verið Bubbamaður og hef aldrei fílað tónlistina hans - en þekki samt marga sem fíla hann í botn og alls ekkert slæmt við það sko!

Knús á ykkur öll og eigið ljúfan sunnudag ..

Tiger, 20.4.2008 kl. 00:37

21 Smámynd: G Antonia

þú ert aldeilis vel að þér í þessum "geira" Tigercopper.... ég fór að hugsa eins og Jóhanna, þú værir blanda af Berþóri og Heiðari snyrti ásamt Hemma Gunn eða  Ladda ...  Ég er náttúrulega ekkert að mér í þessum ungu söngvurum en fíla MAGNA þó í  tætlur, Pál Óskar, Diddú, of fl... en Bubba mega aðrir dást af   Tina Turner er jú óviðjafnanleg . En þetta er vel útskorið hjá þér og sýnir að þú ert INN í öllu nánast, enda blanda af pípara, kokki, grallara og heimsflakkara
laugardagsknús  

G Antonia, 20.4.2008 kl. 01:36

22 Smámynd: Tiger

  Ójá G. Antonia.. ég er svo mikið sammála þér með að það mega aðrir dáðst að Bubbanum okkar - og það í friði. Sjálfsagt eru margir sem fíla hann mjög vel og það er bara gott og blessað, enda já eins og Brynja segir - smekkurinn er misjafn. En jamm, erum við bara ekki öll einhverjar samansetningar af hinum og þessum - blöndumst öll í flest sem við gerum...

Eigðu nú góðan Sunnudag ljúfust..

Tiger, 20.4.2008 kl. 03:07

23 Smámynd: Solla Guðjóns

 á eftir að kíja betur

Solla Guðjóns, 20.4.2008 kl. 23:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Tiger
Tiger

Ég eyði fúlum og neikvæðum athugasemdum - svo það er tímaeyðsla að henda slíkum fjársjóð hingað inn. Verð hérna bara í flugumynd - lítið sem ekkert sem sagt. Þýðir ekkert að bíta af mér hausinn þrátt fyrir það...

***

Þakka öllum innlitið, en það er ekki þar með sagt að þú sjáir mig spora út síðuna þína!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • jesumynd
  • jesumynd2
  • jesumynd4
  • blómabeðið
  • blómabeðið
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband